Morgunblaðið - 19.01.2000, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 19.01.2000, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2000 C 3 IÞROTTIR Verkfall á Italíu? ÍTALSKIR knattspymumenn lióta verkfallsaðgerðum um næstu mánaða- mót ef ekki verður farið að kröfum þeirra um að hætta að leika að kvöld- lagi á vetuma. Þeir vilja að kvöldleik- irnir verði teknir af dagskrá frá og með næsta tímabili. Aðalrökin fyrir þessari kröfu leik- mannanna er sú að á vetrarkvöldum em vellirnir orðnir harðir og hættuleg- ir vegna frosts. Meiðslahættan er því mun meiri en fyrr að deginum meðan sól er á Iofti. „Það er hrein heimska að hefja leiki klukkan hálfníu eða níu að kvöldi á vet- uma,“ sagði Sergio Campana, forseti ítölsku leikmannasamtakanna, í sam- tali við blaðið Corriere della Sera í gær. Gabriel Batistuta, leikmaður Fior- entina, tók í sama streng. „Það er mjög áhættusamt að leika knattspymu á völlum Norður-Ítalíu á vetrarkvöld- um,“ sagði Batistuta, en lið hans lék í gærkvöldi bikarleik sem hófst klukkan níu að staðartíma. Það em fyrst og fremst sjónvarpsútsendingar sem ráða því að kvöldleikjum hefur farið fjölg- andi á ftalíu undanfarin ár. Leikmennimir hafa gefið félögunum einnar viku frest til að ákveða þessar breytingar fyrir komandi tímabil, að öðram kosti heíjast verkfallsaðgerð- imar þann 30. janúar. Sameining á Suðuriandi HAMAR úr Hveragerði og Ægir frá Þorlákshöfn og Eyrarbakka senda sameiginlegt lið í 3. deildar keppnina í knattspyrnu í sumar. Ægismenn féllu úr 2. deildinni í haust og Hamar átti erfitt uppdráttar í 3. deildinni og for- ráðamenn félaganna vonast eftir betri árangri undir sameiginlegu merki. KÖRFUKNATTLEIKUR Falur í raðir efsta liðs Finnlands Morgunblaðið/Ásdís Falur Harðarson er genginn til liðs við Tapiolan Honka, efsta lið Finnlands. FALUR Harðarson, körfuknatt- leiksmaður frá Keflavík, hefur fiutt sig um set i Finnlandi. Hann er genginn í raðir Tapiol- an Honka, sem er í efsta sæti finnsku deildarinnar, en Topo, sem Falur hefur leikið með frá því haust, er í ellefta sæti af fjórtán. að voru peningavandræði í lið- inu og [Tapiolan Honka] bauðst til að taka við samningi mín- um,“ sagði Falur. Hann kvaðst hafa fengið fregnir af fjárhagserfiðleik- um Topo á milli jóla og nýárs og gerði sér ferð til Finnlands er hann dvaldi hér á landi yfir hátíðarnar til að ræða framtíð sína. „Ég er gríðarlega ánægður. Þetta var mjög heppileg lausn. Þarna er ég kominn í lið sem hefur alla burði til að vinna titilinn. Ég er ánægður með að það skuli hafa áhuga á mér. Það gefur til kynna að ég hafi í það minnsta ekki staðið mig illa héma. Þetta lið er í Espoo sem er rétt fyrir utan Helsinki. Ég þarf ekki að fara nema um tíu kfló- metra á æfingu,“ sagði Falur, en hann er búsettur í Helsinki og þarf því ekki að flytja búferlum við fé- lagaskiptin. Falur, sem hefur gert um ellefu stig að meðaltali í vetur, sagðist hafa íhugað að snúa aftur til ís- lands og leika þar áður en Tapiolan Honka sýndi honum áhuga. „Hérna þurfti ég líka bara að bíða í átta daga eftir því að verða löglegur,“ sagði hann, en á íslandi hefði Falur þurft að bíða í mánuð eftir leik- heimild með nýju liði. Falur, sem var varafyrirliði Topo, er ekki eini maðurinn, sem fór frá félaginu og yfir í Honka. Fyrirliði liðsins yfirgaf herbúðir þess á milli jóla og nýárs og þjálf- arinn er tekinn við starfi ráðgjafa þjálfara Tapiolan. „Ég veit að ég mun spila mikið hjá þeim, því þá hefur vantað þriðja bakvörðinn. Ég býst ekki við að vera í byrjunarliðinu, alltént ekki til að byrja með. Auðvitað stefni ég á það, en ég er tiltölulega nýkominn í liðið. Liðið hefur verið gagnrýnt fyrir að hafa engan til að skipta við hina bakverðina," segir Falur. „Ég kem til með að leysa ungan strák af, sem hefur fengið að spila nokk- uð mikið, en hann hefur ekki skilað neinu, er með einhver þrjú stig að meðaltali í leik.“ Tapiolan Honka tekur þátt í NEBL-deildinni, sem kennd er við Norður-Evrópu, líkt og Topo. Fal- ur sagði það hafa skipt sköpum er hann tók ákvörðun sína um að ganga í raðir Honka, en í keppninni leika lið á borð við Zalgiris frá Kaunas í Litháen og CSKA Moskva. Falur og félagar leika tvo leiki í keppninni um næstu helgi í Kaupmannahöfn. Falur leikur í fyrsta sinn með nýju liði sínu í kvöld. Mótherjinn er Piiloset frá Turku og er í öðru sæti deildarinnar, hefur unnið tveimur leikjum færra en tapað jafnmörg- um og Tapiolan Honka. O’Connor hetjaStoke ANNAN leikinn í röð var Ja- mes O’Connor hetja Stoke City, að þessu sinni þegar iiðið mætti Oldham á útivelli í bikarkeppni neðrideildar- liða í gærkvöldi. O’Connor skoraði sigurinark Stoke í mikilvægum sigi'i á Preslon sl. föstudag en að þessu sinni reið mark hans bagga- muninn á 116. mínútu eftir að liðin höfðu skilið jöfn að loknum venjulegum leik- tíma, 0:0. Mark O’Connors var svokallað „gullmark" því leikurinn var fiautaður af í kjölfar þess. Þar með er Stoke, undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar, komið í þriðju umferð. Liðin mættust á ný í gær eftir að fyrri leikur þeirra liafði ver- ið fiautaður af á dögunum eftir tæplega 60 minútna leik vegna bilunar í flóðljós- um á leikvelli Oldham. Þá var staðan 1:0 fyrir Stoke. Brynjar Björa Gunnars- son var í byijunarliði Stoke að þessu sinni, en var skipt út af á 74. mínútu. Sigur- steinn Gíslason kom inn á sem varamaður á 58. mín- útu. Sheffield Wed. áfram Sheffield Wednesday komst í 5. umferð ensku bik- arkeppninnar með því að vinna Wolves, 4:3, í víta- spymukeppni á Molineux. Að loknum venjulegum leiktíma var staðan jöfn og markalaus. Sama var uppi á teningnum eftir framleng- ingu og því varð að grípa til vítaspymukeppni ■ HERTHA Berlin hefur keypt ástralska vamarmanninn Joe Si- munic frá Hamburger SV fyrir 14 milljónir króna. Forráðamenn Herthu voru búnir að semja um að fá Simunic án greiðslu næsta sumar en ákváðu að fá hann strax. ■ MARTIN O’Neal, knattspyrnu- stjóri Leicester, á í nokkru basli með að koma saman sterku liði íyrir bikarleikinn gegn Arsenal í kvöld. Alls eru sex leikmenn Leicester frá vegna meiðsla og einn er í leikbanni. Ian Marshall, Neil Lennon, Muzzy Izzet, Tony Cottie, Andy Impey og Steve Walsh eru meiddir en Frank Sinclair verður í leikbanni. ■ EMERSON, miðvallarleikmaður Bayer Leverkusen, má yfirgefa fé- lagið í sumar og halda til Italíu, en hugur Brasilíumannsins hefur lengi staðið til þess að leika þar í landi. Meðal félaga sem rennt hafa hýru auga til Emersons eru Roma, AC , Milan og Parma. ■ EMERSON er samningsbundinn Leverkusen til vorsins 2002 og er ekki ósennilegt að það félag sem tryggir sér leikmanninn verði að leggja út um 2 milljarða fyrir pilt. Rudi Völler, einn forsvarsmaður Leverkusen, sagði í gær að ekki væri ákveðið enn hversu hátt verð yrði sett upp fyrir leikmanninn. ■ TONY Yeboah hefur áhuga á að leika í Englandi á næstu leiktíð en samningur hans við Hamburger SV rennm’ út í vor. Yeboah lék með Leedsfrá 1995 til 1997. ■ SUNDERLAND mun vera nærri því að gera samning við franska sóknarmanninn Dijbril Diawara, en hann er nú í herbúðum Tórínó á Italíu. ■ MIGUEL Angel, þjálfara Espan- yol, var sagt upp starfi sínu í gær. Hann hafði þjálfað liðið síðan á haustmánuðum 1998.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.