Lögberg-Heimskringla - 06.06.1968, Blaðsíða 1

Lögberg-Heimskringla - 06.06.1968, Blaðsíða 1
Xögbers-®etmð%rtngla StofnaS 14. Jan. 1888 Stofnað 9. sept. 1886 82. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 6. JÚNÍ 1968 NÚMER 23 Gestir Scandinavian Airlines félagsins Scandinavian Airlines fé- lagið mun hefja flugsamband milli Danmerkur og íslands 11. júní, 1968. I tilefni þess hefir félagið b o ð i ð um 30 gestum frá Canada og Banda- ríkjunum þátttöku í þessari fyrstu ferð og hefir tveim Is- lendingum héðan verið boðið, þeim próf. Haraldi Bessasyni og W. J. Lindal dómara og fer Mrs. Lindal með honum. — Þau fljúga til Chicago á laugardaginn 8. júní og sam- dægurs þaðan til Kaupmanna hafnar. Þaðan verður fyrsta flug félagsins til Reykjavík- ur 11. júní. Þá viku verða svo tvær flugferðir um ísland og ein yfir Reykjavík og um- hverfi 16. júní og verða þá forsætisráðherra og borgar- stjórinn gestir félagsins. íslenzku gestirnir að vest- an munu svo verða á hátíð- inni 17. júní og dvelja á ís- landi til 25 júní og fljúga þá til Kaupmannahaf nar og helztu borga norrænu land- anna og síðan til Chicago 6. júlí og þaðan til Winnipeg. Við óskum þeim góðrar ferð- ar og væntum að þau skemmti sér konunglega. I. J. Skemmtistund á Betel á Gimli Það var margt um mann- inn á Betel heimilinu á Gimli á sunnudaginn enda var dag- urinn yndislega fagur og hressandi; glampandi sólskin, laufin að springa út á trján- um, balarnir að grænka og svalur blær af vatninu. Heim- ilið er ljómandi vel staðsett. Og allir voru líka í sólskins- skapi — heimilisfólkið og gestirnir. Það var gaman að hitta þarna marga gamla og góða vini og skrafa við þá um stund. Ég hitti fólk hátt á níræðisaldri og eldra og er það aðdáanlegt hve það held- ur sér vel andlega og líkam- lega. Á þessu elzta elliheimili ís- lendinga hefir ávalt ríkt andi kærleika og skilnings á því hvernig hlynna skuli að okk- ar eldra fólki sem bezt. Fram- kvæmdanefnd B e t e 1 hafa jafnan átt góðu starfsliði að fagna við þessa stofnun og þá ekki sízt núverandi for- stöðukonu heimilisins, Miss Sigríði Hjartarson, sem er hvers manns hugljúfi. Fjöldi fólks úr bæjum og byggðum umhverfis s ó 11 u þennan mannfagnað og er ánægjulegt að finna hve sterk ítök B e t e 1 heimilin eiga í hugum og hjörtum íslend- inga. Það er þessi almenni á- hugi sem veitt hefir stjórnar- nefndinni styrk til mikilla framkvæmda í þágu hinna öldruðu á undanförnum ár- um. — I. J. Betel Home Foundation Chairman's Report As chairman of the Betel Board I am pleased to bid you welcome to this our an- nual meeting. It is now be- coming our custom to hold our annual meetings alterna- tely at the Gimli and Selkirk homes. I consider this procedure most appropriate, as our dis- cussions a n d deliberations deal with the management and administration of these institutions. Today we meet in Gimli where one senses an atmosphere of peace and con- tentment which has charac- terized this home throughout the years. I am pleased to report a Framhald & bla. 2. Aðalfundur Eimskipafélagsins Aðalfundur Eimskipafélags íslands h. f. var haldinn fyrir helgina. Halli á rekstri félags- ins á árinu 1967 nam rúmum 27 millj. eflir að afskrifaðar höfðu verið af eignum þess rúmlega 32 milljónir. Aðalorsakir þessa m i k 1 a tapreksturs v o r u minnkun vöruflutninga, sem drógust saman um 56 þús. tonn, og hækkun reksturskostnaðar. Þá skaðaðist hagur félagsins af verðstöðvunarlögunum, verk- föllum og gengislækkuninni. Hins vegar telja forráðamenn félagsins, að horfa megi með bjartsýni til framtíðarinnar. Búast megi við miklum flutn- ingum á árinu 1968 og fyrir- hugaðar framkvæmdir félags- ins muni bæta hag þess og skapa viðskiptamönnum þess aukið hagræði. Þá varð félagið fyrir tilfinn- anlegu tjóni af völdum bruna á annarri af tveimur vöru- skemmum þess í Borgartúni í Reykjavík. Skip Eimskipafélagsins eru 12 að tölu, en síðast liðið ár voru 27 skip í förum á vegum félagsins, og fóru þau sam- tals 192 ferðir milli íslands og útlanda. Farþegar með skipunum milli landa v o r u samtals rúm sjö þúsund, eða heldur færri en áður. Hluta- fé nam um 40 millj. og skráð- ir hluthafar voru um 10.800. Á síðasta aðalfundi var sam þykkt að stefna að aukningu hlutafjár um 66,4 millj. kr., þannig að það yrði samtals 100 millj. kr. í júlí 1971. Hinn 1. apríl s. 1. höfðu selzt um 7 millj. af aukningarhlutanum. Eimskipafélagið stefnir að því, að bæta við skipastól sinn 2-3 nýjum vöruflutninga- skipum á næstu 3 árum en selja elztu skipin. Nú þegar hafa verið gerðir samningar um sölu á m.s. GOÐAFOSSI, sem nú er 20 ára. Er söluverð hans 225 þús. dollarar, og mun afhending fara fram í lok júní næstkomandi. Félagið hefur s a m i ð við Hafnarstjórn Reykjavíkur- hafnar um 9.500 fermetra lóð á Austurbakka við höfnina til byggingar á stóru vöru- geymsluhúsi. Ennfremur mun félagið fá stórt athafna- svæði við Sundahöfn. Þá hyggst félagið hefjast handa um að tryggja, að ís- lendingar eigi jafnan traust og vandað farþegaskip í sigl- ingum milli landa. Á aðalfundinum var ákveð- ið að greiða hluthöfum sjö af hundraði í ársarð af bréfum þeirra. Stjórn félagsins var endur- kjörin, en hana skipa: Einar B. Guðmundsson, formaður, Birgir Kjaran, varaformaður, Thor R. Thors ritari, og Pétur Sigurðsson, gjaldkeri. Enn- fremur Halldór H. Jónsson og I n g v a r Vilhjálmsson. Af hálfu Vestur-íslendinga þeir Árni G. Eggertson og Grettir Eggertson og Páll Sæmunds- son, skipaður af ríkisstjórn- ínm. Vísir 27. maí Hægri handar akstur á íslandi hófst á sunnud. 26. maí í nokkrar mínútur stóðu öll vélknúin ökutæki á landinu grafkyrr og aðeins örfá — með sérstaklega fengnar und- anþágur — biðu með vélarnar í gangi. Hægt og hikandi færðu þau sig eitt og eitt yfir á hægri kant og biðu eftir þvi að klukkan yrði 06.00. „... í umboði dómsmálaráðherra lýsi ég því yfir, að nú er hægri umferð á íslandi,“ hljómaði rödd Valgarðs Briem, formanns Framkvæmdanefndar hægri umferðar, til lands- manna allra í gegnum útvarpið nákvæmlega á slaginu sex, og menn settu bifreiðar sínar í gír, juku benzíngjöfina og sigu af stað hægt og gætilega í fyrsta sinn í hægri umferð. „Rétt bara eins og að drekka vatn“, sögðu sumir, eftir að þeir voru búnir að aka fyrstu metrana. „Hvað? Þetta er ekkert!“ sögðu aðrir, og þannig voru viðbrögð manna almennt — ánægjublandin undrun yfir því hve snurðulaust umferðarbreytingin gekk fyrir sig. Vísir 27. maí '68 Graduates Bachelor of Laws Recipient of Bursary Darwin Sigurgeir Sigurgeirs- son B.A., B.S.W., reseived his LL.B. degree at the Univers- ity of British Columbia on May 31, 1968. He will article with Thompson and McCon- nell at White Rock, B.C. Darwin is the son of Sigur- geir and Johanna Sigurgeirs- son of Steveston, B.C. Mrs. Patricia Mae Schwarlz, received her Bachelor of Arts degree, October 1967. She is the daughter of Mr. and Mrs. Arni Thorlacius, A s h e r n , Man. and is presently teach- ing in Red Lake, Ont. Grant V. James Einarson graduated with a Bachelor of Arts degree from the Uni- versity of Winnipeg May 26, 1968. He is the son of Mr. and Mrs. W. Fisher Einarson 115 Crestwood Crescent, Winni- peg, Man. Marlin Keli McNichol receiv- ed a Bachelor of Science honours degree in zoology from the University of Mani- toba, May 1968. He is a reci- pient of a Bursary of $3000.00 from the National Research Council of C a n a d a and a $100.00 Scholarship from the Icelandic Canadian Club in Feb. 1968. He is now study- ing for his Master’s degree. His parents are Lovisa and Archie McNichol, 1281 Valour Road, Winnipeg. Martin Keli is the grandson of Rafnkell Bergson, Winnipeg. Rev. Barry Day B.A., receiv- ed a Bachelor of Divinity degree from the University of Winnipeg, May 26, 1968. He has been a minister at the Timothy Eaton Memorial Church in Toronto for three years. His wife is the former Miss Lilja Eylands.

x

Lögberg-Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.