Morgunblaðið - 12.05.2000, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Héraðsvaka
Rangæinga
vel sótt
Hellu - Á Héraðsvöku Rangæinga
sem haldin var hátíðleg nýverið á
Laugalandi í Holtum, fjölmenntu
Rangæingar úr sýslunni allri og
nutu saman skemmtilegrar dag-
skrár og kaffiveitinga, en löng hefð
er fyrir slíkum samkomum á vor-
dögum hér í sýslu.
Hátíðin er haldin til skiptis í aust-
ur- og vestursýslunni og Hellu og
Hvolsvelli með styrk sveitarfélag-
anna og Héraðsnefndar Rangár-
vallasýslu.
Unga kynslððin setti svip sinn á
atriði vökunnar með tðnlistar- og
leikatriðum auk þess sem öflugt
söngstarf barna og unglinga í
Þykkvabæjarkirkju undir stjðrn
Nínu Morávek vakti hrifningu.
Sigurlaug Hannesdóttir frá Rifs-
halakoti, sem stundar söngnám í
Reykjavfk, söng einsöng og Frænd-
kðrinn söng nokkur lög undir
stjórn Eyrúnar Jðnasdðttur. Á vök-
unni mátti einnig sjá fjölbreytta
listmuni handverksfólks af svæð-
inu, en að dagskrá lokinni nutu
gestir glæsilegra veitinga í boði
héraðsnefndar, sem konur úr kven-
félögum vestursýslunnar sáu um að
reiða myndarlega fram.
fþróttamaður
útnefndur
Á héraðsvökunni voru veittar
viðurkenningar til íþrðttafðlks sem
skarað hefur fram úr á síðastliðnu
ári. Blakmaður Rangæinga 1999
var kosin Ásta L. Sigurðardðttir,
íþróttaf. Dímoni, borðtennismaður
Kristinn Valtýsson, íþróttafél.
Garpi, frjálsíþrðttamaður Örvar Ól-
afsson, Dímoni, glímumaður Andri
L. Egilsson, Garpi, golfmaður Ósk-
ar Pálsson, Golfklúbbi Hellu, hesta-
íþrðttamaður Þórður Þorgeirsson,
Hestamannaf. Geysi, knattspyrnu-
maður Björgvin Helgason, Knatt-
spyrnuf. Rang., körfuknattleiks-
maður Sigríður M. Sigurðardðttir,
Garpi, og sundmaður Thelma Ás-
mundsdóttir, Dímoni. íþrðttamaður
Rangæinga 1999 var kosinn Örvar
Ólafsson frjálsíþrðttamaður í Dím-
oni, en að mati dðmnefndar var
hann vel að titlinum kominn. Hann
varð á árinu m.a. íslandsmeistari
utanhúss í þristökki, bikarmeistari
í Bikarkeppni FRÍ í 1. deild með liði
HSK, íslandsmeistari í þrístökki ut-
anhúss í karlaflokki 22 ára og
yngri, bikarmeistari í fjölþrautum
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
Á Héraðsvöku Rangæinga voru veittar viðurkenningar til íþrðttamanna
sem sköruðu fram úr á sínu sviði á sl. ári. íþróttamaður ársins var kos-
inn Örvar Ólafsson frjálsíþrðttamaður, en hann var ekki viðstaddur út-
nefninguna, þar sem hann var við æfingar í Portúgal.
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
Guðrún Ásmundsdðttir leikkona
var veislustjðri á héraðsvökunni
ásamt prúðbúnum rangæskum
dömum og leikurum frá Leikfé-
lagi Rangæinga sem léku atriði
úr Hárinu.
og bronsverðlaunahafi á Meistara-
mðti íslands í tugþraut. Þá varð
hann þrefaldur Islandsmeistari inn-
anhúss í karlaflokki 22 ára og yngri
þar sem hann sigraði í þrístökki,
langstökki og stangarstökki og
fjðrfaldur HSK-meistari í karlaf-
lokki. Örvar æfir af kappi og er
metnaðarfullur íþróttamaður í
fremstu röð, var valinn á siðasta ári
í Unglingalandslið Islands og er
auk þess í tírvalshópi FRÍ 2000.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Emma Pálsdðttir og Kristján Óskarsson reka og eiga Eyjabústaði.
Eyjabústaðir
hefja starfsemi
Morgunblaðið/Finnur
Þau tóku fyrstu skðflustungurnar að Tálknafjarðarkirkju. Frá vinstri:
Friðrik Kristjánsson, Eydís Hulda Jðhannesardóttir og Karl Sigur-
björnsson, biskup íslands.
s U^l|lgjl
' ' ■"■■■■■■ 1 • ' • ■ —
Teikningin sýnir norðurhlið Tálknafjarðarkirkju.
Vestmannaeyjum - Það var fyrir
nokkrum árum að Valgeir Jónas-
son fór af stað með þá hugmynd í
Vestmannaeyjum að reisa sumar-
bústaði í landi Ofanleitis í Vest-
mannaeyjum.
Valgeir hefur þegar reist tvo
litla bústaði, en nú í byrjun maí
voru reistir þrír bústaðir norðar-
lega í landi Ofanleitis af fyrirtæk-
inu Eyjabústaðir sem er í eigu
hjónanna Emmu Pálsdóttur og
Kristjáns Óskarssonar. Þau gerðu
áður út Emmu VE-219 en seldu
fyrir skömmu og ventu sínu kvæði
í kross og fóru út í það að efla
ferðamannaþjónustuna í Vest-
mannaeyjum með þessum hætti.
Reistir voru tveir 45 fermetra
bústaðir og einn bústaður sem er
60 fermetrar. Eru þeir með góðum
veröndum, fallegu útsýni og heit-
um pottum. Þá hafa hjónin breytt
skemmu sem tilheyrði útgerðinni í
þjónustumiðstöð fyrir bústaðina.
Hefur þessari nýbreytni og aukn-
ingu í gistirými verið vel tekið af
Eyjamönnum og ekki síður þeim
sem sækja Eyjamar heirn og þeg-
ar eru miklar bókanir á bústððun-
um.
Bústaðirnir vorú smíðaðir í Þor-
lákshöfn og sáu Samskip um að
flytja þá í heilu lagi til Eyja
skömmu fyrir síðustu mánaðamót.
Eins og venjulega þá er gert ráð
fyrir mikilli umferð ferðafólks til
Eyja í sumar og töluverðar bókan-
ir liggja fyrir hjá þeim sem hafa
með gistirými að gera. Á síðustu
tveimur árum hefur svokallaðri
heimagistingu vaxið fiskur um
hrygg í bænum og bjóða nú fjöl-
margir aðilar upp á margháttaða
þjónustu tengda gistingu fyrir
ferðamenn í bænum.
Kirkja rís
á Tálkna-
firði
Tálknafirði - Síðastliðinn laugardag
var tekin fyrsta skóflustungan að
nýrri kirkju á Tálknafirði. Biskup Is-
lands, Karl Sigurbjömsson, tók
fyrstu skóflustunguna ásamt Friðriki
Kristjánssyni og Eydísi Huldu Jó-
hannesardóttur. Friðrik er aldurs-
forseti sóknarnefndar, en Eydís er
fulltrúi yngri kynslóðarinnar og var
valin úr hópi þeirra bama sem hvað
duglegust hafa verið að sækja kirkju-
skólann.
Biskupinn blessaði staðinn og
framtíð væntanlegrar kirkju og þá
starfsemi sem kemur til með að fara
þar fram. Kirkjan á að rísa á Þinghóli
rétt innan við gamla íbúðarhúsið.
Fjöldi manns var viðstaddur, sókn-
arböm og aðrir gestir. Félagar úr
kirkjukór Stóra-Laugardalskirkju
leiddu fjöldasöng í tveimur sálmum,
við blokkflautuundirleik Marion
Worthmanns organista. Að lokinni
athöfninni á Þinghóli var öllum við-
stöddum boðið í léttan málsverð sem
framreiddur var á vegum sóknar-
nefndar, í íþrótta- og félagsheimili
Tálknafjarðar. Við það tækifæri flutti
biskupinn Tálknfirðingum kveðjur
og óskaði þeim til hamingju með
þennan áfanga, sem hann kvað
marka upphaf nýrrar framtíðar. Þá
sagði hann, að með réttu mætti kalla
kirkjuna aldamótakirkju.
Timburkirkja
Það var á aðalsafnaðarfundi, 13.
apríl sl., sem sóknamefnd var heimil-
að að hefja byggingu nýrrar kirkju,
en undirbúningur hefur staðið í nokk-
ur ár. Nýja kirkjan á að vera timb-
urkirkja, 280 ím að grunnfleti eða
1.136 rúmm að stærð. I kirkjunni á að
vera safnaðarheimili með eldhús-
krók, skrifstofa fyrir sóknarprest,
hreinlætisaðstaða og geymslur. Þá
verður 40 fm söngloft með geymslum
undir súð. Áætlaður byggingarkostn-
aður er 38 milljónir. Jöfnunarsjóður
sókna hefur ákveðið að styrkja bygg-
inguna með 16,5 milljóna framlagi,
sem greiðist á næstu 6 árum, en
bygginga- og listanefnd þjóðkirkj-
unnar hefur gefið umsögn um teikn-
ingar og komið með ábendingar.
Mikill áhugi er meðal heimamanna
og vilji til þess að aðstoða við bygg-
ingu kirkjunnar með vinnuframlagi
og fjármunum. Eftir því sem best er
vitað eru liðnir áratugir síðan timb-
urkirkja hefur verið byggð af söfnuði
á Islandi.
Arkitekt byggingarinnar er Elísa-
bet Gunnarsdóttir á ísafirði og er
sóknarnefnd mjög ánægð með sam-
starfið við hana, að sögn Sigurðar Á
Magnússonar formanns. Sveinn D.K.
Lyngmó hjá Tækniþjónustu Vest-
fjarða hefur unnið með Elísabetu við
hönnun, teikningar o.fl. Byggingar-
stjóri og yfirsmiður verður Sigurður
Á. Magnússon trésmíðameistari og
formaður sóknamefndar.
Núverandi safnaðarstjórn skipa;
Sigurður Á. Magnússon formaður,
Guðni Ólafsson gjaldkeri, Finnur
Pétursson ritari, Eyrún Ingibjörg
Sigþórsdóttir og Guðjón Indriðason
meðstj. í varastjórn sitja; Friðrik
Kristjánsson, Kristjana Ándrésdótt-
ir, Jóhanna Guðmundsdóttir, Pálína
Kristín Hermannsdóttir og Ragn-
heiður Jósefsdóttir.