Fréttablaðið - 12.11.2001, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 12.11.2001, Blaðsíða 1
FATLAÐIR Leitað eftir stuðningi bls 7 MENNING Við viljum franskbrauð bls 18 FÓLK Stressið er minn keppinautur bls 22 , ' Hjálpum Afganistan 907 2003 KEJ HjaiPA8ST4Ef Rauði kross íslands FRETTABLAÐIÐ .. 142. tölublað - 1. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík - sími 515 7500 Mánudagurinn 12. nóvember 2001 MANUDAGUR Fjórða lota hjá sjúkraliðum verkfall Fjóröa þriðja daga lota verkfalls sjúkraliða hófst á mið- nætti. Verkfalið verður sífellt vfð- tækara. Langur sáttafundur var haldinn í gær og virðist sem heldur hafi þokast í samkomulagsátt. Hvað gera bændur nú? bændur í dag rennur út frestur kúabænda til að mótmæla ákvörð- un landbúnaðarráðuneytis og bændasamtakanna um að skerða með afturvirkum hætti beingreiðsl- ur til þeirra sem ekki framleiddu upp í allan kvóta sinn. Nokkrir bændur á Suðurlandi hafa falið lög- manni sínum að sækja um fram- lengingu. FRÉTTASKÝRINC j bls. 6 ► Fjáraukalög: Fjárheimildir á gráu svæðL_ TveðriðTdagT REYKiAVÍK Austlæg átt og dálítil slydda eða snjókoma síðdegis. Hiti 0 til -7 stig. ísafjörður Akureyri Egilsstaðir Vestmannaeyjar O 3-8 VINDUR ÚRKOMA © 1-3 Bjart $ 1-3 Léttskýjað © 1 "3 Léttskýjað Slydda 2001 og þrettán til viðbótar kvikmyndir Fjórtán myndir verða sýndar á kvikmyndahátíð í Reykja- vík í dag. Þekkktust þeirra er 2001: A Space Oddyssey, meistaraverk Stanley Kubricks frá árinu 1968. I KVÖLDIÐ í KVÖLDi Tónlist 18 Bíó 16 Leikhús 18 íþróttir 14 Myndlist 18 Sjónvarp 20 Skemmtanir 18 Útvarp 21 NOKKRAR STAÐREYNDIR UM FRÉTTABLAÐIÐ Hvað les fólk á aldrinum 25 til 49 ára? Meðallestur 25 til 59 ára á virkum dögum samkvæmt könnun PriceWaterhouse- Coopers frá september 2001 70.000 eíntök 78% fóiks I es biaðið FJÖLMIÐLAKÖNNUN PRICEWATERHOUSECOOPERS VAR FRAMKVÆMD DAGANA 17. TIL 28. SEPTEMBER 2001. Eldhús í sendiráðið kostuðu 20 milljónir Sendiráð Islands í Japan er 1000 fermetrar að stærð en ekki 800 eins og utanríkisráðuneytið hafði áður sagt. Þrjú eldhús eru í húsinu og kostaði búnaður og tæki í þau 20 milljónir króna. íslensk húsgögn og listaverk kostuðu 15 milljónir króna. STIórnsýsla Búnaður og tæki í þrjú eldhús í sendiráð íslands í Tókýó kostaði 20 milljónir króna að því er utanríkisráðuneytið hefur upplýst. Eins og áður hefur verið skýrt frá í Fréttablaðinu voru greiddar 540 milljónir króna fyrir sendi- ráðshúsið en síð- an hefur því verið breytt og það inn- réttað fyrir 230 milljónir. Samtals nemur því kostn- aðurinn 770 millj- ónum króna. Samkvæmt nýjustu upplýs- ingum frá utan- ríkisráðuneytinu er sendiráðshúsið HALLDÓR ÁS- GRfMSSON Utaríkisráðherra opnaði nýtt sendi- ráð (slendinga i Japan fyrir rúmum tveimur vikum. 1000 fermetrar en ekki um 800 fer- metrar eins og ráðuneytið hafði áður greint frá. Húsið var upphaf- lega byggt sem íbúðarhús fyrir tólf árum en var síðan breytt í skrif- stofur. Utanríkisráðuneytið aflaði til- boða frá þremur japönskum verk- takafyrirtækum vegna endurbót- anna. Pétur Ásgeirsson, rekstrar- stjóri ráðuneytisins, segir að öll til- boðin hafi reynst vera óásættan- lega há en að takist hafi að semja við eitt fyrirtækjanna um ríflega fjórðungs lækkun á uppsettu verði. Með þessum samningi náðist verð sem var nálega 10 prósent lægra en tilboð lægstbjóðanda var. Pétur segir að húsið hafi staðið ónotað í tvö ár áður en íslendingar keyptu það og að innréttingar þess og búnaður hafi verið illa farin. Húsið er þrjár hæðir og kjallari. Neðst er íbúð ritara, ásamt geymslum og starfsmannaaðstöðu. A næstu hæð eru sendiráðskrif- stofurnar en þar fyrir ofan er sér- stök móttökuhæð. Á efstu hæðinni er síðan íbúð sendiherrans, en fyrsti sendiherra íslands með að- setur í Japan er Ingimundur Sigfússon, áður sendiherra í Þýskalandi og fyrrverandi for- stjóri Heklu hf. Það er reyndar hægt að komast p-J SENDIRÁD í JAPAN Upphæð í milljónum ... 540 Hönnunarkostnaður ... 15 Verkefnisstjórn og ferðakostnaður 15 Búnaður í sendiráð og ibúðir.... ... 15 Ófyrirséður kostnaður 5 Utanhússviðgerðir ... 15 Pípulagnir og hreinlætistæki ... 25 Raflagnir og öryggiskerfi .. 25 Tæki og búnaður í 3 eldhús ... 20 Gólfefni ... 15 Veggir og loft ... 65 ... 15 Kostnaður samtals 770 ofar í sendiráðinu en á fjórðu hæð: „Þar sem lítil sem engin lóð fylgir húsinu var á þaki hússins sett upp einföld aðstaða til útiveru, enda er þakið flatt og útsýni þaðan gott,“ segir rekstrarstjóri utanríkisráðu- neytisins. Athygli vekur að tæki og búnað- ur í þrjú eldhús í húsinu kostuðu 20 milljónir króna eða nærri sjö millj- ónir króna að meðaltali á hvert eld- húsanna. Eins og áður segir kostuðu end- urbæturnar 230 milljónir króna. Þar af nam hönnunarkostnaður 15 milljónum króna, verkefnisstjórn og ferðakostnaður 15 milljónum. Einnig runnu 15 milljónir króna til kaupa á búnaði en húsgögn voru keypt af Á. Guðmundssyni að loknu útboði á íslandi og listmunir og fleira eftir íslenska hönnuði var fengið á „ýmsum stöðum“. gar@frettabladid,is FÓSTBRÆÐUR UNNU Fóstbræður fengu Edduverðlaun í flokkinum leikið sjónvarpsefni og Jón Gnarr var valinn leikari ársins. Ómar Ragnarsson er fréttamaður ársins og sjónvarpsþáttur ársins þátturinn Mósaík. Logi Bergmann Eiðsson var valinn sjónvarpsmaður ársins. Kristbjörg Kjeld og Gunnar Eyjólfsson fengu sérstök heiðursverðlaun á hátíðinni. Edduverðlaunin: Mávahlátur sigurvegari verðlaunahátíð Edduverðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í þriðja sinn á Broadway í gær- kvöldi. Kvikmyndin Mávahlátur fékk langflest verðlaun og var hún valin besta mynd ársins og framlag íslands til forvals Ósk- arsverðlaunanna. Ágúst Guð- mundsson, leikstóri myndarinnar var valinn leikstjóri ársins og fékk hann jafnframt sérstök handritsverðlaun. Leikkona árs- ins er Margrét Vilhjálmsdóttir, Mávahlátri. Jón Gnarr var valinn leikari ársins fyrir leik sinn í Fóstbræðrum. Kristbjörg Kjeld og Hilmir Snær Guðnason fengu verðlaun fyrir leik í aukahlut- verkum í Mávahlátri. ■ Verkfall sjúkraliða hófst á miðnætti: Dregið úr starfi og deildum lokað kjaradeila Sáttafundi sjúkra- liða og ríkisins lauk á níunda tím- anum án þess að samningar næð- ust. Fjórða þriggja daga verkfall sjúkraliða skall á á miðnætti og nær það til um 1.200 sjúkraliða. Þórir Einarsson, ríkissátta- semjari hefur boðað deiluaðila til nýs sáttafundar klukkan 16 í dag og væntir þess að fram til þess tíma móti þeir nánar afstöðu sína til ákveðinna ágreiningsefna, eins og segir í tilkynningu sáttasemj- ara. Anna Stefánsdóttir, hjúkrunar- forstjóri Landspítalans, segir áhrif verkfallsins nú svipuð og í lotunni fyrir tveimur vikum. Búið er að ræða við sjúkraliða um und- anþágur til vinnu og eru þær álík- ar þeim sem veittar voru síðast. „Við þurfum að minnka við okkur starfsemina, loka deildum og bregðast við með svipuðum hætti og fyrir tveim vikum,“ segir Anna. Loka þarf átta deildum sem hefur áhrif á nánast hvert einasta svið spítalans. „Þetta hefur víð- tækari áhrif heldur en tvö fyrstu verkföllin." Hjá Félagsþjónustu Reykjavík- urborgar starfa 50 sjúkraliðar og nær verkfallið til 35 þeirra. Þeir starfa við ummönnun aldraða og í heimahjúkrun. Anna segir langvarandi áhrif verkfallanna þau, að margir sjúkraliðar hafa sagt upp störfum. „Við höfum ekki getað verið með fulla starfsemi vegna þess að margir sjúkraliðar hafa hætt hjá okkur.“ ■ | ÞETTA HELST | Engir samningar gilda um krossbandaaðgerðir milli lækna og Trygingastofnunar og þurfa sjúklingar að greiða 350.000 kr. kostnað af fullu. bls. 12. Við vitum ekkert um neinn milt- isbrand,“ sagði Osama bin Laden og hló. „Bandaríkin munu aldrei ná mér lifandi.“ bls. 13. Tveir kjarnorkuvísindamenn í Pakistan hafa viðurkennt að hafa tvívegis á þessu ári átt fundi með Osama bin Laden. Kjarnorku- bvopnabúr landsins hefur verið flutt á nýja geymslustaði í kjölfar hernaðarins í Áfganistan. bls. 2.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.