Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1912, Blaðsíða 16
16
Jón Arnason bóndi á Víðimýri: Atgeir (nr. 585).
Björn prófastur Halldórsson í Laufási: Rúmstokkur útskorinn,
ljósberi o. fl. (nr. 606—7, 609 —14).
Halldór Bjarnason prófastur á Sauðanesi. Drykkjarhorn útskorið
og rekkjurefill útsaumaður (nr. 608 og 615).
Bjarni Sveinsson prestur á Stafafelli: Silfurrekinn hurðarhring-
ur og skráarlauf (nr. 671).
Magnús Jónsson prestur á Grenjaðarstað: Stórar kirkjuhurðar-
lamir slegnar úr járni (nr. 674).
1869. Sigurður Guðmundsson málari: Nítján gripir, af búning-
um flestir (nr. 682—700).
Frú Gytta Thorlacius á Eskifirði: Tvö málverk, annað af Jóni
sýslum. Thorlacius og konu hans, og hitt af sonum þeirra, Þorláki
og Vigfúsi (nr. 708—709)1).
Sigurður E. Sœmundsen verzlunarstjóri: Fléttusaumsábreiða gjörð
af Þóru dóttur Stefáns skálds Ólafssonar í Vallanesi 1705 (nr. 728),
silfurskeið, silfurbikar (nr. 731—32), o. fl.
Baldvin Jónatansson á Stóruvöllum: Spjótsoddur, næla og 3
steinar úr sörvi (nr. 739—44, Kálfborgarárfundur).
1870. Julia S. Engall í Lundúnum: Draflastaða-bréf útgefið
af Jóni biskupi Arasyni.
Halldór Bjarnason prófastur á Sauðanesi: Stór skápur með út-
skornum súlum (nr. 784).
Jóhann Briem prófastur í Hruna: Gullhringja með drekamynd-
um, forn (nr. 803).
Ýmsir aðrir gáfu og góða gripi þetta ár og margir voru keyptir,
m. a. 2 silfurbelti með loftverki (nr. 758 og 773), möttulskildir úr
silfri, gyltir (nr. 775), smeltur kross frá Draflastöðum (nr. 788) fléttu-
saums-ábreiða (nr. 800), og margir gamlir ísl. gripir úr silfri, einkum
kvenskraut.
1871. Pdll Pálsson stúdent: Nokkur blöð úr skinnhandritum
(nr. 827, 833).
Benedikt Sveinsson assessor, síðar sýslumaður: Steinpottur forn,
með skafti (nr. 832).
Hafliði Eyólfsson í Svefneyjum: Útskorin mynd úr tré af Stefáni
helga frumvotti (nr. 859).
Jósep Blöndal verzlunarstjóri: Útskorið drykkjarhorn (nr. 864).
1872. Bjami Thorsteinsson konferenzráð og Hannes Jóhnsen
kaupmaður: Skírnarfontur úr Skálholtskirkju frá 1651 (nr. 886).
‘) Sjá Árb. 1901, bls. 37—43, m. mynd.