Fréttablaðið - 11.02.2002, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 11.02.2002, Blaðsíða 18
18 FRÉTTABLAÐIÐ 11. febrúar 2002 MÁNUDAGUR Á HVAÐ ERTU AÐ HLUSTA? Listasafn Sigurjóns: Islensk tónskáld í öndvegi Sígilt íslenskt rapp „Ég var að rifja upp Central Magnetizm með Subterranian. Þetta er sígild plata, frábætí' Benjamín Sigurgeirsson eðlisfræðinemi tónlist Tónlistardeild Listahá- skóla íslands heldur tónleika í Listasafni Sigurjóns í kvöld. Tónleikarnir eru liðir í Myrkum músíkdögum sem hafa frá upp- hafi haft íslenska tónlist í for- grunni á dagskrá hátíðarinnar. Ovenjulegt er að á nemendatón- leikum skuli eingöngu vera flutt verk eftir íslenska höfunda. Flutt verða verk eftir. Atla Heimi Sveinsson, Áskel Másson, Jónas Tómasson, Karólínu Ei- ríksdóttur, Oliver Kentish og Pál ísólfsson. Flytjendur eru nemendur Tónlistardeildar Listaháskóla ís- lands. Þeir eru: Ragnheiður Bjarnadóttir, Elfa Rún Kristins- dóttir, Ingrid Karlsdóttir, Helga Þóra Björgvinsdóttir, Ingi Garð- ar Erlendsson, Þórunn Elín Pét- ursdóttir, Melkorka Ólafsdóttir og Gyða Valtýsdóttir. Að auki mun Anna Guðný Guðmunds- dóttir leika undir á píanó. Tón- NEMENDUR TÓNLISTARDEILDAR Óvenjulegt er að á nemendatónleikum skuli eingöngu vera leikin verk eftir íslenska höf- unda. Svo mun vera á tónleikunum í kvöld. leikarnir hefjast klukkan 20. Myrkir músíkdagar hafa frá upphafi verið haldnir annað- hvort ár. Nú hefur orðið sú breyting á að þeir eru haldnir á hverju ári og er það m. a. afleið- ing af fjölbreyttu tónlistarlífi á Menningarárinu 2000. ■ Vantar þig (auka) vinnu Víltu vinna á góðum vinnustað, í skemmtilegu starfsumhverfi þar sem góður andi ræður ríkjum? Vegna aukinna verkefna getum við bætt við okkur sölufólki í lengri eða skemmri tíma. Vinnutími frá 9-17 á daginn eða kl.18-22 á kvöldin. Mjög góðir tekjumöguleikar. Markan ehf. Suðurlandsbraut 46 - Sími 588-8600 Fiskfars 1 kg 790 kr kg 2 kg 590 kr kg Fiskibollur kr 850 pr kg Raubmagi kr 99 pr kg 1 « __ Höfðabakka 1 II VOr s. 587 5070 Um hvað snúast stjórnmál? Kynntu þér málið í Stjórnmálaskóla Sjálfstæðisflokksins í Valhöll mánudags-, þriðjudags- og fimmtudagskvöld frá 18. febrúar til 7. mars FYRIRLESTRAR OG UMRÆÐUR, M.A. UM • borgarmálin • fjölmiðla og stjórnmál • flokksstarfið • hlutverk sveitarfélaga • menntun og menningarmál • heilbrigðisþjónustu • áhrifaríkan málflutning • listina að vera leiðtogi • ísland í samkeppni þjóðanna Dagskráin er kynnt á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins, www.xd.is á hnapp Stjórnmálaskólans. Skráning og nánari upplýsingar í síma575 1777/515 1700, einnig á netfangi disa@xd.is Alvöru myndlist í sjálfskipaðri útlegð Hannes Lárusson sýnir um þessar mundir á Kjarvalsstöðum. Hann segir myndlistarheiminn á Islandi skiptast í alvöru myndlist og list- markað. Lífsspursmál fyrir íslenska menningu að um samruna verði. HANNES LÁRUSSON A SÝNINGUNNI SINNI HÚS í HÚS „Listamenn og almenningur þarf gera sér grein fyrir þeim verðmætum sem í húfi eru verði bilið milli grasrótarinnar og listmarkaðarins ekki brúað. Þeir myndlistarmenn sem vissir eru um að komast aldrei í sviðsljósið fara ómeðvitað illa með þau verðmæti sem þeir eru með í höndunum. Almenningur sem ekki er meðvitaður um listina gerir sér ilía grein fyrir þeim verðmætum sem fólgin eru í góðri myndlist og spillingu hugarfars- ins sem felst í þeirri lélegu. myndlist „Það hefur verið haft á orði að húsin á sýningunni gætu nýst sem ágætis hænsnakofar. Fólk á erfitt með að ákveða sig hvort þau séu nytjahlutir eða skúlptúrar," segir myndlistar- maðurinn Hannes Lárusson, en sýning hans Hús í hús stendur nú yfir á Kjarvalsstöðum. Aðspurð- ur hvort listamaðurinn sé með- vitað á gráu svæði segir hann það á vissan hátt nauðsynlegt. „Öll framsækin list á að vera á óskilgreindu svæði og á mörkum nokkurra heima. Ég hef lýst verkum mínum sem sjónrænu leikhúsi og hins vegar hug- myndalegri skynvillu. Verkin á sýningunni gætu verið leikmynd í barnaleikriti og í vissum skiln- ingi experímental skúlptúr." Hannes er kunnur fyrir að hafa starfað í grasrót listaheims- ins. Spurður að því hvort sýning- in á Kjarvalsstöðum sé aðgengi- leg segir hann svo vera, um sé að ræða sjónræna upplifun. „Sem er náttúrulega kjarninn í mynd- listinni. Það skiptir höfuðmáli að fólk nái sambandi við verkin. Sýningin nú er ein fárra sem ég hef látið frá mér sem er alger- lega á opinberum vettvangi.“ „Myndlistin hefur hafnað_ í ákveðinn hugmyndarheim á ís- landi. Alvöru myndlistin hefur einangrast frá þjóðinni og farið í sjálfskipaða útlegð. Tómarúmið hefur verið fyllt með listlíkum (kitch), sem uppfullt er af hér á landi. Myndlistarheimurinn á ís- landi er tvískiptur, annars vegar alvöru myndlist, sem finnst í grasrótarhreyfingunni og hins vegar listmarkaðurinn," segir Hannes. Hann var spurður hvort engar líkur væru á samruna þessara tveggja heima. „Ég held að það sé lífsspursmál fyrir ís: lenska menningu að svo verði. í heild eru íslendingar að glata mjög miklu með því að hafa ekki eðlilegan aðgang að framsæk- inni myndlist. Bretar eru t.a.m. mjög meðvitaðir. Myndlistar- menn þar í landi eru opinberar fígúrur og iðulega í fjölmiðlum. Sem gerir það að verkum að fólk fær innsýn inn í þennan ákveðna heim sem annars er lokaður." Hannes. segir að alvöru myndlistin þurfi að komast í tísku til að nálgast fjöldann. „Þegar fjöldinn fer að skoða myndlistina sem sjálfsagðan hlut sjá þeir hversu aðgengileg hún er í raun og veru. Því betri sem listin er, því aðgengilegri er hún. Menn þurfa að grafa sig úr grasrótargrenunum og hleypa ljósi á myndlistina. Um leið og það gerist myndast samstaða um hvar gæðin liggja. Fólk hættir þá að rugla saman ein- hverju augljóslegu verðmæta- lausu og hinu sem hefur mögu- leika á að lifa.“ kolbrun@frettabladid.is FUNDUR____________________________ 12.30 Brian Wendleman myndlistar- maður frá Svíþjóð flytur í dag fyr- irlestur í LHÍ, Laugarnesi, stofu 24. I fyrirlestrinum fjallar hann um myndlistarmanninn Donald Judd, stofnun hans The Chinati Founda- tion í Texas og verk sem þar eru eftir þekkta myndlistarmenn. LEIKHÚS___________________________ 20.30 Á dagskrá Listaklúbbsins i kvöld verður í Leikhúskjallaranum „Jakúskt-kvöld" I tónum, tali og myndum. TÓNLIST___________________________ 20.00 Tónlistardeild Listaháskóla (slands heldur tónleika í Listasafni Sigurjóns í kvöld á Myrkum músíkdögum. SÝNINGAR__________________________ Sýningin Breiðholtið frá hugmynd til veruleikastendur yfir I Listasafni Reykja- vík - Hafnarhúsi. Þar eru sýndar teikn- ingar og skissur þeirra sem skipulögðu Breiðholtshverfin þrjú ásamt ijósmynd- JVIÁN U DAGURIN N 11. FEBRÚAR um af hverfinu óbyggðu og byggðu. Þá eru á sýningunni, í samtarfi við RÚV, ýmis konar myndefni sem tengist Breið- holtinu ásamt útvarpsupptökum með efni frá uppbyggingartíma hverfisins. Sýningin stendur til 5. maí. Sýningin Landafundir og ragnarök stendur yfir í Þjóðmenningarhúsinu. Sýningin er samstarfsverkefni við Landafundanefnd og fjallar um landa- fundi og siglingar Islendinga á miðöld- um með áherslu á fund Grænlands og Vínlands. MYNDLIST___________________________ Guðmundur Tjörvi Guðmundsson sýn- ir Ijósmyndir I Gallerí Skugga v/Hverfis- götu. Yfirskrift sýningarinnar er Hrafna- þing. Opið er frá kl. 13-17 alla daga nema mánudaga. Sýningin stendur til 24. febrúar. Guðmundur Ingólfsson sýnir úrval Ijós- mynda úr fjórum syrpum sem hann hefur unnið að undanfarna tvo áratugi. Sýningin er í Grófarsal, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15. Opnunartími er 12-17 virka daga og 13-17 um helgar. Sýning- in stendur til. 24. mars. Sýning á verkum eftir Gerlu stendur nú yfir í Þjóðarbókhlöðunni ( sýningaröð- inni Fellingar. Fellingar hóf göngu sína í júní á síðasta ári og er sýning GERLU sú áttunda I röðinni. Fellingar er samstarfs- verkefni Kvennasögusafnsins, Lands- bókasafns (slands - Háskólabókasafns og þrettán starfandi myndlistarkvenna. Opnunartíma Kvennasögusafnsins er milli klukkan 9 og 16 alla virka daga. Sýning Ingu Þóreyjar Jóhannsdóttur, Rögnu Sigurðardóttur og Sigríðar Ólafsdóttur stendur I Listasafni ASl, Ás- mundarsal. Á sýningunni eru málverk og þrívíð verk. Einnig er unnið með (s- lenska útsaumshefð. Listasafn AS( er opið frá kl. 14 til 18 alla daga nema mánudaga. Sýningin stendur til 17. febr- úar. Tilkynningar sendist á netfangið ritstjorn@freJabiadid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.