Morgunblaðið - 06.07.1999, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 06.07.1999, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Landamærastríð Erítreu og Eþíópíu Kjarnorkan reynir á þanþol þýzku ríkisstjdrnarinnar Blóðug átök kosta þúsundir lífíð Leiðtogar gera lítið úr hættu af stjórnarslitum Addis Ababa. AFP. STJÓRNVÖLD í Addis Ababa í Eþíópíu sögðu á sunnudag að þau myndu ekki virða vopnahlé við ná- grannaríkið Erítreu fyrr en þarlend stjómvöld drægju hersveitir sínar frá Badme-svæðinu á landamærum ríkj- anna. Höfnuðu þeir þar með friðartil- lögum Líbýumanna til lausnar átökmi- um. Hersveitir Eþíópíu og Erítreu, sem eru meðal fátækustu ríkja verald- ar, hafa barist hatrammlega undan- fama 13 mánuði um Badme-svæðið sem liggur við Tekeze ána á vestur- hluta landamæranna. Einingarsamtök Afríkuríkja (OAU) hafa leitast við að miðla málum í stríðinu en hefur orðið lítið ágengt. Ríkin hafa bæði lýst því yfir að þau hafi fellt þúsundir her- manna í röðum mótaðilanna á undan- fomum vikum. I yfirlýsingu Eþíópíustjómar á sunnudag sagði að hún fagnaði við- leitni Líbýumanna og annarra velviij- aðra aðila til að leysa deiluna í sam- ræmi við rammasamkomulag OAU sem gert var fyrir tveimur mánuðum. Hins vegar sagði Eþíópíustjóm að ekki gæti orðið af vopnahléi fyrr en Erítreumenn féllust á skilyrði ramma- samkomulagsins og drægju hersveitir sínar frá landssvæði Eþíópíu. Stríðandi aðilar hafa báðir fallist á forsendur þær sem fram koma í rammasamkomulagi OAU en hafa deilt um hvemig því skyldi hrint í framkvæmd. Hafa Erítreumenn t.a.m. sagst hafa þegar dregið hersveitir sín- ar frá Badme-héraði. Erlendir fréttmann hafa greint frá hrikalegri aðkomu á vígstöðvamar og er talið að um 40.000 til 50.000 þúsund hermenn hafi fallið frá því átök hófust í maí á síðasta ári. Hafa fréttamenn sagt frá því að hundruðir rotnandi líka hggi eins og hráviði um jarðsprengju- svæði í héraðinu. Berlin, Bonn. AP, Reuters. ÞESSI vika virðist ætla að verða enn ein stormasöm vikan í lífi hinn- ar átta mánaða gömlu „rauð- grænu“ ríkisstjórnar Gerhards Schröders, kanzlara Þýzkalands, í þetta sinn aðallega vegna innri ágreinings um kjarnorkumál. Talsmenn stjórnarflokkanna, Jafnaðarmannaflokksins SPD og Græningja, gerðu í gær lítið úr orðrómi þess efnis, að við lægi að slitnaði upp úr stjómarsamstarfinu vegna hótana Græningja um að draga sig út úr því ef ekki yrði gengið að kröfu þeirra um að áformum um að loka kjarnorkuver- um landsins verði flýtt. Umhverfisráðhemann Jiirgen Trittin, einn forystumanna Græn- ingja, sætir miklum þrýstingi, ekki sízt úr röðum eigin flokksmanna, að segja af sér vegna þess hvemig honum hefur farizt úr hendi að framfylgja stefnumiðum Græningja í kjarnorkumálum. Aðrir forystu- menn Græningja hafa lýst því yfir að spumingin um hve fljótt hinum 19 kjarnorkuvemm landsins skuli lokað sé úrshtamál, sem stjómar- samstarfið standi og falli með. „Við emm að takast á um mála- miðlun í kjarnorkumálum, og það bjóst enginn við því að það gengi átakalaust fyrir sig,“ sagði Gunda Röstel, talsmaður flokksfoi-ystu Græningja, í gær. „En ég hef ekki trú á því að ágreiningur milli stjómarflokkanna sé að vaxa,“ sagði hún í útvarpsviðtali. Jafnaðarmenn, með Gerhard Schröder í broddi fylkingar, vilja að kjamorkuvemnum verði lokað í áföngum á löngu tímabili, a.m.k. 25 árum, en Græningjar segjast ekki geta sætt sig við annað en að þeim verði lokað mun fyrr. Deilan harðnaði er það fréttist að iðnaðarráðherrann Wemer Miiller, sem er óflokksbundinn, væri í sam- ráði við fulltrúa orkuðiðnaðarins að vinna að áætlun um lokun kjarn- orkuveranna, þai' sem gert er ráð fyrir að því síðasta verði lokað að 25 ámm liðnum. í gær lýsti Christoph Matsehie, formaður umhverfis- nefndar þingsins, því yfir að 20 ára frestur væri algjört hámark. Forystumenn stjórnarflokkanna munu eiga bráðafund um máhð á morgun, miðvikudag. ■ , WW&JL t. & ■■■■' & f ] íl^', jwjl [Jf ÍO“j Wm { y SoR. ga. Reuters Barak gagnrýndur af konum EHUD Barak, leiðtogi Verka- mannaflokksins í Israel, tekur við embætti forsætisráðherra í dag þegar hann skýrir þinginu frá myndun nýrrar samsteypustjórn- ar. Barak var kjörinn forsætisráð- herra í kosningunum 17. maí og honum hefur tekist að mynda stjórn sem nýtur stuðnings 75 þingmanna af 120 eftir sjö vikna stjórnarmyndunarviðræður. Félagar Baraks í Verkamanna- flokknum gagnrýndu hann í gær fyrir að hafa gefið of mikið eftir í viðræðunum við samstarfsflokk- ana, sem þeir sögðu hafa fengið öll bitastæðustu ráðherraembætt- in og Verkamannaflokkurinn að- eins leifarnar. Ein þingkvenna Verkamanna- flokksins, Yael Dayan, gagnrýndi einnig Barak fyrir að velja aðeins eina konu í sljórnina, sem verður skipuð 32 ráðherrum og aðstoðar- ráðherrum. „Ilelmingur þjóðar- innar hefur verið auðmýktur," sagði hún. Israelskar konur mótmæia hér rýrum hlut kvenna í stjórninni á útifundi í Jerúsalem. Bandarískir þingmenn vilja bjóða Bretum aðild að NAFTA Washington. The Daily Telegraph. ÁHRIFAMENN á Bandaríkja- þingi vilja hefja undirbúning að því að bjóða Bretum aðild að Fríverslunarsamtökum Norður- Ameríkuríkja, NAFTA, sem valkost við Evrópusambandið. Áhugi á máhnu virðist þó meiri meðal bandarískra stjórnmála- manna en Breta sjálfra. Öldungadeildarþingmaðurinn Phil Gramm, repúblikani frá Texas sem er hagfræðingur að mennt, hefur undanfarið unnið að því að fá Viðskiptastofnun Bandaríkjanna th að kanna áhrif hugsanlegrar aðildar Breta að NAFTA, en í samtök- unum eru nú Bandaríkin, Kanada og Mexíkó. Haft var eftir talsmanni Gramms fyrir skömmu að nú, þegar hann sé orðinn formaður bankamála- nefndar þingsins, hafi hann öðl- ast aukin áhrif í öldungadeild- inni til að vinna þessu áhuga- máh sínu brautargengi. Bandarískir stjórnmálamenn helstu talsmennirnir Svo virðist sem William Roth, repúblikani og formaður fjár- málanefndar þingsins, og Pat- rick Moynihan, hæst setti demókratinn í nefndinni, hafi heitið Gramm stuðningi, en þeir geta í krafti embætta sinna ósk- að eftir því að Viðskiptastofnun- in hefji formlega könnun á því hvort aðild Breta geti verið hag- kvæm fyrir NAFTA. Að sögn talsmanns Gramms væntir hann þess að slík könnun leiði í ljós að bandarískir neyt- endur, framleiðendur, þjónustu- og útflutningsaðilar muni hagn- ast af aðild Breta að NAFTA, rétt eins og raunin hafi orðið með samningum við Kanada og Mexíkó. Ef niðurstaðan verði sú muni þingmaðurinn hefja um- ræður um máhð á þingi, vænt- anlega á næsta ári. í Evrópu eru hugmyndir um inngöngu Breta í NAFTA ekki teknar ýkja alvarlega. Bretland getur ekki gerst aðili að frí- verslunarsamtökunum án þess að segja sig fyrst úr Evrópu- sambandinu, og hvorki ríkis- stjórnin né stjórnarandstaðan í Bretlandi hafa léð máls á því. Helstu talsmenn þess eru hins vegar nokkrir áhrifamiklir stjórnmálamenn í Bandaríkjun- um. Bandarísk stjórnvöld hafa hingað til verið frekar jákvæð í garð Evrópusambandsins, en nú virðist sem það viðhorf kunni að þoka fyrir ótta um að ESB reyni að skapa sér stöðu sem mótvægi við Bandaríkin á alþjóðavett- vangi. Viðskiptadeilur milli Bandaríkjanna og ESB, fyrst og fremst um sölu á banönum og nautakjöti, hafa enn styrkt þá í trú sinni, sem telja sambandið vera virki verndai’stefnu í við- skiptum. Æ fleiri bandarískir stjórn- málamenn hafa því farið að ef- ast um að það sé Bandaríkjun- um til hagsbóta að Bretar fylki með Evrópuríkjum, og sumir sjá ástæðu til að bjóða þeim annan valkost. Margir þeirra eiga einnig bágt með að skilja að sjálfstæðar þjóðir séu reiðu- búnar að framselja hluta af fullveldi sínu til ESB. „Ég skil ekki hvers vegna þið [Bretar] ættuð að hlekkja ykkur við þennan mikla kostnað, mikla atvinnuleysi og litla hagvöxt í Evrópu. Ef þið viljið ganga til liðs við okkur eruð þið vel- komnir,“ var haft eftir áhrifa- miklum öldungadeildarþing- manni nýlega. Einn þeirra stjórnmálamanna sem eru fylgjandi aðild Breta að NAFTA er Newt Gingrich, fyrrverandi forseti fulltrúa- deildar Bandaríkjaþings. Hann sagði í grein í The Daily Tel- egraph á síðasta ári að „ef vilji er fyrir því á Bandaríkjaþingi, eins og virðist líklegt, ... að bjóða Bretum einhvers konar aðild að NAFTA myndi ég vera því fylgjandi. Bretar verða að vita að þeir eiga enn vini handan Atlantshafsins".
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.