Morgunblaðið - 17.02.2000, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.02.2000, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA Úrvalslið KSÍ mætir Keflavík í vígsluleik ATLI Eðvaldsson, landsliðsþjálfari í knatt- spyrnu, valdi í gær sextán leikmenn sem leika í úrvalsliði Knattspyrnusambands íslands gegn Keflavík í vigsluleik Reykjaneshallarinnar í Reykjanesbæ á laugardaginn kl. 16.15. Sjálf vígsluathöfnin hefst kl. 14. Leikmannahópur Atla er þannig skipaður: Birkir Kristinsson, Ingi Sigurðsson og Steingrúnur Jóhannesson, ÍBV, Sigurður Öm Jónsson, Sigþór Júlíusson og Þórhallur Hinriksson, KR, Gunnlaugur Jónsson og Jóhannes Harðarson, ÍA, Fjalar Þorgeirsson, Sigurvin Ólafsson og Valur Fann- ar Gíslason, Fram, Hlynur Birgisson, Leiftri, Marel Baldvinsson, Breiðabliki, ÓIi Stefán Fló- ventsson, Grindavík, Gylfi Einarsson, Fylki og Veigar Gunnarsson, Stjöraunni. ísland hækkar um eitt sæti ÍSLAND hækkaði um eitt sæti á styrkleikalista Alþjóða knatt- spyrnusambandsins, FIFA, sem gefin var út í gær. ísland er í 42. sæti listans fyrir febrúar, en var í 43. sæti í janúar-mánuði. Tveir sig- urleikir og eitt jafntefli á Norður- landamótinu á La-Manga á dögun- um urðu til þess að mjaka íslandi aðeins ofar á listann. Brasilía er sem fyrr í efsta sæti listans en röð tíu efstu þjóða er óbreytt frá síðasta mánuði. Tékkar eru í öðru sæti, heimsmeistarar Frakka í því þriðja og Spánverjar verma fjórða sæti. Þá kom Þjóð- verjar, síðan Argentína, Norðmenn eru í sjöunda sæti, Rúmenía í átt- unda, Króatía í níunda sæti og Mexíkóar í tíunda sæti. Englendingar hafa sætaskipti við Dani. Englendingar eru nú í el- lefta sæti og bæta stöðu sína um eitt sæti. Danir falla hins vegar um eitt sæti, eru tólftu í röðinni. „Maðurinn sem okkur hefurvantað“ LOU Moore, 23 ára banda- rískur körfuknattleiks- maður, kemur til liðs við úrvalsdeildarlið KFÍá morgun og leikur með því lokaleikina í deildakeppn- inni - og í úrslitakeppninni ef ísfirðingar komast þangað. Hann leysir af hólmi Clifton Bush sem er frá vegna meiðsla. „Þetta er maðurinn sem okkur hefur vantað í allan vetur, tveggja metra fram- herji sem skorar mikið og tekur fráköst. Hann var með frábærar tölur í há- skóla í Bandaríkjunum og var þar valinn í úrvalslið yfir allt landið á síðasta ári hjá Oklahoma City,“ sagði Tony Garbalotto, þjálfai i KFI, við Morgunblaðið í gær. Moore kemur frá Ungverjalandi þar sem hann lék með Kaposvári. íslenska landsliðið í borðtennis. Adam Harðarson, Guðmundur E. Stephensen, Markús Árnason og þjálfarinn Hu Dao Ben. Eggert Magnússon um landsliðsmál kvenna: Ekki uppi á borðinu að leysa Þórð frá störfum gggert Magnússon, formaður Knattspyrnusambands Islands, segir að ekki standi til að segja upp núverandi landsliðsþjálfara kvenna í knattspymu, þrátt fyrir að óánægju gæti innan hóps leikmanna sem skip- að hafa landsliðið. Mun hluti þeirra hafa hótað að gefa ekki kost á sér í landsliðið á meðan Þórður Lárusson er landsliðsþjálfari. „Þórður var ráðinn fyrir einu ári og er með samning út þetta ár og það er ekki uppi á borðinu að leysa hann frá störfum," sagði Eggert í gær. „í haust var Guðmundur Hreiðarsson ráðinn Þórði til aðstoðar í stað Bjama Sigurðssonar, sem fór til annarra verkefna. Þar með emm við með tvo sterka og góða menn við stjómvölinn sem við bindum vonir við,“ sagði Eggert. Guðmundur er einnig aðstoðarmaður Atla Eðvalds- sonar, landsliðsþjálfara karla. „Framundan er spennandi ár hjá kvennalandsliðinu með sjö leikjum, þeim fyrstu gegn heimsmeisturum Bandaríkjanna ytra 5. og 8. apríl. Eg treysti því að allir sem að liðinu koma taki höndum saman til þess að gera veg þess sem mestan og leggi sig fram af fullum huga. Kvenna- knattspyrnan er á uppleið hjá okkur og nú eigum við jafnmörg landslið kvenna og karla. Til þess að gera landsliðið enn betra þurfum á öllu öðru að halda en sundrungu," sagði Eggert Magnússon. Eggert segir að ekki sé hægt að kvarta yfir árangri íslenska lands- liðsins í fyrra. Það hafi gert jafntefli við Úkraínu ytra í undankeppni og sömuleiðis á móti Ítalíu hér heima í leik sem íslenska liðið hafi verið óheppið að vinna ekki. Síðan hafi það tapað nokkuð stórt fyrir Þýskalandi. Allir leikirnir voru í undankeppni EM. Ljóst er að orð Eggerts þýða að stjóm Knattspyrnusambandsins ætlar ekki að láta undan kröfum leik- manna. Landsliðið hefur heldur ekki verið valið enn fyrir leikina gegn Bandaríkjunum, en það verður gert í næsta mánuði. Þá velur Þórður landsliðshóp vegna leikjanna við Bandaríkin og verður hann í fram- haldi af því með æfingar fyrir ferð- ina. Nokkrar landsliðskonur funduðu um málið í gærkvöldi, en vildu ekki láta neitt hafa eftir þegar Morgun- blaðið leitaði eftir því að fundi lokn- um. ÍSLENDINGAR eiga þrjá fulltrúa á heimsmeistara- mótinu í borðtennis sem fram fer í Kuala Lumpur í Malasfu 19. til 26. þessa mánaðar. Þeir eru Guð- mundur E. Stephensen, Markús Áraason og Adam Harðarson og eru þeir allir úr Víkingi. Þeir félagar halda til Malasiu f dag, fimmtudag. Með þeim í för verður landsliðsþjálfarinn Hu Dao Ben og formaður Borðtenn- issambandsins, Sigurður V. Sverrisson, en hann mun m.a. sitja þing Alþjóða borðtennissambandsins í Kuala Lumpur. Á þinginu verður m.a. tekin ákvörðun um það hvort stækka eigi borðtenniskúluna, úr 38 miliimetrum í þvermál í 40 millimetra. Lið íslands er í riðli með Áströlum, fsraels- mönnum og Usbekistönum. Leiknir verða fimm einliða- leikir við hveija þjóð. AUs taka 100 þjóðir þátt í mót- inu. Kínverjar eru núver- andi heimsmeistarar lands- liða í borðtennis. SVEINN JÓNSSON FÉKK HEIÐURSKROSS KSÍ /B4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.