Morgunblaðið - 22.07.1999, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 22.07.1999, Blaðsíða 58
58 FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 1999 FÓLK í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ ^^LEIKFFLAGlj|á ©T REYKJAVÍKURJ® 18!17 1997 BORGARLEIKHÚSIÐ A SIÐUSTU STUNDU: Síðustu klukkustund fýrir sýningu eru miðar seldir á hátfvirði. Stóra svið kl. 20.00: Litíá ktlfllúiýfbúðto eftir Howard Ashman, tónlist eftir Alan Menken. í kvöld fim. 22/7 AUKASÝN. - laus sæti fös. 23/7 laus sæti lau. 24/7 laus sæti Ósóttar pantanir seldar daglega. Erum byrjuð að taka niður pantanir fyrir ágústmánuð. Miðasalan er opin virka daga frá kl. 12—18, frá kl. 13 laugardaga og sunnudaga og fram að sýn- ingu sýningardaga. Simapantanir virka daga frá kl. 10. Greiðslukortaþjónusta. Sími 568 8000, fax 568 0383. Fim. 22/7 kl. 21.00 Bræðingur KK djazzlríó Fös. 23/7 Þjdðlagahópurinn Bragarbót Ólína Þorvarðar, Kristín Á. Ólafs, KK og Diddi fiðla. Miðapantanir í símum 551 9055 og 551 9030. ISLENSKA OPERAN ___iiiii n.é’jii'ISiij Lj , i Gamanleikrit I leikstjórn Slgurðar Sigurjónssonar Fös 23/7 kl. 20 örfá sæti Lau 24/7 kl. 20 örfá sæti Ósóttar pantanir S ’• seldar daglega Símapantanir í síma 551 1475 frá kl. 12 Miðasala opin frá kl. 13—19 alla daga nema sunnudaga Hirðfffl hennar hátignar - uppselt Næstu sýningar sun. 8. og 15. ágúst Midasala í síma 552 3000. Opiö virka daga kl. 10-18 og fram aö sýningu sýningardaga Miöapantanir allan sólarhringmn. Frá A til Ö ■ ASTRÓ Útvarpsstöðin FM957 heldur upp á 10 ára afmæli stöðvar- innar á föstudagskvöld kl. 20.30 fyrir fjöldann allan af einstaklingum sem sumir hverjir tóku sín fyrstu skref á FM957. Kl. 22 verður tekið á móti hlustendum og er hægt að nálgast boðsmiða í afgreiðslu útvarpstöðvar- innar í Aðalstræti 6. ■ ÁSGARÐUR Glæsibæ Bingó fímmtudagskvöld kl. 19.45. Allir vel- komnir. Dansleikur sunnudagskvöld kl. 20. Caprí tríó leikur fyrir dansi. ■ CAFÉ HAFNARFJÖRÐUR er nýr pöbb, diskótek og sportbar að Dals- hrauni 13. Iþróttaleikir á tveimur risaskjám. Húsið er opið fóstudag ki. 16-3 og laugardaga og sunnudaga kl. 11-3. ■ CAFÉ ROMANCE Breski píanó- leikarinn Alison Sumner leikur öll kvöld. Hún Jeikur einnig fyrir matar- gesti Café Óperu. ■ CATALÍNA, Hamraborg Hljóm- sveitin Þotuliðið leikur föstudags- og laugardagskvöld. ■ FÓGETINN Á fímmtudagskvöld leikur Kolbeinn og á föstudags- og laugardagskvöld leikur hljómsveitin Blái fiðringurinn. Á sunnudagskvöld leikur Guðmundur Rúnar og leikur hann einnig miðvikudagskvöld. ■ GAUKUR Á STÖNG Á fimmtu- dagskvöld leika Papar og á fóstu- dagskvöld leika hljómsveitirnar O.fl. og Skriðjöklarnir en þetta er eitt af fáum skiptum sem þeir leika í Reykjavík en þeir verða einnig á Gauknum á sunnudagskvöld. Á laug- ardagskvöld leikur hljómsveitin Diesell. Á mánudagskvöld leikur síð- an Bjarni Tryggva og verður með sögustund fullorðinna. ■ GLAUMBAR Hljómsveitin Funkmaster 2000 leikur sunnudags- kvöld frá kl. 23. Tveir nýir meðlimir eru komnir til leiks þeir Valdi Coliins bassaleikari og Davíð Þór sem leikur á bassaflautu. ■ GRANDROKK Blúshljómsveitin Blues Express leikur fimmtudags- kvöld frá kl. 22.30. Hljómsveitin Blí- strandi æðarkoliur leikur föstudags- kvöld og á laugardagskvöld leikur síðan hljómsveitin Popper og á sunnudagskvöld verða tónleikar með hljómsveitunum Utópíu og Url. Tón- leikamir hefjast kl. 22. ■ GRUNDARFJARÐARHÁTÍÐIN Hljómsveitin Sól Dögg leikur laugar- dagskvöld í Iþróttahúsinu og er 16 ára aldurstakmark. ■ GULLÖLDIN Það eru stuðkarl- SKRIÐJÖKLAR eru nú komnir saman á ný undir yfirskriftinni Hugvit og fegurð ‘99 og leika þelr föstudags- og sunnudagskvöld á Gauki á Stöng og á laugardagskvöldinu í Réttinni, títhlíð. Hljóm- sveitina skipa þeir Ragnar Sót, söngvari, gítarleikaramir Jakob Jónsson og Kristján Edelstein, bassaleikarinn Jón Haukur, hljóm- borsleikarinn Jóhann Ingvason og trommuleikarinn Halli Gulli. arnir Svensen & Hallfunkel sem skemmta gestum föstudags- og laug- ardagskvöld. Á sunnudagskvöld verður síðan djassstemmning þar sem Kvartett Steina Krúbu leikur. Kvartettinn skipa: Þorsteinn Eiriks- son, trommur, Sveinbjörn Jakobs- son, gítar, Sigurjón Ámi Eyjólfsson, saxafón og Jón Þorsteinsson á bassa. Tónleikarnir hefjast kl. 21.30 og er aðgangur ókeypis. ■ HLOÐUFELL, Húsavík Hljóm- sveitin Sigur rós heldur tónleika fímmtudagskvöld frá kl. 22. Á fóstu- dagskvöld er barinn opinn og á laug- ardagskvöld Ieikur síðan hljómsveitin Blístrandi æðarkollur frá miðnætti. ■ HREÐAVATNSSKÁLI, Borgar- fírði Hljómsveitin Gildrumczz verð- ur með sína vinsælu Creedance Cle- arwater Revival dagskrá á laugar- dagskvöld. ■ INGÓLFSCAFÉ, Ölfusi Á laugar- dagskvöld verður haldið Mono-ball þar sem hljómsveitin Á móti sól leik- ur. Mono 87.7 verður með beina út- sendingu frá hluta af ballinu og Captain Morgan verður í stuði í dyr- unum. ■ INGHÓLL, Selfossi Hljómsveitin O.fl. leikur laugardagskvöld og verða ýmsar uppákomur s.s. leynigestir, gjörningur frá tískusamsteypunni Maí/GETon og heppnir gestir verða leystir út með gjöfum. ■ KAFFI REYKJAVÍK Á fímmtu- dagskvöld leikur Gréta og á föstu- dags- og laugardagskvöld leikur hljómsveitin 8-villt. Hún Gréta leikur síðan sunnudags- og mánudagskvöld og á þriðjudags- og miðvikudags- kvöld tekur Éyjófur Kristjánsson við. ■ KAFFI SPORT Á fimmtudags- kvöld leika Furstarnir ásamt Geir Ólafssyni, söngvara. Furstarnir eru Árni Scheving, bassi, Guðmundur Steingrímsson, trommur, Kjartan Valdimarsson, píanó og Þorleifur Gíslason á saxafón. ■ KAFFI THOMSEN Á laugardags- kvöld leikur Craze núverandi DMC heimsmeistari plötusnúða og ITC Scratch-Off meistari. Craze heitir réttu nafni Aristh Delgado og fædd- ist í Managua. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem heimsmeistari plötu- snúða leikur á íslandi. ■ KRIN GLUKRÁIN Á fímmtudags- og sunnudagskvöld leikur Guðmund- ur Rúnar Lúðvíksson og á fóstudags- og laugardagskvöld leikur hljóm- sveitin Léttir sprettir. Leikstofan er lokuð vegna breytinga. ■ LEIKHÚSKJALLARINN Á fóstu- dagskvöld verður Gæsa-gleðistund þar sem verða gæsaskot, gæsasöngv- ar og flottasta gæsin verður valin. Aliar gæsir frá glaðning frá Rómeó og Júlíu. Dj. Gummi Gonzalez verður í búrinu. Á laugardagskvöld sér Siggi Hlö um danstónlistina. ■ LILLEPUT, Laugavegi 34a er pöbb í erlendum stíl með risaskjá og tónlist fyrir alla aldursflokka. Húsið er opið alla daga frá kl. 12 og opið til kl. 23.30 virka daga og til kl. 2 föstu- dags- og laugardagskvöld. ■ LUNDINN Vestmannaeyjum Hljómsveitin Hafrót leikur fóstu- dags- og laugardagskvöld. ■ MÓTEL VENUS Á laugardags- kvöld verður haldið menningarkvöld frá kl. 21 þar sem boðið eru upp á tónleikakvöld með léttu djassívafi þar sem Óskar Guðjónsson, Þórður Högnason og Einar Scheving leika. Verð á tónleikana 700 kr. Tónleikar og matur 2.400 kr. ■ NAUSTIÐ er opið alla daga frá kl. 18 fyrir matargesti. Reykjavíkur- stofa er opin frá kl. 18. ■ NAUSTKRÁIN Á fóstudags- og laugardagskvöld leikur hin frábæra hljómsveit Geirmundar Valtýssonar. ■ NÆTURGALINN Þau Hilmar Sverrisson og Anna Vilhjálms leika fostudags- og laugardagskvöld. ■ PÉTURS PÖBB, Höfðabakka 1 Plötusnúðurinn Skugga-Baldur sér um tónlistina föstudags- og laugar- dagskvöld til kl. 3. ■ RAUÐA LJÓNIÐ Hljómsveitin Hot’n Sweet með Hermann Inga fremstan í flokki leika föstudags- og laugardagskvöld. ■ RÉTTIN, títhlíð Á laugardags- kvöld verður alvöru sveitaball með hljómsveitinni Skriðjöklum. Frítt á tjaldstæðin. ■ RIVE GAUCHE, Kópavogi Næstu fimmtudagskvöld leikur Sváfnir Sig- urðarson, gítarleikari frá kl. 21. ■ SIGUR RÓS er í tónleikaferð um landið. Hljómsveitin leikur fimmtu- dagskvöld í Hlöðufelii, Húsavík, föstudagskvöld í Sjallanum, Akur- eyri og laugardagskvöld verður hljómsveitin á Mælifelli, Sauðár- krók. Allir tónleikarnir hefjast kl. 21 og er miðaverð 1.000 kr. í forsölu og 1.200 kr. við inngang. ■ STUÐMENN leika á fjölskyldu- skemmtun í félagsheimilinu í Vík í Mýrdal og hefst hún kl. 21. Á fóstu- deginum verður unglingahljómsveit- in síðan með tónleika í íþróttahúsinu í Höfn í Hornafirði og daginn eftir er haldið til Egilsstaða, nánar tiltekið á Hótel Valaskjálf. Yfirreið helgarinn- ar lýkur síðan á Siglufirði á sunnu- daginn með fjölskylduskemmtun á Hótel Læk. Með í fór eru söngvarar, dansarar auk bílstjóra og burðar- karla úr Reykjavík. ■ VIÐ POLLINN, Akureyri Dans- sveitin KOS leikur fóstudags- og laugardagskvöld. Vinirnir fá launahækkun LEIKARARNIR í Vinum gætu fengið allgóða launahækkun skrifi þau undir samning um að leika í enn einni þáttaröðinni, þeirri sjöttu. Þeir sem þekkja til í Hollywood segja þau geta átt von á því að fá sem svarar um sautján milljónum króna á mann fyrir hvern þátt en núna fá þau sem svarar um sjö milljónum króna. Þetta eru gríðarlegar upphæðir í samanburði við það sem þau fengu greitt þegar þau léku í fyrstu þáttaröðinni. Þá rað þúsund krónum á mann fyr- ir þáttinn. Núna eru Vinir langvinsælasti gamanþátturinn í Bandaríkjun- um og horfa að meðaltali 23,5 milljónir manna á hvem þátt. Þættirnir em einnig næstvinsæl- ustu sjónvarpsþættirnir í Banda- ríkjunum en Bráðavaktin er eini þátturinn sem er vinsælli. Sjón- varpsstöðin NBC, sem sýnir Vini, vill því gera allt til að halda í mannskapinn því þætt- irnir yrðu að sjáífsögðu ekki þeir sömu án þeirra. Því er talið að þeim verði boðin áður- nefnd upphæð og þá verði von- andi hægt að samningsbinda þau í að minnsta kosti tvö ár til við- bótar. Von- andi verða Vinirnir skynsamir og taka þessu kostaboði svo að sjón- varpsá- horfend- ur verði eftir í lausu MYNPBÖNP Dauðinn kem- ur í heimsókn Má ég kynna Joe Black (Meet Joe Black)_ Drama ★★★ Leiksfjórn: Martin Brest. Aðalhlut- verk: Brad Pitt, Anthony Hopkins og Claire Forlani. 173 mín. Bandarísk. CIC myndbönd, júní 1999. Öllum leyfð. Ml l I |( >l ttl. AGK ÞAÐ er mikið kjöt á beinunum í þessari mynd um dauðann. Fjölmarg- ar spurningar vakna gjaman þeg- ar menn taka til við að hugleiða þennan eina og endanlega sannleik mannlegr- ar tilvistar og skilin milli lífs og dauða; samband holds og anda; og eðli ástar og vináttu eru dæmi um viðfangs- efni myndarinnar. Það er því úr nógu að moða fyrir fráþæran leikarahópinn, með þá félaga Pitt og Hopkins í broddi fylkingar. Frásögnin h'ður fram hægt og þungt í takt við vandlega þyggða hrynjandi og þótt myndin sé hátt í þtjá tíma að lengd tekur maður varla eftir því. Myndin ber þess merki að vera byggð á sviðsverki, því mikilvægi sögunnar og spenna liggja innra með persónunum frekar en í því sem þær taka sér fyrir hendur. Virkilega eftir- minnileg gæðamynd. Guðmundur Ásgeirsson Goðsögn sem lifír Hagnýtir galdrar Practical Magic)_________ Ævintýri/ástar- saga/drama ★ ★*/2 Leiksljóm: Grifíín Dunne. Aðalhlut- verk: Sandra Bullock, Nicole Kidman, Stockard Channing og Dianne Wiest. 100 mín. Bandarísk. Wamer myndir, júlí 1999. Aldurstakmark: 12 ár. NORNIR eru rótgróinn og um- deildur hluti goðsagnaheims vest- rænnar menningar. Hér blandast nornasögur hefð innan bandarískra fantasíubókmennta eftir konur, þar sem dulin kvenleg öfl era meginatriði. Þessi bandaríski femínismi er mjög á skjön, og sum- staðar í algjörri andstöðu við evr- ópskar kenningar um femínisma þar sem einmitt er ráð- ist harkalega gegn goðsögnum af þessu tagi. Myndin er hins vegar ágæt skemmtun. Þetta er rómantísk ástarsaga með hryllingsívafi, römmuð af með nokkuð sjarmerandi töfra- ljóma. Leikkonurnar standa sig glæsilega upp til hópa og sömu sögu er að segja um karlana þótt þeir gegni mun veigaminni hlutverkum. Myndin er öll mjög fagmannlega unn- in, en það vantar einhvern neista. Fín afþreying sem ekki skilur of mikið eftir sig. Guðmundur Ásgeirsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.