Skírnir - 01.01.1829, Blaðsíða 59
59
ráda Bólívar og vini hans af dögum, en setja
Santandcr aptr til valda; átti mikill hluti her-
lidsins þált f svikuna pessum. Brutust samsœris-
menn þann 24 september á náttar þeli inní slot
þad í Bógóta, livar Bólívar bjó, og drápu allt
sem fyrir þeim vard; en Bólívar komst þó
undan, og gekk herlidid í borginni þegar á
liönd honum, og vanst honum þá ad hrekja
samsærismenn á llótta, en forsprakkar þeirra
urdu flestir handtcknir, og voru þeir litlu sídar
af dögum rádnir, Eigi vard þad sannad uppá
Santandcr, ad hann hefdi verid í vitordi med
samsærismönnum , en miklar komu líkur fram
gegu honum, var hann því dæmdr til æíinligrar
úllegdar; en er hann ætladi aflandi, let Bólívar
gripa hann, og selja í vardhald, í kastalanum
Boca-Chiga. Let hann og litlu sídar auglýsanýtt
stjórntirform, er liaun ætlai’ ad leida í lög í
Kólumbíu, hvarí hann áskilr ser alvalda (dikt-
ators) makt og mynduglcika ; gildir stjórnarform
þad til ársloka 1830, þá alþíng þjódarinnar aptr
skal samankoma.
I Mexíkó, sem er mest og voldugast allra frí-
vclda i enni spönsku Ameríku, brauzt út hættuligt
upphlaup á öndverdum vetri, er lengi þókti
vera þar í adsigi. Tveir hershöfdíngjar þar,
Gverrero og Santa-Ana, brutust á jólaföstu í
vctr mcd hcr inanns inn í höfudstadinnIvlcxíkó,
og gckk þegar öll alþýda í flokk mcd þeim;
lierlidid sem fyrir var í borginni gjördi hrcysti-
liga mólstödu, en vard þo ofrlidi horid af