Lögberg - 24.07.1941, Blaðsíða 1

Lögberg - 24.07.1941, Blaðsíða 1
PHONE 86 311 Seven Lines ***** CQt- ^ ers u' a ^ Servioe and Satisfaction ftir aQ' PHONE 86 311 Seven Lines *“S s»‘5s5S>* Cot For Better Dry Cleaning and Laundry MRS. G. F. JÖNASSON Pjallkona íslendingadagsins á Gtmli þ. 4. ágúst næstkomandi . . KATHRYN ARASON America á Islendingadegin- I*1*1 á Gimli þann 4. ágúst næst- k°mandi. Frá stríðinu milli Þjóðverja og Rússa Þótt stríðsfréttirnar frá Ber- lín og Moskva séu næsta mis- munandi, þá verður þó ekki um vilst, að Þjóðverjum sækist inn- rásin treglegla, og hefir þegar orðið þeim næsta kostnaðarsöm; hafa þeir nú sótt á i meira en mánuð, án þess að til verulegra úrslita hafi komið, þrátt fyrir það, þó ekki sé horft í manns- lífin; hvort þeir hafi Smolensk á valdi eður eigi, er enn ekki með fullu vitað; en vegna þess hve mikil járnbrautamiðstöð sú borg er, hlýtur hún að teljast mikilvæg fyrir hvorn hernaðar- aðilanna sem er, því þaðan er beinust braut og skemst til Moskva; nýjustu fregnir stað- hæfa, að viðnámsþróttur Rússa á hinum þremur megin vígstöðv- um, hafi mjög færst í auka síð- ustu daga, og klofið djúp skörð í hinar þýzku innrásarfylkingar. Josef Stalin hefir persónulega tekið að sér alla yfirstjórn rúss- neska hersins. Hert alvarlega á sókn ^ endingadaginn á Gimli þann úgúst næstkomandi. ^firlaríkin veita Bretum stórlán , . ra Washington er símað á )r*Öjudaginn, að Bandaríkja- tjóm hafi 14 retu ákveðið að veita ni nú þegar $425,000,000 til vörukaupa. Brezki loftflotinn veittist svo þunglega að þýzku iðnaðarborg- unum Frankfurt og Mannheim á þriðjudaginn, að slíkt er tálið magnaðasta árásin, er Bretar hafi fram að þessu gert. Stað- hæfa fregnir frá London, að tjón á hergagnaverksmiðjum hafi orðið gífurlegt; jafnframt þessu sættu borgirnar Dunkirk, Rotter- dam og Ostend, ítrekuðum loftá- rásum. Nýr upplýsingaráðherra Mr. Duff Gooper, sem veitl hefir forustu upplýsingaráðu- neytinu brezka, er farinn frá því embætti, og hefir fengið nýja stöðu á Indlamdi. Eftirmaður hans verður Mr. Brendan Bracken, einkaritari Churchill forsætisráðherra; e‘r hann nafn- kunnur blaðamaður og vinsæll mjög af alþýðu manna. Það er vandaverk, og ekki ávalt vinsælt, að vera upplýsingaráðherra á stríðstímum, og fékk Mr. Cooper oft sína vöru selda á þeim vett- vangi. LÖGBERG, FIMTUDAGINN 24. JÚLl, 1941 NÚMER 30 DORIS RLONDAL Miss Canada á fslendingadegin- um á Gimli þann 4. ágúst næst- komandi. Róstusamt í Noregi ■a Þau tíðindi bárust út um heim á mánuidagskveldið var, að upp- reisn hafi komið upp í þýzka setuliðinu í Bergen er orsakað hafi innbyrðis manndráp; fylg- ir það sögu, að nokkrir þýzkir herforingjar hafi fallið í viður- eign þessari, og lík þeirra graf- in verið að næturlagi með það fyrir augum, að atburðurinn vekti sem minsta athygli; þó er mælt, að fregn þessi hafi læzt sig eins og eldur í sinu um þveran og endilangan Noreg. Kosinn í bœjarráð Við auka kosningu til bæjar- stjórnar i Winnipeg, sem fram fór i 3. kjördeild á föstudaginn þann 18. þ. m., fóru leikar þann- ig, að M. J. Forkin, fyrrum bæj- arráðsmaður, var kosinn með allmiklu afli atkvæða umfram þrjá keppinauta sína. Mr. Forkin taldist um eit skeið til flokks Kommúnista, en bauð sig fram að þessu sinni utanflokka. Sæti þetta losnaði i bæjarstjórn, er Mr. Penner, fulltrúi kommún- ista, misti réttindi sín, er kommúnistaflokkurinn var levst- ur upp eftir að núverandi styrj- öld braust út. Þingrof í British Columbia Forsætisráðherra British Col- umbia fylkis, Mr. Pattullo, hefir lýst yfir því, að hann hafi á- kveðið að rjúfa þing, og að nýj- ar kosningar fari fram í næst- komandi októbermán. Flokka- skifting í fylkisþinginu var á þessa leið: Liberalar, 31; Kon- servatívar, 8; C.C.F., 7. 141 verkamannaflokks taldist 1, og 1 þingmaður tjáðist utanflokka. Þetta verður í þriðja skiftið sem Mr. Pattullo gengur til kosninga sem foringi Liberalflokksins i Columbia, og mun honum enn mega teljast sigur vís. MRS. H. S. ERLENDSON Fjallkona fslendingadagsins á Hnausum þ. 2. ágúst næstk. Stórmannleg gjöf — Sigurður Jónasson lögfræðingur gefur stjórn Islands höfuðbólið Bessa- staði fyrir ríkisstjórabústað Frú Gerður Steinþórsson, sem um þessar mundir dvelur hér í borginni ásamt manni sínum, Eggert Steinþórssyni, lækni, lét Lögbergi vinsamlegast í té þá merku frétt, sem hér um ræðir; en fregnin barst henni bréflega frá foreldrum sínum, þeim Jónasi alþingismanni Jónssyni og frú hans. Bessastaðir eru frægt höfuð- ból í þjóðmenningarsögu íslands, sem vafalaust á eftir að varpa ljóma á nafn þjóðarinnar í framtiðinni; þennaa fagra og sérkennilega stað hefir nú Sig- urður Jónasson, lögfræðingur, gefið stj-órn fslands fyrir rikis- stjóra eða forseta-bústað; hefir hann látið gera miklar umbætur á staðnum, og fær rikisstjórn- inni hann til umráða í góðu ásig- komulagi. Talið er víst, að fyrsti rikisstjóri íslands, hr. Sveinn Björnsson, setjist að á Bessastöðum áður en langt um líður. Sigurður Jónasson, lögfræð- ingur, hefir tvisvar komið til Winnipeg, og eignast hér margt vina; hann er athafnainaður mikilL og stórtækur vel. Mun það meðal annars lengi í minn- um haf, er hann endurheimti Geysi í Haukadal fyrir Ísland, án tillits til kostnaðar; en þessi heimsfrægi goshver hafði sem vitað er, verið seldur erlendum mönnum fyrir þrjátíu silfur- peninga, eða eitthvað því um líkt. Frá Islandi Tveir menn drukna í Kolkuósi. Síðastliðinn þriðjudag vildi það slys til við Kolkuós í Húna- vatnssýslu, að tveir rnenn drukn- uðu, er kláfferja, sem þeir voru i, féll i ána. Þeir, sem druknuðu hétu Hall- dór Bjarnason á Melstað og Jón Jóhannesson á Kolkuósi. Menn voru þarna nálægt og tókst þeim að ná mönnunum upp úr ánni, en þá voru þeir báðir meðvitundarlausir. Lifg- unartilraunir voru gerðar á þeim og kom læknirinn frá Sauðár- krók og gerði lilgunartilraunir, en þær reyndust árangurslausar. —(Mhls. 26. apríl). * * * Rikistjórnin mótmælir flugvallargerðinni * í sambandi við umræður í Nd. Alþingis s.l. miðvikudag, um breytingu á loftferðalögunum, beindi Jóhann G. Möller fyrir- spurn til rikisstjórnarinnar um það, hvaða afstöðu hún hefði tekið til flugvallargerðar Breta og byggingar hermannaskála hér í Reykjavik. Ennfremur, hvort nokkuð væri hæft í því, að hægt hefði verið að koma í veg fyrir, að flugvöllur- inn yrði bygður á þessum stað. Kvað þingmaðurinn marga bæj- arbúa fýsa að vita, hver afskifti ríkisstjórnarinnar hefðu verið af þessum málum. Ólafur Thors atvinnumálaráð- herra varð fyrir svörum af hálfu stjórnarinnar. Lýsti hann því yfir, að ríkis- stjómin hefði á sínum tima harðlega mótmælt flugvallargerð- inni á þessum stað við hrezka setuliðið. Ennfremur því, að bækistöðvar hermanna yrðu reistar hér innan bæjar. —(Mbls. 26. april). * * * Höfðingleg gjöf til Sambands íslenzkra berklasjúklinga Undanfarin tvö ár hefir Sam- band íslenzkra tberklasjúklinga — S.f.B.S. — leitað til þjóðar- innar um fjárframlög til styrkt- ar berklasjúklingum í landinu. Er þá einkum haft í huga að nota það fé, er safnast, til þess að koma upp vinnuheimili fyrir sjúklinga, er burtskrifast af berklahælunum. Hefir þegar safnast álitleg fjárupphæð í þessu skyni, og fer stöðugt vax- andi. Frá Hólmavík hafa borist á 3. þúsund krónur, er þar var safn- að nú nýlega, og úr Stykkis- hólmi hafa borist 800 krónur, svo að hæstu upphæðirnar séu nefndar, er borist hafa nýlega. En rausnarlegasta gjöfin, sem vinnuheimilissjóði hefir borist frá einum manni, er gjöf frá Jóhannesi Reykdal á Setbergi. Lét hann færa sambandinu 500 krónur. Er þetta svo fagurt fordæmi og göfugmannlegt, að S.f.B.S. færir honum hjartanleg- ar og hugheilar þakkir fyrir drengskap hans og rausnarskap. Fyrir hönd S.í.B.S. Miðstjórnin. —(Mbl. 2. mai). * * * Morgunblaðið frá 27. marz get- ur nýrrar bókar um spíritisma í þýðingu eftir séra Jón Auðuns; STEFANIA SIGURÐSON Miss Canada á íslendingadegin- um á Hnausum þann 2. ágúst næstkomandi. TIíOR TIIORS aðalræðismaður fslands í Banda- rikjimum, er mælir fyrir minni íslands á íslendingadeginum á Gimli þann 4. ágúst næstk. bók þessi er eftir nafnkendan, franskan rithöfund, Leon Davis að nafni; bókin nefnist “í þjón- ustu æðri máttarvalda,” og hefir þýdd verið á fjölda tungumála, og nú seinast á íslenzku.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.