Morgunblaðið - 11.06.1999, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 11.06.1999, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 1999 5 7 . I DAG BRIDS Umsjón (inðniundiir l'áll Arnarson SUÐUR á þrettán slagi ef laufið fellur 3-2, en ef svo væri myndi spilið ekki eiga neitt erindi í þennan dálk: Suður geftm; allir á hættu. Norður AÁ542 ¥ ÁK94 ♦ KG *542 Suður *K6 VD76 ♦ ÁD3 ♦ ÁKD76 Vestur Norður Austur Suður — — — 2 grönd Pass 7 grönd Pass Pass Pass Vestur kemur út með tígultíu. Sagnhafi byrjar á því að taka þrjá slagi á tígul og báðir fylgja. Hann tekur næst ÁK í laufi, en vestur á aðeins eitt lauf og hendir tígli í það síðai'a. Hvað er nú til ráða? Þó svo að hjartaliturinn skili fjóram slögum vantar ennþá einn. Og sá slagur fæst aðeins með þvingun á austur í svörtu litunum. En ef austur á að vera einn um að valda spaðann þarf hann að eiga að minnsta kosti fimm stykki. Austur hefur þegar sýnt þrjá tígla og fjögui’ lauf, og ef hann á að eiga fimm spaða er ekki rúm fyrir nema eitt hjarta. Af þessu mun hjartaíferðin ráðast: Norður ♦ Á542 ¥ ÁK94 ♦ KG ♦ 542 Austur A D10873 Vestur AG9 ¥ G10852 ♦ 109875 *10 ¥ 3 ♦ 642 * G983 Suður * K6 ¥ D76 * ÁD3 * ÁKD76 Suður tekur hjartadrottn- ingu og spilai- svo hjarta á níuna! Engu breytir þótt vestur stingi á milli, því það er nægur samgangur til að vinna úr litnum. Fjórða hjartað mun svo þvinga austur í svörtu litunum. Pennavinir Tvítugur Ghanapiltur sem búsettur er í Líbýu og hefur áhuga á ferðalögum, tónlist, íþróttum o.fl.: Thomas Ofori, P.O. Box 82975, Sherazawia, Alnour 40, Tripoli, Libya. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ætt- armót og fleira lesend- um sínum að kostnað- arlausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað. Sam- þykki afmælisbarns þarf að fylgja af- mælistilkynningnm og/eða nafn ábyrgðar- manns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, Sent í bréfsíma 569-1329, sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1,103 Reykjavík. Arnað heilla Q/VÁRA afmæli. í dag, í/V/fostudaginn 11. júní, verður níræð Sigurbjörg Ingimundardóttir, Dyngju- vegi 12, Reykjavík, ekkja Karls Sigurðssonai' skip- stjóra. Sigurbjörg er að heiman. ^/\ÁRA afmæli. Næst- I V/komandi sunnudag, 13. júní, verður sjötug Guð- ríður Einarsdóttir, Lyng- holti í Leirársveit. Hún tek- ur á móti ættingjum, vinum og sveitungum í Félags- heimilinu Heiðarborg, Leir- ársveit, laugardaginn 12. júní frá kl. 20. /\ÁRA afmæli. Síðastliðinn miðvikudag, 9. júní, varð tJ V/fimmtugur Jón Ragnar Kristfinnsson, verktaki, Hesthömrum 2, Reykjavík. Eiginkona hans er Sigrún Ein- arsdóttir, húsmóðir. Hún varð einnig fimmtug fimmtudag- inn 10. júní. Af þessu tilefni ætla þau að taka á móti ættingj- um og vinum á heimili sínu, Hesthömrum 2, í kvöld. Með morgunkaffinu Ég hef komist að niður- stöðu. Þú getur haldið starfinu, en fyrirtækið heldur laununum þínum. Hallgrímur Pétursson (1614/1674) Brot úr Heilræða- vísum Fannstu að það var koníak í eftirréttinum? HEILRÆÐAVISUR Ungum er það allra bezt að óttast guð, sinn herra. Þeim mun vizkan veitast mest og virðing aldrei þverra. Hafðu hvorki háð né spott, hugsa um ræðu mína, elska guð og gerðu gott, geym vel æru þína. Foreldrum þínum þéna af dyggð, það má gæfu veita. Varast þeim að veita styggð, viljirðu gott barn heita. Hugsa um það helzt og fremst, sem heiðurinn má næra. Aldrei sá til æru kemst, sem ekkert gott vill læra. STJÖRIVUSPA eftir Franees lirake 4 TVÍBURARNIR Afmælisbarn dagsins: Þú ert athafnamaður og lítið fyrir að velta hlutunum of lengi fyrir þér. Þú ert vinur vina þinna. Hrútur (21. mars -19. aprfl) Það er alltaf gaman að rekast á gamla vini og rifja upp liðna tíð. En svo tekur alvaran við að nýju en er þá skemmtilegri við að eiga. FRETTIR Naut (20. apríl - 20. maí) Enda þótt þig langi til að sitja einn að lausn verkefnis- ins þá skaltu samt hleypa öðrum að því það bæði spar- ar tíma og stuðlar að hag- kvæmustulausninni. Tvíburar (21.mal-20.júní) FA Stundum skjóta gamlir draugar upp kollinum og hafa áhrif á okkur. Gakktu frá þessum málum og stefndu ótrauður fram á við. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Þú átt erfitt með að einbeita þér að hlutunum og dettur auðveldlega í dagdrauma. Reyndu að taka styttri tíma fyrir í einu og stai'fa þá af fullumkrafti. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Þér er efst í huga að grípa til óhefðbundinna úrræða til að leysa ákveðin vandamál. Flýttu þér samt hægt og gefðu öðrum möguleikum gaum. Meyja (23. ágúst - 22. september) uEnL Þér finnst þú ekki sjá framúr öllum verkefnunum. Yttu öll- um kvíða frá þér og gakktu skipulega til verks. Þá mun allt fara vel. (23. sept. - 22. október) m, Það er gaman að baða sig í aðdáun annarra en láttu hana ekki stíga þér til höfuðs heldur nýttu þér hana til að gera enn betur. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóvember) Það er eitthvað í fari þínu sem kallar á athugasemdir félaga þinna. Leiddu þetta ekld hjá þér heldur líttu í eigin barm og skoðaðu málin. Bogmaður 12.J1ÓV. - 21. desember) Orð geta hitt í mark svo farðu þér hægt og mundu að aðrir eiga líka rétt á sínum skoðunum. Vertu því lipur og víðsýnn. Steingeit (22. des. -19. janúar) Nú er að duga eða drepast svo láttu ekki hugfallast þótt einhver reyni að di'aga úr þér kjarkinn. Þú veist hvar þú getur sótt í styrkinn. Vatnsberi (20. janúar -18. febrúar) viísft Margur verður af aurum api segir máltækið og það er gott að hafa það í huga þótt ekki sé um neinar stórupp- hæðir að ræða. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Láttu ekki aðra þurfa að velkjast í vafa um meiningar þinar. Mundu bara að setja þær fram á sanngjarnan máta. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Kiwanisklúbburinn Harpa styrkir einhverf börn KIWANISKLUBBURINN Harpa í Reykjavík er tíu ára um þessar mundir. Af því tilefni var ákveð- ið að styrkja heimili fyrir ein- hverf börn í Hólabergi í Reykja- Hjóladagur í Hafnarfirði HJÓLADAGUR verður í Hafnar- firði á morgun, laugardag. Það eru Upplýsingamiðstöðin í Hafnarfirði og Æskulýðs- og tómstundaráð sem standa fyrir deginum. I tilefni dagsins verða farnar þrjár skipulagðar hjólaferðir frá Riddaranum (upplýsingamiðstöð- inni Vesturgötu 8) kl. 13 undh' leið- sögn félaga úr íslenska fjallahjóla- klúbbnum. Leiðimar verða við allra hæfi, þ.e. fjölskylduferð um bæinn, ferð fyrir þá sem vilja kynnast ferðum á reiðhjóli og síðan . ein fyrir vana hjólreiðamenn. Leppin-sportdrykkir og kex frá Kexsmiðju Islands verða á ákveðn- um stöðum í þessum ferðum. AJlar ferðirnar enda við Sundlaug Suð- urbæjar, þar sem þátttakendum er boðið í sund. vík. Á myndinni er forseti Hörpu, Þyrí Marta Baldursdótt- ir, að afhenda forstöðukonu heimilisins, Halldóru Jónsdóttur, tölvur o.fl. Ráðgjöf um plöntuval STARFSMENN Skógræktai'- félags Hafnarfjarðai' munu veita fólki ráðleggingar um plöntuval á morgun, laugardaginn 12. júní, frá klukkan 10 til 14. Það eru þau Steinar Björg- vinsson garðyrkjufræðingur og Hólmfríður Finnbogadóttir, framkvæmdastjóri Skógrækt- arfélagsins, sem munu annast ráðgjöfina og verða þau til við- tals um allt er lýtur að trjá- og skógrækt á söluhlaði félagsins í Höfðaskógi við Kaldárselsveg. Rétt val á plöntum í upphafi skiptir að sjálfsögðu miklu máli og getur skipt sköpum fyrir framhaldið. Því eru garðeig- endur, sumarbústaðaeigendur, landnemar Skógræktarfélags- ins og allt áhugafólk um gróður og grósku sérstaklega boðin velkomin. ‘Postuíínsdúfcfcnsýnh Yfir 50 tegundir ásamt húsgögnum og fylgihlutum. Opið til kl. 10 öll kvöld Fákafeni 11, sími 568 91 20. Huldubraut Glæsilegt sérbýli — eign í sérflokki Vorum að fá í þessu glæsil. húsi stórglæsilegt sérbýli, samtals 300 fm með innb. bílskúr. Glæsilegt útsýni. Þrennar svalir. 5 svefnher- bergi. Stórar stofur. Heitur pottur í glæsilegum garði. Þetta er eign sem þú skalt ekki láta fram hjá þér fara. Upplýsingar á skrifstofu. Stóragerði Endaíbúð á 1. Kæð Vorum að fá í einkasölu fallega 100 fm 4ra herb. íbúð á 1. hæð í fallegu fjölbýli á frábærum stað. Góðar stofur. Gott eldhús og bað. Parket. Góð sameign. Skuldlaus eign. Verð 8,8 millj. Valhöll, fasteignasala, Síðumúla 27, sími 588 4477. Opið virka daga frá kl. 9—17.30. Lokað um helgar í sumar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.