Alþýðublaðið - 18.05.1960, Blaðsíða 14

Alþýðublaðið - 18.05.1960, Blaðsíða 14
Um 900 drengja- skátar í Reykjavík NÝLEGA var haldinn aðal- fandur Skátafélags Reykjavík- ur. Starfandi drengjaskátar í Reykjavík eru alls um 900 skát- |ir og ylfingar, sem skiptast í 10 félagsdeildir. Þessar deiidir höfðu samanlagt 2506 fundi. Farnar voru 367 férðir í tjöld og skála félagsins og tekin voru 1.675 próf af ýmsum gráðum, svo af þessari skýrslu má' sjá lað skátarnir hafa starfað vel síðastliðið ár, enda stendur fé- lagið í miklum hlóma núna og er að undirbúa fjáröflun til hús- byggingar. Eins og að venju hjálpuðu skátar við söfnun Vetrarhjálp- ■arinnar, aðstoðuðu við hátíða- höldin 17. júní og tóku þátt í dauðaleitum. ■ Þá fóru skátar á skátamót í Bandaríkjunum og Þýzkalandi' svo og á skátamót, sem haldin voru hér innanlands. Segja upp AKUREYRI, 14. maí. — Ásgeir Valdimarsson, bæjarverkfræð- ingur á Akureyri, hefur sagt lausu starfi sínu frá og með 1. ágúst n. k. að telja. — G. St. Þá héldu skátar hátíðlegan 1. sumardag, með því að fara í skrúðgöngu til kirkju, skátar I fóru í Dómkirkjuna, en ylfingar og ljósálfar fóru í Fríkirkjuna. I Þá gerðu skátar tilraun með að skapa sér skátadag, þar sem þeir gætu sýnt íbæjarbúum hvað þeir hafa gert yfir vetur- inn með því að hafa úti varðeld. Daníel Gíslason, fyrrv. fé- lagsfori'ngi, var gerður að heið- ursfélaga. í stjórn SFR eru: Hörður Jó- hannesson félagsforingi, Guð- mundur Ástráðsson aðst. í'élags- foringi, Óttar Októsson gjald- keri, Eiður Guðnason ritari, Sævar Kristbjörnsson fylkir, Magnús ^Stephensen fylkir, Jón Mýrdal fylki'r, Óskar Pétursson fylkir, Guðmundur Pétursson fylkir. Deildarfóringjar félagsins eru: Einar Logi' Einarsson, Steinn Lárusson, Þórður Adólfsson, Kjartan Reynisson, Gísli Valdi marsson, Aðalsteinn Hallgríms- son, Ingolf Petersen, Björn Sig- urðsson, Páll H. Pálsson, Jón Þorkelsson. Auk þess starfa fyri'r félagið 15 nefndir. Drekinn ÞETTA er ný gerð af sænskri orrustuflugvél, sem nefnist Drekinn. Hún hefur reynzt vel á æfingum að undanförnu. 3 s MMIHMHHUMMMMMMIMV KR vann Framhald af 11. síðu. ert, ef knötturinn komst fram yfir miðju, var það venjulega með langsendingu, sem vörnin hirti næsta auðveldlega, því á eftir knettinum var sjaldnast fyigt. Dómari var Einar Hjartar- son. — EB AB-bækur ÚT eru komnar hjá Al- menna bókafélaginu bækur mánaðarins fyrir apríl og maí. Eru þær Hjá afa og ömmu, eftir Þórleif Bjarnason, og Frúin í Litlagerði eftir hollenzka skáld konu, Maria Dermout. Hefur Andrés Björnsson þýtt þá bók. Hjá afa og ömmu er sjötta bók Þórleifs Bjarnasonar. Þessi nýja bók er bernskuminningar höfundar frá Hælavík í Sléttu- hreppi á Hornströndum, en þar ólst hann upp hjá afa sínum og ömmu, Guðna Kjartanssyni og Hjálmfríði ísleifsdóttur. MARÍA Þ. JÓNSDÓTTIR, 'húsfreyja, Stóru-Reykjum, verður jarðsungin frá Hraungerð iskirkju laugard. 21. maí kl. 2 e. h. Bílferð verður frá B. S. í. <kl. 11 f. h, á laugarlag, Æski- legt ler, að þeir, sem vildu nota ferðina, láti vita í síma 17193 eða 10816 fyrir fimmtudagskvöld. Gísli Jónsson og börn. Maria Dermout (frb. Dermát) höfundur Frúarinnar í Litla- garði, er roskin kona, sem ól aldur sinn fram yfir sextugt austur á Indlandseyjum. Hún hóf ritstörf 63 ára að aldri. Frú- in í Litlagarði kom fyrst út 955, og var höfundur hennar þá 67 ára. Hefur sagan síðan komið út fjórum sinnum í Hol- landi og auk þess verið þýdd á fjölmörg önnur mál. Nú ný- lega hefur sagan verið kvik- mynduð. 18. maf 1960 — Alþýðúblaðið miðvikudagur Slysavarðstofan er opin allan sólarhringinn. Læknavörður fyrir vitjanir er á sama stað kl. 18—8. Sími 15030. o----------------------o Gengin. Kaupgengi. 1 sterlingspund .... 106,65 1 Bandaríkjadollar .. 38,00 1 Kanadadollar ______ 39,93 100 danskar kr......551,40 100norskar kr. .... 532,80 100 sænskar kr...... 734,70 100 vestur-þýzk mörk 911,25 o-------------------------o m 1 Flugfélag íslands h.f.: Millilandaflug: Gullfaxi fer til Glasgow og K- mh. kl. 08.00 í fyrramálið. ■— Jnnianlandsfl.: í dag er áætl- ..................... að að fljúga til Akureyrar (2 •<S5iíííi:::«* ferðir), Hellu, Húsavíkur, ísa rðar, Siglufjarðar og Vest- nnaeyja (2 ferðir). — Á rgun er áætlað að fljúga til ureyrar (3 ferðir), Egils- ða, ísafjarðar, Kópaskers, ;reksfjarðar, Vestmanna- ar. Loftleiðir h.f.: Snorri Sturluson er vænt- anlegur annað kvöld frá New York. Fer til Amsterdam og Luxemburg eftir skamma viðdvöl. Leifur Eiríksson er væntanlegur kl. 23.00 frá Stafangri. Fer til New York kl. 00.30 VEGNA þess, hve kettir hafa undanfarin vor drepið mik- ið af ungum viiltra fugla, eru kattareigendur einlæg- lega beðnir um að loka ketti sina inni að næturlagi á tímabilinu frá 1. maí til 1. júlí. Samb. Dýraverndunarfél. íslands. Bæjarbókasafn Reykjavíkur. Sími 1-23-08. Aðalsafnið, Þingholtsstræti 29 A. Útláns- deild: Opið alla virka daga kl. 14—22, nema laugardaga kl. 13—16. Lestrarsalur fyrir fullorðna: Opið alla virka daga kl. 10—12 og 13—22, nema laugardaga kl. 10—12 og 13—16. — Útibúið Hólm- garði 34: Útlánsdeild fyrir fullorðna: Opið mánudaga kl. 17—21, aðra virka daga, nema laugardaga, kl. 17—19. Lesstofa og útlánsdeild fyrir börn: Opið alla virka daga nema laugardaga kl. 17—19. — Útibúið, Hofsyallagötu 16: Útlánsdeild fyrir börn og full orðna: Opið alla virka daga, nema laugardaga, kl. 17.30—■ 19.30. Útibúið Efstasundi 26: Útlánsdeild fyrir börn og full orðna: Opið mánudaga, mið- vikudaga og föstudaga kl. 17 Skipaútgerð ríkisins: Hekla er í Rvk. — Esja kom til Rvk í gær að austan úr hringferð. —■ Herðubreið fer frá Rvk á morgun vestur um land í hringferð. Skjaldbreið kom til Rvk í gær að vestan frá Akureyri. Þyrill er í Rvk. Herjólfur fer frá Rvk kl. 21 í kvöld til Vestmannaeyja. Listamannaklúbburinn í bað- stofu Naustsins er opinn í kvöld Að síendurteknu tilefni eru það einíæg tilmæli til allra þeirra, sem komast í færi við hvalvöður, að reka þær ekki á land, nema þeir ör- ugglega viti, að í landi séu traust lagvopn til deyðing- ar hvölunum og tæki og að- stæður til þess að nýta hval afla. Samband Dýravernd- unarfélaga íslands. -o- Vinningar í happdrætti á baz- ar Styrktarfélags vangef- inna: 1342, 1217, 2047, 2400 712, 2092, 543, 1187, 857, 1380, 1307, 2306, 1104, 2146, 1139, 929, 850, 2304, 2355, 876. — Vinninganna má vitja á skrifstofu félags- ins að Skólavörðustíg 18 — frá klukkan 13—18. Frá Húsmæðrafélagi Rvíkur. Síðasta saumanámskeiðið hefst mánudaginn 23. maí kl. 8 í Borgartúni 7. Upplýs ingar í síma: 11810 og 15230 Skipadeild S.Í.S.: Hvasafell fór í gær frá Lyse kil til Gevlé, Kotka og Vents- pils. Arnarfell fór í gær frá Kmh. til Riga, Ventspils, Gdynia ,Rostock og Hull. Jök ulfell fór í gær frá Dalvík til ísafjarðar. Dísarfell fer í dag frá Rotterdam til Austfjarðar. Litlafell er í olíuflutningum í Faxaflöa. Helgafell er á Sauðárkróki. Hamrafell fór 13. þ. m. frá Rvk til Batum. Miðvikudagur 18. maí: 20.30 Erindi: — Lönd fortíðar og framtíðar; II. er- indi: Ættlönd Arí anna (Rannveig Tómasdóttir). —> 21.00 Einsöngur: Nan Merriman syngur frönsk lög. 21.30 „Ekið fyrir stapann". 22.10 Leikhúspistill. —■ 22.30 „Um sumar kvöld“: Létt lög (plötur). —■ 23.00 Dagskrárlok. Verndið dýr gegn meiðslum og dauða með því að hirða vel um girð ingar og skilja eigi vírspotta eða vírflækjur eftir á víða- vangi. — Samband Dýra- verndunarfélags íslands. LAUSN Á HEILABRJÓT: Hann reisti vegavísinn upp og lét einn arminn snúa inn á þann veg, er hann kom frá. Það átti auðvitað að vera sá, sem á stóð: Y- bakki.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.