Morgunblaðið - 22.07.1999, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 22.07.1999, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ný viðhorf í Gijóta- þorpi Má varð- veita sér- kennin stjórnar, héfur síðustu daga rætt við nýja eigendur hússins við Aðal- stræti 4 um skipulagsbreytingar varðandi húsið en þar er m.a. skemmíjstaðurinn Club Clinton til 4// ^l/vV'O I/ TG-rt'JhJO ÞÚ verður að fínna annan stað fyrir listasprangið þitt, þetta passar ekkert með gamla antik- draslinu, góði. ZOOM CAMEDIA C- STAFRÆN GO FILMULAUS Með 3 x zooin • 2,1 milljón punkta upplausn ( 1600 x 1200 ) • Með lengi fyrir utanáliggjandi flass • Hægt að tengja við sjónvarp • Hægt aö vista sem tiff og jpeg • Fjarstýring fylgir • Tekur 32mb smartmedia kort (8mb fylgir með) • Getur tekið 45 myndir í röð, 2 á sekúndu • Hægt að fá auka linsur Morgunblaðið/Arnaldur Dóm- kirkjan í vatnsbaði UNDANFARIÐ hefur verið unnið af kappi við endurbætur á Dómkirkjunni. í vikunni var verið að hreinsa múr kirkjunn- ar með háþrýstitæki og einnig hefur turn kirkjunnar verið réttur við. Að mörgu er að hyggja þegar jafn gamalt og sögufrægt hús er tekið jafn rækilega í gegn og nú er gert. Er ekkiofsögum sagt að kirkjan verði eins og ný þegar þessu mikla verki lýkur. Einnig er unnið að fegrun á umhverfí kirkjunnar og miðar því verki vel áfram. Mærudagar á Húsavík Kleinumeistari og hattakeppni Idag, fimmtudag, verður Mærudögum hleypt af stokkunum á Húsavík en það er hátíð sem haldin hefur verið þar sl. fimm ár. María Axfjörð er meðal þeirra sem hafa séð um skipu- lagningu hátíðarinnar. „Mærudagar voru fyrst haldnir fyrir fimm árum og voru í upphafi einskonar uppskeruhátíð eftir veturinn. A Mæru- dögum voru settar upp safnarasýningar, mynd- listarsýningar, haldnir tónleikar og settar upp leiksýningar. Arið 1996 var síðan ákveðið að breyta Mærudögum í sumarhátíð á bryggjunni okkar þar sem öll fjöl- skyldan gæti tekið þátt í hátíð- arhöldunum. Bæjarbúar vildu nota tengslin við sjómennskuna og höfnin er miðpunktur Húsa- víkur.“ -Hafa Mærudagar verið vel sóttir? „Já, það er óhætt að segja það og þrátt fyrir hroðalegt veður í fyrra var hátíðin vel sótt.“ María segir að á Mærudaga komi bæði bæjarbúar og þeir sem eru á ferðalagi í nágrenninu. „Við höf- um líka boðið erlenda ferðamenn velkomna, því þeir hafa gaman af að koma og taka þátt. - Hveinig er dagskrá Mæru- daganna? „Hátíðin hefst á því að í kvöld verður boðið upp á spilakvöld í stóru tjaldi. Þar verður hægt að spila það sem hver vill og fólk getur komið með spil með sér og skipt við næsta, ef svo ber undir. Þá verða hagyrðingar með vísnakvöld í Hvalamiðstöðinni í kvöld og það verður spennandi að sjá hvað þeim dettur í hug innan um beinagrindumar.11 - Þið ætlið að vera með hatta- kvöld. Hvernig gengur það fyrir sig? „Sú hefð hefur skapast á Húsavík að á fostudögum eru hattadagar í bænum. Stofnað var sérstakt félag á Húsavík, sem hefur það að markmiði að hefja hatta og höfuðföt til vegs og virðingar á ný. Á föstudögum skartar því hver sem vettlingi getur valdið höfuðfati og fremst- ir í flokki fara bæjarstjórinn og presturinn. Þess vegna fannst okkur ekki annað hægt en bjóða upp á hattadag á Mæmdögum sem ber upp á föstudag. Þá verðum við með sérstaka hatta- keppni sem Félag hattaunnara sér um og þá verður kannað hver getur búið til flottasta hatt- inn á fimmtán mínútum. Verð- laun verða að sjálfsögðu veitt.“ - Ætlið þið ekki líka að krýna kleinumeistara Húsavíkur? „Jú, við ætlum að hafa upp á þeim sem bakar bestu kleinurnar. Nokkrir rómaðir matmenn ætla að dæma um gæðin og við veitum verðlaun fyrir 1., 2. og 3. sæti. Sá sem lendir , í fyrsta sæti verður líka krýndur Kleinumeistari Húsavíkur árið 1999.“ - Hlaðborðið á föstudags- kvöldinu verður með óhefð- bundnum hætti. Eiga ekki allir að koma með veitingar? „Við verðum með sameigin- legt hlaðborð í stóm tjaldi og við mælumst til að allir gestir komi María Axfjörð ►María Axfjörð fæddist á Akureyri árið 1953. Hún hefur starfað sem bókhaldari, m.a. hjá Húsavíkurbæ og Hótel Húsavík og nú hjá Hvalamið- stöðinni á Húsavík. María hefúr starfað mikið með Leikfélagi Húsavíkur og skipuleggur nú Mæmdaga á Húsavík ásamt fleirum. Eiginmaður hennar er Pálmi Þorsteinsson, rekstrarstjóri vegagerðarinnar á Húsavík, og eiga þau tvö börn og tvö barnabörn. Flottasti, sæt- asti og furðu- legasti sand- kastalinn með sinn uppáhaldsrétt og setji á hlaðborðið. Síðan geta gestir gengið á milli og smakkað á sem flestu. Þetta kvöld endar svo á því að gestir fara saman í fjöru- göngu, slá upp varðeldi og dansa á þyrludekkinu á Thor, sem nú liggur við bryggju og gegnir hlutverki veitingastaðar.“ María segir að fjölskyldan sé í brennidepli á laugardeginum. „Við fömm og tínum msl í fjör- unni og setjum það á ákveðinn stað. Þar byggja fjölskyldur síð- an sandkastala og skreyta með raslinu sem tínt var. Við veitum þá verðlaun fyrir sætasta, flottasta og furðulegasta verkið. Þá verður boðið upp á dorgveiði- keppni.“ - Hrútasýningin hefur notið vinsælda. Verður hún ekki í ár? „Ég er nú hrædd um það. Hrútasýningin er orðinn fastur liður og allir spyrja um hana. Þá koma félagar úr Fjáreigendafé- laginu og sýna hrútana sína. Spá- konan verður svo á staðnum eins og undanfarin ár.“ María segir að ef börn vilji sýna gæludýrin sín verði sett upp sérstök gæludýra- sýning og síðan verða ýmsar uppákomur fyrir börnin, andlits- málun, gúmmíbátar og kajakar í höfninni og hægt að fara á hest- bak eða í fjöltefli. -Hvenær lýkur svo hátíðinni? „Henni lýkur formlega á laug- ardagskvöldinu með dansleik. Hljómsveit- in Færibandið sér um að leika fyrir dansi og á miðnætti verður boðið upp á flugelda- .. sýningu." María segir að þó að hátíðinni ljúki formlega á laugardags- kvöldinu verði farið í sögugöngu með Guðna Halldórssyni á sunnudeginum og um kvöldið verða sumartónleikar í kirkjunni. Á mánudeginum verður sett upp útileiksýning á verki um kristni- tökuna eftir Böðvar Guðmunds- son sem nefnist Nýir tímar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.