Fréttablaðið - 23.04.2001, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 23.04.2001, Blaðsíða 23
MÁNUPAGUR 23. apríl FRÉTTABLAÐIÐ 23 Pirringur ágerist í stjórnarsamstarfinu Vissulega gengur Davíð of langt „Það fer ekkert á milli mála að ýmislegt hefur gerst síðustu vikur sem okkur framsóknarmönnum líkar misvel. Ég get nefnt Búnaðarbanka- málið, efirköstin eftir öryrkjamálið, Þjóðhagsstofnun og nú síðast það sem hann hefur sagt um Evrópumál," RÍKISSTJÓRNIN Farið er að bera á óánægju innan Framsóknarflokksins í samstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn. Þingmenn Framsóknar benda á nokkrar athafnir forsætisráðherra og segja hann hafa gert meira en þeir geti sætt sig við. sagði þingmaður Framsóknarflokks- ins, þegar hann var spurður hvort tvær grímur séu að renna á fram- sóknarmenn um ágæti samstarfsins við Sjálfstæðisflokkinn í ríkisstjórn. „En því fer fjarri að komið sé að stjórnarslitum," bætti hann við. Fréttablaðið ræddi við fleiri innan Framsóknarflokksins um þetta sama. Allir voru þeir á einu máli um að þau tilfelli sem fyrsti viðmælandinn nefndi væru rétt og þó svo menn hafi ekki rætt opinskátt um þessi mál, eru mehn sammála um að framsóknar- mönnum, flestum að minnstakosti, mislíkar margar athafnir Davíðs. „Það sem vekur mína athygli," sagði þingmaður Framsóknarflokks- ins, „er að þetta á ekki bara við um okkur. Ég get ekki merkt annað en að sjálfstæðismenn séu ekki allir á eitt sáttir heldur." Allir viðmælendur Fréttablaðsins voru spurðir hvort brotthvarf Ingi- bjargar Pálmadóttur skýrðist með viðbrögðum forsætisráðherra eftir öryrkjadóminn. Allir töldu líklegt að það hafi haft áhrif á hana. En hvað.segir Ingibörg um þetta? „Þetta hafði engin áhrif á mína ákvörðun. Fyrir um einu ári ákvað ég að verða ekki aftur í framboði og fannst réttast að hætta á miðju kjör- tímabili," sagði Ingibjörg. ■ frekar nefna hana Jafnaðarflokk- inn eða Jafnaðar(manna)flokk ís- lands. Þessi nöfn eru enn á ferð- inni en þó er talið frekar ólíklegt að nafnbreyting nái fram að ganga. Ýmsir áhrifamenn telja að Samfylkingarnafnið hafi náð fót- festu um leið og flokkurinn hafi komið frafn af meira öryggi. Össur Skarphéðinsson flokksformaður er sagður bíða átekta með það að kynna afstöðu sína þar til hann hefur heyrt hljóðið í 'flokksfólkinu. 30 starfsmnenn hafa verið ráðnir á ritstjórn og á sölu og auglýs- ingadeild Fréttablaðsins. Blaðamenn eru Kolbrún Ingibergs- dóttir, Sigríður B. Tómasdóttir og Trausti Hafliðason (hefur störf bráðlega), en þau koma af Morg- unblaðinu; Steinunn Stefánsdóttir og Halldór V. Sveinsson, sem áður störfuðu á DV; Guðmundur Rúnar Heiðarsson og Guðsteinn Bjarna- son, sem voru blaðamenn á Degi; Auður Aðalsteinsdóttir, Karin Hilmarsdóttir og Brynjólfur Þór Guðmundsson.sem voru starfandi á Visi.is; Garðar Örn Úlfarsson og Sigurjón Magnús Egilsson sem hafa starfað á ýmsum fjölmiðlum m.a. DV, RÚV og víðar, Hafliði Heigason sem um tíma starfaði á Degi og hefur störf innan skamms; nýliðarnir B jörgvin Guð- mundsson, Kristján Hjálmarsson, Hrafnhildur Smáradóttir (hefur störf innan skamms) og Marteinn Breki Helgason. Edda Jóhanns- dóttir sem lengi starfaði á Morg- unblaðinu, og Sæmundur Guðvins- son hafa verið ráðin í blaða- mennsku og prófarkalestur og umbrotmsnenn eru Janus Sigur- jónsson og Pétur Yngvi Gunn- laugsson. Eins og áður hefur kpm- ið fram er Gunnar Smári Egilsson fulltrúi útgefenda, Pétur Gunnars- son fréttastjóri og Einar Karl Haraldsson ritstjóri. Páll Pétursson lagði fram sam- bærilegt frumvarp á undan mér en hann taldi að ráðherra hefði gefið rangar upplýsingar. Síðar gerði hann það sjálfur þegar hann gaf rangar upplýs- ingar um húsnæð- ismál. Ég fór með það mál til Ríkis- endurskoðunar, sem ég tel að hafi staðfest að Páll hafi gefið rangar upplýsingar, en það er kveikjan að því að ég lagði þetta frumvarp fram,“ sagði Jó- hanna Sigurðardóttir alþingismað- ur, en hún hefur lagt fram frum- varp um ráðherraábyrgð. Jóhanna nefnir fleiri dæmi um rangar upp- lýsingar ráðherra, til að mynda hafi Finnur Ingólfsson gefið þing- inu rangar upplýsingar um kostn- að ríkisbankanna vegna laxveiði. Jóhanna vill að gerist ráðherra sekur um að gefa rangar upplýs- ingar verði máli hans vísað til Landsdóms, sem geti vikið ráð- herra frá störfum sé brot hans það alvarlegt. Hún vill í raun gera stjórnarskrárákvæðið um Lands- dóm virkt en hann hefur aldrei verið kvaddur saman. „Ráðherrar eiga til með að skýla sér bakvið upplýsingalög, en við teljum þau ekki eiga við um þingið ■ - þar sem við eigum stjórnarskrár- bundinn rétt á að fá upplýsingar.“ Slök staða Samfylkingárinnar i skoðanakönnunum er flokks- mönnum hennar mikið áhyggju- efni. Ekki eru allir á einu máli hverju er um að kenrip.-Meðal þess sem nefnt hefur verið, í sam- tölum Fréttablaðsins við flokks- menn Samfylkingarinnar, er að þingflokkurinn sé ekki nógri virk- ur - ekki nógu áberandi - ekki nógu samstilltur. Einn flokks- manna orðaði það svo að í fáum málum komi flokkurinn fram sem órofa heild. Þá hafa viðmælend- urnir nefnt nokkra þingmenn sem hafa lítið sem ekkert haft sig frammi. Spennandi tímar eru sagðir framundan, þar sem fram- boð til sveitar- stjórna eru að komast á dagskrá um allt land. Þar sem Samfylkingin var ekki til við síðustu sveitar- stjórnarkosningar býður hún framm í fyrsta sinn við næstu kosningar og því er nánast öll vinna varðandi framboðsmál óunnin og óviss. Þau sjónarmið sem finna má innan flokksins endurspeglast nokkuð í því að nú er enn uppi vangaveltur um nýtt nafn á flokkinn og hér í blaðinu segir Guðmundur Odds- son, varabæjarfulltrúi flokksins í Kópavogi, nafn Samfylkingarinnar vera óbermi. Hvað sem verður er ljóst að Samfylkingarfólk á ærið starf fyrir höndum. Það verður spennandi að fylgjast með hvernig þeim mun ganga. Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar Lausar kennarastöður 2001-2002 Frá og með næsta skólaári eru lausar kennarastöður við eftir- talda grunnskóla í Hafnarfirði: Lækjarskóli (s. 555 0585) Almenn kennsla, tónmennt, handmennt Öldutúnsskóli (s. 555 1546) Almenn kennsla á yngra stigi, smíðar, stærðfræði á unglingastigi Víðistaðaskóli (s. 555 2912) Almenn kennsla, sérkennsla, tónmennt, enska, nátt- úrufræði Setbergsskóli (s. 565 1011) Almenn kennsla á yngsta stigi, danska, samfélags- fræði á unglingastigi, íþróttir Ath. Staða námsráð- gjafa, 100 % staða Hvaleyrarskóli (s. 565 0200) Almenn kennsla, sérkennsla Allar upplýsingar um störfin gefa skólastjórar viðkomandi skóla. Umsóknarfrestur ertil 6. maí. Umsóknareyðublöð fást á Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar, Strandgötu 31 en ein- nig er hægt að sækja um rafrænt undir hafnarfjordur.is Skólafulltrúinn í Hafnarfirði. Gleðilegt sumar vm BÆJARLIND 6 200 KÓPAVOGI SÍMI: 554 6300 e-mail: mira@mira.is www.mira.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.