Morgunblaðið - 22.07.1999, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Margvíslegir viðburðir eru framundan á kristnihátíðum prófastsdæmanna
Ný leikrit,
tónlist,
messur
og sýn-
ingar
Fjölmargar hátíðar-
guðsþjónustur, sam-
komur, sýningar, tón-
leikar og aðrir við-
burðir eru nú í undir-
búningi víða um land
vegna kristnihátíðar.
Næstu vikur og mán-
uði verður sitthvað
um að vera í mörgum
prófastsdæmum.
Á SUNNUDAGINN kemur,
sunnudaginn 25. júlí, verður íjöl-
skylduháti'ð kirkjunnar í Kjarna-
skógi við Akureyri í umsjón
Eyjaíjarðarprófastsdæmis. Dag-
skrá hefst klukkan 10 með stuttri
athöfn þar sem vígt verður bæn-
arjóður, en kl. 12.45 verður
gengið inn á svæðið í skrúð-
göngu. Fjölmargt er síðan á dag-
skrá fram eftir degi og kl. 15
verður frumsýnt nýtt Ieikrit eftir
Böðvar Guðmundsson, Nýir tím-
ar. Sýningin verður endurtekin
kl. 20. Flytjendur eru áhugaleik-
hópurinn Sýnir og eru leikarar
þess af öllu landinu. Leiksljóri er
Hörður Sigurðsson. Af öðrum at-
riðum má nefna ratleik, tónlist-
arflutning, brúðuleikhús og
fleira.
Hólahátíð og
Hallgrímsdagskrá
í Skagafjarðarprófastsdæmi
ber helst að nefna að Hólahátið
verður sunnudaginn 15. ágúst og
er þar að vanda bæði guðsþjón-
usta og hátíðarsamkoma. Guðs-
þjónustan verður kl. 14 og þar
mun doktor Sigurbjörn Einars-
son biskup predika. Klukkan 16
verður samkoma í kirkjunni og
er aðalræðumaður Davíð Odds-
son forsætisráðherra. Þar koma
einnig fram norskir tónlistar-
menn. Séra Bolli Þ. Gústavsson
vígslubiskup segir að fjölmenni
sé jafnan á Hólahátíð enda hafi
oftast viðrað vel þann dag. Þá
HÁPUNKTUR kristnihátíðarinnar verður hátiðin mikla á Þingvöllum sumarið 2000.
stendur yfír að Hólum sýningin
Heyr himna smiður og lýkur
henni á Hólahátíð. Er þar að
fínna ýmsa kirkjumuni úr Skaga-
firði sem Þjóðminjasafnið hefur
varðveitt.
Af öðrum viðburðum í Skaga-
fjarðarprófastsdæmi má nefna að
föstudaginn 23. júlí kl. 21 verður
flutt dagskrá í tali og tónum um
séra Hallgrím Pétursson, sálma-
skáld, á Hofsstöðum og hún end-
urtekin í Glaumbæ kl. 21 á
sunnudagskvöld. Séra Ólafur Þ.
Hallgrfmsson flytur erindi um
Hallgrím og séra Dalla Þórðar-
dóttir prófastur kynnir nokkra
sálma hans sem sungnir verða.
Fram kemur svonefndur Hall-
grímshópur undir stjórn Sveins
Arnars Sæmundssonar. Hátíð
verður í Siglufjarðarkirkju 29.
ágúst þegar minnst verður þess
að 100 ár eru frá útkomu hátíð-
artóns séra Bjarna Þorsteinsson-
ar. Flutt verður leikrit um
Bjarna sem Jón Ormar Ormsson
hefur samið. Þá er verið að
skipuleggja kirkjuviku í Skaga-
fjarðarprófastsdæmi í október-
nóvember með ýmsu helgihaldi
og listviðburðum.
I Rangárvallaprófastsdæmi
verður háti'ðardagskrá 31. októ-
ber. Hún hefst með guðsþjón-
ustu í Þykkvabæjarkirkju kl. 13
en si'ðan flytja gestir sig um set
og hlýða á framhald dagskrár-
innar að Laugalandi. Þar flytja
þeir sr. Sigurður Árni Þórðar-
son og dr. Gunnlaugur A. Jóns-
son fyrirlestra um safnaðarlíf
og safnaðarstarf. Séra Halldóra
J. Þorvarðardóttir prófastur
segir að menn hafí viljað fjalla
um það sem 21. öldin hefði í för
með sér í málum kirkjunnar og
því hafí þessi umræðuefni verið
valin.
Minnismerki um
Síðu-Hall við Þvottá
Á Austurlandi sameinast pró-
fastsdæmin þrjú, þ.e. Múla-,
Austfjarða- og Skaftafellspró-
fastsdæmi, um hátíð 29. ágúst á
Djúpavogi. Við Þvottá verður af-
hjúpað minnismerki um Síðu-
Hall sem séra Davíð Baldursson,
prófastur Austfjarðaprófasts-
dæmis, segir að hafí talið Þor-
geir Ljósvetningagoða á að íhuga
kristnina eftir að Þangbrandur
hafði skírt hann og hús hans.
Megi því telja grundvöll kristn-
innar lagðan á Austurlandi. Hér-
aðsfundir prófastsdæmanna
þriggja verða haldnir Iaugardag-
inn 28. ágúst og á sunnudeginum
verður hátíðarguðsþjónusta
Djúpavogskirkju.
f prófastsdæmi Snæfellinga og
Dalamanna verða hátíðir 31.
október og 7. nóvember; sú fyrri í
Stykkishólmskirkju kl. 14 hinn
31. október og þar flytur forseti
íslands, Ólafur Ragnar Grúnsson,
hátíðarræðu. Séra Ingiberg J.
Hannesson prófastur segir kóra
af Snæfellsnesi sameina kraftana
og flytja lög og ljóð eftir heima-
menn sem samin eru í tilefni
kristnihátíðarinnar. Einnig munu
barnakórar koma fram. Svipuð
hátíð verður viku síðar í félags-
heimilinu Dalabúð og þar munu á
sama hátt kirkjukórar í Dalasýslu
sameinast í söng. Aðalræðu þar
flytur séra Sigurður Sigurðarson
vígslubiskup. Þriðji atburðurinn
sem tengja má kristnihátíð sér-
staklega er 100 ára afmælishátíð
Staðarhólskirkju í Saurbæ hinn
21. nóvember en þar mun biskup
íslands, Karl Sigurbjörnsson,
predika.
Gengið milli kirkna
í Reykjavík hefst kristnihátíð
formlega 15. ágúst með útiguðs-
þjónustu á Laugardalsvelli, eins
og þegar hefur komið fram.
Þann dag verða einnig tónleikar
í Laugardalshöll, æskulýðssam-
koma í Skautahöllinni og
Mótettukór Hallgrímskirkju flyt-
ur H-moll messu Bachs í Hall-
grímskirkju um kvöldið. f sept-
ember skipuleggja Ferðafélag Is-
lands og Utivist kirkjugöngur í
samvinnu við prófastsdæmin.
Hugmyndin er að ganga frá einni
kirkju til annarrar nokkrar helg-
ar í röð og geta göngumenn þá
kynnst sögu kirkjunnar og
kirkjumuna, hlýtt messu eða
fengið fararblessun og verða
kirkjur annarra trúfélaga einnig
heimsóttar. Hinn 19. september
verða vígð ný orgel í Neskirkju
og Langholtskirkju. Þá er ráð-
gert að opna Dómkirkjuna að
nýju, eftir viðamiklar endurbæt-
ur, í október um það leyti sem
Alþingi verður sett. Undir lok
október er í undirbúningi ráð-
stefna um boðun kristinnar trúar
í íslensku samfélagi.
Öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu hafa komið sér upp vefsíðum
Fundargerðir nefnda
og ráða komnar á Netið
ÖLL sveitarfélögin á höfuðborgar-
svæðinu hafa komið sér upp vefsíð-
um, þar sem veittar eru upplýsingar
um stofnanir þeirra og þar er jafn-
framt hægt að nálgast fundargerðir
nefnda og ráða. Ekkert þeirra hefur
enn tengt skjalasafnið við Netið líkt
og bæjaryfirvöld á Höfn í Homa-
firði, þar sem bréf og erindi sem
hljóta afgreiðslu em birt en Hall-
dóra Gunnarsdóttir verkefnisstjóri
upplýsingamála hjá Reykjavíkur-
borg og Sigurgeir Sigurðsson bæj-
arstjóri á Seltjamarnesi, segja að
þar sé stefnan að koma upp slíku
kerfi í framtíðinni.
Að sögn Halldóru era stofnanir
borgarinnar með sínar eigin vefsíð-
ur, sem þær bera ábyrgð á. Á þeim
em upplýsingar um viðkomandi
stofnun, starfsfólk og verksvið
þeirra auk fundargerða, sem settar
em inn fljótlega eftir hvern fund.
Skjalasafn borgarinnar hefur enn
ekki verið tengt Netinu en skrifstof-
ur Ráðhússins em með skjalavist-
unarkerfi í tölvutæku formi, sem
skannar inn og skráir öll skjöl sem
þangað berast og öll skjöl sem þar
verða til. „Hins vegar era margar
aðrar borgarstofnanir ekki með
þetta kerfi þannig að í bili er ein-
göngu spumingin um Ráðhúsið og
því viljum við bíða aðeins með
þetta,“ sagði Halldóra.
I Kópavogi eiga allar fundargerð-
ir nefnda að vera komnar inn á Net-
ið í lok vikunnar að sögn Sigurðar
Geirdal bæjarstjóra. Sagði hann að
ekki stæði til að setja skjöl sem
bæmst bæjarstofnunum inn á netið,
því slík væri enn of kostnaðarsamt.
Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri
Seltjarnamess, sagði að flestar
fundargerðir nefnda og ráða væra
komnar inn á vefsíur og að stefnt
væri að því að önnur gögn færu
sömu leiðis þar inn. „Við höfum ver-
ið að skoða það sem sett hefur verið
upp á Höfn í Hornafírði og ég
reikna með að okkar kerfi verði
svipað," sagði hann.
Meta hvert tilvik
Ingimundur Sigurpálsson bæjar-
stjóri Garðabæjar segir að unnið
hafi verið að uppsetningu á vefsíð-
um fyrir stofnanir bæjarins frá því í
vor og að fundargerðir hafi verið
settar inn fyrir um mánuði síðan.
„Við höfum ekki hugleitt það,“ sagði
hann þegar hann var spurður um
hvort erindi sem bærust bænum
yrðu sett inn á vefinn. „Það þarf að
meta það í hverju tilviki hvað hægt
er að birta því upplýsingalögin eru
ansi ströng á því,“ sagði hann. „Það
er nú svo fátítt að menn biðji um að
fá að ganga í gögn að það er við-
burður. Það væri líka gríðarleg
vinna sem þyrfti að fara fram við að
fara í gegn um öll gögn og meta áð-
ur en þeim yrði hleypt inn á netið.
Sá kostnaður á móti ávinningi fyrir
almenning er í mínum huga allt of
mikill. Það er ekki fyrr en fólk fer
að verða kröfuharðara um slík gögn
að ég tel þann kostnað réttlætan-
legan.“
Gunnar Valur Gíslason sveitar-
stjóri Bessastaðahrepps, segir að
allar fundargerðir sveitarstjórnar
séu settar inn á vefsíður nánast um
leið en að ekki hafi verið hugað að
birtingu skjala af skjalasafninu. Jó-
hann Sigurjónsson bæjarstjóri
Mosfellsbæjar segir að búið sé að
koma upp vefsíðum en að fundar-
gerðir hafi ekki verið settar inn
markvisst. „Við höfum verið að
hrista upp í því að fundargerðir
verði settar inn reglulega og von-
andi rætist úr með haustinu,“ sagði
hann. „Ég geri ekki ráð fyrir að
skjalasafn bæjarins verði sett inn á
vefinn. Þetta era oft trúnaðarmál en
ef menn óska upplýsinga vegna ein-
hverra mála þá geta menn fengið
þær þegar búið er að kanna hvers
eðlis beiðnin er.“