Morgunblaðið - 22.07.1999, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 1999 29
ERLENT
Mótmæli við
Bundeswehr-athöfn
Stórfelldar skattalækkanir ræddar á Bandarfkjaþingi
Repúblikanar deila um
eigin skattatillögur
Reuters
FORYSTUMENN repúblikana í
fulltrúadeild Bandaríkjaþings
reyndu í gær að koma í veg fyrir
klofning í eigin þingflokki vegna
tillögu þeirra um stórfelldar
skattalækkanir á næsta áratug. I
tillögunni er meðal annars gert ráð
fyrir því að tekjuskattar allra
bandarískra skattgreiðenda verði
lækkaðir um 10% á tíu árum og
vonast repúblikanar til að hún
verði á meðal þeirra mála sem kos-
ið verður um í kosningunum á
næsta ári. Sá galli er hins vegar á
gjöf Njarðar að óvíst er hvort
repúblikanar geti sameinast um til-
löguna því um það bil tólf þing-
menn þeirra telja hana ganga alltof
langt.
Skorað á repúblikana að samein-
ast um tillöguna
Dennis Hastert, forseti fulltrúa-
deildarinnar, skoraði á repúblikana
að sameinast um tillöguna, sem fel-
ur í sér að skattarnir verði lækkað-
ir um 792 milljarða dala á næsta
áratug. Stjórn Bills Clintons for-
seta hefur spáð því að tekjuafgang-
ur Bandaríkjanna verði 3.000 millj-
arðar dala á þessu tímabili og
Hastert og aðrir forystumenn
repúblikana segja að nota eigi
tækifærið til að lækka skatta þjóð-
arinnar.
I tíu ára áætlun repúblikana er
gert ráð fyrir því að tekjuskattar
allra Bandaríkjamanna verði lækk-
aðir um 10%, hjón fái skattaafslátt,
fjármagnstekjuskattar verði lækk-
aðir og eignaskattar lagðir af í
áföngum.
Demókratar vilja
greiða skuidirnar niður
Þorri demókrata er andvígur til-
lögunni og hugsanlegt er að um
það bil tólf repúblikanar snúist á
sveif með þeim þegar hún verður
borin undir atkvæði í deildinni.
Repúblikanar eru með nauman
meirihluta í deildinni, 222 þing-
menn gegn 211.
Andstæðingar tillögunnar segja
hana skerða um of væntanlegan
tekjuafgang Bandaríkjanna á
næsta áratug og vilja að megnið af
fénu verði notað til að greiða niður
skuldir ríkissjóðs og fjármagna
umbætur á sjúkratryggingakerfinu
og fleiri forgangsmál.
„Við verðum að forðast að eyða
peningum sem við höfum ekki
fengið," sagði Sherwood L.
Boehlert, repúblikani frá New
York.
Hastert ræddi við andstæðinga
tillögunnar úr röðum flokksbræðra
sinna og sagði þeim að repúblikan-
ar yi-ðu að standa saman til að
styrkja samningsstöðu sína þegar
þeir hefja viðræður við Clinton for-
seta um breytingar á skattalög-
gjöfínni og fjármögnun sjúkra- og
almannatrygginga.
Hastert lofaði á fundinum að
bæta við tillöguna yfirlýsingu um
mikilvægi þess að greiða niður
skuldir Bandaríkjanna en nokkrir
þingmannanna sögðust ekki geta
sætt sig við slíka málamiðlun.
Repúblikaninn Fred Upton kvaðst
efast um að tillagan yrði samþykkt
í fulltrúadeildinni. „Eg tel ekki að
margir hafí skipt um skoðun,“
sagði hann eftir fundinn.
Clinton hótar að beita
neitunarvaldinu
Hastert varaði þingmennina við
því að kjósendur kynnu að efast
um að repúblikanar væru færir um
að stjórna landinu ef þeir gætu
ekki komið sér saman um breyt-
ingar á skattalöggjöfinni. Forystu-
menn flokksins óttast að tilraunir
þeirra til að gera skattalækkanir
að kosningamáli á næsta ári fari út
um þúfur takist þeim ekki að sann-
færa eigin þingmenn um ágæti
skattatillagna flokksins.
Repúblikanar segja skattalækk-
animar nauðsynlegar til að við-
halda hagvexti í landinu og koma í
veg fyrir að stjórnin noti fjárlaga-
afganginn til að auka ríkisútgjöld-
in.
Bandaríkjaforseti hefur hótað að
beita neitunarvaldi sínu til að
hindra skattalækkanirnar.
Repúblikaninn Michael N. Castle
hefur lagt til að skattarnir verði
lækkaðir um 500 milljarða dala í
stað 792 milljarða. Demókratar í
fulltrúadeildinni hafa hins vegar
boðað tillögu um 250 milljarða dala
skattalækkanir.
Berlín. Reuters, Daily Telegraph.
NÝLIÐAR í þýzka
hernum,
Bundeswehr, sóru
eiðstaf sinn í
fyrsta sinn við há-
tíðlega athöfn við
Bendlerblock-
bygginguna í
Berlín í fyrradag,
þar sem aðsetur
yfírstjórnar þýzka
hersins var á tím-
um síðari heims-
styrjaldar. At-
höfnin fór fram
55 árum upp á
dag eftir að fjöldi
hermanna var
tekinn af lífí við
bygginguna.
Höfðu þeir tekið
þátt í ,,20.-júlí-
samsærinu" svo-
kallaða árið 1944
en þá tókst greif-
anum Claus
Schenck von
Stauffenberg
næstum að ráða
Adolf Hitler af
dögum.
Bendlerblock hýsir nú safn til
minningar um Stauffenberg
greifa og aðra Þjóðverja sem
reyndu að steypa Hitler af stóli
til að binda enda á þá ógæfu sem
nazistar leiddu Þýzkaland út í.
Gerhard Schröder kanzlari
sagði í ávarpi til nýliðanna 432
að þeir væru arftakar þess anda,
sem Stauffenberg og hans líkar
hefðu haft að leiðarljósi. Sagði
hann, að Bundeswehr - sem
stofnaður var sem vestur-þýzkur
her árið 1955 - hefði „meira en
nokkur annar her þurft að færa
sönnur á lýðræðislegan grund-
völl sinn“. Þátttaka Bundeswehr
í aðgerðum í Kosovo sýndi að
hann væri „sannkallað friðar-
afl“.
Mikil öryggisgæzla var við at-
höfnina, þar sem æstir mótmæl-
endur reyndu að tnifla hana.
Hér fjarlægja tveir hermenn
þátttakanda í mótmælaaðgerð-
unura.
FERÐALAGIÐ BYRJAR VEL HJA ELLINGSEN...
Yesport
(EZD Fralrgm
ítalskir gönguskór, stærðir 36-47.
AÐEINS 4.995- (áður 7.260-)
OPIÐ VIRKA DAGA 8-18 OG LAUGARDAGA 10-14
Grandagarði 2, Rvík, sími 552-8855 og 800-6288
Maðkafötur, 3,5 lítrar.
VERÐ 1.978-
\kUtti/rhU\ X ^OAM ÁíxUm, thlcl jzjUbid’ MAAvWMWtA
Vöðlujakkar eru á óskalista sérhvers
veiðimanns. Þeir eru 100% vatns-
og vindheldir.
Flugur, spúnar, önglar, sökkur, flotholt og allt hitt...
Regnslár í ferðalagið.
" \ Nýkomnir flísjakkar.
'________
Ftís\aW^
Stangaveiðisett í úrvali: Flugustöng með hjóli frá 10.776- krónum.
Kaststöng (hefðbundin silungs- og laxastöng) með hjóli frá 4.565- krónum.
Barnasett; lítil stöng fyrir byrjendur með lokuðu hjóli í setti frá 2.173-
Veiðikassar og veiðibox í úrvali. Box frá 362-,
kassar frá 783-. Maðkabox í vasann 98-
Neoprene-vöðlur kosta frá
9.900-. Klofstígvél og gúmmí-
vöðlur á tilboði.
Stillongs-ullarnærfötin eru ekki síður heppilegur
klæðnaður á sumrin. Stillongs er tilvalið í fjallaferðina,
veiðitúrinn eða útileguna. Þú getur valið um þrjár
gerðir.
Beituönglar, pilkar, plötuönglar,
og Triple Fish-girni.
Vind-og vatnsheldir útivistar-
jakkar í miklu úrvali.
Verð frá 6.494-
MARGAR AÐRAR GERÐIR.
- TILBOÐ -
Stangarhaldarar fyrir bíla
átilboði, aðeins 6.681-