Sunnanfari - 01.10.1914, Blaðsíða 1

Sunnanfari - 01.10.1914, Blaðsíða 1
SUNNANFARI XIII, 10 REYKJAVÍK * OKTÓBERMÁN. 1014 Þorsteinn Erlingsson, hið alkunna |)jóðskáld, andaðist í Reykjavík 28. Sept. nú síðast, úr lungnabólgu. Á fyrslu árum Sunnanfara í Höfn birtust mörg þau af kvæðum Þorsteins, er gerðu hann að viður- kcndu þjóðskáldi. — Hlýðir því að minnast lians í þessu blaði, nú sem bann er borfinn frá lifendum inn í þrotlausa þögn dauðans og myrkrið það, sem einginn befir aptur frá komið lil jarðlífs. Þorsteinn er fædd- ur í Stórumörk undir Eyjafjöllum 7. Sept- ember — segirkirkju- bók Dalsþinga, en sjálfur taldi hann sig fæddan 27. Sept., og svo hefir almentverið lalið — 1858. Hann var kominn af bændafólki í Rangárþingi. í eina ættkvísl var Þorsteinn kominn af Niku- lási sýslumanni Magnússyni af kyni Guðbrands biskups. En langamma Þorsleins í föðurælt var Anna María sj'stir síra Páls skálda Jóns- sonar. Helga föðuramma Þorsteins var dóttir Önnu Maríu, og var síra Páll tíður geslur á ferðum sínum bjá þeim hjónum, Páli Arn- bjarnarsyni og Helgu, afa og ömmu Þorsteins. Kvað síra Páll þá opt vísur til Helgu syslur- dótlur sinnar, og meðal annars einu sinni þessar: Valráðs hegri víki nú vængja list rneð sinni heiðarlegri hrings að brú Helgu systur niinni. Er eg forðum auðar gná óðar býtti seitni varslu orðin varla þá víðkunnug í heimi. Nú er skilnings gáfan góð gefin sprundi finu, er eg pyt al' þankasjóð þessa bragar linu. Helga var hagmæll. En fátt er kunnugt af kveðskap hennar. Þó kunna menn enn þessa vísu eptir liana: Pelkeraldið þarna var þrifið undir litinn, örbyrgðin cr alstaðar æíinlega skitin. Þorsteinnskáld var uppalinn i Hliðar- enkakoti í Fljótsblíð bjá Þorsteini Einars- syni, er þar bjó, og liann hét í höfuðið á. Þá var og til heimilis þar Jón söðlasmið- ur Jónsson. Mintist Þorsteinn Erlingsson þeirra beggja jafnan með rækt, enda liafði Jón reynzt bonum vel á ýmsa lund, svo sem fóstri hans. í latínuskólann í Reykjavík kom Þorsteinn 1877 og útskrifaðist þaðan 1883; sigldi hann þá til Hafnar til þess að lesa lögfræði. Af prófi varð þó ekki fyrir honutn í þeirri grein, enda snerist liugur bans svo að ýmsu á Ilafnar- árnm lians, að lilil líkindi voru lil þess, að haon mundi taka embættispróf í neinu bók- legu. En nokkur ár hafði hann þar ofan af fyrir sér með tímakenslu i ýmsu heima hjá sér. Árið 1896 fluttist Þorsteinn til Seyðisfjarðar og gerðist ritstjóri Bjarka. Var liann það í nokkur ár. Því næst sellisl hann að á Bíldu-

x

Sunnanfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.