Lögberg - 28.08.1947, Blaðsíða 4

Lögberg - 28.08.1947, Blaðsíða 4
4 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 28. ÁGÚST, 1947 / --------logbers--------------------- GtafiQ út hvern flmtudag af THE COLUMBIA PRESS, LIMITED 695 Sargent Ave., Winnipeg, Maniitoba Utanáskrift ritstjórans: EDITOR LÖGBERG IÍ5 Sarg-ent Ave., Winnipeg, Man. Rttstjóri: EINAR P. JÓNSSON Verð $3.00 um árið—Borgist fyrirfram The “Lögberg” is printed and pubiished by The Columbia Press, Limited, 695 Sargent Avenue, Winnlpeg, Manitoba, Canada. Authorized as-S-.cond Class Maii, Post Office Dept., Ottawa. PHONE J1 804 Alvarleg vandamál Þær eru margar vanrækslusyndirn- ar, sem mannkynið sýpur seyðið af nú á dögum, eins og vitaskuld svo oft áð- ur; til einnar slíkra synda verður sú talin, er lýtur að vanrækslu fullnægj- andi varna gegn útbreiðslu kynsjúk- dóma, er árlega ágerast meðal svo að segja allra stétta þjóðfélaganna, þótt æskan sé jafnaðarlegast harðast leik- in í þessum efnum; af nýlegum heil- brigðisskýrslum má það ráða, að fullur helmingur sjúkdómstilfella af áminstri tegund, hefir grafið um sig hjá fólki á aldrinum frá fimtán til tuttugu og fimm ára; langútbreiddastur er þessi vágest ur meðal fólks, sem aldur sinn elur í óvistlegum og óheilnæmum húsakynn- um, og hefir lítinn sem engan aðgang að útiskemtunum eða hollum íþrótta- iðkunum; engin þjóðfélagsstétt er trygg gegn þessum ófagnaði, og eigi er það ótítt, að hvítvoðungar beri skarð- an hlut frá borði vegna þess að mæð- urnar höfðu orðið kynsjúkdómum að bráð. Dr. Edward Clarke, prófessor í Al- mennri heilsufræði við Harvard háskól- ann, hefir fyrir skömmu birt ritgerð um kynsjúkdóma í Bandaríkjunum, þar sem meðal annars er svo komist að orði: * “Að frátöldu algengu kvefi og misl- ingum, eru kynsjúkdómar með þjóðinni öllum öðrum sjúkdómum útbreiddari, og tala slíkra sjúkdómtilfella fer enn árlega í vöxt; er það því sýnt, að í þessu efni sé um eitt hið alvarlegasta vanda- mál að ræða, er þjóðin horfist í augu við, og vafalaust aðrar þjóðir í hliðstæð- um hlutföllum líka.” Flestar siðmenningarþjóðir hafa gert margháttaðar ráðstafanir gegn út- breiðslu kynsjúkdóma með læknavísind in í fararbroddi, og þangað verður vita- skuld megin úrbötina að sækja gegn þessu háskalegu átumeini, er grafið getur ræturnar undan vexti og viðgangi þjóðanna, sé eigi öllum tiltækilegum meðölum beitt til varnar; en þetta mál varðar öll mannfélagssamtök jafnt; þar má enginn skerast úr leik; fólk, sem hendir það slys, að smitast af kynsjúk- dómum má ekki undir neinum kring- umstæðum fara með slíkt í felur, held- ur leita umsvifalaust læknisaðgerða; það er siðferðileg skylda gagnvart þjóð félaginu, að slíkt sé ekki dregið á lang- inn. Að kynsjúkdómum og útbreiðslu þeirra liggja margar rætur; má þar til •telja meingallaða menntun æskunnar, örbirgð, óheilnæman húsakost og skort á samkomustöðum, er veiti æskulýðn- um frjálsmannlegan aðgang að hollum og uppbyggjandi skemtunum. Læknavísindin og samfélagsmenn- ingin hafa við blessunarríkum árangri náð yfirhönd yfir “hvíta dauða” eða brjósttæringunni; að þessu hafa stuðl- að bætt húsakynni, aukið hreinlæti, og bættur og heilnæmur viðurgerningur; stöðug atvinna og bætt lífsskilyrði í sveitum og bæjum, myndi draga til muna úr kynsjúkdómafaraldrinum, og tryggja framtíð æskunnar betur, en fram að þessu hefir lánast. Margir frömuðir á vettvangi heil- brigðismálanna eru þeirrar^ skoðunar, að stofnun til hjónabands snemma á lífsleið, sé næsta mikilvægt atriði í bar- áttunni fyrir útilokun kynsjúkdóma, og sýnist margt mæla með því að svo sé, þótt ríkisvaldið geti ekki átt þar neinn íhlutunarrétt vegna hins persónulega vals einstaklingsins, er enginn getur frá honum tekið. í niðurlagi ritgerðar sinna falla Dr. Clarke þannig orð: “Baráttan fyrir algerðri útrýmingu kynsjúkdðma er margþætt og krefst samstilltra þjóðfélagslegra átaka af hálfu læknavísindanna, uppeldis- og mentamálastofnanna og alls almenn- ings í heild.” Dýrmætasta innstæða sérhvers þjóð félags, er heilbrigð og frjálsmannleg æska, því það er hún, sem á að erfa landið og auka á veg þess með göfugu og dáðríku ævistarfi. Bragi Sigurjónsson: Stígandi 1. hefti, V. árg., Akureyri 1947 Meðal hinna vönduðustu tímarita, sem um þessar mundir eru gefin út á íslandi, ber að telja tímaritið Stígandi, sem Bragi Sigurjónsson Friðjónssonar frá Litlu-Laugum í Reykjadal, er rit- stjóri að; þetta áminsta nefti Stíganda er fjölskrúðugt að efni í bundnu máli og óbundnu; það tekur til gaumgæfi- legrar íhugunar viðhorf þjóðfélagsmál- anna og ræðir þau með alvöru og virðu- leik, en á slíku sýnist vilja verða mis- brestur engu síður á Fróni en svo víða annarsstaðar; menn greinir á um mál, og er það í sjálfu sér ofur eðlilegt, því sínum augum lítur hver á silfrið; en það stendur engan veginn á sama hvernig málflutningi er háttað, hvort hann er siðrænn og bygður á rökum, eða ósiðrænn foksandur öfga og stór- yrða. Að Stíganda standa málvöndunar- menn, er tíðum hafa sýnt í verki ást sína á íslenzkri málsmenningu; þeir Sandsbræður hafa fyrir löngu gert garðinn frægan varðandi ' fagurt og þróttmikið málfar; nú eru það afkom- endur þeirra, sem halda uppi merkinu. Meðal þess bezta er umrætt hefti Stíganda hefir til brunns að bera, má nefna forustugrein ritstjórans, “Inn- lendur vettvangur”, “Frá Heklugosi 1947”, eftir Steindór Steindórsson frá Hlöðum, Kvæði Heiðreks Guðmundsson ar frá Sandi, “Helga í öskustónni”, er lýsir upprisu íslenzku þjóðarinnar unz hún varð “drottning sjálf”, og minning- argrein um Margréti á Lækjamóti, eftir Þorstein Konráðsson fræðaþul; er þar að makleikum lýst merkilegu brautryðj endastarfi aðsópsmikillar konu, er skipaði sér í fylkingarbrjóst um menn- ingarmál héraðs síns, og þá ekki síst söngmenninguna. Minningarorðunum lýkur á þessa leið: “Þarna inni undir heiðinni hvíla bein hennar í skjóli öræfanna. En inni í litlu kirkjunni hljóma enn raddir gamla orgelsins, út yfir leiðið hennar og út í ómælið. í þeim tónum vakir andi hennar yfir sveit og héraði, túlkandi þau kjörorð, er mótuðust af persónuleik hennar: Trúin á guð, trúin á listina, trúin á lífið”. Þetta eru fögur eftirmæli þótt eigi láti þau mikið yfir sér. Snorrahátíðin Þótt nú séu liðnar meir en sjö aldir frá þeim tíma, er stórbóndinn og rit- snillingurinn í Reykholti, Snorri Sturlu- son var uppi, er þó bjartara um nafn hans, en jafnvel nokkru sinni fyr; hann var á landsvísu auðugur valdamaður, en það út af fyrir sig, skapar fáum, ef nokkrum, varanlegan virðingarsess í sögunni; hann lifir með íslenzku þjóð- inni enn þann dag í dag og meðan ís- lenzk tunga er töluð og lesin vegna óviðjafnanlegra ritverka sinna, sann- leiksástar í frásögn og hins glæsilega stílþrótts; hann er eign allra íslendinga jafnt, hvar sem þeir eru í sveit settir, er kannast vilja við uppruna sinn, og enn kunna að meta menningargildi ís- lenzkrar tungu og íslenzka snilligáfu í formi hins skráða máls. Snorri var veginn í Reykholti, og til- verknaðinn framdi tengdasonur hane, Gissur Þorvaldsson, eitt hið mesta mannhrak, sem sagan getur um. Þann 20. júlí s. 1., var afhjúpuð með virðulegri athöfn í Reykholti, sú hin veglega Snorrastytta, er Norðmenn sæmdu ísland með í tilefni af sjö alda afmæli hins mikla ritsnillings, er orpið hefir fegurstum bjarma á Norðurlönd, og þá vitaskuld ekki síst á sína eigin þjóð, er svipmerkist af ritsnild hans um ókomnar aldir. Lögbergi er það ósegjanl. ánægjuefni að geta flutt lesendum sínum nákvæm- ar fregnir af Snorrahátíðinni. ásamt hinni frábærilegu snjöllu og íturhugs- uðu ræðu Jónasar Jónssonar, alþingis- manns. Þættir úr byggingarsögu Melstaðarkirkju Árið 1942, 15. janúar fauk kirkjan á Melstað í suðaustan- hvassviðri. Á fundi sem sóknar nefnd Melstaðarsóknar hélt tveim dögum síðar, ákvað hún, að boða til almenns safnaðar- fundar 22. sama mánaðar. — Á fundi þeim átti að ræða og taka ákvörðun um, hvað gera skyldi, þar sem sóknin var orðin kirkju- laus. í sóknarnefnd áttu þá sæti Björn G. Bergmann bóndi Svarð bæli, form., Jónas Jónasson bóndi, Múla og Björn Jónsson bóndi Litla-Ósi. Var svo hinn almenni safn- aðarfundur haldinn að Ásbyrgi 22. janúar. í umræðum manna á þeim fundi kom ótvírætt í ljós vilji þeirra á byggingu nýrrar kirkju og hafist yrði handa í því efni svo fljótt sem hægt væri. Fundurinn ákvað að kjósa 5 manna nefnd sem vinna skyldi að undirbúningi þessa máls og átti nefndin meðal annars, að leita til byggingafróðra manna um kostnaðaráætlun og fyrir- komulag væntanlegrar kirkju á Melstað. Ennfremur skyldi hún athuga möguleika um efniskaup og fjáröflun. Niðurstöður athugasemdanna skyldi nefndin síðan leggja fyr- ir almennan safnaðarfund. — Kosnir voru í nefndina Friðrik Arnbjarnarson hreppstjóri Stóra Ósi, Jóh. Kr. Briem sóknarprest ur, Jónas Jónasson bóndi, Múla, Björn G. Bergmann bóndi Svarð bæli, Jón Eiríksson bóndi Neðri- Svertingsstöðum. Nefnd þessi lagði fram álit sitt, á almennum safnaðarfundi sem haldinn var að Ásbyrgi 5. marz 1942 ásamt teikningu af kirkju, sem húsameistari ríkis- ins hafði gjört. Taldi húsameist- ari örðugt að gjöra nákvæma kostnaðaráætlun. Fundurinn gjörði ýmsar álykt anir, meðal annars þá, að hefja kirkjubyggingu á næsta sumri ef efni og vinna yrði fáanleg. Kosin var 3 manna byggingar- og fjáröflunarnefnd. Kosningu hlutu, Jóh. Briem, Melstað, Friðrik Arnbjarnarson, Stóra- Ósi og Steinbjörn Jónsson, Syðri- Völlum. Sóknarprestur gat þess í fund arlok að þá þegar hefði sér bor- ist eitt þúsund króna gjöf til end urbyggingar Melstaðarkirkju. Sumarið 1942, var ekki hægt að byrja byggingu, því bæði vantaði vinnu og efni. Það var ekki fyrr en um haustið að hægt var að hefja gröft fyrir grunni kirkjunnar. Verkstjórn hafði á hendi Björn G. Björnsson, Hvammstanga. í maí 1943 var byrjað á bygg- ingu og á því vori var allri stein steypu lokið. Yfirsmiður var Hjörtur Eiríksson Hvammst., hafði hann með sér vinnuflokk sem áður hafði unnið með hon- um að samskonar vinnu. Um haustið setti Hjörtur þak á kirkj una og smíðaði nokkuð innan um hana. Árið 1944 var lítið unnið að byggingu kirkjunnar, vantaði bæði verkamenn og fé til fram- kvæmda, en 1945 var vikur sett ur innan á veggi kirkjunnar og frá þeim gengið að innan. Vann Ragnar Einarsson múrarameist- ari ásamt fleirum það verk. Síðari hluta vetrar og fram á vorið 1946 var smíðað innan um kirkjuna, til þess verks höfðu verið ráðnir Snorri Jóhannes- son Egilsstöðum, yfirsmiður, Jóhannes Árnason Egilsstöðum og Björn G. Björnsson Hvamms tanga. Verki sínu höfðu þeir lokið í júnímánuði. Um sama leyti var kirkjan múrhúðuð að utan og sett skel á hana. Ragnar Einarsson múr- arameistari Hvammstanga, hafði yfirstjóm verksins. Þar með var byggingu allri lokið; aðeins eftir að mála kirkj- una. — Sóknamefnd Melstaðarsóknar boðaði til safnaðarfundar 20. júní, á þeim fundi tók söfnuð- urinn þá ákvörðun að láta full- gera kirkjuna og fól byggingar- nefnd að ráða málara. Nefndin réð Ingþór Sigur- björnsson málara á Selfossi til verksins. Tók hann það að sér í ákvæðisvinnu og lauk verkinu í september og stóð kirkjan að því loknu fullgerð, og hafði kostað alls um 110 þús. kr. Byggingarnefnd og sóknar- nefnd höfðu haft nána samvinnu í byggingarmálum kirkjunnar, sóknarnefnd var skipuð eftir- töldum frá 1944: Birni G. Berg- mann Svarðbæli, Gunnari Jón- assyni Syðri-Reykjum og Stein- birni Jónssyni Syðri-Völlum. Peningagjafir til kirkjubygg- ingarinnar nema samt. 17.637,00 krónum. Auk þess gaf Lúðvík Storr stórkaupmaður í Reykja- vík, allt gler til kirkjunnar. Ennfremur veitti alþingi kr. 15.000,00 til kirkjubyggingarinn ar, fyrst og fremst fyrir atbeina alþingismanns Skúla Guðmunds sonar og fleiri góðra manna. Tekna til að standast kostnað við bygginguna hefir verið afl- að, sumpart með niðurjöfnuðu gjaldi á sóknarfólk og sumpart með ágóða af happdrætti og skemmtisamkomum sem haldn- ar hafa verið. Á kirkjunni hvílir nú 24. þús. króna skuld. Kr. 15 þús. við hinn Almenna kirkjusjóð og kr. 9 þús. sem er víxilskuld við sparisjóð Vestur-Húnvetninga á Hvamms- tanga. Kirkjublaðið, 21. júlí. Minningarathöfn á Betel Virðuleg og mkaleg minningar athöfn fór fram á gamalmenna- heimilinu á Gimli, á laugardag- inn var, 23. þ. m. Þar var þá af- hjúpuð brjóstmynd úr eir af Dr. B. J. Brandsyni, hinum ágæta og ástsæla lækni og forustu- manni sæluheimilis íslenzku gamalmennanna á Gimli í 29 ár. Athöfnin hófst kl. 3 e.h., með þv,í að formaður hennar, séra Sigurður Ólafsson, lét syngja sálminn: “Sú trú sem fjöllin flytur”; flutti bæn og skýrði til- gang atháfnarinnar. Aðalræðuna við þetta tæki- færi flutti Dr. Baldur H. Olson, vinur og samverkamaður Dr. B. J. Brandsonar, og er hún birt í þessu blaði. Að lokinni ræðu Dr. Olson, afhjúpaði Dean Hillsman, dótt- ursonur Dr. B. J. Brandsonar, brjóstmyndina. En á henni stendur: Dr. B. J. Brandson, f. 1. júní 1874. D. 20 júní 1944. — Forseti Betel nefndar 1915— 1944. Hann bar hag hinna öldr- uðu fyrir brjósti. — “Harðfylg- inn var hann hverju réttu máli. Hjartað hans mótað gulli, í kærleiksbáli”. Eftir afhjúpunina var sung- inn sálmurinn: “Gegnum hætt- ur, gegnum neyð”. Þá fluttu stutt ávörp þeir, yf- irréttardómari H. A. Bergmann og forseti kirkjufélagsins séra Egill H. Fáfnis. Sá fyrrnefndi á ensku, en forsetinn á íslenzku. Að lokinni minningarathöfn- inni þágu gestirnir beina, en þeir voru, aul% heimilisfólksins á Betel, ekkja Dr. B. J. Brand- sonar, frú Aðalbjörg. Nákomn- asta skyldulið þeirra, börn og tengdasynir og barnabörn, ásamt nokkrum nákonustu vinum og stjórnnarnefndarmönnum Betel. Póst- og símamálnstjórn kaupir 8 tékkneska strœtisvagna til ferða milli Reykjavíkur og Hafnartjarðar í viðtali er blaðið átti við fulltrúa Alþýðusambandsins í skipulagsnefnd fólksflutninga, Einar Ögmundsson og fulltrúa póst- og símamálastjóra í um- ferðarmálum, Vilhjálm Heiðdal, um kaup á bifreiðum til notk- unnar á leiðinni Reykjavík — Hafnarfjörður, gáfu þeir eftir- farandi upplýsingar: Eftir að hið opinbera hafði tekið að sér rekstur leiðarinnar Reykjavík — Hafnarfjörður og falið póst- og símamálastjórn framkvæmd þess reksturs, var þegar hafinn undirbúningur að öflun nýrra vagna til notkunar á leiðinni, þar sem þeir .vagnar, sem keyptir voru til bráðabirgða notkunar á henni, voru að þllu leyti ófullnægjandi. I þeim til- gangi að leita fyrir um hentug- an vagnakost á leiðina voru fyrr nefndir menn sendir til Tékkó- slóvakíu, Frakklands og Eng- lands í apríl s. 1. Það hefir nú verið ákveðið að kaupa til notkunar á leiðina Reykjavík — Hafnarfjörður, mjög fullkomnar bifreiðir frá Tékkóslóvakíu. Eru það Skoda bifreiðar, sem rúma 61 farþega og eru byggðar fyrir að draga 35 farþega tengivagna. Af þessum bifreiðum er ákveð ið að kaupa 8 aðalvagna og 3 tengivagna og mun sá vagnakost ur nægja á Hafnarfjarðarleið- inni. Ýmiskonar þægindi eru í þess um vögnum, sem hér hafa ekki sést áður, svo sem hillur fyrir smátöskur, sérstaklega góð loft- ræsting o. m. fl. Nokkrir örðugleikar komu í ljós við kaup þessara vagna, svo sem færsla dyra fyrir vinstri handar akstur. Örðugleikar við fyrirkomulag á afgreiðslu vegna þess að bílarnir eru byggðir fyr ir sérstakan afgreiðslumann, en víst er að þá erfiðleika má yfir- stíga. Það er von þeirra, sem að þess um málum vinna, að fyrstu nýju vagnarnir komi til landsins eigi síðar en í október n. k., og að með þeim skapist nýtt viðhorf til mikilla bóta í samgöngum milli bæjanna. Þjóðviljinn, 27. júlí. Olafur konungsefni sendir skeyti Forseta íslands barst í dag eftirfarandi símskeyti frá Olav konungsefni Norðmanna: “Um leið og ég kem heim aft ur til Noregs, leyfi ég mér að senda yður, herra förseti, alúð- ar þakkir mínar fyrir vinsemd yðar og gestrisni. Eg bið yður að færa öllum íslendingum, sem ég kynntist, þakkir*mínar fyrir þeirra miklu alúð og einstöku gestrisni. Guð blessi ísland og íslendinga.” Forseta bárust einnig kveðjur frá norsku ráðherrunum, sem komu fram fyrir hönd Noregs á Snorrahátíðinni, þeiin Kaare Fostervoll og Jens Chr. Hauge. Forsetinn hefir svarað og þakkað kveðjurnar. Reykjavík, 25. júlí 1947. Utanríkisráðuneytið. Þjóðviljinn, 27. júlí. Frúin við farandsalann: — Nei, takk fyrir, við kaup- um aldrei neitt af farandsölum. Hann: — Þá hefi ég einmitt það, sem þér þurfið á að halda. Hér er skilti, sem á stendur: Við viljum enga farandsala. — Um hvað talar kvenfólk, þegar það er eitt saman? — Það sama og karlmenn. — Að þið skuluð ekki skamm- ast ykkar. i

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.