Þjóðólfur - 16.11.1906, Blaðsíða 1

Þjóðólfur - 16.11.1906, Blaðsíða 1
V ÞJÚÐÓLFUR 58. árg. Reykjavík, föstudaginn 16. nóvember 1906. Jú 50. Allskonar Lampar og Ámplar. Glæsilegasta úpval / ícirvöru> og Járnvöruóeiíóinni i Cóinöorg. Margbreyttustu og beztu búshlutir úr járni og leir. Biikk- og pjátur- vörur af öliuni tegundum. Allskonar hluti úr járni, blikki, leir og tré til þæginda, gagns og prýði í eldhúsi og búri, segja allar húsmæður að sjálf- Eining út á við. Mikilsverð ummæli hægri manna. sagt sé að kaupa í Edinborg. Ávarp til íslendinga. Vegna þess Iwernig stjórnmál íslands iw Iwrfir uið, höfuni vér und- irritaðir stjórnendur íslenzkra hlaða komið oss saman um, að veila fglgi vorl og stgðja að þvi, að álweðm verði staða Isiands gagnvart Dan- merkurríki svo sem hér segir: Island skíil rera frjálst sanibandsland >id Daninörku, og skal með sambandslögum, er ísland teknr óháðan þátt í, kveðið á uin það, liver málefni Islands liljóta eptir ástæðum landsins að vera sameiginleg mál þess og ríkisins. I iillum öðrum málum skiilu íslendingar vera ein- ráðir með konungi um löggjöf sína og stjórn, og verða þau mál ekki borin upp fyrir konung í ríkisráði I)ana. A þessum grundvelli viljum vér ganga að ngjum lögum um réttar- stöðu Islands, vœntanlega með ráði fgrirhugaðrar millilandanefndar. En eins og vér álítum brýna nauðsyn þess, að blöð landsins láti nú almenning hér á landi vita það, að vér viljnm allir vinna saman að þvi, gð báið verði með lögum um þannig lagaða réttarstöðn lslands, eins er það og sannfœring vor, að þeim málstað verði greiðlegar sigurs auðið, þess eindregnar og almennar, sem þjóð vor lætur í Ijósi samhuga fglgi sitt við þessa meginstefnu, hvar sem kemur lil hennar kasta. Vér erum á þeim timamötum, að eining vor id á við i þessu máli er skilyrði velferðar vorrar og þjóðarsóma; og fyrir þvi viljum vér skora á landsmenn að halda nii fast fram og án ágreinings þessum uudirstöðuatriðum hinna vœntanlegn nýju sambandslaga. Löggjafar/ulltrúar landsins hafa komið fram sem einn maður er- lendis í þessu máli. Blöð íslands og opinberar raddir almennings þurfa og eiga cð koma fram á sama hátl, og vér treystum því, að þjóðin mnni ölt láta á sér finna, að hun vilji taka i sama streny með hverjnm þeim hœtti. er henni veitist færi á að lýsa yfir skoðun sinni. Heykjavík, Bessastöðum og Akurevri 12. nóv. líHXi. Beneiiikl Sveimson. fíjörn Jönsson, Einar Hjörleifsson, ritstjóri Ingólls. ritstjóri ísafoldar. ritstjóri Fjallkonunnar. Hannes Porsteinsson, Sigurður Hjörleifsson, Skúli Thoroddsen. ritstjóri Þjóðólfs. ritstjóri Nörðurlands. ritstjóri F’jóðviljans. Ritnefnd „Lögróttu“ er samþykk ofanrituðu ávarpi, með þeirri at- hugasemd, að henni virðist ekki ástæða til þess, »að get a nú þegar sam- tök um að halda að þjóðinni' einni ákveðínni breytingu á stjórnarskránni, svo sem er afnám ríkisráðsákvœðisins«, en »vonar að geta sýnt i verki samvinnufúsleik sinn einnig þá er kemur til bregtinga á stjórnarskráiini«. — Ritnefnd »Norðra« þessu sammála. Sjaldgæft tækifæri. Yarðar mest til allra orða, undirstaðan rétt sé fundin. Þetta eru sannindi, sem ekki verður móti mselt, því að þau hafa almennt gildi í smáu sem stóru. Vér Islendingar verðum að finna trygga, örugga og ósvikula undirstöðu, til að byggja kröfur vorar á í væntanlegum samn- ingum vorum við Dani. Og það er ekki nóg, að þesti undirstaða, þessi samkomu- lagsgrundvöllur sé settur að vilja mikils hluta þjóðarinnar, en allmikill 'nluti henn- ar sé honum fráhverfur og vilji byggja kröfurnar á allt öðrum grundvelli. Öll þjóðin verður að vera sammála og halda aðalkröfunum fram með einurð, festu, og rullkominni eindrægni. Því að eins er sigurs að vænta, því hvernig getur nokkur ætlazt til þess, að Danir taki nckkurt tillit til krafa vorra, efhverhönd- in hjá oss er upp á móti annari, og einn rífur það niður og níðir á allar lundir, sefn annar telur mikilsvert og hið eina rétta. Þá geta Danir sagt með fullum rétti: Þegar svona eru skiptar skoðanir ykkar íslendinga um það, hvað ykkur sé fyrir beztu, þá getum vér að svo stöddu ekki samið við ykkur. Þér verðið fyrst að koma ykkur santan um, hvers þér krefj- ist af oss, svo að vér vitum, hvað það er, sem þér leggið áherzlu á einhuga og ótvírætt. Avarp það til Islendinga, sem birt er hér að ofan, er sprottið af þeirri föstu sannfæringu þeirra blaðamanna, er undir það hafa ritað eða tjáð sig því samþykka, að útá við, ga. gnvart Dönum, verðum vér að vera sammála um meginatriðin í kröfum vor- u m. Það veitir þeim þann styrk og þá festu, er þær ella mundu ekki hafa. Hyggjum vér, að þjóðin skilji það rétt, að hér er ekki um neina samvinnu hinna núverandi flokka að ræða í öðrum deilumálum — þau eru nógu mörg eptir — heldur urn samkomulags-til- raun í þeim atriðum, sem mestu skiptir fyrir þjóðina, að engin sundrung geti komizt að. Og vér efumst ekki um, að þjóðin yfirleitt muni taka tilraun þessari með fögnuði og styðja að því, að hún geti borið æskileg- an árangur, enda stendur hún í beinu sambandi við utanför þingmanna í sumar og framkomu þeirra þar gagnvart Dönum. Hugsum oss t. d. að alþingismennirnir hefðu 1 utanförinni látið flokkaríginn sitja í fyrirrúmi fj'rir öllu öðru, bæði 1 samtali við danska þingmenn og á viðtalsfund- inum 30. júlí, að flokkarnir hefðu hnakk- rifizt franian í Dönum, og sagt, hver um sig, að þessa náunga — hina flokkana — væri ekkert að marka. Mundi árangurinn af því viðtali hafa orðið mikill ? Vitan- lega enginn annar en sá, að engum dönskum þingmanni hefði komið til hug- ar að taka nokkurt mark á nokkru, er er sagt hefði verið, eða taka nokkrar kröfur vorar til greina, ekki einu sinni líta við þeim. Þetta var og al- þingismönnum full-ljóst, að ætti förin að verða landinu til gagns og gengis, þá yrðu allir að koma fram einhuga með sömu kröfurnar á hendur Dönum. Og það var einmitt þessi eining þingmanna, sem vakti virðingu Dana fyrir hinum pólitiska þroska íslenzku fulltrúanna, og veitti kröfum þeirra margfalt meira gildi en ella. Þetta hefur einnig verið almennt viður- kennt hér á landi, að árangur þingmanna- fararinnar sé mest fólginn í þessu atriði, að gagnvart Dönum hafi alþingismenn komið fram sem einn maður, þrátt fyrir alla innbyrðis óvild og harðsnúinn flokka- ríg- En þessari samkomulagsundirstöðu, sem nú er lögð af fulltrúum þjóðarinnar, henni m á þjóðin ekki spilla, því að annars má búast við, að til lítils hafi unnið verið. En þessari undirstöðu er gerspillt, efkröf- urnar verða jafnmargar og mismunandi, eins og stjórnmálaflokkarnir eru margir í landinu. Menn verða að koma sér sam- an um ein'nver aðalatriði, einhverjar aðal- kröfur, er allir halda fram. Velferð landsins á að standa og hlýtur að standa ofar öllum flokkaríg og p e r s ón u le g u hatri. Og menn verða vel að gæta þess, að nú er einmitt í vændum jafn þýðingar- mikill atburður, sem heimsókn konungs vors að sumri. Það er enginn efi á, að sú heimsókn myndar nýtt tímabil 1 hinni pólitisku sögu vorri, ef vér sjálfir kunnum að hegða oss réttilega og berum gæfu til að hagnýta þetta fágæta tækifæri landi voru og þjóð til hags og heilla. Vér vit- um það, að Friðrik konungi 8. er alvara að gera oss Islendinga ánægða. Og vér vitum það einnig, að fulltrúar hinnar dönsku þjóðar eru konungi sínum sant- mála um þetta, ekki að eins hinir írjáls- lyndustu þeirra á meðal, heldur einnig hinir Ihaldssömustn — hægri mennirnir. Því til sönnunar getum vér ekki stilltoss um að birta hér ummæli N. Andersens etazráðs, foringja og formæl- anda hægrimanna í fólksþinginu. Hann segir svo eptir að konungur hafði lýst því yfir í hásætisræðu sinni, að hann ætlaði sér að verða við óskum Islendinga úm endurskoðun á stöðulögunum: »Eg hygg ekki, að vér getum verið þekktir fyrir að hanga í sérkreddum, sem nánasthafa »teóretiska« þýðingu fyrir afstöðu vora gagnvart lslendingum. Eg hygg að það sé hið snjallasta fyrir oss, að segja fljótt og skýrt já og amen við óskum Islendinga, ef að eins sambandinu við land vort er haldið áfram. Verði sam- bandinu milli Islands og Danmerkur ekki slitið, hygg eg að réttast sé fyrir oss að ganga töluvert langt (»ret vidt«) í því að veita Islendingum siálfstjórn, er þeir fyrst og fremst óska, eins og eðlilegt er, því að það hagar allt öðruvlsi. til hjá þeirn, en hjá oss. Eg hygg, að stjórn vor geri rétt ( því, að verða við óskum Islendinga í sem allra fyllstum mæli(»ividest muligt Maal«), þaðeraðsegja með þeirri takmörkun, að sambandiðvið

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.