Morgunblaðið - 10.06.1999, Blaðsíða 1
4
I
e
STOFNAÐ 1913
128. TBL. 87. ARG.
FIMMTUDAGUR 10. JUNI1999
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Júgóslavneskir hershöfðingiíar undirrita samning við NATO
Samþykkja að flylja
herlið sitt frá Kosovo
Brottflutningi serbnesku hersveit-
anna á að ljúka innan ellefu daga
Kumanovo, Brussel, Washington, Belgrad. Reuters.
JÚGÓSLAVNESKIR hershöfðingjar undirrituðu í gærkvöldi samning
við yfírmenn hersveita NATO um að serbnesku hersveitii’nar í Kosovo
yrðu fluttar þaðan á ellefu dögum. Standi Serbar við samninginn verð-
ur hann til þess að NATO hættir loftárásum sínum á Júgóslavíu og
fjölþjóðlegar hersveitir verða sendar inn í Kosovo til að tryggja að
hartnær milljón landflótta íbúa héraðsins geti snúið þangað aftur.
Bandarískir embættismenn sögðu
þó að loftárásunum yrði haldið
áfram þar til sannað þætti að brott-
flutningurinn væri hafínn. Javier
Solana, framkvæmdastjóri NATO,
myndi þá gefa fyrirmæli um að
lofthernaðinum yrði hætt og Rússar
myndu beita sér fyrir þvi með vest-
urveldunum að öryggisráð Samein-
uðu þjóðanna staðfesti
friðarskilmálana.
Samkvæmt samn-
ingnum eiga Serbar að
flytja öryggissveitir
sínar frá Kosovo i
þremur áföngum innan
ellefu daga, að sögn
bandarískra embættis-
manna. Neboisa Vu-
jovic, aðstoðarutanrík-
isráðherra Júgóslavíu,
sagði að brottflutning-
urinn myndi hefjast í
dag og skoraði á NATO
: að hætta loftárásunum
strax.
Bandarískur emb-
ættismaður sagði að
Júgóslavíuher hefði
samþykkt alla skilmála NATO og að
friðargæslusveitimar, sem senda á
til Kosovo, yrðu undir stjóm banda-
lagsins.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
kvaðst „mjög ánægður" með samn-
inginn og sagði hann „annað mikil-
vægt skref ‘ í þá átt að koma á friði í
Kosovo.
G-8 hópurinn hjó á hnútinn
Yfirmenn hersveita NATO og
júgóslavnesku hershöfðingjarnir
undirrituðu samninginn í frönskum
herbúðum í Makedóniu laust eftir
kl. 19 að ísl. tima í gærkvöldi eftir
mjög viðburðaríkar samningavið-
ræður. Nokkram klukkustundum
áður höfðu júgóslavnesku samninga-
mennirnir slitið viðræðunum og
haldið áleiðis til Belgrad í því skyni
að ráðfæra sig við júgóslavnesk
stjórnvöld. Þeir snera hins vegar við
á miðri leið, hringdu í yfirmenn
NATO og sögðust hafa fengið „ný
fyrirmæli" frá stjóm Slobodans
Milosevic Júgóslavíuforseta og vilja
halda viðræðunum áfram.
Utanríkisráðherrar G-8 hópsins,
sjö helstu iðnríkja heims og Rúss-
lands, sem vora á fundi í Köln, höfðu
þá blandað sér í viðræðurnar. Þeir
hringdu í samningamenn NATO til
að fjarlægja síðasta ásteytingar-
steininn, setningu í samningsdrög-
unum þar sem kveðið var á um að
friðargæslulið ætti að fara inn í
Kosovo sólarhring eftir að
MIKE Jackson, hers-
höfðingi NATO, skýrir
frá samkomulaginu.
serbnesku öryggissveitimar færa
þaðan. Utanríkisráðherrarnir sam-
þykktu að sleppa einfaldlega setn-
ingunni til að júgóslavnesku hers-
höfðingjarnir gætu undirritað samn-
inginn.
Rudolf Scharping, varnarmála-
ráðherra Þýskalands, sagði áður en
samkomulagið náðist að NATO
hefði „nánast hætt“
loftárásum sínum á
Júgóslavíu en embætt-
ismenn NATO í Brus-
sel og Bandaríkjastjórn
vora fljótir að neita því.
Jamie Shea, talsmaður
NATO í Brussel, sagði
að árásunum yrði ekki
hætt fyrr en Serbar
flyttu her- og lögreglu-
sveitir sínar frá
Kosovo.
Flugvélar bandalags-
ins fóra í 523 ferðir yfír
Júgóslavlu síðasta sól-
arhringinn áður en
samkomulagið náðist,
þar af í 130 sprengju-
árásir á serbneskar ör-
yggissveitir í Kosovo og herstöðvar í
grennd við héraðið.
Bandarískar sprengjuþotur af
gerðinni B-52 vörpuðu tugum
sprengna á hóp hermanna, skrið-
dreka og stórskotavopn í Kosovo í
gær meðan samningaviðræðurnar
stóðu yfir. Ekki var vitað hversu
mikið mannfall varð. Tveimur dög-
um áður höfðu B-52 þotur varpað
sprengjum á um 800-1.200 serb-
neska hermenn í Kosovo og talið er
að rúmur helmingur þeirra hafi fall-
ið, að sögn The Washington Post.
Samið um hlutverk
rússneskra hermanna
Samkomulagið í Makedóníu
greiðir fyrir því að öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna samþykki ályktun
um að senda friðargæslulið til
Kosovo. Samkvæmt drögum að
ályktuninni verða fjölþjóðlegar her-
sveitir sendar til Kosovo í því skyni
að tryggja að flóttafólkið geti snúið
þangað aftur. I drögunum er ekki
útlistað nákvæmlega hvaða hlut-
verki NATO og rússneskir hermenn
eiga að gegna í friðargæslunni.
Stefnt er að því að útkljá það mál í
Moskvu, þar sem vestrænir hers-
höfðingjar hefja viðræður í dag um
hvernig allt að 10.000 rússneskir
hermenn geta tekið þátt í friðar-
gæslunni án þess að virðast hlýða
skipunum NATO.
■ Sættir eða dulið/28
Fögnuður í Belgrad
BELGRAD-búar fagna undirritun samningsins um brottflutning
serbneskra her- og lögreglusveita frá Kosovo. Ibúar borgarinnar
flykktust út á göturnar þegar skýrt var frá samkornulaginu og margir
hleyptu af byssum upp í loftið til að fagna tíðindunum. Ibúar Pristina,
höfuðstaðar Kosovo, voru hins vegar skelfingu lostnir vegna
serbneskra hermanna sem gengu berserksgang um göturnar í gær-
kvöldi. Þeir sögðu að hermennirnir hefðu kveikt í húsum og hótað að
drepa albanska íbúa borgarinnar áður en þeir færu þaðan.
Evrópuþingkosning-
ar hefjast í dag
Bretar
andvígir
aðild
að EMU
London. Reuters, AFP.
SKOÐANAKÖNNUN sem sýndi
að breskur almenningur er mjög
mótfallinn því að ganga í Efnahags-
og myntbandalag Evrópu (EMU)
olli ríkisstjóm Verkamannaflokks-
ins nokkrum erfiðleikum í gær, á
lokadegi kosningabaráttunnar
vegna Evrópuþingkosninganna sem
fram fara í Bretlandi í dag. Jafn-
framt hafði breski forsætisráðherr-
ann Tony Blair nokkrar áhyggjur af
almennu áhugaleysi vegna kosning-
anna og birti hann grein í The Sun,
víðlesnasta dagblaði Bretlands, þar
sem hann hvatti kjósendur til að
neyta atkvæðisréttar síns.
Kosið verður til Evrópuþingsins á
sunnudag í flestum Evrópusam-
bandslöndunum fimmtán en Bretar
ríða hins vegar á vaðið í dag.
Fréttaskýrendur telja hins vegar
h'klegt að áhugi fyrir kosningunum
muni reynast einna minnstur í Bret-
landi. Er talið að kjörsóknin verði
jafnvel innan við 30 prósent.
21% hlynnt stefnu Blairs
Tony Blair, sem vill að Bretland
sé í forystu samstarfs ESB-ríkj-
anna, átti undir högg að sækja í gær
þegar ný skoðanakönnun virtist
sýna aukna andstöðu við þá hug-
mynd að ganga í EMU. Sýndi könn-
un Channel 4-sjónvarpsstöðvarinn-
ar að einungis 21 prósent kjósenda
voru hlynnt þeirri stefnu Blairs að
ganga í EMU þegar skilyrði til þess
eru hagstæð. Hins vegar voru 46%
aðspurðra hlynnt þeirri stefnu
íhaldsmanna að útiloka aðild að
EMU næstu tíu árin, eða þar til
ljóst er orðið hver árangur verður
af myntbandalaginu.
■ Prófraun/38
Skólp notað við fram-
leiðslu dýrafóðurs
Amsterdam, Brussel, París. Reuters.
AFRENNSLISVATN frá salern-
um og rotþróm og endumýtt vatn
frá iðnfyrirtækjum hefur verið
notað við framleiðslu dýrafóðurs,
samkvæmt skýrslu franskrar eft-
irlitsskrifstofu. Kom þetta fram í
nýjasta hefti vikublaðsins Canard
Enchainé í gær.
í frétt blaðsins eru birtir kaflar
úr skýrslunni, en þar segir meðal
annars að „háalvarleg frávik frá
reglum" eigi sér stað í matvæla-
iðnaði. Nefnd eru dæmi um að
fóðurverksmiðja hafi notað 1.794
tonn af skólpi á síðasta ári, og að
annar fóðurframleiðandi hafi not-
að ýmiss konar úrgang í fram-
leiðslu sína. Var úrgangurinn fast-
ur í síu sem allt vatn er notað var í
verksmiðjunni rann um.
Uppljóstranir vikublaðsins
þykja ekki líklegar til að auka
traust evrópskra neytenda á mat-
vælaiðnaðinum, sem hefur beðið
hnekki undanfarna daga í kjölfar
díoxín-mengunar í fuglakjöti og
öðram landbúnaðarafurðum, sem
uppvíst varð um í Belgíu fyrir
tveimur vikum.
Mjólkursala Belga í trássi
við tilskipun ESB
Jean-Luc Dehaene, forsætis-
ráðherra Belgíu, fullyrti í gær að
Evrópusambandið hefði bragðist
of hart við með því að banna inn-
flutning á landbúnaðarafurðum
frá Belgíu, enda væra 95% afurða
þaðan ómenguð og fullkomlega
hættulaus.
Framkvæmdastjóm ESB hefur
fyrirskipað að öllum afurðum frá
bóndabýlum sem gætu hafa notað
mengað fóður verði eytt, þar á
meðal kjúklingum, eggjum, nauta-
kjöti, svínakjöti og mjólkurvörum.
Belgar fullyrða hins vegar að
óhætt sé að drekka mjólk og
neyta mjólkurvara, og óþarfi sé að
fjarlægja þær úr hillum verslana.
Talsmaður framkvæmdastjórnar-
innar, Gerry Kiely, sagði í gær að
þetta stangaðist á við tilskipunina,
og væri ekki litið hýru auga.