Kirkjublaðið - 01.01.1893, Blaðsíða 15
15
En það er ííeira en Guðs dýrð, sem vjer þurfum að þekkja
og trúa. Svo fögur og dýrðleg sem náttúran er, hvað
stoðar hún oss þó i syndasekt vorri og stríði lífsins og
dauðans? Náttúran er ekki Guð, og vjer eigum hvorki
að trúa á hana nje prjedika hana. Hvar sem bryddir á
slíkri skoðun, þá segjum hiklaust: Burt með slíka skoðun!
V. B.
■-------------—
Frá hjeraösfundum 1892.
Hjeraðsfund Mýraprfd., 1. sept., sóttu allir prestarnir (5) og
5 fulltrúar af 12.
Funcl. leyfði orgelkaup í Borgarkirkju og að Alptártungusöfn-
uður taki að sjer kirkjuna.
Fund. áleit æskilegt að fá eittkvei’t aðhald til þess að menn
sæktu betur safnaðaríundi en nú tíðkast og vildi fá lagafrumvarp
í þá átt »að lögð verði við 1 kr. sekt, að sækja ekki löglega boðað-
an safnaðarfund án lögmætra forfalla, og skyldi sektum varið í
söngkostnað«. — Aptur þótti fund. eigi tiltækilegt að gjöra kirkj-
unum að skyldu að balda við kirkjugörðum.
Akveðið var að lialda hjeraðsfund framvegis 12. september, eða
næsta dag virkan.
Aukahjeraðsfund Snæfe 11sn essprfd., 25. apr., sóttu 5 prest-
ar af 6 og 7 fulltrúar af 14.
Fund. »vildi ekki beiðast fleiri textaraða«, en óskaði textaf'relsis
af stól, að undan teknum hátíðum og bænadögum, en taldi eigi
fleiri breytingar nauðsynlegai', en á ávarpinu til guðfeðgina og spurn-
ingum við hjónavígslu (í sömu átt og annarstaðar) og að sleppt
væri orðunum »sannur« og »sannarlegt« við útdeilingu.
Leitað var gjafa til prestaekknasjóðsins.
Rætt var um synodus og samþykkt svr tillaga, »að til hennar
væri ltosinn einn andlegrar stjettar maður úr hverju prófastsdæmi
landsins, og að ferðakostnaður hans yrði að hálfu leyti borgaður
úr landssjóði, en að hálfu af prestum prfd., er kysu hann á hjeraðs-
fundi«.
»Forseti ítrekaði en að nýju þá uppástungu sína, að prestar
hjeldu hver í sínu prestakalli, eins og nú þegar sumir hafa gjörtí
nokkur ár hjer, próf yíir f'ermingarbörnum í viðurvist hjeraðsfund-
armanna eða sóknarnefndar, skarnmt á undan fermingu barnanna«.
Hjeraðsfund Dalaprfd., 4. olct., sóttu 2 prestar af 5 og 2 fnll-
trúar af 10.
Hinir viðstöddu prestar lögðu fram skýrslur um unglingapróf
hjá sjer í Staðarhóls- og Skarðsþingum, höfðu alls verið prófuð 57
hörn. »Fund. áleit æskilegt, að framvegis yrði haldið próf yíir
unglingum í prf'd. í janúar ár hvert, auk vorprófsius í maí«.