Morgunblaðið - 24.02.2000, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.02.2000, Blaðsíða 2
2 B FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ (ÞRÓTTIR Eiríkur með 30stig EIRÍKUR Önundarson skor- aði 30 stig- fyrir Holbæk í lokaleik liðsins í dönsku úr- valsdeildinni f körfuknatt- leik um sfðustu helgi en Hol- bæk vann þá góðan útisigur á Horsens BC, 76:88. Holbæk tryggði sér með sigrinum áframhaldandi sæti í deildinni. Félagið hef- ur gert Eiríki tilboð um að leika þar áfram næsta vet- ur. ■ ÁRNI Gautur Arason lék síðari hálfleikinn í markinu hjá Rosen- borg þegar liðið tapaði, 2:0, fyrir belgíska liðinu Gent í fyrrakvöld. Þetta var lokaleikur Rosenborg fyrir viðureignina gegn Dynamo Kiev í meistaradeild Evrópu næsta þriðjudag. ■ JÓRN Jamtfall, keppinautur Árna um markvarðarstöðuna, lék í markinu í fyrri hálfleik og fékk bæði mörkin á sig. ■ DYNAMO Kiev stóð sig öllu bet- ur á sama tíma og skellti Italíu- meisturum AC Milan á útivelli, 2:1, í æfmgaleik. ■ STEPHANE Porato, markvörð- ur franska knattspyrnuliðsins Marseille, féll úr stiga á heimili sínu í vikunni, tognaði á hné og verður frá keppni í þrjár vikur. Hann missir þar með af báðum leikjum liðsins við Chelsea í meist- aradeild Evrópu. ■ EIÐUR Smári Guðjohnsen leik- ur ekki þrjá næstu leiki Bolton í ensku knattspymunni. Hann þarf að taka út þriggja leikja bann vegna brottrekstursins í leiknum við Birmingham á dögunum. ■ MIKAEL Forssell, knattspyrnu- maðurinn efnilegi frá Finnlandi, hefur verið lánaður frá Chelsea til Crystal Palace í tvo mánuði. ■ KRISTINN Magnússon, skíða- maður frá Akureyri, keppti í risa- svigi á heimsmeistaramóti unglinga í Quebec í Kanada í gær. Hann hafnaði í 50. sæti af 72 keppendum og var 5,11 sekúndum á eftir heims- meistaranum, Klaus Kröll frá Austurrfki. ■ BJÖRGVIN Björgvinsson frá Dalvík keppti ekki í risasviginu á HM í gær, en hann verður með í sviginu á morgun og stórsviginu á laugardag. ■ SHAQUILLE O’Neal skoraði 35 stig fyrir Los Angeles Lakers þeg- ar liðið vann öruggan útisigur á New Jersey, 89:97, í NBA-deildinni í körfuknattleik í fyrrinótt. Þetta var fimmti sigur Lakers í röð. Shaq var fyrir leikinn útnefndur leik- maður vikunnar í NBA. ■ KAREEM Abdul-Jabbar, einn frægasti körfuknattleiksmaður allra tíma, hefur verið ráðinn að- stoðarþjálfari Los Angeles Clipp- ers. Jabbar hefur verið í fríi frá körfuboltanum síðan hann hætti með LA Lakers, 42 ára gamall, fyr- ir ellefu árum. ■ CELESTINE Babayaro mætti á æfíngu hjá Chelsea í gær, sloppinn úr prísundinni í heimalandi sínu, Nígeríu. Hann sat þar fastur í 10 daga eftir að Afríkukeppni lands- liða í knattspyrnu lauk vegna þess að óeirðir brutust út í heimabyggð hans. ■ TÆPUM þremur árum eftir að Lou Macari var sagt upp sem knattspymustjóra hjá Stoke City hefur hann hafíð málshöfðun gegn félaginu og telur að um ólöglega uppsögn hafi verið að ræða á sínum tíma. FRJÁLSÍÞRÓTTIR Reynir Logi hundr- aðshluta frá meti Reynir Logi Ólafsson, Ármanni, sigraði í 200 m hlaupi á Skoga- holmsspelen í Svíþjóð um síðustu helgi á 22,39 sekúndum og var að- eins 1/100 úr sekúndu frá íslan- dsmeti Gunnars Guðmundssonar, FH. Reynir bætti fyrri árangur um hálfa sek. og sigraði í hlaupinu. Reynir náði sínum besta tíma í 60 m hlaupi, 6,93 sek., er hann sigraði í greininni. Um leið var Reynir að- eins 3/100 úr sekúndu frá lágmarki fyrir EM innanhúss. Reynir náði þessum tíma í undanúrslitum, en í úrslitahlaupinu hljóp hann á 6,95 og kom fyrstur í mark, en annað sætið vannst á 7,04. Silja Ulfarsdóttir, FH, keppti einnig á mótinu og vann í 200 m hlaupi á 25,04 sekúndum. Sigur Silju var mjög öruggur. Þá hafnaði hún í þriðja sæti í 60 m hlaupi á 7,85. Ólafur Traustason, FH, varð í 5. sæti 60 m hlaupi á 7,19, en hann náði 2/100 betri tíma í undanúrslitum. Þá hljóp bróðir Ólafs, Bjöm Þór, einnig úr FH, á 22,86 sekúndum í 200 m hlaupi og Geir Sverrisson, Breiða- bliki, á 23,85. Bjami Þór hreppti þriðja sætið en Geir varð áttundi. Burkni Helgason kom annar í mark í 800 m hlaupi á mótinu, hljóp á 2.01,27. Keppa í Danmörku ogá Gíbraltar SEX snókerspilarar frá Islandi taka þátt í Norðurlandamótinu í snóker, sem hefst í Árósum í Danmörku í dag - keppt verður bæði í liðakeppni, Brynjar Valdi- marsson, Jóhannes B. Jóhannes- son og Gunnar Hreiðarsson, og í einstaklingskeppni - Ásgeir As- geirsson, Ingvi Halldórsson og Sumarliði Gústafsson. Landsliðið tekur einnig þátt í Evrópu- keppni landsliða, sem verður á Gíbraltar í byrjun mars. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Landsliðið í snóker - Brynjar Valdimarsson, Ásgeir Ásgeirsson, Ingvi Halldórsson, Gunnar Hreiðarsson, Jóhannes B. Jóhannesson og Sumarliði Gústafsson. Sagane urtekur ÞEGAR Antolí Fedjúkin, þjálfari bikarmeistara Fram, lék hér á landi með landsliði Rússa fyrir 18 ámm - í febrúar 1982 - sat Jóhann Ingi Gunnarsson, fyrrverandi landsliðs- þjálfari í handknattleik (1978-1980), við skriftir og skrifaði greinar um ís- lenskan handknattleik og landslið ís- lands í Morgunblaðið þar sem Jó- hann Ingi sagði í fyrirsögn í þriðju grein sinni; að mikil breyting þurfi að verða á undirbúningi landsliðsins ef ekki eigi illa að fara. Jóhann Ingi byrjar grein sína þannig: „Allir, sem bera hag íslensks handknattleiks fyrir brjósti em ugg- andi þessa dagana vegna ófara karlalandsliðsins í handknattleik í þeim fjómm heimsleikjum, sem er lokið, þegar þessi grein er rituð.“ Jó- hann Ingi ritaði greinina eftir að ís- land hafði tapað fjómm leikjum stórt á fímm tögum - þremur leikjum fyrir Rússum; 17:25,19:31,16:27 ogeinum fyrir Svíum, 17:25. Greinar Jóhanns Inga vöktu athygli og þær eiga vel við nú 18 áram síðar, þar sem lítið virðist hafa breyst og íslenskur handknattleikur er að eiga við sama vandamálið - sagan endurtekur sig, gengur í hringi. Jóhann Ingi skrifar: „Þegar svo langt er gengið, að menn úti í bæ sparka í sjónvarpstæki sitt vegna vonbrigða með leik íslenska lands- liðsins, þá er kominn tími til að reyna að varpa Ijósi á hvað sé að gerast og skoða málin frá sem flestum hliðum. I síðustu grein fjallaði ég nokkuð um markaðssetningu, þ.e.a.s. við hverju megi búast af okkar landsliði. Það kom í Ijós að markið er sett hátt,“ skrifaði Jóhann Ingi, en mikl- ar væntingar vom gerðar fyrir leik- ina gegn Rússum og Svíum, sem töp- uðust stórt. „Það er því ofur eðlilegt að allir handboltaaðdáendur séu í sámm þessa dagana. Há markmiðssetning krefst þess einnig, ef illa fer, að fund- inn sé einhver syndaselur. Við hvern er að sakast? Var það undirbúning- urinn fyrir landsleikina sem brást? Eiga leikmenn alla sök á því hvemig fór? Eða er það þjálfaranum að kenna? Eða stöndum við ekki undir þessum markmiðssetningum? Eða er það eitthvað allt annað sem fór úr- skeiðis?" spyr Jóhann Ingi, sem ræð- ir síðan um undirbúning og segir að það sé mikilvægt að íslendingar undirbúi sig eins og andstæðingarn- ir, sem við er keppt hverju sinni - að spara ekkert við undirbúning. „Sennilega svara forystumenn handknattleiksins þessari athuga- semd á þá lund, að þetta yrði of dýrt, en þá afsökun er ekki hægt að taka gilda á meðan við krefjumst þess sig (réttilega) að landsliðið standi sig sem best gegn sterkustu handknatt- leiksþjóðum heims,“ sagði Jóhann Ingi sem veltir upp síðar í grein sinni glæsilegum árangri meistaraliðs Víkings og ber leik liðsins saman við leik landsliðsins. „Leikmenn Víkings leika kerfís- bundinn handknattleik og þeir vita nákvæmlega hvað þeir eiga að gera í hverri sókn. Með kerfísbundnum handknattleik hefur lið Víkings, und- ir stjórn Bogdans Kowalzcyks, náð frábæmm árangri gegn innlendum og erlendum félagsliðum. Leikur landsliðið í dag þá of frjálst? Myndi ekki kerfisbundnari og um leið agaðri sóknarleikur henta okkar liði betur?“ spyr Jóhann Ingi og seg- ir síðan að málið myndi horfa öðm vísi við - eðlilegt væri að leika frjáls- an handknattleik eins og Júgóslavar, að Islendingar ættu fjóra til fimm Geira Hallsteinssyni í landsliðshópn- um. „Leikmenn íslenska liðsins hafa sagt í viðtölum að góður andi ríki í hópnum. Að sjálfsögðu er það mikil- vægt en það þýðir ekki að liðið leiki sem ein heild inni á vellinum. Ekki er annað að sjá en einstaklingsframtak- ið ráði ríkjum fremur en liðsheildin. Hér kemur auðvitað aftur til kasta landsliðsþjálfara hverju sinni. Landsliðsþjálfarinn Hvert er hlutverk landsliðsþjálf- ara? Margt mætti rita um það atriði en hér verður aðeins drepið á örfá þeirra. Hlutverk landsliðsþjálfara er meðal annars að byggja upp sterka liðsheild, sem nær saman utan vallar sem innan. Hans er að rífa liðið upp þegar á móti blæs. Hans er að bæta liðið frá einum leik til annars. Hans er að leggja upp þá taktík, sem hent- ar liðinu, eða velja leikmenn sem henta hans leikstíl. Landsliðsþjálfari á að vera manna mest inni í alþjóð- legum handbolta. Hann á, ásamt sín- um aðstoðarmönnum, að koma sér upp greinagóðum upplýsingum um lið og leikmenn þeirra þjóða, sem við keppum við. Eitt er víst að mikil breyting þarf að verða á undirbúningi og leik ís- lenska landsliðsins ef ekki á illa að fara í næstu B-keppni, þar sem stefnan hefur verið sett á að færast á ný upp í A-hóp. HSÍ þarf að skapa þjálfara og leikmönnum viðunandi aðstæður svo að þessu marki megi ná. Enn er hægt að byrgja branninn áður en barnið dettur ofaní,“ ritaði Jóhann Ingi, en þess má geta að stuttu eftir greinar hans í Morgun- blaðinu hélt hann til Þýskalands, þar sem hann gerðist þjálfari hjá Kiel og Essen með mjög góðum árangri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.