Morgunblaðið - 21.08.1999, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 21.08.1999, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ sært fætur hrossa. Furðusagnii- eru einnig tengdar Hraunsvatni og var fyrrum hald manna að undirgangur væri úr vatninu til sjávar og þannig hefði fiskur komist í það og því gætti þar flóðs og fjöru. Þar sáust líka tor- kennilegir undirborðsfuglar, sem gripu í fætur annarra fugla og héldu þannig fuglalífi í skefjum. Nikur eða vatnahestur átti einnig að vera í vatninu, og var hann talinn valda flóði og fjöru með brölti sínu sérstak- lega ef hann stíflaði tímabimdið und- irgöngin til sjávar. Vel má ganga umhverfis vatnið, en þá verða á vegi manns bæði Vatns- dalsáin sem fellur í suðurenda vatns- ins og Hraunsáin sem fellur norður úr því, en þær eru flestum lítil fyrir- staða. Ef menn vilja ekki fara sömu leið til baka að Hálsi má ganga niður með Hraunsánni, en hún rennur í fal- legum sveigum úr vatninu, en hverf- ur oftast í hraunið nokkru neðar, og síðan má rölta um ævintýraheim Hraunsstapanna, niður að Hálsi. Vilji menn koma annars staðar til byggða má ganga að Hrauni, ótrúlega fallega gönguleið. Er þá skemmtilegast að vaða yfir Hraunsána upp við vatnið °g fylgja fjöruborðinu upp að Drangafjalli, og er þá komið í lægð sem liggur norður með fjallinu og nefnist Drangabollar. Lægðinni fylgja menn til norðurs uns hún beygir niður að Hrauni og gæti ferð- in tekið 3-4 tíma í ævintýralegu um- hverfi með tígullegt Drangafjall og Hraundranga yfirgnæfandi. Þetta er auðveld leið og fær með öllu frísku fólki og gangandi börnum sem kom- ast yfir ána. Einnig má fara þessa leið með hesta. Auðnaháls yfir í Hörgárdal Auðnaháls (547 m) er eina göngu- leiðin í þessum þætti sem var hefð- bundin samgönguleið fyrrum. Hún er hestafær, en sýna þarf varúð Hörgárdalsmegin til að komast niður klettabelti þar. Auðveldast er að fara frá bænum Auðnum, sem er utar en Hraun, en einnig má fara frá Hrauni. Býöames FJögukerling Auðnir! Staðarb'akki Einbúi Hraundrangi 0» rðarstaðasef' /Hrauns; /stapar fgfiaunsá / < ip^ Engfmýrý Þverbreklfi' vQÍn I ‘ ' /> Þverbrákka Bessahlaða -/r-yh/i/ tinjúkur. / / ,' , }), iíJfirfi- '■ Sesss Fagranes- 7 fjall Bötarhúsagff. jSwSM'/ ) f) ^ ....///// H i Tjk/H Gilshnjúkur Beinast liggur við að stefna á Auðna- hálsinn þar sem hann er lægstur (það gera hestamenn) og er þá farið utan við stakstætt fell, Einbúa, og rétt utan við endann á Drangafjall- inu, sem nefnist Hallok. En vilji menn fara fegurri en erfiðari leið er gengið upp lægðina ofan við Hraun LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1999 31 og síðan upp bratta melbrekku og of- an við Einbúa og norður á hálsinn fyrir utan Hallokið. Yfir Hörgá kom- ast menn á brú hjá bænum Búðar- nesi. Þessi ferð gæti tekið 4-5 tíma. Nú verða nefndar meiri gönguleið- ir um fjöll og skörð í nágrenninu, sem flestar eru dagsferðir. Drangafjall Hægt er að fara geysifagra útsýn- isferð á Drangafjall (1.123 m), en á það er gengið norður úr Sandsskál sem er við vestanvert Hraunsvatn. Nokkuð bratt er upp úr skálinni, en fjallið er flatt að ofan. Sé gengið norður eftir fjallinu, er fljótlega komið að mjóum og gjörsamlega ófærum klettahrygg, þar sem Hraundrangi (1.075 m) ríkir mið- svæðis. Hraundrangi er ekki við- fangsefni venjulegra göngumanna heldur vel búinna og þjálfaðra klifur- manna. Hann var fyrst sigraður árið 1956 og margoft síðan. Lengra norð- ur verður ekki komist og þarna horfa menn niður á Hraundranga og njóta góðs útsýnis bæði austur yfir Öxnadal og vestur yfir Hörgárdal, vítt og breitt um Tröllaskaga. Fara má sömu leið til baka. Kiðlingsdalur yfír í Hörgárdal Vestur úr Vatnsdal gengur lítil dalskora, Kiðlingsdalur, og greinir Kiðlingshnjúkur hana frá Vatnsdaln- um, en framhald Drangafjallsins til suðurs nefnist Háafjall og greinir Kiðlingsdal og Vatnsdal frá Hörgár- dal og afdölum hans. Þarna má fara yfir í Grjótárdal sem er hliðardalur Hörgárdals. Er þá farið inn með Hraunsvatni vestanverðu og upp úr Kiðlingsdalsbotni (1.060 m) yfir í Grjótárdal og út Hörgárdal. Yfir Hörgá komast menn á brú hjá bæn- um Staðarbakka í Hörgárdal, sem er undir Hraundranga vestanverðum. Þverbrekkuhnjúkur Flestir sem aka um Öxnadal gætu hugsað sér að standa á tindi þessa tígullega fjalls. Fari menn inn með Hraunsvatni að austanverðu, má ganga inn undir dalbotninn og sveigja austur í Bessahlaðaskarð (1.000 m) og þaðan út á Þverbrekku- hnjúk (1.200 m). Þar er gestabók þar sem hægt er að skjalfesta afrekið, en af hnjúknum er fögur sýn út Öxna- dalinn og yfir dali og fjöll umhverfis. Fara má til byggða niður Bessa- hlaðaskarð í Öxnadal. Þegar komið er í Öxnadal má annaðhvort stefna á brú hringvegarins yfir Öxnadalsána, sem er nokkru framar í dalnum, eða stefna út fjallshlíðina undir Þver- brekkuhnjúki, alllanga leið að brúnni hjá Hálsi, þar sem farartækin bíða líklega. Varmavatnshólafjall og nágrenni Þegar komið er inn í Vatnsdals- botn má klöngrast upp botnjökulinn (1.160 m) og yfir í svonefnd Grjótár- dalsdrög, en þar liggur Gilsgil niður í Öxnadal við eyðibýlið Gil, sem er skammt utan við Bakkasel. Þegar gengið er niður Gilsgilið er rétt að virða fyrir sér fallega fossa í gilinu. Rétt er þó, þegar komið er upp botnjökulinn úr Vatnsdalnum, að ganga út á Varmavatnshólafjall (1.230 m) en þaðan er fagurt að líta þó Þverbrekkuhnjúkur byrgi nokk- uð norðursýn. Hafi menn hins vegar næga krafta og tíma í Grjótárdals- drögum má, í stað þess að fara nið- ur Gilsgilið, ganga suður svonefnd- an Grjótárdal og er þá komið niður á Öxnadalsheiði í námunda við slysavarnaskýlið Sesseljubúð, sem margir kannast við af hringvegin- um. Flestum þessara leið er lýst í Ár- bók Ferðafélags íslands 1990. Verið velkomin á bemskuslóðir Jónasar Hallgrímssonar. Höfundur er formaður Ferðafélngs- ins Hörgs og starfar sem náttúru- fræðingur hjá Rannsóknastofnun landbúnaðarins á Möðruvöllum í Hörgárdal. Vökum af list í Galleríi Verið velkomin að sjá, spjalla og njóta t/ Listamenn sýna vinnubrögð í galleríinu, svo sem olíu- og vatnslitamálun og leirkeragerð. ✓ Þrykkt á fyrstu grafíkpressu sem kom til íslands. t/ Listamenn teikna portretmyndir af yngstu gestunum - í boði Gallerís Foldar. ✓ Teiknisamkeppni fyrir börn, 12 ára og yngri - verðlaun veitt fyrir bestu teikningar í hverjum aldursflokki. ✓ Eins og ávallt - mörg hundruð myndverk til sýnis og sölu eftir um 200 listamenn. ✓ Heitir drykkir og sætar kökur fyrir börn og fullorðna. ý Opið frá klukkan 17.00 til 1.00 Katrín H. Ji Shen Hrafnhildur Hjördís Gréta Berg Páll Heimir Ólöf Kjaran Gunnella Ágústsdóttir Teiknarbömin Bemharðsdóttir Guðmundsdóttir Teiknarbömin Pálsson Vatnslitur 21-24 Olíumálun 22-01 Vatnslitur 17-20 17-20 01íumálun 19-22 Leirker 20-23 20-23 Þrykk 21-24 Sem stendur höfum við til sölu verk eftir neðangreinda listamenn: Asgrím Jónsson - Agúst Pctersen - Asgerði Búadóttur - Alfreð Flóka- Anne Tine Foberg - Axel Einarsson - Asdísi Guðjónsdóttur - Ásgeir Smára Einarsson - Atla Má - Arnar Herbertsson - Ásdísi Sigurþórsdóttur - Brynhildi Ósk Gísladóttur - Braga Ásgeirsson - Braga Hannesson - Birnu Matthíasdóttur - Björn Þórðarson - Björgu Þorsteinsdóttur - Barböru Árnason - Baltasar - Benedikt Gunnarsson - Blöku (Guðrúnu Jónsdóttur) - Dröfn Friðfinnsdóttur - Daða Guðbjörnsson - Dominique Ambrose - Eirík Smith - Eyjólf J. Eyfells - Einar G. Baldvinsson - Eirík K. Jónsson - Eggcrt Guðmundsson - Einar Hákonarson - Eyborgu Guðmundsdóttur - Erró (Guðmund Guðmundsson) - Eggert M. Laxdal - Eddu Jónsdóttir - Elínu Magnúsdóttur - Erling Jón Valgarðsson - Einar Má Guðvarðarson - Ernu Guðmarsdóttur - Elínu G. Jóhannsdóttur - Eyjólf Einarsson - Finn Jónsson - Gísla Jónsson - Guðrúnu Sigurðardóttur - Garðar Pétursson - Guðrúnu Benediktsdóttur - Guðmund Björgvinsson - Guðmund Einarsson (frá Miðdal) - Gunnlaug Blöndal - Gerhard Henning - Gunnlaug Scheving - Gunnar R. Bjarnason - Gunnlaug Stefán Gíslason - Guðbjörgu Lind Jónsdóttur - Gunnar Hjaltason - Gunnellu (Guðrúnu Elínu Ólafsdóttur) - Guðmund Þorsteinsson - Gunnar Örn Gunnarsson - Gunnar Karlsson - Guðmund R. Lúðvíksson - Dósl (Hjördísi Bergsdóttur) - Hjalta Einar Sigurbjörnsson - Hekiu Björk Guðmundsdóttur - Hrafnhildi Bernharðsdóttur - Hring Jóhannesson - Halidór Pétursson - Helga Þorgils Friðjónsson - Harald Bilson - Hafliða Hallgrímsson - Hafdísi Ólafsdóttur - Hans Christenscn - Hauk Dór - Hörpu Björnsdóttur - Ingu Elínu Kristjánsdóttur - Ingu Hlöðversdóttur - Irene Jensen - Ingibjörgu Hauksdóttur - Ingibjörgu Styrgerði Haraldsdóttur - Ingunni Eydal - Ingibcrg Magnússon - Jóhannes S. Kjarval - Jón Stefánsson - Jón Thor Gíslason - Jón Hróbjartsson - Jóhanncs Jóhannesson - Jóhann Briem - Jóhann Eyfells - John Lennon - Jón Þorleifsson - Jón Baldvinsson - Jónas Guðmundsson - Jón E. Guðmundsson - Jón Engilberts - Jónínu Láru Einarsdóttur - Jónas Braga Jónasson - Jónas Viðar Sveinsson - Jóhannes Geir Jónsson - Jón Reykdal - Karl Kvaran - Kristján Magnússon - Kristján Davíðsson - Kristínu Hauksdóttur - Kristínu Jónsdóttur - Kára Eiríksson - Kristínu Arngrímsdóttur - Karólínu Lárusdóttur - Kristberg Pétursson - Klaus Kertzer - Kristínu Guðjónsdóttur - Katrínu H. Ágústsdóttur - Ki Ko Korriro (Þórð Valdimarsson) - Kristján Guðmundsson - Katrínu Pálsdóttur - Kjartan Guðjónsson - Leif Breiðfjörð - Lindu Richardson - Línu Rut Wilberg - Lýð Sigurðsson - Lu Hong - Lfsu K. Guðjónsdóttur - Magnús Þorgrímsson - Marlyn Herdfsi Melik - Megas - Magnús A. Arnason - Magdalenu Margréti Kjartansdóttur - Magnús Kjartansson - Nínu Sæmundsson - Nikulás Sigfússon - Nínu Gautadóttur - Ómar Stefánsson - Ólöfu Davíðsdóttur - Ólöfu Kjaran - Ólöfu Einarsdóttur - Ólaf Túbals - Pétur Gaut Svavarsson - Pétur Friðrik Sigurðsson - Pál Guðmundsson frá Húsafelli - Piu Rakcl Svcrrisdóttur - Pétur Behrens - Rósu Gísladóttur - Ragnar Pál - Ragnheiði Jónsdóttur - Richard Valtingojer - Rósu S. Jónsdóttur - Sverri Haraldsson - Sossu (Margréti Soffíu Björnsdóttur) - Sigrúnu Sveinsdóttur - Simonas Skrabulis - Sigríði Gísladóttur - Svein Þórarínsson - Svein Björnsson - Sigurð Sigurðsson - Sveinbjörn Blöndal - Snorra Svein Friðriksson - Stórval (Stefán Jónsson frá Möðrudal) - Svavar Guðnason - Steinunni Marteinsdóttur - Sigurð Þóri - Sigurð Örlygsson - Snorra Arinbjarnar - Sigurð Eyþórsson - Susanne Christensen - Sigurbjörn Jónsson - Sigurjón Jóhannsson - Sigríði Helgu Hauksdóttur - Sigríði Gyðu Sigurðardóttur - Sólveig Baldursdóttir - Sigríði Önnu E. Nikulásdóttur - Sigrúnu Einarsdóttur (Bergvík) - Sören Larsen (Bergvík) - Sigrfði Oddnýju Stefánsdóttur - Soffíu Sæmundsdóttur - Ji Shen - Söru Vilbergsdóttur - Sigrúnu Eldjárn - Sigurð Hauk Lúðvigsson - Sigríði Ágústsdóttur - Tryggva Ólafsson - Tolla (Þorlák Kristinsson) - Vapen (Valdimar Bjarnfreðsson) - Vögnu Sólveigu Vagnsdóttur - Valgarð Gunnarsson - Vilh jálm Bergsson - Veturliða Gunnarsson - Valtý Pétursson - Valgerði Guðlaugsdóttur - Weissauer - Þorstcin Hclgason - Zhang Hong - Þorfinn Sigurgeirsson - Þorbjörgu Höskuldsdóttur - Þórð Hall - Þorgerði Sigurðardóttur - Örlyg Sigurðsson - Örn Þorsteinsson Sem sagt - eitthvað fyrir flesta! Fold RAUÐARÁRSTÍG 14 SÍMI 551 0400 0PIÐ TILKL. 01.00 íNún
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.