Þjóðólfur - 15.05.1918, Blaðsíða 4

Þjóðólfur - 15.05.1918, Blaðsíða 4
32 ÞJÓÐÓLFUR Ensk reiðhjol, sem bera lang-t af öðrum, sterk, lótt, þægileg-, ásjáleg, selur Kirkjustræti 12. Vidskiltalélagid. ^ími 701. Vatnsaflið vinnur fyrir Sími 404. bændur landsins. Símnefni: Álafoss. Klæða v erksmið j an „Álafoss“ hefir þá ánægju að geta tilkynt sínum heiðruðu viðskiftavinum, að hún heldur áfram að vinna í f ulluni gangi. og getur tekið á móti afskaplega miklu af ull til vinnu í lopa, plötn og- band, fyrir 1 æ g r i vinnulaun en tiltölulega nokkur önnur vinna fæst unnin hér á landi. Hændnr! Það borgar sig eigi að nota handaflið til að kemba. Látið Álafoss gera það — þér sparið stórfé með því. Allar upplýsingar viðvíkjandi flutningum o. fl. fást hjá umboðs- mönnum vorum. Sendið því ull yðar strax til Afg-reiðslii verksmiðjuiinar á Laugaveg 34, Reykjavík. Klæðaverksmiðjan „Álafoss“, Rvík. þ. á., um úthlulun og sölu korn- vöru, sykurs o. fl.? Stjórnarráðskvisturinn 0. fl. Reykvíkingar hafa víst flestir tek- ið eftir því, að stjórnarráðshúsinu var breytt allmikið 1917, því til lítifiar prýði, settur á það kvistur allmikill, sem er þrjú herbergi alls. Eiga þar bústað ráðherrar vorir tveir, hinir nýsköpuðu, atvinnu- málaráðherrann og fjármálaráð- herrann. Ger var og íbúð í timb- urhúsinu austan við það. En dýr- ar hafa húsabætur orðið á höfuð- bólinu. Er Þjóðólfi sagt með sann- indum, að kostað hafi smíð þessi ekki minna en 88 þús. kr., og þykir það gífurlega mikið, jafnvel í þessari voðadýrtíð. Ganga all- miklar kviksögur um það um bæ- inn, hvernig á þessum kostnaði staDdi. Með smíð þessari hafði yfirumsjón Sigurjón Sigurðsson trésmiður, er lengi hefir verið höf- uðsmiður stjórnarráðsins og trún- aðarmaður þess í öllu, er að siníð- um lýtur. Yonandi, að þingmenn láti það eftir sig liggja að rann- saka mál þetta. samvizkusamlega og birti síðan almenningi öll máls- gögn, enda má engum vera slíkt kærara en þeim, er ábyrgð bera á verkinu og kostnaði þess, ef aft er hér hreint, sem óskandi er. Haðíumsjóður jslanðs stofnaínr. Hr. Thor Jensen gefur 20 þús.kr. Um rakiumsjóðinn hefir radium- nefnd Oddfellowa sent blöðunum eftirfarandi skýrslu: Eins og áður hefur verið getið í biöðunum, beittust Oddfellowar fyrir því í vor, að koma radíum- málinu í framkvæmd, með því að gangast fyrir fjársöfnun til Radium- stofnunar. Áður en Oddfellowar tóku málið að sér, voru komnar tiokkrar stórgjafir til fyrirtækísins, frá Fiskiveiðahiutafélaginu »Hauk- ur«, Geo Copland, L. Kaaber o. fl. Oddfellowar kusu sín á meðal níu manna nefnd, er unnið hefur síðan að íjársöfnun og undirtektir verið svo ágætar, að hægt var á laugar- daginn var, að stofna hér Radium- félag: »Radiumsjóð íslands*. Á stofnfundinum reifaði Jón Lax- dal kaupmaður málið fyrir hönd nefndar Oddfellowa. Gat hann þess, að nú væri alls safnað í inn- borguðu fé og loforðum um 150 þús. krónur. Skýrði hann og frá, að auk þeirra 27 þús. kr., sem safnast höfðu áður en Oddfellowar tóku málið að sér, væru nú komin lof- orð fyrir um 40 þús. kr. gjöf frá Óddfeilowum og 83 þús. kr. frá félögum og einstökum mönnum. Hæstu gefendurnir utan Oddíellowa eru Thor Jensen stórkaupmaður með 20.000 kr,, »Bragi« með 3000, Elías Stefánsson með 2500 kr. og ýmsir með 1000 kr., 500 kr. og minni upphæðir. Stjórnir í nokkr- um félögum hafa iofað álitlegum fjárhæðum, að áskildu samþykki aðalfunda. Þar næst voru samþykt lög fyrir Radíumsjóðínn, en samkvæmt þeim getur hver sá orðið félagi í sjóðn- um, sem leggur fram 100 króna tillag. Hver félagi hefur 1 atkv., án tillits til þess, hvað hann hefur lagt fram. í stjórn voru kosnir þessir menn, og hafa skift þannig með sér verk- um: Thor Jensen stórkaupmaður (formaður), Halldór Daníelsson yfir- dómari (varaform,), Sveinn Björns- son yfirdómslögmaður (ritari), Jón Laxdal stórkaupmaður (gjaldkeri) og Sæmundur Bjarnhéðinsson pró- fessor. — Varamaður í stjórnina var kjörinn Eggert Claessen yfir- dómsiögmaður, endurskoðendur Jón Pálsson bankagjaldkeri og Morten Hansen skólastjóri, til vara Matth. Einarsson læknir. Það er tilætlunin, að vinda eins bráðan bug og hægt er að þvf, að koma Radíumstofnuninni á fót, og getur hún væntanlega tekið til starfa einhverntíma á þessu ári. Andersen, forstjóri Austur- Asiufélagsins, einhver allra nafn- kunnasti og mikilhæfasti fésýslu- maður Dana, ætlar að koma hing- að í sumar, að því er símað er hingað, og er fregnin höfð eftir dönskum blöðum. Líklega er er- indið að njósna um, hver févon sé hér, ef Danir viidu ráðast í einhver fyrirtæki hér norður frá. TaiálsMnr keyptar hæsta verði (hvor tegund fyrir sig) í Vöruhúsinu. DAGSBRÚN kemur út á laugardögum, og er að jafnaði 4 síður aðra vikuna en 2 hina, Árg. kostar 3,00. kr. ogborgist fyrir- fram. Afgreiðsla og innheimta á Lauga- vegi 4 (Bókabúðinni). Ritstjóri: Sigurðnr Giudmundssou. Sími 709, PrentBmiðian Gutenberg, 100 mega leggja orð í belg. Það fann eg áðan, þegar hann Þorleifur tók í höndina á mér. Míra sneri sér við og leit með fyrirlitningu á Þorleif. „Eg hélt, að það væri svo mikill mannsbragur á þér*, sagðj hún, „að þú værir húsbóndi á þínu eigin heimili, og því geðjað- ist mér svo vel að þér, en nú sé eg, að þú hangir eins og krakki í kvenpilsi, svo þú ert þá loksins sami ræfillinn og þetta bænda- rusl hér um slóðir, sem eg fyrirlít aí öllu hjarta". „Nú skjátlast þér, Míra“, sagði Sigríður. „Þorleifur hefir aldrei sýnt það betur en nú, að hann hefir mikið viljaþrek til að bera. Enginn getur látið mikið yfir manngildi sínu, meðan ekkert reyn- ir á það, en sá, sem leiddur hefir verið í freistni og staðist hana, hann einn getur stært sig af sálarþreki sínu“. Siðan rétti hún Þorleifi hönd sina og leiddi hann sem hrað- ast burtu frá selinu heim á leið, og hann gekk með henni nið- urlútur, lotinn 1 herðum og riðaði á fótunum. Pað var eins og ísköld frostnótt hefði lamað og kúgað niður afl hans og þrek og lagt það í klakadróma eins og öldur á sjó. Alla æfi hafði sjálfs- álitið haldið honum uppréttum, en þegar hann loksins fór að skilja og kannast við ást sína á Míru, tapaði hann trúnni á sjálf- an sig. Hann var enginn hálfvelgjumaður; hann varð annaðhvort að hafa hreina samvizku eða flekkaða; þar var enginn milliveg- ur. Nú fann hann, að hann hafði alið syndsamlega tilfinningu í huga sér frá því Míra kom á bæinn. Honum kom ekki til hugar að breiða yfir bresti sína eða afsaka sig. Hann var jafn misk- unnarlaus við sjálfan sig eins og aðra. Hann þóttist nú ekki lengur vera vaxinn stöðu sinni og geta komið fram eins og hús- bóndanum mikla á Furugörðum sómdi; hann var þess ekki verð- ur, því að honum þótti nú skömm til sjálfs síns koma.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.