Morgunblaðið - 01.10.2000, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.10.2000, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 225. TBL. 88. ÁRG. SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Rússar tilbúmr að miðla málum Milosevic kemur fram opinberlega Belgrad, Moskvu. AFP, AP. VLADIMIR Pútín, forseti Rúss- lands, lýsti því yfir á laugardag að Rússar væru reiðubúnir að miðla málum milli stjómvalda og stjómar- andstöðu í Serbíu. Bauðst hann til að senda utanríkisráðherrann fgor ív- anov til Belgrad í þeim tilgangi. Leiðtogar stjórnarandstöðunnar fógnuðu yfirlýsingu Pútíns, en stjómarandstæðingar hafa heitið því að lama alla starfsemi í Serbíu ef Slobodan Milosevic viðurkennir ekki að hafa beðið ósigur fyrir Vojislav Kostunica í forsetakosningunum um síðustu helgi. Boðað hefur verið til allsherj arverkfal ls frá og með mánu- degi, segi forsetinn ekki af sér, og mótmælafundir eru skipulagðir víðs vegar um landið um helgina. ,Afstaða Rússa er skýr. Júgó- slavneska þjóðin ætti að ákvarða ör- lög sín sjálf, án utanaðkomandi af- skipta," sagði Pútín í yfirlýsingu sinni, en hann hafði ekki áður tjáð sig um úrslit kosninganna. Rússar hafa löngum verið bandamenn Serba, en síðan Pútín var kjörinn forseti í mars hafa rússnesk stjómvöld fjarlægst stjórn Slobodans Milosevics. Milosevic, sem hafði ekki komið fram opinberlega eftir kosningamar, reyndi að höfða til yfirmanna hersins á laugardag, er hann hélt ávarp við útskrift í herskóla í Belgrad. Minnti hann útskriftamema á að hemum bæri skylda til að verja frelsi og sjálf- stæði landsins. Um 3 þúsund manns voru viðstaddir útskriftarathöfnina, en „einungis milli 100 og 150 fögnuðu Milosevic með lófakiappi", að því er óháða fréttastofan Beta skýrði frá. Talið er að hollusta hersins við Mil- osevic hafi farið dvínandi að undan- förnu og að forsetinn geti ekki treyst á stuðning hans til að halda völdum. Sögusagnir vom á kreiki í Serbíu um að Milosevic hefði flúið til Moskvu, þar sem hann hefði ekki sést opinberlega eftir kosningamar. Rússneskir embættismenn hafa hafnað vangaveltum um að hann hyggist sækja um hæli þar í landi. AP Ungir Palestfnumenn kasta steinum að ísraelskum hermönnum á Gaza-svæðinu á laugardag. Atök á Vesturbakkan- Forsetakosningar í Baiidarikjimuni Frambjóðendur deila um fóstureyðingar DEILAN um fóstureyðingar er nú komin í hámæli í baráttunni fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjun- um, en frambjóðendur demókrata og repúblikana em ósammála um þá ákvörðun bandaríska lyfjaeftirlitsins að leyfa sölu neyðargetnaðarvarnar- pillu. Neyðargetnaðarvörnin kom á markað í Evrópu fyrir rúmum ára- tug, en þáverandi Bandaríkjaforseti, George Bush eldri, kom í veg fyrir að hún yrði leyfð í Bandaríkjunum. George W. Bush, sonur hans og for- setaframbjóðandi repúblikana, hefur gagnrýnt ákvörðun lyfjaeftirlitsins harðlega og segir hana munu leiða til þess að fóstureyðingum fjölgi. Bush, sem er andvígur fóstureyðingum, notaði einnig tækifærið og fullyrti að næsti forseti Bandaríkjanna gæti með skipun nýrra dómara breytt hlutfalli andstæðinga og fylgjenda fóstureyðinga í hæstarétti. Bush hef- ur áður lýst því yfir að hann muni hugsanlega taka mið af afstöðu manna til fóstureyðinga við skipun hæstaréttardómara. A1 Gore, varaforseti og forseta- frambjóðandi demókrata, fagnaði því hins vegar að konum stæði nú neyðargetnaðarvömin til boða, en hann er fylgjandi rétti kvenna til að láta eyða fóstri. Gore varaði við því að ef Bush næði kjöri myndi hann beita sér fyrir því að fóstureyðingar yrðu bannaðar, en þær voru heimil- aðar í Bandaríkjunum með úrskurði hæstaréttar árið 1973. ■ Ólíkar áherslur/6 um og Gaza-svæðinu Jerúsalem, Nablus, Reylyavík. AFP, AP. AÐ minnsta kosti tólf Palestínu- menn biðu bana og um 300 særðust í átökum við ísraelska hermenn á sjálfstjórnarsvæðum Palestínu- manna á Vesturbakkanum og Gaza- svæðinu á laugardag. Fregnir bárust einnig af skotbardaga milli ísra- elskra hermanna og palestínskra lögreglumanna við landnemabyggð gyðinga á Gaza-svæðinu. Þúsundir manna höfðu komið saman á götum úti til að mótmæla dauða sex Palestínumanna í átökum á föstudag, en ísraelskir hermenn reyndu að dreifa mótmælendunum með því að skjóta að þeim gúmmí- húðuðum málmkúlum. Lýst hafði verið yfir sorgardegi vegna þeirra sem féllu á föstudag. Boðað var til allsherjarverkfalls á Vesturbakkan- um og Gaza-svæðinu, búðir voru lok- aðar og skólahald lá niðri. Óeirðimar hófust á fimmtudag, þegar Palestínumenn mótmæltu heimsókn leiðtoga Likud-flokksins, Ariels Sharons, á Musterisfjallið, sem er einn helgasti staður bæði gyðinga og múslima. ísraelskir lög- reglumenn gerðu svo áhlaup á mosku múslima í elsta hluta Jerúsal- em á föstudag og skutu á unga Pal- estínumenn, sem höfðu kastað grjóti að gyðingum er voru að biðjast fyrir við Grátmúrinn. Madeleine Albright, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, hvatti Israela og Palestínumenn til að binda enda á átökin á fréttamannafundi í Reykja- vík á laugardag. Sagði hún að friðar- viðræður þjóðanna væru á við- kvæmu stigi og að óeirðirnar stefndu þeim í hættu. Danskir jafnaðarmenn funda um helgina fyrir upphaf þinghalds Obreytt Evrópustefna og bið á sáttum Kaupmannahöfn. Morgnnblaöið. DANSKA stjórnin hyggst ekki breyta stefnunni í Evrópumálum og hefja viðræður við talsmenn and- stæðinga aðildar að evrópska mynt- bandalaginu þrátt fyrir að danskir kjósendur hafi hafnað aðild í þjóðar- atkvæðagreiðslu á fimmtudag. Und- irbúningur fyrir leiðtogafund Evrópusambandsins í Niee í desem- ber, þar sem undirrita á nýjan sátt- mála ESB, er kominn vel á veg og Poul Nyrup Rasmussen forsætisráð- herra segir ekki koma til greina að breyta framlagi Dana til hans. „Það er engin ástæða til að hrapa að ályktunum. Við höfum nægan tíma til að hugsa okkur um,“ sagði ráð- herrann er hann var inntur eftir því hvemig hann hygðist komast til móts við talsmenn andstæðinga evrunnar. Þinghald í Danmörku hefst að nýju á þriðjudag og lokahönd er nú lögð á stefnuræðu forsætisráðherra, en heimildarmenn Politiken fullyrða að endurskrifa verði Evrópukaflann í ljósi þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Ljóst er að forsætisráðherrann og leiðtogar flokkanna sem börðust fyr- ir aðild hafa ekki hug á því að leita ráða hjá talsmönnum nei-hreyfing- Eignir fslendinga erlendis hafa margfaldast á skömmum tíma Lögin stuðla að því að fjármagnið fari úr landi 10 Það eru koqmir gestir 28 MEÐ ALLT MILLI HIMINS OG JARÐAR anna svokölluðu. Marianne Jelved viðskiptaráðherra sagðist þó reiðu- búin að ræða við vinstriflokkana sem voru í andstöðu við evruna þar sem þeir styðja stjórnina á þingi. Ekki kæmi hins vegar til greina að boða nei-hreyfingarnar til viðræðna þar sem þær ættu ekki þingkjörna full- trúa. Talsmenn andstöðunnar við evr- una brugðust ókvæða við þessum yfirlýsingum. Sagði Holger K. Niel- sen, leiðtogi Sósíalíska vinstri- flokksins, stjórnina verða að standa við orð sín. Pia Kjærsgaard, leiðtogi danska þjóðarflokksins, kvaðst hafa orðið fyrir vonbrigðum með þessi skilaboð stjórnarinnar en sagði þau þó ekki koma á óvart. MORGUNBLAÐIÐ 1. OKTÓBER 2000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.