Þjóðólfur - 15.10.1879, Blaðsíða 4

Þjóðólfur - 15.10.1879, Blaðsíða 4
108 — Eptirfylgjandi víðurkenningarbréf til herra bókavarðar Jóns Arnasonar var oss nú með póstskipinu sent til birting- ar í »pjóðólfi«: Hæstvirti herra! |>egar vér skildum við Reykjavíkur lærða skóla, var það einlæg ósk vor allra, sem hér ritum nöfn vor undir, að þér, herra Jón Árnason, umsjónarmaður vor, mættuð sem lengst og bezt vinna að starfi yðar í skólans þarfir. fað kom oss því mjög óvænt, er vér heyrðum að þér nú væruð komnir frá umsjón skólans, og teljum vér það alls ekkert ián fyrir skóla vorn og fósturjörð — og mun það fleirum finnast. |>egar vér nú hugsum til skólatíma vors og minnumst þess, hversu vel og farsællega þér gættuð stöðu yðar, og hversu þér með alvarlegri mannúð og lempni áunnuð yður virðingu og ást vor skólasveina, þá getum vér eigi bundizt þess að láta yður í té innilegt þakklæti vort fyrir allan þann tíma, sem vér vórum saman í skólanum. Og eins og vér vitum að ókomnar aldir munu minnast yðar sem vísindamanns, eins getum vér með sönnu sagt yður, að allir af hinum yngri menntamönnum íslands munu jafnan minnast yðar með hlýj- um þakklætishug frá skólavoru sinni. Hæstvirti herra! Vér óskum yður og öllum yðar langra og færsællegra líf- daga, og að þér enn þá lengi megið vinna fósturjörðu vorri gagn og sóma, eins og þér hafið gert hingað til. Kaupmannahöfn í september 1879. Virðingarfyllst: Guðmundur forláksson, pórhallur Bjarnason, stud. mag. guðfræðingur. Jón |>órarinsson, Gestur Pálsson, Friðrik Petersen, stud. theol. stud. theol. stud. theol. Guðlaugur Guðinundsson, Halldór Daníelsson, lögfræðingsefni. stud. juris. Páll Briem, Ólafur Halldórsson, Geir Tómasson Zoega, stud. jur. stud. juris. stud. philol. Jóhannes Davíð Ólafsson, porvaldur Thoroddsen, stud. jur. stud. hist. nat. Sigurður J>órðarson. Niels M. Lambertsen, stud. jur. stud jur. Sigurður Ólafsson, Jón Jensson, Skúli Thoroddsen, lögnemi. stud. juris. stud. jur. Ólafur Pinsen, Bertel E. Ó. f>orleifsson, Björn Jensson, stud. med. stud. med. & chir. stud. polyt. — Laugardaginn h. 18. p. m. verður við opinbert uppboð, er haldið verður í „Doktorshúsinu“ hér í bæn- um eptir- beiðni hlutaðeiganda seld ýmisleg góð og eiguleg húsáliöld svo og mikið af skósmiðsverkfærum o. fl. tilheyrandi skósmið Friðfinni Árnasyni. Uppboðið byrjar kl. 11 f. m. Skilmálar birtast á uppboðsstaðnum. Skrifstofu bæjarfógeta í Reykjavík 10. október 1879. E. Th. Jonassen. — Fyrir rúmri viku síðan var hingað á skrifstofuna úr fjárrekstri, sem kom hér til bæjarins, skilað hvítum sauð 2 vetra er farið hafði einhvernstaðar á leiðinni innan við reksturinn. Mark á sauð pessum var, tvístýft framan hægra, biti aptan, stúfhamrað vinstra; brenni- merktur á báðum hornum G. E., hornskelltur og snæri um hornin. Réttur eigandi má vitja andvirðisins fyrir sanð penna liér á skrifstofuna að frádregnum kostnaði. Skrifstofu bæjarfógeta í Reykjavík 10. október 1879. E. Th. Jonassen. Auk flestra ísfenzkra bóka og fleira, j)á hef eg til s Ö1II af ýmsum smávarningi, er helzt má telja: margskonar pappír og bókbandsefni, lím, gullstáss, hnífa- pör, matskeiðar og teskeiðar, steinolíu, blek og penna. pess utan panta eg ýmsar vörur frá útlöndum, fyrir menn sem óska pess. Reykjavík, 13. október 1879. Einar pórðarson. Oígjr* Hér með kunngjörist, að eg hefi fengið með síðasta póstskipi allskonar góð vín frá hinu bezta vínsöluhúsi í Kaupmannahöfn. Eptir gæðum og áreið-l anleik eru vín þessi mjög ódýr. J>ar eð vínin erul seld fyrir aðra, fást pau ekki nema fyrir peninga út íl hönd. Simon Johnsen. — Hjá undirskrifuðum er enn til sölu móti pening-l um út í hönd hið ágæta eystrasalts-korn 200 pd. [ á 14 kr. Menn ættu að nota petta staka kornverð,! sem allra fyrst. pr. M. Smith. 12. október 1879. J. 0. V. Jónsson. — Hér með bönnum við og fyi’irbjóðum öllum að beita hrossum í lönd ábýlisjarða okkarra bæði sumar og vetur án okkars leyfis, og gildir petta eins um hross pau sem kynni að vera fengin hagaganga að nafninu ann- arsstaðar. Ef pessu banni, mót von okkarri, ekki verður ldýtt, munum við leita verndar laganna. lílafastöðum og Katarnesi 4. október 1879. Narfi jxirsteinsson. Guðlaugur M. Jónsson, — 9. p. m. töpuðust fyrir ofan Reykjavík úr rekstri 2 ær 3 vetra, geldar, mark: sýlt h. og biti apt., sneið- rifað fr. v., en á annari sneitt fr. h. og boðbíldur fr. v. Hvar sem ær pessar finnast, er beðið að koma peim til herra Halldórs í jpormóðsdal eða eigandans Eyólfs Magnússonar' á Snorrastöðum. — Tapast hefir á næstliðnu vori gráskjóttur foli tvæ- vetur, ógeltur, vakur, merktur heilrifað hægra og fjóður aptan vinstra. Finnandi er beðinn að koma folanum eða vísbendingn um fundinn, mót borgun, að Ilítarnesi á Mýrnm. — Aðfaranóttina 28. fyrra mánaðar hvarf hér af túni leirljós hestur með hvíta blesu framan í, mark tví- rifað í sneitt framan hægra, aljárnaður með sexboruðum dragstöppu-skeifum. j>eir sem kunna að hitta hest pennan eru vinsamlega beðnir að gjöra mér vísbend- ingu pað fyrsta. Hvassahrauni 3. október 1879. Einar p>orláksson. — 26. ágúst p. á. tapaðist kopar-ístað á veiginum frá Reiðskarði og niður fyrir Eústaði og er finnandi beðinn að skila pví að Gröf í Mosfellssveit, eða til Jóns Bjarnasonar að Stritlu í Biskupstungum. — Eg uridirskrifaður liefi fundið sjórekinn hatt og má réttur eigandi vitja hans til mín. Tjarnarliúsum 7. október 1879. Guðmundur Árnason. — Nýupptekið fjármark: Heilrifað hægra og hálftaf aptan vinstra.. Ef nokkur á sammerkt, er liann umbeð- inn að gefa sig fram, Elinórus Stefánsson á Kalmannstjörn. — Fundist hefir tinað eða silfrað knéband, má eig- andi vitja pess á skrifstofu J>jóðólfs. Bandið fannst norður á Árnarvatnsheiði. (t£/|f" peir sem hafa 1 á n a ð hjá mér 29.—30. árgang pjóðólfs (í bandi). Flors Dansk Læsebog, og bók Dr. Rosenbergs: Nordboernes Aandsliv — vildu segja mér sem fyrst til. Matth. Jochumsson. Afgreiðslustofa pjóðólfs: í Gunnlaugsens húsi. — Útgefandi og ábyrgðarmaður: Matthías Jochumsson. Prentaður í prentsmiðju Einars pórðarsonar.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.