Morgunblaðið - 06.07.1999, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.07.1999, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Annríki hjá Borgarnes- lögreglunni Morgunblaðið/Ásdís 3100 stjúpur mynda skjaldarmerkið LÖGREGLAN í Borgamesi tók sex ökumenn fyrir ölvun við akstur um s.I. helgi og voru fímm þeirra við akstur í Húsafelli. Fjölmenni var í Húsafelli um helgina og tölu- vert af yngra fólki innan um fjöl- skyldufólkið. Að sögn lögreglunn- ar í Borgarnesi var mikið annríki hjá henni um helgina enda margt um manninn í héraðinu og fjöl- margir á leiðinni í gegnum um- dæmið. Fjögur umferðaróhöpp urðu í umdæminu um helgina og voru þrír bílar óökuhæfir eftir. Nokkuð almenn ölvun var hjá ungmennum í Húsafelli um helg- ina og nokkur órói á svæðinu að- faranótt sunnudagsins. Töluvert var um minniháttar slagsmál á svæðinu og var einn maður fluttur á heilsugæslustöðina í Borgarnesi til skoðunar en hann hafði verið barinn í andlitið. Hélt hann því fram að ráðist hefði verið að sér með klaufhamri en hann hefði náð að taka hamarinn af árásarmann- inum sem hefði þá barið hann í andlitið með hnefanum. Minni- háttar skemmdarverk voru unnin á þremur bifreiðum. Bflsijónim bannað að aka Ástand um 50 ökumanna var kannað er þeir vora að leggja af stað frá Húsafelli snemma á sunnudagsmorguninn. Tuttugu þeirra var meinað að setjast undir stýri og ráðlagt að sofa betur úr sér áfengisvímuna. Talið var að um 400 manns hefðu verið á dansleik Stuðmanna í flug- skýlinu ofan Borgarness á laugar- dagskvöldið. Fór dansleikurinn vel fram og þurfti lögreglan lítil af- skipti að hafa af samkomugestum. I Borgarnesi var haldið svokall- að Búnaðarbankamót, sem er knattspyrnumót yngstu flokkanna og knattspyrnudeild Skallagríms stendur fyrir. Alls voru 700 kepp- endur skráðir til leiks og talið að með foreldrum og ættingjum hefðu verið um 1500 til 2000 manns í kringum mótshaldið. SKJALDARMERKI Reykja- víkurborgar hefur verið myndað með 3100 bláum og hvítum stjúpum sem plantað hefur verið í Ártúns- brekkunni. I fyrra var skjald- armerkið í fyrsta skipti búið til með blómum í Ártúns- brekkunni en þá var það haft nær Bíldshöfðanum og sást því ekki eins vel af veginum. Beðið er 80 fermetrar að stærð og í haust verða settir í það laukar og má fólk því eiga von á að sjá bláa og hvíta túlípana stinga upp kollinum í Ártúnsbrekkunni með vorinu. ísafoldar- húsið risið ÍSAFOLDARHUSIÐ, sem áður var Austurstræti 8-10, er komið á nýjan stað, Aðalstræti 10. Húsið var flutt í hlutum og nú er verið að setja það saman í upprunalegri mynd við hliðina á Fógetanum, eins og sést á myndinni. í gær var reisugildi haldið og fánar dregnir að húni. Eitt sinn hýsti ísafoldarhúsið Morgunblaðið, en Björn Jónsson, eigandi ísafoldar, reisti það og bjó á efri hæðum þess. Á neðstu hæð var prentsmiðja. Síðar voru verslanir og veitingastaðir í húsinu. Miklar tafír urðu á umferð í nágrenni Reykjavíkur Vegagerðin vinn- ur að úrbótum VEGAGERÐIN vinnur að ákveðnum breytingum sem greiða eiga fyrir umferð til og frá Reykjavík og draga þannig úr þeim töfum sem oft vilja verða um miklar ferðahelgar. Jón Rögnvaldsson, aðstoðarvegamála- stjóri, segir þó að ekki sé hægt að koma með öllu í veg fyrir tafir. Morgunblaðið/Halldór Fjölmargir Reykvíkingar lögðu land undir fót um síðustu helgi og þröng varð á þingi á þjóðvegunum í nágrenni Reykjavíkur þegar þeir sneru aftur á sunnudaginn. Olli umferðarþunginn nokkrum töfum og þannig mun það hafa tekið hátt í tvær klukkustundir að aka frá Hvalfjarðargöngunum inn í borg- ina þegar verst lét. Jón Rögnvaldsson segir Vega- gerðina fylgjast með þegar um- ferðarteppur af ofannefndu tagi myndast og verið sé að vinna að ákveðnum hlutum sem draga eigi úr þeim. „Það er gjaman þannig að biðraðir byrja að myndast við ljós og ég hygg að segja megi að tregðan á leiðinni inn í borgina sé einna mest á ljósunum við Víkur- veg, þótt hún byrji yfirleitt í Mos- fellsbænum. Nú er verið að breikka veginn frá Víkurvegi og í gegnum þau gatnamót og það ætti að greiða eitthvað fyrir innkom- unni í borgina. Þá eru mislæg gatnamót þar líka komin inn á vegaáætlun, þótt lengra sé í þau en breikkunina," sagði Jón. Ekki munu þó frekari framkvæmdir vera á döfinni á Vesturlandsvegi sem stendur. Mislæg gatnamót á áætlun Jón segir umferð inn í borgina síður tefjast á Suðurlandsvegi en á Vesturlandsvegi. Engu að síður stendur til að hefja á næsta ári framkvæmdir við mislæg gatnamót á mörkum þessara vega og eiga þau að greiða fyrir umferð á þeim báðum. Þrátt fyrir þessar áætlanir segir Jón ljóst að alltaf megi búast við einhverjum töfum þegar marg- ir eru á ferðinni á sama tíma. „Það má kannski segja að við séum kom- in í sömu stöðu og margar aðrar þjóðir hvað þetta varðar. Þó að ástandið hér sé enn sem komið er betra en víðast hvar annars staðar, verða alltaf tafir þegar fólk fer fyr- ir alvöru út að aka.“ Lést í bflslysi KARLMAÐUR beið bana í umferðarslysi á Borgarfjarð- arvegi við Eiða um klukkan 11 á sunnudagsmorgun er vöru- bifreið, sem hann stýrði, valt á veginum. Áð sögn lögreglunnar á Egilsstöðum var maðurinn látinn er að var komið. Tildrög slyssins eru til rann- sóknar hjá lögreglunni. Hinn látni hét Reynir Hólm, vörubifreiðarstjóri, til heimilis að Strandgötu 92 á Eskifirði. Hann var fæddur 7. maí árið 1934 og lætur eftir sig eiginkonu og 5 uppkomin börn. Á ÞRIÐJUDÖGUM Björgvin Þorsteinsson fór holu í höggi á Ítalíu / B1 Meistaraheppni Eyjamanna í leik gegn Keflavík/ B7 Heimili Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.