Austurland


Austurland - 15.05.1920, Blaðsíða 1

Austurland - 15.05.1920, Blaðsíða 1
18. tbl. Seyðisfirði, 15. maf 1920 1. árg. Grímur Thomsen 1820 — 15. maí — 1920 Það er eigi ætlun vor að skrifa nákvæmt um æfi eða skáldskap þessa merka manns og kjarnyrta og frumlega þjóðskálds, heldur aðeins minnast hundrað ára af- mælis hans með nokkrum orð- um. Um Qrím Thomsen og skáld- skap hans mætti sjálfsagt skrifa stórar bækur og merkilegar, en líklega bíður það fyrst um sinn, sem fleira líks eðlis. ------Grímur Thomsen fæddist á Bessastöðum á Álftanesi 15. maí 1820. Faðir Gríms var Þor- grímur, gullsmiður, ráðsmaður á Bessastöðum- Var hann sonur Tómasar, gullsmiðs í Ráðagerði á Álftanesi. Móðir Gríms var Ingi- björg Jónsdóttir prests í Görðum á Akranesi. Þorgrímur var mað- ur all-mikill fyrir sér og að ýmsu engi skapdeildarmaður. Var hann harður nokkuð syni sínum en bar þó í brjósti til hans föður- kærleik mikinn. Hvað sem valdið hefur, þá vildi eigi Þorgrímur láta son sinn vera að námi á Bessa- stöðum, heldur kom honum til Árna siptprófasts Helgasonar. Var Árni maður mjög vel viti borinn, en maður kaldhæðinn og engi yfirborðsmaður. Mun þetta hafa valdið all-miklu um skapferli Gríms, fyrst það, að hann varð eigi fyrir áhrifum hins glaðværa skólalífs á Bessastöðum og síðan hitt, hversu Árni stiptprófastur var lundfastur og lét sér lítt fyrir brjósti brenna smámuni. Útskrif- aðist Grímur frá Árna 1837 og tók síðan að lesa lög við háskól- ann í Kaupmannahöfn. En Grími mun hafa þótt löggjöfin andlegt þurmetí og fundist meiri kjarn- fæða fagurfræði og heimspeki. Lauk hann prófi í þeim greinum 1845, og sama árið hlaut hann doktorsnafnbót fyrir ritgerð all- mikla um stórskáldið Byron. Um þessar mundir vakti hann fyrstur manna eftirtekt Dana á æfintýra- skáldinu H. C. Andersen, og er það all-einkennilegt, að íslending- ar skyldu fyrstir til að meta hann (sbr. Jónas Hallgrímsson: „Látið hann Andra minn vera“)- Hlaut Grímur álit merkra manna og lærðra fyrir lærdóm og vitsmuni. Var honum af konungi veittur ferðastyrkur og fór hann víða um lönd. Árið 1848 varð hann kanse- listi í utanríkisráðinu danska og fulltrúi í verzlunar- og sendiherra- deildinni 1856, og 1859 skrifstofu- stjóri sömu deildar. Gerðist nú vegur hans mikill, sat hann í konungsboðum og hafði all-mikil einkakynni af konungi. Var hon- um trúað fyrir ýmsum ábyrgðar- miklum og vandasömum störfum erlendis í þágu ríkisins. En 1866 fékk hann lausn frá embætti og reisti bú að Bessastöðum 1868 — og bjó hann þar síðan til dauða- dags, 27. nóv. 1896, eða nærfelt 30 ár. Þingmaður var hann Rangæinga frá 1869—1873, Gull- bringu- og Kjósarsýslu frá 1875— 1879 og Borgfirðinga frá 1881 — 1891. Heiðursmerki og titla hlaut hann mörg, varð legationsráð 1860, riddari hannóversku Guelfa- orðunnar 1862, r. af dbr. 1863, kommandör belgisku Leopolds- orðunnar 1863, riddari frakknesku heiðursfylkingarinnar 1864. Kvænt- ur var Grímur Jakobínu Jónsdótt- ur, prests í Kirkjubæ, Þorsteins- sonar. Grímur mun hafa verið maður frekar kaldlyndur og all-einrænn. Er svo sagt, að hann hafi með kaldri og kurteisri hæðni komið út tárum á stásskonum þeim sumum, er heimsóttu hann úr Reykjavík, |já er hann bjó að Bessastöðum. Lítt var hann alþýðlegur, en kunni vel að vera með tignum mönn- um. Hnittinn var hann í orði, og varð lítt orðfall. Munu flestir kannast við söguna um hann og konung, þá er konungur bað hann selja hestinn þann hinn rauða, er Grímur unni mjög og þótti gripur góður. „Eigi vil ég selja vin minn vini mínum", kvað Grímur. „En gefa þá?“ kvað kon- ungur. „Eigi er ég nógu rikur til að gefa konungum“, mælti þá Grímur, og mun konungur fund- ið hafa, að eigi þýddi að fara lengra út í þá sálma. En þessi framkoma Gríms og svör hans minna eigi lítið á hina fornu menn, er sögur vorar segja frá. Um stjórnmálaafskifti Gríms hér á landi er það að segja, að þau urðu af all-mörgum óvinsæl. Þótti hann um of dansklundaður og mikill konungssinni. Var hann andstæður löngum Jóni Sigurðs- syni, forseta. En Grímur hafði með höfðingjum konungsvaldsins lifað blómatíð, var forn í skapi og átti góðan jarðveg fyrir aðals- stolt og fyrirlitningu á smámenn- um, sem hvorki eru hraust and- lega eða líkamlega, og mun hon- um ekkert hafa verið fjær skapi en skrílræði. Ofurmennin (Úber- mensch) var hann, og þeirra sinni í húð og hár, í orðsins þýzku merkingu. Sem skáld hefur Grímur verið þýðingarmestur þjóð vorri. Hann liefur slegið þann streng þjóðsál- arinnar, sem mestan gefur stál- hljóm og geiragný. Hreysti- og víga-andi sögualdarinnar er hvar- vetna vakandi í Ijóðum hans, að baki fosshljóma og fjallstyrks al- þýðumáls. En andi drengskapar, að fornum sið, lýsir þar hverja línu. Og þótt Grímur hafi ort kvæðið „Jesús skrifar í sandinn“ þá hyggjum vér að hann sé vort heiðnasta skáld á seinni öldum; og að líkindum hefði hann kveð- ið Ásum mikið lof, hefði hann verið uppi á þeirra átrúnaðartíma — og heitið á Þór til stórræða. Yrkisefni sín velur Grímur venjulega úr fornum sögum eður sögnum. Einkum eru það ein- kennileg andans eða líkamans stórmenni, sem hann dvelur við í Ijóðum sínum. Eru flest kvæði hans all-stirðkveðin og hljómþung. En oft er stirðleiki Ijóðanna þann- ig, að hann bregður þeim blæ yfir efnið, sem er því enn þá samræmanlegri, en verða mundi, ef stirðleikans nyti eigi við. Má þar til dæmis taka fyrstu vísuna í kvæðinu um Halldór Snorrason: „Aldrei hryggur, aldrei glaður, æðrulaus og jafnhugaðar, stirður var og stríðlundaður Snorrason og fátalaður". Er ekki eitthvað jafnhugað, stirt og stríðlundað við rímið á þess- ari vísu? — En Grímur getur líka farið á kostum í rímlistinni. Má þar nefna hið alkunna kvæði um Jónas Hallgrímsson: „Þú, sem áður foldar fljóð“ o. s. frv. Þar er eins og steinn og stál falli í stuðla og málmhljómur og lækja- Ijóð leiki um strengi hörpunnar. En Grímur velur venjulega þau efni, sem engum silkiglófum þarf um að fara. Þeim hæfa betur föst og ákveðin traustatök, sem reynd- ar má lítt skeika, en Grimur kunni þau tök betur en flestir aðrir, og |?á sjaldan hann fer með þýð efni og viðkvæm, gýs eldur- inn eigi út, svo að orð og efni standi í björu báli, eins og verða vill hjá hinum öru og eldnæmu tilfinningaskáldum. Þá má taka það fram, að Grímur mun hafa haft meiri gáfu til þess að skilja og sýna með ljósum dráttum það, sem bezt einkennir ýmsa menn og atburði, forna og nýja, heldur en að syngja frá sjálfs sín brjósti um undur náttúrunnar og manns- sálarinnar — eður mynda sjálfur söguþráð og persónur. Hin ferlegu kraftakvæði láta Grími bezt allra íslenzkra skálda. Viljum vér þar t. d. benda á kvæðið Glámur, er svo hefst: „Skammdegisnótt er skuggalöng, í skálanum Grettir aleinn vakir, stormurinn leiðan syngur söng, syndir tunglið að skýjabaki, Skella þá högg að skálahurðu skörp og hörð, svo að gegnir furðu“. Og síðar í kvæðinu segir hann: „Moldugar nasir möðkum hnerra, másar ginið því, sem er verra“. „Á Glæsisvölliim" þorum vér að fullyrða að sé eitt hið allra mesta listaverk íslenzkra ljóða. Þar situr Goðmundur kongur með kappa sína og er þar „lítt af setningi slegið“, „í góðsemi veg- ur þar hver annan“ og hnútun- um, sem mola hauskúpurnar, svo að blóðið flýtur milli drykkjar- keranna, fylgja hógvær orð — og feiknstafir svigna i brosi Qoð- mundar konungs. Grímur yrkir ljóð um Kvæða- Kela, sem hvergi á heima og ekk- ert kann annað en skemta mönn- um með ljóðum, og Kvæða-Keli á ekkert til nema það, sem liann segir í þessum Ijóðlínum: „f fornöldinni’ ég á í seli og aðalbólin víða um land“. Þá kveður Grímur um Hrólf sterka, sem sat með sjömanns- vetti á köldum höndum, sár af elli, en réðst þó í að leysa sonu sína úr varðhaldi á Bessastöðum — og „varðmönnum leizt ekki á hnefann“. Ennfremur kveður Grímur um séra Snorra á Húsa- felli, sem þótti unglingarnir í þann tíð betri til ofanveltu, en til þess að byggja upp aftur. Um Heimi kveður hann, sem flutti Áslaugu í iðrun hörpu sinnar —. og svo mætti lengi telja. Og Grímur orti skálda bezt um íslenzkar fornkon- ur; má þar nefna kvæðin „Hildi- gunnur“, „Bergþóra" og „Ólöf Loftsdóttir". í kvæðinu „Bergþóra'1 eru þessi gullfalfegu vísuorð: „Vil ég ei sem ösp á hóli, angaslitin, greinabrotin, standa ein á auðu bóli yndisvana, máttarþrotin11.

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/163

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.