Fréttablaðið - 23.04.2001, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 23.04.2001, Blaðsíða 14
FRÉTTABLAÐIÐ 23. april MÁNUDACUR HVERNIC FER? Hvaða lið vinnur NBA? TEITUR ÖRLYGS- SON, FYRIRLIÐI NJARÐVÍKUR: „Ég held með Sacramento Kings og vona að þeir vinni. Liðið státar þrentur Evrópubú- um og eru tveir af þeim i býrjunarliðinu. Ég er stoltur af þeim. Þar að auki er mjög gaman að horfa á kóngana spila." LÁRUS DAGUR PÁLSSON, FYRIRLIÐl TINDASTÓLS: „Indiana Pacers er mitt Lð og þeir hefðu átt að vinna í fyrra. Ég efa þó að þeir taki þetta í ár. Sigurvegararnir verða án efa Los Angel- es Lakers og er það fyrst og fremst þjálfar- anum, Phil Jackson, að þakka." 1 FÓTBOm~| ex ástralskir áhugaleikmenn í fótbolta voru fluttir á sjúkrahús á laugardaginn eftir að eldingu laust niður á völlinn þar sem þeir voru að spila i úthverfi Melbourne. Sjúkra- liðar sögðu að mennirnir þjáðust mest af kitlandi tilfinningu um allan líkamann. Þeir fengu engin brunasár og jöfnuðu sig fljótlega eftir rafstuð- ið en héldiLþó leiknum ekki áfram. ’ V AhangenSúr Real Madrid og spænska lögreglan hafa sætt mikilli gagnrýni eftir leikinn við Galatasary á miðvikudaginn sem Real sigraði 3-0. Á föstudag- inn hringdi utan- ríkisráðherra 'IVrklands, Ismail Cem, í spænska starfsbróðir sinn og lýsti yfir áhyggjum sínum af sögunum sem fylgdu í kjölfarið á leiknum. Spænska lögreglan gekk svo langt að lumbra á sex tyrkneskum áhorf- endum fyrir að hvetja sína menn áfram og nefbrjóta einn. Þá var Tyrkjunum einnig meinað að fara á klósettið á leikvanginum á meðan spænsku áhorfendurnir hentu mynt inn á völlinn. Eyjólfur Sverrisson lék með liði sínu, Hertha Berlin, á móti Schalke í þýsku úrvalsdeildinni á laugardaginn. Schalke sigraði 2-1 og fór á topp deildarinnar. Bayern situr eftir í öðru sæti en Hertha er í fimmta sæti. að var margt að gerast í fót- boltanum á Englandi um helgina. Guðjón Þórðarson og lærlingar hans í Stoke City eru í fimmta sæti í 2. deild með 71 stig eftir sigur á Wrexham. Stoke komust snemma yfir þegar leik- maður Wrex- ham, Phil Hardy, skallaði boltann í eigið net. Brynjar Gunnarsson tók þá málin í sínar hendur og skoraði tvö mörk. Ríkharður Daðason var einnig í byrjunarliðinu og Bjarni Guðjónsson kom inn á sem varamað- ur í síðari hálfleik. Lið Guðna Bergssonar, Bolton Wanderers, vann Norwich City með einu marki gegn engu. Þetta var kærkominn sigur þar sem Bolton hafði gert jafntefli í sjö af síðustu átta leikjum. Dean Holdsworth skoraði fyrir Bolton á 66. mínútu. Guðni Bergsson bjargaði naumlega á 16. mínútu þegar skalli frá leik- manni Norwich City stefndi beint í netið hjá Bolton sem er í þriðja sæti 1. deildar. Hermann Hreiðarsson og félagar hans í Ipswich sigruðu Coventry 2-0. Martijn Réuser og Jermaine Wright skoruðu. Á meðan Ipswich styrkti sig í þriðja sæti úrvalsdeild- arinnar er útlitið svart fyrir Coventry sem er í harðri fallbaráttu. 14 NBA í kvöld: Scottie Pippen í hefndarhug körfubolti Úrslitakeppnin í NBA fór á fullt nú um helgina þar sem 16 lið keppa um titilinn í útsláttakeppni. í kvöld beinast augu flestra til Los Ang- eles þar sem Lakers taka á móti Portland Ti’ail Blazers. Lakers unnu Blazers í úrslitum vesturstrandarinn- ar í fyrra. Því eiga Scottie Pippen og félagar harma að hefna. Auk þeirra mætast í kvöld Minnesota Tim- berwolves og San Antonio Spurs, Phoenix Suns og Sacramento Kings en Orlando Magic og Milwaukee Bucks og Toronto Raptors og New York Knickerboxers á austurströndinni. ■ FÆRÐU ÞIG, FÉLAGI Pacers unnu 76'ers á laugardag. Fótbolti um víða veröld: Allir vilja til Japan og Kóreu hm 2002 Allur heimurinn fylgist þessa dagana með undankeppni HM 2002 sem fer fram í öllum álfum. Alls stað- ar reyna landsliðin að tryggja sér ör- uggt sæti. íslendingar flugu til Möltu í gær þar sem þeir spila á móti heimamönnum á miðvikudaginn. í Asíu eru rúmlega fjörutíu lið um hit- una. írakar unnu Macau með fimm mörkum gegn engu á laugardaginn og eru í efsta sæti í riðli sex í Asíu með tíu stig. írakar mæta Nepölum í dag í Almaty í Kasakstan. ■ SADDAM Á VELLINUM íraskur fótboltaáhugamaður horfði á sina menn vinna Macau 5-0 á laugardag. hans hér til hliðar á sér engin for dæmi enda fer gífurleg vinna í skipulagningu á hverju stökki. „Það þarf að reikna allt út og engu má gleyma í undirbúningnum. Fyrir utan stökkið sjálft þarf að rannsaka öryggiskerfi og gæslu á hverjum stað vandlega. Það tók mig t.d. tvö ár að klára skakka turninn í Pisa. Gæslan var svo mikil, Loks kom tímabil með færri öryggisvörðum. Það þýðir heldur ekki að gera þetta einn, maður þarf hóp aðstoðar- manna.“ Menn sem stunda þessa íþrótt deyja oft og allir slasast ein- hvern tímann. Hún er áhættusöm. Það má ekki gleyma neinu í HÁLFUR ÍSLENDINGUR OG HÁLFUR NORÐMAÐUR Ame er að Ijúka við nám í sjávarútvegsfræðum við Háskólann í Tromsö. Frægir staðir sem Arne hefur stokkið fram af Hann þarf jafnan að lauma sér framhjá öryg- gisvörðum og myn- davélum. í London beið hann t.d. þar til fjara var í Thames-ánni til að geta gengið meðfram henni og aö Millenium-hjólinu. nn 1 vo °g ár upp á skakka turninn fj ór ar sekúndur niður undirbúningi stökks. Arne segir tíu prósent stökkvara deyja og að oftast sé það vanhæfni eða kæruleysi að kenna. „Reynslan skiptir öllu máli. Stökk- in snúast um að gera hættulega hluti á öruggan máta. Iðkendurnir eru jafnan hámenntað fólk í góðum störf- um. Þetta kostar mikinn pening. Al- menningur virðir íþróttina ekki nóg, sér bara brjálæðislegt stökkið en ekki vinnuna sem er að baki því.“ ■ Arne Árhus er einn af fremstu Base-stökkvurum heims. Undanfarna mánuði hefur verið hægt að fylgjast með heimsreisu hans í sjónvarps- þættinum Adrenalín á Skjá Einum. Þar flakkar hann á milli landa og þef- ar uppi staði til að stökkva fram af. Arne er búinn að stunda fallhlífa- stökk í níu ár. Fljótlega eftir að hann byrjaði renndi hann hýrum augum til Base-stökkvanna en þurfti að safna sér stökkreynslu í þrjú ár. „Ég hef ferðast f jóra mánuði á ári í 10 ár og er búinn að stökkva út um allan heim. Það eru 15 stökkvarar í heiminum sem flakka svona á milli stökkstaða árlega. Oft rekst ég á kunningja mína á ólíklegustu stöð- um.“ Arne hefur kennt fallhlífastökk í 6 ár, mest í Noregi en hann var einnig í norska hernum á tímabili. Hann get- ur fengið vinnu við að kenna fallhlífa- stökk hvar sem hann er í heiminum og kemur það sér oft vel þegar hann er orðinn auralítill á ferðalögum. Þegar kemur að stökkvum fram af frægum stöðum ber Arne höfuð yfir herðar allra aðra í íþróttinni. Listinn ARNE ÁRHUS Aldur: 26 ára Fjöldi fallhlifarstökkva: u.þ.b. 500 Fjöldi Base-stökkva: 284 HEIMSMET ■ 9 sinnum fram af hóteli Arne stökk níu sinnum fram af hóteli í Durban í Suður-Afríku á sama degi áður en starfs- fólkið áttaði sig á því og rak hann burt. ■ Fiöldastökk Arne tók þátt I fjöldastökki fram af KL-turninum í Kuala Lumpur ásamt 53 af færustu stökkvurum heims. BASE þýðir Building - Antenna - Span - Earth (Bygging - Loftnet - Brú - Jörð) og er samnefnari yfir það sem stökkvararnir fleygja sér fram af. Dramb er falli næst Bretinn Lennox Lewis tap- aði fyrir Bandaríkjamannin- um Hasim Rahman. hnefaleikar Að morgni sunnudags, klukkan fimm að staðartíma, mætt- ust heimsmeistarinn í þungavigt, Lennox Lewis, og áskorandinn Hasim Rahman. Bardaginn fór fram Carni- val City spilavítinu í Jóhannesarborg í S-Afríku. í stuttu máli sagt var Lew- is ekki í'nógu góðu formi og féll í fimmtu lotu fyrir eitruðu höggi frá Rahman. Þetta eru óvæntustu hnefa- leikaúrslit ársins. Mikið hafði verið talað um hversu seint Lewis kom til S-Afríku fyrir bar- dagann, sem fór fram 1600m yfir sjávarmáli. Rahman var byrjaður að æfa fyrir mánuði til að venjast lofts- laginu og er vel liðinn af heimamönn- um. Á meðan var Lewis í í Las Vegas að leika í kvikmyndinni Ocean’s El- | INNLENT Guðmundur Kr. Gíslason, Skotfé- lagi Reykjavíkui’, sigraði í flokki loftskammbyssu á íslandsmóti Skot- íþróttafélags íslands i loftbyssu- greinum sem fór fram í Laugardais- höll á laugardaginn. Guðmundur tryggði sér þáttökurétt á Smáþjóða- leikunum sem fi-am fara í San Marínó í sumar. even með Juliu Roberts, George Cloo- ney og Brad Pitt. Stjörnuleikurinn kom aftan að honum í gær en hann hafði vanmetið Rahman og sagðist ætla að taka hann í fjórðu lotu. í samningi sem þeir gerðu sín á milli er viðauki sem tryggir Lewis annan bardaga við Rahman, sem má berjast einu sinni áður. Þessi úrslit gerðu vonir Lewis um að berjast FYRST FÉLL PRINSINN OG NÚ LENNOX LEWIS. Tvær skærustu hnefaleikastjörnur Bret- lands hafa beðið ósigur á tveimur vikum. næst við Mike Týson að engu. Ra- hman er hæstánægður með það og öskraði: „No Lewis-Tyson! No Lewis- Tyson!,“ eftir að hafa tryggt sér heimsmeistaratitilinn. ■ Olafur Jón Ormsson, leikmaður KR, var tilnefndur besti leik- maðurinn í úrvalsdeild karla í körfuknattleik í lokahófi körfuknatt- leiksmanna á föstudaginn og Kristín Jónsdóttir, einnig leikmaður KR, var valin besti leikmaðurinn í l.deild kvenna. HSK sigraði Víkverja með yfirburðum í Sveitaglímu íslands í karla- flokki í Hagaskóla á laug- ardaginn. HSK hlaut 18,5 vinning gegn 6,5 vinningi Víkverja og er íslandsmeistari 2001 í karlaflokki.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.