Þjóðólfur - 11.06.1918, Blaðsíða 4

Þjóðólfur - 11.06.1918, Blaðsíða 4
50 ÞJÓÐÓLFUR J[iiiileiadlar fréttir og tíning-ui’. Nefndum rignir nú niöur úr hinu háa stjórnarráði. Tvær þriggja manna nefndir hafa nýlega verið skipaðar til þess að sjá um að- flutninga og útflutninga. í útflutn- inganefnd eru skipaðir Thor Jensen, Ólafur Benjamínsson, stórkaupm., og Pétur Jónsson á Gautlöndum. 1 útflutninganefnd eru skipaðir Ludvig Kaaber, stórkaupm., Karl Proppé, kaöpm. og Eggert Briem í Viðey, forseti Búnaðarfólagsins. Þessar nefndarskipanir benda á, að stjórninni er að fara fram. Má það telja framför, að ekki eru nú skipaðir nema þrír menn í hvora nefnd. Áður dugði ekki minna en flmm menn í nefnd. Og val manna hefir tekizt ágætlega á nær öilum, á engum hneykslanlega. Höfðingleg gjöf. í tilefni af 50 ára afmæli verzlunar sinnar á Eyrarbakka (8. apríl síðastl.) hefir stórkaupmaður I. A. Lefolii í Kaup- mannahöfn gefið 10 þús. kr. Helm- ingur gjafarinnar myndar sjóð til styrktar íslenzkum verzlunarnem- endum í Khöfn, og hafa Arnesing- ar og Rangæingar forgangsrétt. Hinn helmingurinn gengur til líkn- arstofnana, sennilega að mestu leyti til sjúkrahúss í Árnessýslu. Eyrarbakkakirkju hefir hr. Le- folii nú í vor sent vandaða turn- stundakiukku. (Bréf af Eyrarb.) Séra Ólafl V. Briem, er verið hefir aðstoðarprestur íöður síns, séra Valdemars, seinustu átján ár, hefir nú verið veitt Stóra-Núps prestakall. Séra Þórði Oddgeirssyni í Bjarna- nesi hefir og verið veitt Sauða- nes á Langanesi. Lagarfoss á að fara til New- York flmtudan 13. júní. Húsaleigulögin, er gilda hér í Reykjavík, vilja húseigendur fá úr gildi numin eða fá þeim breytt. Hefir verið safnað undirskriftum undir áskorun til alþingis um það. Alþingi. Þar er alt hljótt og fremur viðburðalítið. Þykir sumum löng biðin eftir svari frá Dana- stjórn. Það vita menn, að íslands- málanefndin hefir nú fundi með sér. Kunnugir segja, að þingmenn vorir séu mjög á sama máli um utanríkismál vor, og muni nú standa sem einn maður gegn út- lendu valdi. Er slíkt hin mestu fagnaðartíðindi. „í sameining vorri er sigur til hálfs í sundrungu glötun vors xéttasta máls.“ Séra Sigfús Jónsson á Mæli- felli í Skagafirði hefir ráðið sér að- stoðarprest cand. theol. Tryggva Hjörleifsson Kvaran, er nýlega hefir verið vigður. Ætlar sóra Sig- fús að gerast kaupfélagsstjóri Skag- fhðinga og lætur víst af prestsskap næsta ár. Ekkja Páls Ólafssonar, skálds, frú Ragnhildur Björnsdóttir, lézt 5. þ. m. úr slagi á heimili bróður síns, séra Halldórs í Presthólum. Hafði hún átt við lasleika að stríða í vetur, en vonaði þó að geta flutt hingað í vor til sonar síns, cand. jur. Björns Pálssonar. Fædd var hún 1843. Lík hennar á að flytja hingað suður og grafa við hlið manns hennar, er unni henni mjög, eins og sjá má í kvæðum hans. Nýkvæntnr er Bjarni Ásgeirs- son, óðalsbóndi í Knarrarnesi, og ungfrú Ásta Jónsdóttir, stúdent. Þjóðólfur óskar ungu hjónun- um til hamingju. Cluðninndur Friðjónsson skáld dvelur í bænum. r XJtlendai* fréttir. Það virðist nú hlé á þriðju sókn Þjóðverja. Allmjög hafa þeir áunn- ið í henni, enda voru þeir mjög miklu liðfleiri. Er mælt, að Þjóð- verjar eigi nú kringum 70 kíló- metra til Parísar. Er símað frá Berlín, að her þýzka krónprinsins hafi frá 27. maí tekið að herfangi 55000 fanga. Alt fyrir það virðast Bretar allöruggir. Vistabirgðaráð- herrann brezki hefir lýst yfir því á þingi Breta, að betur væri nú ástatt með Bretum um vistaforða en í fyrra um sama leyti. Yæri meira til af komvöru, feitmeti og kjöti en í fyrra um sama leyti. — Gætu Englendingar í því efni verið hinir vonbeztu. Þess má og geta, að herráð Bandamanna hefir vottað Foch hershöfðingja aðdáun íyrir vörn hans gegn síð- ustu sókn Þjóðverja. — Nokkrar loftárásir kveðast Bretar hafa gert, t. d. á Zeebrugge, Karlsruhe og Brugge. Og þeir kveðast hafa kom- ið lagi á varnarstöðvar sínar, þær er mikils sé um vert. Þá er símað, að jafnaðarmenn í Austurríki hafi neitað að viður- kenna friðarsamninga þá, sem gerðir voru við Rússa í Brezt- Litowsk og Rúmena í 'Búkarest. Krefjast þeir þess, að nýir, friðar- samningar verði gerðir án land- vinninga. Þá er og símað, að póli- tískt hörmungaástand ríki í Aust- urríki. Um 10 þús. manna er sagt að varpað hafi verið í fangelsi. í flokki þeirra séu þingmenn, borg- arstjórar og prestar. Zahlestjórnin (í Danmörku) hefir fengið 70 atkvæði í fólksþinginu út við atkvæðagreiðslu, er fór fram eftir stefnuskrárræðu hans. 62 voru á móti. Clemencau, forsætisráðherra Frakka, fékk nýlega 377 atkvæði með sér í fulltrúaþingi Frakklands, 110 vóru á móti. Merkilegustu fréttir utan úr heimi eru þær, að vart hafi orðið þýzkra kafbáta vestur undir Ameríku og þýzkra tundurdufla innan land- helgi Bandaríkja. Er sagt, að höfn inni í New-York hafi verið lokað. Bætt er því við, að þetta sein- asta furðuverk Þjóðverja hafi að eins aukið hernaðaráhugann vestra. Þessi seinasta frétt er' oss Is- lendingum afar-alvarleg. Má nú búast við, að þar kpmi, að lokað verðí leið til Yesturheims. Er lík- legt, að ætlun Þjóðverja sé að senda fjölda kafbáta vestur skjóta þar á skip, enda segir í einu skeyti að fjölda kafbáta hafi verið sökt, og að Vesturheimsmenn haldi, að þýzkir kafbátar flytji flugvélar vestur. og lalálÉsIv keyptar hæsta verði (hvor tegund fyrir sig) f V^ruhúsnu. Vatnsaflið vinnur fyrir Sími 404. bændur landsins. Símnefni: Álafoss. Klæöa verksmiðj an „Álafoss“ hefir þá ánægju að geta tilkynt sínum heiðruðu viðskiftavinum, að hún heldur áfram að vinna í filllum gangi, og getur tekið á móti afskaplega miklu af ull til vinnu í lopa, plötn og band, ’fyrir 1 æ g r i vinnulaun en tiltölulega nokkur önnur vinna fæst unnin hér á landi. Bændnr! Það borgar sig eigi að nota handaflið til að kemba. Látið Álafoss gera það — þér sparið stórfé með því. Allar upplýsingar viðvíkjandi flutningum o. fl. fást hjá umboðs- mönnum vorum. Sendið því ull yðar strax til Afgreiöslu verhsmlðjunnar á Laugaveg 34, Reykjavík. Klæðaverksmiðjan „Álafoss“, Rvík. Arni Eiríksson. [ Heildsala gmásala. ] Talsími: 265. Pósthólf 277. Veínaðarvörur, Prjónavörur mjög íjöll»reyttar. Saumavélar með hraðhjóli. Verksmiðju- ábyrgð til 5 ára. Smávörur er snerta saumavinnu og hannyrðir. Þvotta- og lireinlætisvörur, beztar og ódýrastar. Gosdrykkja og aldinsafagerðin ,SANITAS‘ í Reykjavík ^ mælir með vörum sínum. Notar að’ eins ný aldini og beztu efni. Alt vatn er dauðhreinsað og jafnan gætt hins mesta hreinlætis í hvívefna. Guðm. Björnson, landlæknir, er eftirlitsmaður. Spyrjist fyrir um verð og biðjið um sýnishorn. Ritstjóri: Sigurður Guðmundsson. Sími 709. Prentsmiðjan Gutenberg.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.