Alþýðublaðið - 30.05.1962, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 30.05.1962, Blaðsíða 16
tWHWVVWWVWWWWVMWHVWVWMVWW mM»V\MWM%HMMMWWW4MMWWWM Toujours Tlamour FRANSKA herskipið Commandant Bordais kom til Reykjavíkur í gær í kurteisisheimsókn, en mun fara aftur í dag. Að venju, þegar herskip koma í slíkar heim- sóknir, hafa unglingssteipur hópazt að sjóliðun- um, sem kunnað hafa vel að meta kurteisi þeirra og hjálpsemi. Myndin var tekin í gærdag. Þrjár ungiingsstúik- ur eru boðnar velkomnar um borð í Commandant Bordais í Reykjavíkurhöfn. 43. árg. - Miðvikudagur 30. maí 1962 — 123. tbl. GÖÐ SÍLDVEIÐI í FYRRINÓTT: HAFA VEITT 1,3 MILLJÓN TUNNUH MARGIK síldarbátar fengu góðan afía í fyrrinótt. Bátarnir lönduðu á Akranesi, í Reykjavík, í Hafnar- firði og víðar. í fyrrinótt kom Sjö Ólafsvík- urbátar á síld Ólafsvík, 27. maí SJÖ Ólafsvíkurbátar eru nú á síldveiðum. Þeir fá ágæta veiði við Snæfellssaes. Sumir þessara báta hafa verið á síldveiðum í um það bil einn mán- uð. Þeir fyrstu byrjuðu snemma í apríl. Bátarnir koma lítið hingað. Þeir Kanda yfirleitt í Stykkishólmi, Grundarfirði eða í Reykjavík. Trillur og smærri bátar hafa aflað sæmilega í vor. Yfirleitt hafa þeir verið með reytingsafla. — O.Á. Höfrungur II. til Akraness með j 1600, Anna kom í gær með 1600 tunnur, Sigríður AK með 1000 tunnur og Höfrungur með 800 tunnur. Síldin er yfirleitt stór, en (fitumagnið heldur lítið. í gær- kvöldi var teklð að hvessa á mið- unum, og því heldur lélegt veiði- útlit. í skýrslu frá Fiskifélagi íslands um síldveiðamar, sem blaðinu barst í gær, segir að góð síldveiði hafi verið sl. viku, en þá var land- að úr 55 skipum, samtals 95.429 tunnum. Heildarmagnið frá byrj- un vertíðár 'í haust til laugardags- ins 26. maí var 1.357.491 uppmæld tunna. HÆSTU VEIÐISTÖÐVARNAR eru þessarí Vestmannaeyjar 148.865 upjRn. tn. Keflavík 194.982 - — Hafnarfjörður 158.321 — — Reykjavík Akranes 433.462 260.507 Eftirtalin 19 skip, sem nú eru á síldveiðum, hafa aflað 20 þús. tunnur eða meira og er þá mið- að við samanlagðan afla frá byrj- un síldveiðanna í haust. , Bergvík, Keflavík 30.268 uppm. tn., Bjarnarey, Vopnafirði 41.582, Björn Jónsson, Reykjavík, 25.705, Eldborg, Hafnarfirði, 35.639, Gjaf- ar, Vestmannaeyjum, 22.554, Guð- mundur Þórðarson, Reykjavík, 47.617, Halldór Jónsson, Ólafsvík. 29.900,Haraldur, Akranesi, 38.507, Hringver, Vestmannaeyjum, 23.597 Höfrungur, Akranesi, 20.728, Höfr- ungur II., Akranesi 50.504, Ingi- ber Ólafsson, Keflavík, 21.519, Jón Trausti, Raufarhöfn, 39.270, Pétur j Sigurðsson, Reykjavík, 24.167, Sig- j urður, Akranesi, 25.061, Skírnir, i Akranesi, 31.270, Stapafeli, Ólafs-j vik, 20.905, Steinunn, Ólafsvík, i 23.681, Víðir II, Garði, 57.489. ARGRÉT Á LÍNUVEIÐAR VIÐ GRÆNLAND TOGSKIPIÐ Margrét fór sl. laugardag áleiðis til Vestur-Græn- lands, þar sem það verður á línu- veiðum í rúman mánuð. Áætlað cr að skipið verði um 40 daga í ferð- inni, og komi með aflann hiugað til lands; .. Það má segja, að nú séu liðin nær 20 ár, síðan íslenzkt skip fór á línuveiðar við Grænland. Línu- yeiðar hafa raunverulega ekki ver- ið reyndar síðan Björgvin Bjarna- son, útgerðarmaður sendi skip sín þangað fyrir nær tveim tugum ára. Færeyingar og Norðmenn hafa stundað þessar veiðar undanfarin sumur og gengið vel. Margrét ar 250 tonna skip eign Útvers h.f. á Siglufirði, en fram- kvæmdastjóri þess er Kjartan Frið bjarnarson. Áhöfnin á skipinu er 18 manns, allt valið lið, flatnings- menn og beitingamenn. Skipstjóri er Grettir Jósefsson, sem var 1. stýrimaður á togaranum Víking og 1. stýrimaður á Gróttu, sem var á línuveiðum við Grænland fyrir 20 árum. Það er ætlunin að aðeins þessi eina ferð verði farin. og er þetta eins konar tilraunaferð. Eins er. að lítið er að gera fyrir skip eins 1 Margréti á þessum tíma árs áður en síldveiðarnar hefjast, og var því þessi ferð ákveðin. Allur fiskurinn verður unnin í salt um borð. Línuveiðar Norð- Veski með miklum penmgum frá sofandi manni MAÐUR nokkur, sem vinnur vakta vinnu, og var að starfi í fyrrinótt, kom heim til sín í gærmorgun og lagðist til svefns. Hann býr í kjall- araherbergi að Hvassaleiti 16. Með an hann svaf svefni liinna rétt- látu, fór einhver inn í herbergi hans, og stal frá honum veski með 6—7000 krónum í. Nú eru það vinsamleg tilmæli rannsóknarlögreglunnar, að hver sá, sem orðið hefur var við manna ferðir I fyrrnefndu húsi, þ. e. í kjallaranum, gefi sig þegar fram. manna við Grænland hafa gengið mjög vel að undanförnu, og hafa skipin haldið heim drekkhlaðin eftir tiltölulegan skamman tíma. „Eiti Iftil saman- tekt um EÓS ff HELGAFELL hefur nú gefið út bók, sem nefnist „Ein lítil sam- tekt um EÓS“. Er það skrifað pró- fessor Einari Ólafi Sveinssyni til heiðurs og nefnir höfundur sig CADWAR. Höfundur bókarinnar mun vera dr. Ilermann Pálsson. í formála bókarinnar segir m.a.: „Ritkorn það, sem hér birtist á prenti, fannst fyrir fáum misserum í litlendri borg, og var það mjög í þann mund, er vinir og lærisvein- ar prófessors Einars Ól. Sveinsson- ar minntust sextugsafmælis hans.“ í lok formálans segir: „Má kalla rit þetta afmælisgjöf hins óþekkta höfundar til lians, og fylgja því miklar árnaðaróskir frá mér og öðrum vin'Um prófessors Einars. Skal þess og minnzt með þakklát- eru liðin um það bil sextíu misseri um huga námgjarnra manna, að nú síðan prófessor Einar kenndi fyrst stúdentum við Háskóla íslands. En ævi sína alla hefur hann helgað þeim fræðum, sem þjóðinni ern Ijúfust allra vísinda.“ 1. fundur 7. júní SAMKVÆMT þcim upplýsingum, sem Alþýðublaðið aflaði sér í gær- dag, kemur liin nýkjörna borgar- stjórn Reykjavíkur saman í fyrsta sinn á fimmtudaginn 7. júní í fund arsal bæjarstjórnarinnar að Skúla túni 2. Fundir í borgarstjórn eru haldnir fyrsta og þriðja fiinmtudag í hverjum manuði.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.