Morgunblaðið - 05.08.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.08.1999, Blaðsíða 1
B L A Ð A L L R A LANDSMANNA \ 1999 ■ FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST BLAD Herbert til Groningen HERBERT Arnarson, sem lék með Grindvík- ingum síðasta vetur, hefur gert samning við hollenska körfuknattleiksliðið Donar Gron- ingen. Samningur Herberts við félagið er til eins árs. Herbert fór til Hollands á sunnudag til við- ræðna við félagið en forráðamenn þess höfðu í nokkrar vikur sýnt honum áhuga. Herbert lék með félaginu veturinn 1996-97 en fór næsta vetur til Antwerpen í Belgíu og síðan til Grindvíkinga. „Mér lýst vel á leikmannahópinn, sem hef- ur tekið miklum breytinum. Aðeins einn leik- maður er frá fyrra tímabili en félagið setur markið hátt,“ sagði Herbert. Morgunblaðið/Golli Einstök veðurblíða heilsar Landsmótsgestum LANDSMÓTIÐ í golfi hófst i gær á golfvelli Oddfellowa og Golfklúbbsins Odds í Urriðavatnsdöium í Heiðmörk. Þar leika annar og þriðji forgjafarflokkur karla, en þá skipa samtals 208 kylfingar. Keppní í öðrum flokkum hefst á Hvaleyrarholtsvelli Golfklúbbsins Keilis í Hafnarfirði í dag, en mótinu lýkur á sunnudag. Leikur gekk heldur hægt i gær og á myndinni má sjá að einn keppenda lagðist flatur drykklanga stund og naut veðurblíðunnar. ÍBV er úr leik Eyjamenn eru úr leik í Evr- ópukeppni meistaraliða eftir 3:1 tap fyrir MTK í Búdapest í gærkvöldi en fyrri leiknum í Eyj- um lauk einnig með sigri Ung- verja, 2:0. Vestmannaeyingar voru lengi að ná sér á strik í Búd- apest og á meðan skoruðu heima- menn mark á upphafsmínútunum og síðan tvö fyrir hlé svo að úti var ævintýr - þó að allt geti gerst í fótboltanum voru líkurnar á að vinna upp fimm marka forskot langsóttur draumur. Eins og það hafi ekki verið nógu erfitt fyrir Eyjamenn að halda til Búdapest með 2:0 tap í farteskinu heldur fengu þeir á sig mark á 3. mínútu síðari leiksins við MTK Búdapest ytra. Markið dró heldur vígtennurnar úr Eyjamönnum enda Ungverjarnir sterkir á heimavelli og bættu við öðru marki á 25. mínútu og því þriðja fimm mínútum fyrir leikhlé. A þeim kafla voru Ungverjarnir mun sterkari. í leikhléinu náðu Eyjamenn að stilla betur strengi sína, markið var sett á að halda í það minnsta haus og það gekk eftir enda jafnað- ist leikurinn töluvert. Engu síður fengu heimamenn ágæt færi en það gerði Allan Mörköre, Færey- ingurinn í liði ÍBV, líka og náði að aðstoða ívar Bjarklind við að minnka muninn í 3:1 er leið á leik- inn. „Við vörðumst á alltof stóru svæði og þeir ná að skora en mark- ið slökkti um tíma á okkar mönn- um,“ sagði Bjarni Jóhannsson, þjálfari IBV, í viðtali við Morgun- blaðið eftir leikinn í gærkvöldi. „En við náðum að þjappa okkur saman, hugsuðum sem svo að við hefðum tapað fyrri hálfleiknum, ætluðum okkur að bera okkur vel eftir hlé og það gerðum við því hægt er að segja að við höfum unn- ið þann hluta. Ég verð samt að segja að við vorum ekki að leika okkar besta leik, ég veit ekki hverju er um að kenna en það þarf mikið til að rífa sig á fætur eftir tap í Eyjum. Nú er bara að komast heim sem fyrst því þar eru ærin verkefni, til dæmis bikarkeppnin," bætti Bjarni við en hann reiknar með að komast heim að kvöldi fimmtudags. Útlendingar til Hauka og Njarðvíkur KÖRFUKNATTLEIKSDEILD Hauka hefur gert árs sanming við bandarískan bakvörð, Chris Dade. Hann er 25 ára og 1,89 m á hæð. Dade lék með Hapoel Zfat í ísrael á liðnu tímabili en áður með Fullerton-háskólanum í Bandaríkjunum. Hann gerði 17 stig að meðaltali í leik með bandaríska háskólaliðinu. Von er á leik- manninum til landsins um miðjan mánuðinn. Njarðvíkingar hafa gengið frá samningi við Purnell Perry, bandarískan framherja. Perry, sem er 1,97 m á hæð, lék á síð- asta ári í Svíþjóð en þar áður með Winnipeg Cyclons í Kanada. Hann er væntanlegur til Njarðvíkur um miðjan ágúst. Ekki varð af samningum við Brenton Birmingham, sem lék með Njarðvfk á síðasta ári. Hann er nú í viðræðum við lið í Austurríki og Ung- verjalandi. Guðrún varð sjötta á „Gullmóti" í Mónakó GUÐRÚN Arnardóttir, íslandsmethafi í grindahlaupi úr Ár- manni, varð í sjötta sæti í 400 metra grindahlaupi á „Gullmóti“ Alþjóða fijálsfþróttasambandsins í Mónakó í gær. Guðrún hljóp á 56,36 sekúndum, en fslandsmet hennar er 54,59. Sigurvegari í hlaupinu var Deon Hemmings, Jamaíku á 53,74. Þetta var f fyrsta sinn sfðan „Gullmótaröðinni" var ýtt úr vör í fyrrasumar að íslendingur tekur þátt í henni. GOLF: EINVÍGI RAGNHILDAR OG ÓLAFAR MARÍU LIGGUR í LOFTINU / C3

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.