Dagsbrún - 11.08.1917, Blaðsíða 2

Dagsbrún - 11.08.1917, Blaðsíða 2
60 DAGSBRÚN tunnum til ýmsra embættis- og heldrimanna bæjarins, og þegar svo menn alment komast að þessu og ætla að ná kaupum á olíunni, þá er alt sem þessir kaupmenn mega selja(án seðla) „upp pantað" og selt „gömlum (viðskifta)vinum" kaupmanna og olíufélagsins. Og þó einstaka tunna hafi slæðst til manna í alþýðustótt, þá hafa það að eins verið undantekningar, sem staðfest hafa regluna um söluna til hinna. Landsstjórninni er það ekki vansalaust að láta þannig, rétt undir handarjaðri sínum, selja olíuna þvert ofan í reglugerð þá, sem hún heflr sett 7. þ. m. um sölu og afhending þessarar vöru. Og það, að reglugerð þessi hefir eigi komið nógu snemma til að hefta þessa rauglátu úthlutun, getur sýnt þrent. í fyrsta lagi, að drátt- urinn á útkomu reglugerðarinnar sé að eins venjulegu seinlæti stjórnarinnar að kenna (þó svo að einhver skrifstofustjóra-skussinn hafl lúrt á reglugerðinni í nokkra daga, þá ber stjórnin ábyrgð á því, að framkvæmdirnar séu gerðar á réttum tíma); i öðru lagi, og það er verra, að landsstjórnin sé með- sek í ranglætinu, hafl leyft það, til að þóknast kaupmanna- og höfð- ingjalýð bæjarins, og í þriðja lagi, að stjórnin hafl ætlað að semja um afhendingu farmsins við Stein- olíufélagið og það látið líklega, en notað tímann meðan samningar stóðu yfir, til að selja bak við stjórnina og leika þannig á hana. En hvernig sem í þessu liggur þá hefir hér verið framið stór- kostlegt ranglœti, og það því fremur, sem sagt er, að sú olíu- tegund, sem seld var, hafl verið hin besta að gæðum, sem hér er seld (Water White) og að af þeirri tegund hafi að eins verið fá hundr- uð tunna í farminum. Og þá fer að verða skiljanleg grœðgi höfð- ingjavaldsins að hrifsa undir sig beztu vöruna þegar líkur eru til að hún muni fljótt þrjóta, hitt fullgott handa efnalitla alþgðu- fólkinu. Til þess að hreinsa sig í þessu máli verður stjórnin að láta þann krók koma á móti bragði St.fél., að krefjast skýrslna um það, hverjir hafi fengið olíuna keypta, og láta taka aftur af þeim, sem hafa fengið óhóflega mikið og láta þá aðeins halda hæfilegum skamti, og auð- vitað ættu þeir ekki að fá úthlut- að olíu, fyr en þrotnar væru birgðir þær, sem þeir fengju að halda eftir. Ari. f Dr herbúðmn verkamam i. Yrkið jörðina, sáið kartöflum, var hrópað til okkar Reykvíkinga og annara í vor — þó hvorki væri til áburður né kartöflur — þó ein- hversstaðar hefði nú verið land hér í kring til að sá í, en allir vita að það er orðið af skornum skamti. Fyrverandi bæjarstjórn og núverandi meirihluta hennar eig- um við það að þakka. Jæja um kartöflurnar var það, sem eg ætl- aði að skrifa. Það fréttist að von væri "'á kartöflum frá útlöndum fyrir tilstilli stjórnarráðsins, og það fréttist einn góðan veðurdag, að kartöflur væru komnar. Maður nokk- ur fór á fund þeirra háu herra og ■ spurðist fyrir um hvort hann og nokkrir aðrir sem í félagi væru með dálítinn garð og hefðu hann undirbúinn til sáningar, gætu feng- ið einn eða fleiri poka. Svar: Hr. Einar Helgason heflr fullveldi yflr kartöflum. Þá var farið til Einars, svar: Alt pantað. II. Tjörneskolin komu, og blöðin gátu þess, að auglýst mundi verða hvernig þeim yrði úthlutað. Eg komst uppá Laugaveg og á verzl- unarskrifstofuna og spurði eftir hvort ekki væri hægt að fá kol af Tjörn.kolum; fékk það svar, að ekkert væri enn ákveðið, hvernig þeim yrði útbýtt, nokkrum klukku- tímum seinna er farið að aka þeim burtu á hestum. Eg var bundinn við vinnu og gat því ekki komist uppá Laugav. til að panta, eins og kallað er, fyr en nokkr- um dögum seinna. — Þess skal getið, að eg leitaði í blöðum eftir auglýsing um úthlutunina, en fann ekkert. Þegar eg kom svo á skrif- stofuna og spurði um kolin, var svarið: Alt pantað. III. Það fréttist einn góðan veður- dag að landsstjórnin hefði keypt fyrirfram alt smjör sem rjómabú- in framleiddu. Eg fór uppí stjórn- arráð, spurðist fyrir um smjörið og var vísað til Sláturfélans Suð- urlands. Eg þangað, eða réttara sagt, eg ætlaði þangað, en komst ekki alla leið því eg mætti manni á miðri leið sem kvaðst hafa spurt sig fyrir um smjörið og fengið það svar, að alt væri upp pantað og ekki selt nema í heilum tunn- um (smjörtunnum). Yið höfum borgarstjóra og bæj- arstjórn, dýrtíðarnefnd, matvæla- nefnd, og hver veit nema ein- hverjar fleiri nefndir séu, sem eiga að vernda oss og varðveita, svo að vér smælingjarnir ekki föll- um úr harðrétti — en svo mikið er víst, að þessar þrjár stofnanir eiga að annast um málefni borg- arbúa — og þá hélt eg að þær ættu að sjá um að bærinn fengi einn hluta af lílsnauðsynjum sem til landsins flytjast og að bæði þeim og hinum, sem framleiddar eru í landinu, væri á þann hátt úthlutað til bæjarmanna að öllum jafnt fátækum sem efnuðum, gæf- ist færi að fá þær, en svo verður það samt ekki í framkvæmdinni — þessi pöntunaraðferð fyrirbyggir það — og víst er um það að ein- hvernvegínn er það að efnamenn- irnir verða fyrstir manna þess visir þegar vörurnar eru á ferðinni og fá tækifæri til að panta, og þegar vörurnar eru látnar úti mestmegnis í stærri kaupum, verða efnaleysingjarnir af kaupunum, þó að miklu leiti megi skella skuld- inni á stjórnina og skrifstofu- stjóra og verzlunarráðunauta henn- ar, þá eru fleiri sem halda verða í pokahornið með henni og líklega færu sumir af meðlimum nefnd- anna sem eg áður hefi nefnt, að bogna í baki, ef þeirra hluti af syndapokanum væri látinn á herð- ar þeirra. IV. Nú er bezt að líta snöggvast inn í þingsalinn, þar sem beztu menn þjóðarinnar eiga að eiga sæti. í þingbyrjun höfðu margir góðar vonir um, að þingið mundi leggja íram alla sína krafta til að bjarga þjóðinni frá yfirvofandi harð- réttis tíma, en þær vonir hafa illa brugðist. Alvöru og fyrirhyggju- sem greinilegast kemur í ljós með frumvarpaíjölda þeim sem dembt er inn í þingið, sumum mjög svo fánýtum og lítilsverðum og mörg- um sem bíða máttu betri tíma, og svo skemta þeir herrar sjálfum sér og . . — með því að rífast um þessi fóstur sín tímum saman —; alvarlegu málin, dýrtíðarmál- in, eru látin sitja á hakanum; þeir góðu menn virðast ekki mjög svo hugsjúkir yflr því þótt yflr þjóð- inni vofi máske það ömurlegasta hallæri sem nokkurn tíma heflr yfir þetta land dunið. Y. Hvað er framundan ? Þetta ár sem ýfirstendur verður fyrir almenning sem lífsframfæri sitt hafa af sjóföngum, það tekju- rýrasta sem við höfum haft um langt skeið — útgerð togaranna var um langan tíma stöðvuð, afli á vélbáta var í vetur og vor mjög rýr. Síldarveiðar sem margir hafa haft gott af undanfarin ár virðast ætla að mishepnast og svo þegar búið er að selja togarana út úr landinu, hvað tekur þá við 9 Stjórnin og þingið er alvörulít- lítið. Sjálfir hafa þeir herrar nóg að bíta og brenna en hvað á fjöld- inn að gera þegar hann heflr hvor- ugt. Það mun framtíðin ieiða í ijós. — Fyrsti þingm. Rvíkur hefir komið fram með frumvarp, þar sem farið er framá að bæta nokk- uð úr íyrir almenningi — en heflr þingmönnum annara kaup- staða eða sjávarplássa þóknast, enn sem komið er, að leggja nokkuð til málanna, sem að gagni mætti koma, og þótt sveitabænd- ur kunni að mörgu leyti að vera betur staddir en verkamenn og sjómenn, þá er ekki ólíklegt að margir hinna smærri meðal þeirra fái sig fullreynda áður hildarleikn- um lýkur — eða halda þeir góðu bændur og búalið á þingi, að af- nám ullartollsins verði allra meina bót — svo smásálariegir getur maður vel hugsað að margir þeirra séu, reynslan er búin að sýna það. Af frumvarpi Jörundar er nú orðið svo lítið eftir, aö litlu er bætt þótt framgangi það, sem þre- menningarnir leggja til í minni- hluta bjargráðanefndar — já, bjarg- ráðanefndar, slíkur bjargvættur! — Um aukaþingið í vetur var sagt: Nótur. Grieg: Romancer & Sange . . . 2,00 Fifty mastersongs by twenty com- pomsers.Engelsk&TyskTekst 7,00 Opera. Album f. Violin og Klaver 1,50 Davids Violin-Skole I. og II. Del t,05 Hanons Ovelser complet .... 5,25 Federhof-Möller: Harmon.-Skole 1,50 Tekla Gribels: Musikalsk Börne- have for de förste Begyndere ,2,50 Schubert: 4. Impromtu........ 1,00 Schumann: Die Soldatenbraut . 0,20 Heise. Aases Sange........... 1,50 Trollháttan sjung nára. Tre Sange 0,60 Duet af Rosenkavaleren Strauzs 2,25 Mimis Arie af Boheme........ 1,35 Rudolphes Arie — 1,50 Sæterjentens Söndag.......... 0,60 Grieg: Min Tankes Tanke ene du er vorden.............. 1,00 Ak! Vermelandl Du skönne . . 0,25 Polsk Fædrelandssang......... 0,75 Olafs Romance af Elveskud . . 0,75 Lange-Múller: Sulamiths Sange 1,50 Haydn Album m. Fotograt. og biografiske Oplysninger .... 7,00 Caruli: Guitarskolem. Óvelsestk. 1,50 Sinding: Frúlingsrauchen .... 1,35 — Op. 44, I. Caprice Es Dur . 1,00 Stenhammer: GildetpaaSolhaug 1,65 Symfoni i E-Dur, 4-Hænder af Ludolf Nielsen............. 2,00 Gade: Pianostykker Op. 34 . . . 2,00 Fantasi over: Flyv, Fugl, Flyv . 0,60 Den lille Hertug. Let udsat. . . 0,50 Album f. Orgel af Grieg. . . . . 2,00 Dronning Dagmar Fantasi . . . 0,40 Drömmebilleder. Let udsat . . . 0,75 M.-Bartholdy. Op. 33, No. 1 Capr. 0,25 Czerny Etuder................ 2,00 — 40 daglige Ovelser........ 1,00 Overturen til Don Tuan....... 0,75 Kejser Nicolais March........ 0,25 Kuhlau: kondo f. 4 Hænder . . 0,75 Fini Henriques. Sammenspil f. Violin og Klaver Op. 22 H I 1,50 Fantasi over: Det er saa yndigt at fölges ad............... 0,70 Overture til Figaro Bryllup . . . 0,75 (Frh.). Sendar um alt land gegn eftirkröfu. Hljóðfærahús Reykjavíkur. Símnefni: Hljóðfærahús. Sími 656. 111 var þín fyrsta ganga. En hvað skyldi verða sagt um þetta þing? Otto N. Porláksson. Sterling skip landsstjórnarinnar kom hingað í morgun frá Kaupmanna- höfn hlaðið vgrum, og með fjölda farþegja. Ameríkuierðir. Gullfoss lagði af stað til Ame- ríku í gærkvöldi, „ísland" fór um miðja vikuna og Lagarfoss er kominn til Halifax. Botnia kom úr strandferð í gærmorgun. Mjólkurkaup bæjarstjórnar. Bæjarstjórnin heflr gert samning við bændur austur í Ölfusi um kaup á nýmjólk handa bænum, um 400 1. daglega; er hún flutt hingað í bifreið og seld á 4 eða 5 stöðum í bænum og verðið 44 aurar lítrinn. Fyrsta send- ingin kom hingað í gærkvöldi kl. liðlega 10. DA6SBRÚN kemur út á laugardögum, og er að jafnaði 4 síður aðra vikuna en 2 hina. Árg. kostar kr. 2,50. Borgist fyrirfram. Afgreiðsla og innheimta á Laugavegi 4 (Bókabúðinni). „AUSTRI“ er lesinn á nærri hverju heimili á Austurlandi. 1 honum ættu því allir þeir að auglýsa, sem afla vilja viðskifta á Austurlandi. Prcntsmiöjan Gqtcnberg.

x

Dagsbrún

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagsbrún
https://timarit.is/publication/173

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.