Morgunblaðið - 05.06.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.06.1999, Blaðsíða 1
124. TBL. 87. ÁRG. LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Meginforsenda friðarsamkomulags G-8 hópsins og Júgóslavíu- stjórnar hvílir á brottflutningi serbneskra hersveita frá Kosovo Framhaldið í höndum stjórnvalda í Belgrad Helsinki, Belgrad, Brussel, Washington. Reuters, AFP. MARTTI Ahtisaari, forseti Finn- lands og sérlegur sáttasemjari G-8 hópsins svonefnda, sagðist í gær vera vongóður um að takast mundi að koma á friði á Balkanskaga en lagði jafnframt áherslu á að fram- ■ haldið væri nú í höndum stjóm- valda í Júgó- slavíu. Strobe Talbott, aðstoð- arutanríkisráð- herra Bandaríkj- anna, sem stadd- ur var í Helsinki í gær og fundaði þar með Ahtisa- Clinton ari um fram- kvæmd friðarsamkomulagsins sem Slobodan Milosevie Júgóslavíufor- seti undirritaði á fimmtudag, sagði að þótt friður virtist nú á næsta leiti myndi Atlantshafsbandalagið (NATO) hafa vakandi auga með Júgóslavíu allt þar til tryggt væri að hersveitir Serba hefðu haldið frá Kosovo-héraði eins og samkomulag- ið gerir ráð fyrir. Loftárásum yrði „haldið í skefjum“ uns fyrir lægi að friðanúlji yrði sýndur í verki. Síð- degis í gær var ákveðið að fuítrúar NATO og Júgóslavíuhers myndu mætast á landamærum Júgóslavíu og Makedóníu í dag þar sem Mich- ael Jackson, hershöfðingi og fulltrúi NATO, myndi gefa fyrirmæli um framkvæmd brottflutnings serb- neskra hersveita frá Kosovo-héraði. Tilkynning um landamærafund- inn barst frá höfuðstöðvum NATO í Brussel síðdegis í gær og var lögð áhersla á að Jackson hershöfðingi myndi ekki gegna því hlutverki að taka við formlegri uppgjöf júgóslav- neska hersins. Ekki var ljóst hver myndi verða sendur fyrir hönd júgóslavneska hersins en Dragoljub Ojdanic, hershöfðingi og yfirmaður sameinaðs herafla Júgóslavíu, er einn þeirra fimm Serba sem nýverið voru ákærðir fyrir stríðsglæpi af stríðsglæpadómstóli Sameinuðu þjóðanna í Haag. Fundarstaðnum hefur verið haldið leyndum. Bill Clinton Bandaríkjaforseti sagðist í viðtali við bandarísku sjón- varpsstöðina ABC í gær bíða óþreyjufullur eftir því að hægt væri að stöðva loftárásir NATO á Júgó- slavíu en lagði ríka áherslu á að slíkt kæmi ekki til fyrr en íyrir lægju sannanir _um brottflutning hersveita Serba. I Ijósi reynslu síð- ustu rúmlega sex ára yrði að gæta fyllstu varúðar er Milosevic væri annars vegar. Dæmin sönnuðu að hann væri maður er gengi á bak orða sinna. Engin aðstoð uns Milosevic afsalar sér völdum Mikill þrýstingur er nú á Milos- evic að afsala sér völdum. í lok leið- togafundar Evrópusambandsins (ESB) í Köln í gær gerðu leiðtogar Frakklands, Þýskalands og Bret- lands lýðum það ljóst að Serbía myndi ekki hljóta alþjóðlegt fjár- magn til aðstoðar við endurupp- byggingu landsins vegna stríðsins meðan Milosevic væri enn við völd. Tony Blair, forsætisráðherra Bret- lands, sagði að Serbía ætti að taka sér stöðu á meðal lýðræðisþjóða en slíkt væri ógerlegt á meðan Milos- evic, yfirlýstur stríðsglæpamaður, sæti á valdastóli. „Þótt almenningi finnist sem nútíðin sé skuggaleg, þá er framtíðin björt ef þjóðin grípur tækifærið," sagði Blair. Viktor Tsjémómýrdín, sérlegur erindreki Rússlands í Kosovo-deil- unni, sagði í gær að hann hefði full- an stuðning Borísar Jeltsíns forseta við friðarsamkomulagið sem hann og Ahtisaari gerðu við stjómvöld í Belgrad í vikunni. Jeltsín hefur hins vegar ekki tjáð sig opinberlega um samkomulagið og háttsettir menn innan rússneska hersins hafa gagn- rýnt samkomulagið harðlega. Tahð er að Sergei Stepashin utanríkis- ráðherra hafi verið tregur til að fall- ast á samkomulagið en í gær gaf hann út þá yfirlýsingu að Rússar myndu fallast á grundvallaratriðj samningsins - með semingi þó. í viðtölum við Reuters í gær töldu þingmenn í Dúmunni, rússneska þinginu, að utanríkisráðuneytið vildi ekki láta bendla sig við sam- komulagið sem gert var. Þá eru uppi grunsemdir að forsetinn sé ekki alls kostar ánægður með fram- tak Tsjérnómýrdíns til lausnar deil- unni á Balkanskaga. Rússar og Kín- verjar hafa krafist þess að loftárás- um NATO verði hætt án tafar. Herþotur NATO héldu í gær áfram loftárásum á skotmörk í Júgóslavíu. Og þykir sýnt að banda- lagið ætli að halda aðgerðum sínum áfram uns fyrir hggi að Serbar hafí hoi-fið frá Kosovo. Þá hefur NATO hafið undirbúning að því að senda alþjóðlegt friðargæslulið u.þ.b. 50.000 hermanna inn í Kosovo. Sagði Javier Solana, framkvæmda- stjóri NATO, í gær að hægt yrði að hefja slíkar aðgerðir innan skamms. ■ Samsetning gæsluliðs/26 Minningar- athöfn í Hong Kong „Á MEGINLANDI Kína eru minningarathafnir bannaðar og því tel ég mig heppinn að vera staddan á eina staðnum í landinu þar sem við getum á opinskáan hátt minnst atburðarins." Þetta sagði einn þátttakenda í u.þ.b. 50.000 manna kertavöku í Hong Kong í gærkvöldi til minningar um þá sem létust í blóðbaðinu á Torgi hins himneska friðar fyrir tíu árum. Til Hong Kong höfðu Kínverjar komið víðsvegar að til að tjá hug sinn þennan dag. Sungu mótmælendurnir lög sem námsmennirnir höfðu haft í há- vegum í mótmælunum 1989 og enn var þess krafist að lýðræðis- legum umbótum yrði komið á í Kína. Einn þátttakendanna bar þessa von í brjósti sér: „Eg vona að dag einn getum við haldið slíka minningarathöfn á Torgi hins himneska friðar. Það myndi vera til marks um að Kína hefði tekið einhverjum framíorum." ■ Spennuþrungin kyrrð/28 Reuters Solana nýr „utan- ríkisráðherra“ ESB Köln. AFP. JAVIER Solana, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO), hefur fallist á að taka við nýrri stöðu æðsta yfirmanns utanríkis- og vamarmála hjá Evrópusambandinu (ESB). Hans bíður það verkefni að skipuleggja áhrifaríkari utanríkis- og vamarmálastefnu sambandsins er geti notið hemaðarlegs stuðnings óháð Bandaríkjunum. Leiðtogar bandalagsríkjanna samþykktu á fundi sínum í Köln, er lauk í gær, að skipa Solana í þetta nýja hlutverk innan bandalagsins. Þótt svo eigi að heita að helstu hernaðarveldin innan bandalagsins, Bretland og Frakkland, ættu að geta komið til aðstoðar er hætta steðjar að, hefur Kosovo-deilan leitt í ljós hversu háð Evrópuríkin eru Bandaríkjun- um bæði er varð- ar pólitískt frum- kvæði og hemað- arlegan mátt. Bandaríkja- stjórn fagnaði í gær því frum- kvæði ESB að ganga fyrsta skrefið í átt að samræmdri varnarstefnu. Sagði James Rubin, talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins, að fulltrúar ESB hefðu ráðfært sig við Bandaríkjastjórn áður en til- Solana kynnt hefði verið um yfírlýsingu leiðtogafundarins. Sagði hann þessa þróun vera í samræmi við það sem ákveðið hafði verið á há- tíðarfundi NATO í Washington í apríl sl. Sérfræðingar segja að á þeim þremur og hálfu ári sem Solana hef- ur verið yfirmaður NATO hafi hann sýnt leiðtogahæfileika sína í verki með því að leiða bandalagið í gegn- um Bosníudeiluna og nú í Kosovo- deilunni, og er hann sagður hafa gegnt lykilhlutverki í að halda ein- drægni meðal aðildarríkja banda- lagsins. ■ Yfirlýsing ESB/29 Réttarhöldin yfír Abdullah Öcalan Stympingar í réttarsalnum Imrali. AFP. TYRKNESKIR hermenn urðu að stilla til friðar er áflog bmtust út við réttarhöldin yfir Kúrdaleiðtoganum Abdullah Öcalan á fangaeyjunni Imrali í gær. Varð dómari í málinu að rýma réttarsal um stund áður en hægt var að hefja málflutning að nýju. Réttarhöldum var síðan frestað þar til á þriðjudag, er sækj- endur munu flytja lokaræðu sína. Ryskingamar hófust þegar verj- endur Öcalans fóru fram á að fjöl- skyldur þeirra skæruliða Verka- mannaflokks Kúrdistans (PKK), sem fallið hafa í átökum við tyrkneskar öryggissveitir, yrðu samþykktar sem stefnendur í málinu, rétt eins og ætt- ingjar þeirra tyrknesku hermanna sem látist hafa í átökunum. Ættingjar fallinna hermanna, sem voru í réttarsalnum, brugðust hins vegar ókvæða við þessu og mót- mæltu harðlega. Kom til stympinga og urðu tyrkneskir hermenn að skakka leikinn. Dr. Magnús K. Hannesson, varafastafulltrúi íslands hjá Evrópu- ráðinu, var viðstaddur réttarhöldin yfir Öcalan í gær. En Island, sem nú gegnir formennsku í ráðherraráði Evrópuráðsins, hefur fengið form- legt leyfi tyrkneskra stjómvalda til að fylgjast með réttarhöldunum yfir Kúrdaleiðtoganum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.