Heimskringla - 03.08.1921, Blaðsíða 5

Heimskringla - 03.08.1921, Blaðsíða 5
WINNIPEG 3. ÁGÚST 1921 HEIMSKRINGLA 5. BLAÐSÍÐA Þegar þér sendið peninga. Hvert sem peningar þurfa a8 sendast, eru bánka- ávísanir (Bank Draftsq og peninga ávísanir (Money Order) óvií5jafnanlegar fyrir ósekikulheit, spama'S og þœgindi. —— Þarfnist þér aS senda peninga til annara landa, verSur þessi banlu y'Har bezta aðstoÖ. AÍ5 senda peninga upphæð upp til fimtíu dollara innan Canada, eru banka ávísanir einna þægilegastar. Frekari upplýsingar veitir þessi banki. IMFERSAL BANK OF CAFiADA Útibú að GIMLI (341) stj. á Dúki, OddsOnar bónda á Tunguhálsi, Sveinssonar prests í GoSdölutm, Sveinssonar prests á BaSi í Fljótum, og Helga Jóns- dóttir prests Reykjalíns á Ríp í Hegranesi. Hjá foreldrum sínum ólst Þur- íSur upp til fullorSinsára. Þann 11. júlí 1869 giftist hún eftirlifandi manni sínum, Þor- valdi Þorváldssyni. Bjuggu þau fyrst í nokkur ár á Dúki, eSa ofan aS árinu 1874, en þá færSu þau sig aS Reyn í Hegranesi, er þá var í eySi, og bygSi Þorvaldur upp jörSina. Þar bjuggu þau 9 ár. Ár- «S 1883 færSu þau sig aS Ytri- Hofdölum í BlöndúhlíS og bjuggu þar um fjögra ára tíma, eSa þang- aS til þau fluttu alfarin af Islandi til Vesturheims 1887. Er hingaS kom, settust þau aS í ÁrnesbygS í Nýja íslandi, í VíSidalstungu, og þar bjuggu þau í 29 ár. ÁriS 1916 létu þau af búskap og færSu sig norSur aS Riverton-bæ viS Is- lendingafljót, til Sveins sonar síns, áttu þau þar síSan heima, þar til ÞuríSur dó hinn 6. júlí, eins og aS ofan er sagt. Héldu þau heimili sér í húsi, er þeir synir þeirra létu byggja handa þeim. Þau hjón eignuSust 8 börn; mistu þau fjögur heirna á Islandi, er svo hétu: María, Ólafur, María, Helga, er öll dóu í æsku; en fjög- ur fluttust meS þeim hingaS vest- ur: Sveinn, kaupmaSur í River- ton; GuSrún, gift Sigurjóni Jóns- syni í Odda viS Ames; Dr. Þor- bergur í Saskatoonjbæ, prófessor í efnafræSi viS háskóla Saskatche- wan-fylkis, og Þorvaldur, candi- dat í náttúruvísindum, er andaS- ist viS Harvard háskólann fyrir 18 ámm síSan. Fyrir tveimur árum síSan var haldiS hátíSlegt gullbrúSkaup þeirra Þorvaldar og ÞuríSar sál. Samfylgd þeirra hjóna var því 52 ára löng. Er þaS óvanalega lang- ur samvemtími er þeim hlotnaS- ist. Vekur þaS ánægju vina og vandamanna, þó hitt sé enn full- komnari fögnuSur, aS muna, aS ámnum öllum var eytt í heiSar- legu striti, framsýnni dáS og hjálp semi viS þá sem þurftu og til varS náS á samleiSinni. VíSidalstunga er í augum hinna eldri landnema í því ná- grenni orSin nokkurskonar helgar minjar frá þeim tímum, sem höfS- ingjafólk frumibygSarinnar réSi þar húsum (höfSingjar í lund, þrátt fyrir fátæktina og basliS. ViS fráfall ÞuríSar sál. á Nýja Island ábak aS sjá einni af sínum merkustu landnámskonum. Hún var sérlega vel geíin kona, og hinir mörgu mannkostir hennar gerSu gáfurnar notadrjúgar þrátt fyrir mentunarskortinn. Hugsanir hennar voru allar skýrar og henn- ar eigin. Hún var því skemtileg í viSræSum. Ekki var hún dul í skapi, og meS fullri einurS hélt hún skoSun sinni fram viS hvern sem í hlut átti. Hræsni pg fleSu- skap hataSi hún heitu hatri. Hún var föst í lund og batt því óslít- andi trygSir viS mann og mál. Ti-úkona var hún meir en alment gerist nú á dögum og ófús á allar breyfcingar í þeim efnum. En þó ÞuriSur sál. léti oft andann reyka víSa, tafSi þaS aldrei höndina frá dagsverkinu, og mun elju og dugnaSar þeirra hjóna lengi minst Þrátt fyrir hinn takmarkaSa verka hring hennar krýnir nú hennar eig- in dáS og drenglund minningu hennar meS sæmd og heiSri. Landnámskonan hefir lokiS dagsverkinu, og menn finna til þess aS mikiS skarS er enn höggv- iS í hópinn þann sem framtíSin lærir betur og betur aS heiSra. Nágrannakonan er horfin úr húsinu viS alfaraveginn, og gest- risnin og góSfýsin krjúpa viS dyr hins auSa húss og drjúpa höfSi í þögulli sorg. BygSin kennir kulda og tómleika, því einn af þeim yl- geislunum sem vermdi hana, er hættur aS skína á hana. Eiginkonan hefir veriS kölluS burt frá hliS hans, sem hún hafSi trúlega fylgt um meir en hálfrar aldar skeiS, og stufct meS ráSi og dáS í erfiSri lífsbaráttu. Því finst honum nú æriS autt og einmana. legt í heiminum. Væri sízt aS undra þó svipuS tilfinning hertæki huga hans, sem kom Kristjáni til aS kveSa: “Nú er horfið NorS- urland, nú á eg hvergi heima.” MóSirin hefir lagt hina síSustu fórn á altari þeirrar ástar, sem heimurinn þekkir bezta og göf. ugasta, því Ijúfar og viSkvaemar minningar í brjóstum sona og dótt ur. Þau viSurkenna nú meS Matt- híasi Jochumssyni, aS farsælasti skerfurinn, sem lagSur var ti} mentunar þeirra og mennigar, var lagSur af móSurinni í frumlbýlings kofanum — aS “enginn kendi mér eins og þú.” Dagsverkinu er lokiS. Sigurinn í lífsbaráttunni er unninn. Kvöld- iS er komiS. Hvíldin er fgngin. NiSur á leiSiS stafar Ijóma frá stjörnu vonar og trúar. Geislarj hennar brotna í tárinu, sem stend- ur í auga einmana öldungsins viS gröfina. Úr þeitn byggir hann sér brú til himins — brú yfir dauS- ans haf — brú yfir á land lifenda. Þá brú fýsir hann nú aS feta sem fyrst. BlessuS sé minning ÞuríSar Þor bergsdóttur. —A.E.K.— ----------o--------- SPÍTALASJÓÐUR AKUREYRAR. ÁSur auglýst.......... $2029.29 Gimli, Man. G. B. Magnússon.........$ 1.00 S. P. Tergesen ............ 2.00 S. J. Tergesen........... 1.00 F. O. Lyngdol............. 1.00 Freeman Jonasson ......... 1.00 Theodor Pétursson ........ 1.00 Jón. B. Johnson .......... 1.00 S. Th. Kristjánsson..... 1.00 Jakob Sigui geirsson ..... 1.00 Péfcur Magnússon.......... 1.00 Séra SigurSur Olafsson .... 1.00 Eggert Arason ............ 5.00 Miss Eilnora Julius ...... 2.00 W.E.Lund.....................50 Pétur G. Tompson ......... 1.00 H. P.Tergesen ........... 10.00 Winnipeg Beach. Mr. og Mrs. Jon Kernested 2.00 Gísli Gíslason............. .50 Gísli Reykdal.............. .25 Halldor Hjörleifson .........50 Ingim. Einarsson ......... 2.00 J. Einarsson.................50 Bjarni Anderson........... 1.00 Gunnar Helgason. Þess var lauslega getið í 42. tölúblaSi Heimskringlu að Gunnar Helgason bóndi í Swan River bygS hefSi látist á almenna sjúkrahús- inu hér í Winnipeg. Hann hafSi kent krahkleika þess, er leiddi hann til bana, um alllangt skeiS fyrirfarandi, en lítt gefiS sig aS því, eins og svo mörgum elju og dugnaSarmönnum íslenzk- um er títt. En fyrir nokkr- um vikum ágerðist veikin svo, aS hann gat ekki leng- ur rönd viS reist, og fór því aS leita sér lækninga. Kom hann hingaS til bæjarins um miÖjan júní mánuS og ráSfærSi sig viS sérfræSinga, sem komust aS þeirri niSurstöSu, aS hann gengi meS krabbamein í maganum. Hélt hann til hjá systurdóttur sinni, GuSrúnu Helgu Finnsdóttur; aS 906 Banning St., unz hann lagSist inn á sjúkrahúsiS. GerSi Dr. B. J. Brandson á honum holskurS, en þaS var alt um seinan, og andaSist hann þar eftir hálfan þriSja sólarhring, kl. 9 aS kvöldi hins áttunda júlí. LíkiS var flutt til Swan River og jarSaÖ í Birchwood grafreit, hinn 14. s.m. Séra Guttormur Guttorms, son talaSi viS útförina; sömuleíðis enskur prestur C. B. Price, er óskaSi eftir aS taka þátt í athöfninni. Allur þorri Islendinga þar í bygS var þar saman kominn, ásamt fleirum. Gunnar var fæddur hinn 15. ágúst 1859 á Geirólfsstöð- um í SkriSdal í SuSur^Múlasýslu á Islandi. Var hann kominn af einum hinum merkustu og gáfuSustu ættum Austanlands. FaSir hans Helgi Hallgrímsson, greinar og lipurmenni, var heilsuveill lengst æfinnar og dó vart miSaldra. FaSir hans Hallgrímur Ásmundsson hreppstjóri í Stóra-Sandfelli þar í bygS, var atkvæSamaSur og skáld gott á alþýSu vísu, eins og fleiri í þeirri ætt, en hann var bróSir IndriSa, föSur séra Ólafs á KolfreyjustaS, föSur þerrra Páls og Jóns Ólafssona; voru þeir allir skáld, svo sem kunnugt er. MóSir Gunnars en kona Helga Hallgrímssonar, var hin alkunna gáfu og höfSingskona, Margrét SigurSardóttir stórbónda á Mýrum í SkriSdal. Var hún ættfróS meS afbrigSum, og gat rakiS ætt sína alla leiS til Ólafs hins hvíta herkonungs; eru á þeirri leiS nöfn fjölda hinna merkustu Islendinga. Margrét misti mann sinn snemma frá 9 börnum, flestum ungum, eri kom þeim samt öllum vel til manns tilhjálparlaust, og þótti fátítt í þá tíS. Hún dó í hárri elli á GeirólfsstöSum, þar sem hún hafSi búiS allan sinn búskap, — hjá dóttur sinni Berg- þóru og Finni Björnssyni bónda þar. Um hana látna kvaS séra Matth. Jochumsson: "Skalf SkriSdalur, því aS skriSa dundi," bæSi á landnámstíS og viS lát hennar. Lfkir hann henni þar viS nöfnu sína Margréti drotningu Valdemars- dóttur, er sameinaSi Danmörku, Noreg og Svíaríki undir c:na kórónu áriS 1397 (Kalmar-sambandiS svonefnda) kveSur hana aS vísu “minni háttar”, en “samt varstu drotn- ing — margreynd móSir, metorðalaus" — samt varstu drotning, því aS dýrra gervi bar eigi Brynhildur BuÖladótt- ir,” og: “sá eg þig sjötuga, en sýnum varstu mjög miS- aldra í mínum augum. Svo hefir endur Ólöf hin ríka kvatt. konunga, kom mér í huga.” Og bjarkirnar í Hallormsstaða- skógi lætur hann kveSja hana meS þessu stefi: “Örend er eikin AustfirSinga, sofnuS hin svásasta systra vorra.” Öll voru þau GeirólfsstaSasystkin gáfu og fríSleiks fólk og vel aS sér ger. Elztur þeirra er Einar bóndi á Þorbrands- stöSum í VopnafirSi, kvæntur Sigurlaugu Guttormsdóttur prests í StöS í StöSvarfirSi — nú dáin. Næstur Hallgrímur bóndi á Birnufelli í Fellum, kvæntur Björgu Oddsdóttur þar úr sveit — bæSi dáin. Þá er Bergþóra, gift Finni Björnssyni frá FlugustöSum í ÁlftafirSi, búa þau enn á GeirólfsstöSum. Þá Ólöf, gift frænda sínum Helga IndriSasyni í Skógar- gerSi; eru þau bæSi látin. Næstur henni aS aldri var Gunn- ar. Þá kom Helga, gift Birni Jónssyni ritstjóra “FróSa” og “Stefnis" á Akureyri; eru þau og bæSi dáin. Yngstur er Gísli bóndi á EgilstöSum í VopnafirSi, kvæntur Jónínu Benediktsdóttur frá HöfSa í HéraSi. Auk þeirra, er talin eru, dóu í æsku Ragnhildur og SigurSur. — Þegar Gunnar var fulltíSa maSur fór hann norSur í VopnafjörS til Einars bróður síns á ÞortbrandsstöSum, og skömmu síSar, áriS 1887, kvæntist hann SigríSi Jónsdóttur frá BöSvarsdal, systur Jósefs Jónssonar húsalbyggingar- manns í Winnipeg, og þeirra systkina. Bjuggu þau í Krossa- vík og BöSvarsdal, en fluttu alfarin vestur um haf áriS 1893. Settust þau fyrst aS á Baldur í ArgylebygS, en tóku sig upp sex árum síSar og fluttu til Swan River. Var þar þá lítt bygt land, og mun hann og svili hans, Ágúst Vopni, hafa veriS fyrstir Islendingar til aS nema þar land. Aldamóta- áriS (1900) misti hann konu sína, SigríSi, frá sex bömum á unga aldri. Munu kringumstæSurnar þá um nokkuT ár hafa veriS erfiSar á fleiri en eina vísu. Breyttust þær þó óöum til batnaSar, og má fullyrða aS hann hafi verið í góSum efnum, er hann féll frá. Eins og áSur er getiS varS þeim hjónum Gunnari og SigríSi, sex barna auSiS, og eru þau nú öll fulltíSa og mann- vænlegt fólk. Þrír synir, Helgi, SigurSur og Óli eru heima í föSurgarSi, en einn,, Bergþór, til heimilis aS Oak Point hér í fylkinu. Eldri dóttirin Jóna ASalbjörg, er gift Jóni tré- smið Sæmundssyni í Swan River bæ. Yngsta barniS er SigríSur, nú fulltvítug aS aldri. Misti hún móSur sína tæp- lega mánaSargömul og ólst því upp meS föSur frændum sínum þar um slóSir. - ^ 1 Gunnar var tæpur meSalmaSur á hæS, vel vaxinn og hvatur í spori, fremur stuttleitur, jarpur á hár, enniS hátt og augun grá og snör, nefiS lrtiS eitt íbjúgt aS freiman. I æsku þótti hann fríSur sýnum, skynsamur vel og laglega hag- orSur, þótt hann flíkaSi því ei mikiÖ. — GleSi maSur var hann aS eSlisfari og söngmaður meS afbrigSum. Hélt hamt söngrödd sinni svo vel, aS þegar hann var nálægt fimtugu, heyrSi sá, er þetta ritar, hann syngja og minnist varla aS hafa heyrt hreimfegurri né glaÖari rödd í nokkrum lslend- ingi. Hann var fastur í lund, ógjarn á aS láta hlut simn, en tryggur og vinfastur, hjálpfús og trúr stuSningsmaSur allra íslenzkra áhugamála í sínu ibygSarlagi og víSar. —G.J. Mr. &Mrs. J. Hjörleifsson 1.00 Olafur Isfeld .50 Mr.&Mrs.Harry Anderson 2.00 Fairford, Man J.S.Thorarensen 5.00 Stefán Thorarensen 5.00 O.J.Breidfjord 1.00 S.D.B.Stephanson 2.00 Erikdale, Man. O. Hallson 2.00 Ónefndur 2.00 Th. Paulson, Leslie, Sask. 5.00 A. Davidson.Blaine.Wash. 10.00 Exchange 1.30 S. Solvason,Westbourne 1.00 KvenfélagiS “Liljan, Wyn- yard, Sask, Til minning- ar um Mrs. Kristínu Sig- urSardóttir, Grandy .... 25.00 FriSrik Kristjánsson,Wpg 20.00 Jónas Stefánsson, Wpg 5.00 S. Sæmundsson, Marietta l Wash .50 Mrs. Anna Thordarson, Gimli, Man. 50 kr. Mr.&Mrs.G.J.Holm, Mari- etta, Wash., 50 kr. Mr.&Mrs. J. Ásgier J. Lin- dal, Victoria, B.C $1.50 Kvenfélag ÁrdalssafnaSar, Árborg, Man 25 00 Mr. &Mrs. Paul Eyjólfsson Wynyard, Sask 1.00 Lewis Jakobs,Wynyard .... .50 til íslands, og ætlast til, aS nú sé þessari söfnun lokiS. ALB. C. JOHNSON Samtals — $2,182.84 28. júní auglýst aS Eggert Seattle, Wash., gæfi $5.00, ex- öhage 50c, átti að vera Eggert Eggertsson, Fords, Wash.. — Eg geri grein síSar fyrir þeim pening- um sem eg hefi ekki ennþá sent ViS undirritaSir, sem nefndir vorum af klúbbnum Helga Magra til þess aS sjá um þessa peninga- söfnun til spítalans á Akureyri, sendum hér meS til allra, sem styrkt hafa samskotin, okkar inni- legasta hjartans þakklæti fyrir hinn góSa stuSning sem þeir veittu þeim. ViS finnum til þess, aS viS getum ekki þakkaS þeim nógu vel en erum fullvissir um, aS hinir las- burSa sem njóta góSs af söfn- uninni, muni aldrei gleyma hinum góSu til finningum og hjarta- gæzku sem gjafir þeirra bera vott um, og aS þeir muni ætíS minn- ast meS þakklæti og bróðurhug þeirra manna sem fundiS hafa til meS þeim. Líka þökkum viS innilega þeim úti um landiS og annarstaSar, fyr- ir hjálpina, sem þeir léSu okkur meS því aS gangast fyrir söfnun- inni fyrir hönd okkar, og vitum viS fyllilega, aS ef þeirra hjálpar hefSi ekki notiS viS, myndi árang urinn ekki hafa orðið eins ákjósj anlegur, því þeir lögðu fram bæSi vinnu og peninga. Þetta vitum viS aS þeir gerSu meS ánægju, því árangurinn ber þess vott og líka hin góSu bréf, sem fylgdu hverri peningasendingu. MeS beztu þökk Fyrir hönd klúbbsins Helga Magra O. S. THORGEISSON JAKOB KRISTJÁNSSON A. C. JOHNSON OH kvödd, í Wynyard, Sask. 27. júlí 1921. (Lag: Þótt þú langförull legSir) Þú komst huguS aS heiman HingaS vestur um lönd, GleSi-boSin aS bera: Bros frá heimdala strönd. Lista-sól þér ei sígur Sindra geislar á braut, Þú ert gleSinnar gígur Gæfa sorgum og þraut. Ef viS geymum þá gæfu GlöS og minningar-klökk Þá mun útlaginn ynna Ættar-landinu þökk. Fyrir för þína hingaS, Fyrir bros þín og tár. Bundin barns-glöSu minni Björt um komandi ár. Nú er heimförulm heitiS Himinn breiSir sín tjöld Yfir kærleikans kveSjur Koss og handtaka fjöld. Yfir óskuS og vonuS ÆskuJheimdala lönd: VerSur öllum sem unna ÆtíS kærust sú strönd. 4 JAK. JóNSSON Frú Steíanía Guímundsdóttir t I i

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.