Morgunblaðið - 10.07.1999, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 10.07.1999, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sendiráð fslands í Berlín hefur störf í nýbyggingu Opnað fyrst nor- rænu sendiráðanna Morgunblaðið/Þröstur.Víðisson FRÁ slysstað á Miklubrautinni þar sem þriggja bfla árekstur varð á þriðjudaginn. Einn var fluttur á slysadeild með háls- og bakmeiðsl. Telur hættu skapast við ný mislæg gatnamót á Miklubrautinni NYTT sendiráð íslands í Þýzkalandi var opnað í gær, fyrst norrænu sendiráðanna fímm sem standa á sömu lóðinni í miðri Berlín. Þetta er í fyrsta sinn sem ís- lenzkt sendiráð tekur til starfa í byggingu, sem er sérstaklega byggð fyrir það. Ingimundur Sigfússon sendiherra sagði í samtali við Morgunblaðið að tO hefði staðið að sendiráðið hæfi störf í nýja húsinu 1. júní sl., en vegna tafa á framkvæmdum við nýbygginguna gat ekki orðið af því fyrr en nú. Sendiráðið flutti frá Bonn í lok maí og hefur starfað í bráðabirgðahúsnæði undanfarnar vik- ur. „Þetta er alveg stórkostlegt,“ sagði Ingimundur aðspurður um hvernig honum litist á nýju bygging- una. „Það var ákveðið fyrirvaralítið að láta verða af því að flytja inn, um leið og séð þótti að það væri hægt.“ Vegna seinkana við byggingaframkvæmdh' hafí hingað til ekki verið hægt að gera neinar áreið- anlegar áætlanir. „Framkvæmdum við bygginguna er ekki að fullu lokið; þær munu halda áfram næstu tíu dagana að minnsta kosti,“ sagði Ingimundur. Gera mætti ráð fyrir að það tæki starfsmenn sendi- ráðsins, sem nú eru samtals fimm, um þrjár tO fjórar vikur að koma sér fyrir á nýja staðnum, sem er stein- snar frá þýzka þinghúsinu, Reichstag, og helztu byggingum þýzku stjómarinnar, sem reyndar eru flestar enn í smíðum þótt þingið og flest ráðuneyti flytji frá Bonn tO Berlínar í sumar. Formleg opnun í haust Framkvæmdir við hús sendiráða Svíþjóðar, Nor- egs, Danmerkur og Finnlands á sömu lóð eru skemur á veg komnar. Að sögn Ingimundar höfðu Finnai' áformað að taka nýja sendiráð sitt í notkun á sama tíma og íslendingar, en alllangt sé enn í land áður en af því geti orðið. Nú þegar er þó ákveðið að formleg opnun allra sendiráðanna fímm fari fram með viðhöfn 20. október í haust. Reuters INGIMUNDUR Sigfússon sendiherra fyrir fram- an nýbyggingu íslenzka sendiráðsins í Berlín. Við opnunarathöfnina í gær voru starfsmenn úti- búa hinna norrænu sendiráðanna í Berlín auk iðnað- armannanna sem unnið hafa að smíði húsanna meðal boðsgesta. „Við vOdum fagna þessum áfanga með iðn- aðarmönnunum, sem hafa verið duglegir við að flýta þessu eins og mögulegt var,“ sagði Ingimundur. MEÐAL gesta við opnunina í gær voru iðnaðarmenn sem unnið hafa að smiði hússins og starfsfólk úr hinum norænu sendiráðunum. Minnihlutinn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar Gagnrýnir fjárhags- áætlun meirihlutans ÞRÖSTUR Víðisson, vegfarandi, sem lenti í aftanákeyrslu síðastlið- inn þriðjudag á Miklubrautinni og tók meðfylgjandi mynd af öðrum árekstri sem varð skömmu síðar, er þeirrar skoðunar að ákveðin hætta skapist í nágrenni við fram- kvæmdir við mislæg gatnamót Skeiðarvogs og Miklubrautar, vegna þess hve ökumönnum er gert að lækka ökuhraðann mikið á skömmum tíma er þeir koma niður úr Ártúnsbrekkunni. Væri það um- hugsunarefni hvort ekki mætti setja merkingar þess efnis ofan við Artúnsbrekkuna. „Það er ákveðinn hraði á Miklu- brautinni og niður Ártúnsbrekk- una og við vitum að hann er kannski ívið of mikOl, en það er mjög þung umferð á þessum slóð- um og svo er hægt mjög skyndi- lega á umferðinni. Að mínu mati er ekki nægOega mikOl fyrirvari á merkingum í þessa veru,“ sagði Þröstur og sagðist hafa heyrt um að mikið hafí verið um aftaná- Yfirvöld- um stefnt vegna mengunar TVEIR íbúar á Miklubraut 13 hafa stefnt Reykjavíkurborg og íslenska ríkinu fyrir Hér- aðsdóm Reykjavíkur tO að fá staðfest með dómi að stefndu beri óskipta skaðabótaskyldu gagnvart þeim og jafnframt sé Reykjavílóirborg skylt að leysa til sín fasteign þeirra, m.a. vegna mengunar frá um- ferð um Miklubraut, sem farið hefur yfir leyfíleg mörk. Stefnendur keyptu íbúð í húsinu árið 1989 og stóðu í þeirri trú að mikO umferð bif- reiða á Miklubraut og þar af leiðandi loft- og hávaðamengun á fasteigninni yrði aðeins bráðabirgðaástand og bera fyr- ir sig m.a. þær málsástæður að fasteignin hafi verið keypt á þeirri forsendu og í þeirri trú að gildandi aðalskipulag Reykjavíkur 1984-2004 yrði framkvæmt, en því hafí nú ver- ið breytt. Þá hafi breytingar á gildandi skipulagsáætlun fyrir Reykjavíkurborg haft í för með sér ásamt sívaxandi lífsháska af loft- og hávaðamengun við húsið hafí lækkað nýtingar- möguleika eignarinnar svo að hún komi ekki að sömu notum og áður. keyrslur á Miklubrautinni síðan framkvæmdir hófust. Hjá umferðardeOd lögreglunnar fengust þær upplýsingar að 12 árekstrar hafi verið tilkynntir síð- an framkvæmdir hófust í apríl. Sé ekki tilganginn í að færa hraðatakmarkanir ofar í Ár- túnsbrekkuna Árni Friðleifsson varðstjóri hjá umferðardeildinni sagðist í samtali við Morgunblaðið ekki sjá tflgang- inn með því að færa hraðatakmark- anir ofar í Ártúnsbrekkuna eins og Þröstur telur tO bóta. „Ártúns- brekkan er breið og sést vel framundan og það verður alltaf sami hraði þar þótt við lækkuðum hann niður í 50 km á klukkustund," sagði hann. Hann sagði jafnframt að á yfírreið sinni um Miklubraut- ina hefði hann ekki orðið var við aukna tíðni árekstra eða minni- háttar óhöpp við gatnamótin miðað við það hvemig þau voru áður. ,Á- hinum ýmsu gatnamótum borgar- innar er ákveðin tíðni minniháttar óhappa og ég hef ekki orðið var við að þarna séu fleiri óhöpp en urðu áður en gatnamótunum var breytt," sagði Ámi. Hann segir að á fundum lögregl- unnar með verktaka hinna nýju mislægu gatnamóta hafi lögregl- unni verið tjáð að umferðarhraði væri of mikOl við framkvæmdirnar. „Eg get ekki annað en tekið undir það og það er von mín að ökumenn virði þær hraðatakmarkanir sem þama em og fari varlega. Fólk verður að skilja að það er verið að breyta miklum umferðarálags- gatnamótum og aðkoma að borg- inni á eftir að batna þegar gatna- mótin komast í gagnið.“ MINNIHLUTI bæjarstjómar Hafnarfjarðar, Alþýðuflokkur og Fjarðarlisti, gagnrýnir harðlega rammafjárhagsáætlun bæjarsjóðs Hafnarfjarðar fyrir árin 1999-2003. í bókun sem bæjarfulltrúar minnihiutans lögðu fram sl. þriðju- dag segir að áætlun meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- flokks byggist ekki á vönduðum vinnubrögðum. Lausn meirihlutans sé „víðtæk einkavæðing við bygg- ingu og rekstur þjónustustofnana til næstu framtíðar án þess að fyrir liggi neinir útreikningar eða for- sendur um hagkvæmni". Meirihluti hafnar samstarfi Enn segir í bókuninni að Sjálf- stæðisflokkurinn hafi horfið frá einsetningu grannskóla og þar með svfldð eitt aðalkosningaloforð sitt. Þess utan boði meirihluti niður- skurð á félagslegri þjónustu sem nemur hundrað mOljónum og hækkun á öllum almennum þjón- ustugjöldum. Stofnun fyrirtækis um Vatnsveitu Hafnarfjarðar sem greiða skal 800 mOljónir í bæjar- sjóð er gagnrýnd og sögð auka- skattlagning á bæjarbúa. Minnihluti gagnrýnir einnig að meirihluti hafi staðið einn að undir- búningi og vinnslu áætlunarinnar og hafnað því að leita eftir sam- stöðu með minnihluta. Miklu máli skipti, segir í bókuninni, að sem víðtækust samstaða ríki um fjár- mál og uppbyggingu í bænum þar sem Hafnarfjörður standi frammi fyrir erfiðri fjárhagsstöðu og mikl- um framkvæmdum. Laus úr gæslu- varðhaldi FYRRUM sérfræðingur Skattstofu Reykjaness, sem setið hefur í viku- löngu gæsluvarðhaldi vegna rann- sóknar efnahagsbrotadeOdar rflds- lögreglustjóra á fjárdrætti manns- ins, var látinn laus úr varðhaldi í gær. Grunaður um 11 milljdna svik Maðurinn hefur játað að hafa dregið sér 11 mflljónir á 14 mánaða tímabili með því að færa tölur um viðskipti fyrirtækis í hans eigu, sem var í raun ekki með neina starfserni. Þá hefur 70 tonna skip í eigu um- rædds fyrirtækis verið kyrrsett til greiðslu skaðabóta, sekta og sakar- kostnaðar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.