Dagsbrún


Dagsbrún - 13.04.1918, Blaðsíða 1

Dagsbrún - 13.04.1918, Blaðsíða 1
DAGSBRÚ N BLAÐ JAFNAÐARMANNA GEFIÖ C'T AF ALPÝÐUFLOIvKNUM RITSTJÓBI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: ólafur FRIÖRIKSSON I'ltBMJIB bkki RANOINDI 18. tbl., 4. Reykjavik, laugardaginn 13. apríl. 1918. Mjólkin. Úr þorpum og kaupstöðum utan af landi fréttist, að ástand- ið, hvað mjólkurleysi viðvíltur, sé að verða svipað þar og það er og hefir verið undanfarin ár hér i höfuðstaðnum s. s. mjólk ekki fáanleg mikinn hluta ársins, hvað sem í boði er, og þann tíma sem hún fæst, ekki vema fyrir óhæfilega hátt Verð. Hér í Reykjavík er mjólk orðin svo sjaidséð vara, að al- Qienningur er svo að segja bú- inn að gleyma því, að til er Qijólkurmatur, enda er sú Qijólk, sem til bæjarins flyzt, ekki nema þriðjungur af því Sem íalið er hæfilegt erlendis. Sú skoðun hefir gert vart við sig, að ráðið til þess að bseta úr mjólkurskortinum vseri að flytja mjólk lengra að 1*1 bæjarins en verið hefir, og öiá vel vera, að eitthvað nokk- Qð megi bæta úr með því móti, Þó að tilraun sú, er gerð var í fyrra, ekki hepnaðist vel. En eÍQa vísa ráðið til þess að bæta hór úr> bæði fyrir Reykjavík °g aðra bæi, Akureyri, ísafjörð s. frv., er að fara að dæmi erlendra borga sem jafnilla ^afa verið staddar, en bœtt úr bcMdrœðiinum með því sjálfar reisa kúabú. Auðvitað er, a^ það er ekki hægt að reisa a einu ári kúabú, er bæti úr aUri mjólkureklunni — að ^binsta kosti ekki hér í Reykja- v*k — en því lengur sem dreg- ^ er að gera byrjunina, því lengri tími líður auðvitað áður eQ nægilega stórt bú er komið a fót. Rétta aðferðin virðist Vera hér í Rvík að taka nú ^egar á þessu vori stórt land ræktunar i Fossvogi, reisa ^ar fjós, og kaupa nokkuð af °erii lega góðum kúm, helzt engra að en að þær mjólki til Reykjavíkur. Jafnframt ftti bærinn að kaupa undan ^Qífnum kvígukálfa af góðu ^jólkurkyni, hér í bænum og ^rendinni, og koma þeim fyrir 9 góðum stöðum upp í Borg- ?rtirði, eða á öðrum stöðum, |jar sem uppeldi þeirra ekki regur úr mjólkurmagni bæj- ^'Qs. Pjöldi af mjólkurfram- ^ðendum þessa bæjar láta ^ía fyrir sig langt að, og er vandasamara fyrir bæinn gera það en fyrir einstaka areUn ~~ það er að segja, þeg- jj . Igangur með því er að hv .a’ en ekk* veita ein- v,- ei)Qrn vinum einhverra at- vlQnu. Aðalmótstaðan gegn kúabúi hefir komið frá kúaeigendum hér í bænum; eru þeir hrædd- ir um, að ef bærinn færi að reka kúabú, þá yrði það til þess að spilla atvinnu þeirra. Þessi hræðsla virðist vera nokkuð að ástæðulausu. Ef framleiðslukostnaður mjólkur- innar er eins mikill hjá mjólk- urframleiðendum og þeir láta í veðri vaka, ætti það ekki að saka þá, að bærinn fengi það staðfest með eigin reynslu, og ekki er hætta á því að bærinn fari að lækka verðið á mjólk- inni til þess að selja sér i skaða. En jafnvel þó reynslan sýndi nú, að mjólkina mætti með hagsýnu búskaparfyrirkomu- lagi selja að góðum mun ódýr- ara en nú er gert (og það er hugsun þess, er þetta ritar, að það mundi reynslan sýna), þá er engin hætta á því, að bær- inn fari að setja niður mjólk- urverðið, af því hætta er á því að það gæti orðið til þess að kúabændur breyttu til um bú- skap (íæru t. d. að hafa sauð- fé) og mjólkurmagnið yrði þar af leiðandi minkandi. Bærinn mundi þvi ekki setja niður verðið, heldur mundi hann, ef hann gæti framleitt mjólk mun ódýrara en alm. verðið væri, selja hana fyrir það verð, en úthluta efnalitlum mönnum af- sláttarmiðum, líkt og svo marg- ar borgir gera nú erlendis. Úr bréfi trá Akureyri. s% — 1918. Hafísinn er allur horflnn úti fyrir, en eftir situr ístappi í firð- inum út að Hjalteyri. Er nú verið að aka þangað á hestum og sleð- um vörum í og úr Lagarfossi — skipaleið. Tíðin heflr verið af- bragðsgóð undanfarið, en nú stend- ur yfir þetta „árlega páskahret.", eins og gömlu mennirnir segja. En vonandi birtir það bráðum. — Bæjarstjórnin okkar var nú ný- skeð að troða í mestu riíurnar sem þingið síðasta setti á bæjar- lagafrurnvarp kaupstaðarins i fyrra. Telja lögfræðingarnir frumvarpið „sjófært" ef aukaþingið viil leggja blessun sína yfir aðgerðina eins og hún kemur frá bæjarstjórn. Vonandi hleypir þingið ekki nein- um „ilium öndurn" í frumvarpið enn á ný, svo enn verði ekki hægt að nota það fyrir göllum. Væri það þingínu ekki vansalaust. — Frá því fyrsta að landssjóður fór áð veizla með sykur heör bæj- arstjórnin hér haft hann til út- sölu, ásamt fleiri vörum. Var sam- þykt að halda þeirri sölu áfram, og orkar það ekki tvímælis að injög mikil dýrtíðarhjáip er að þessari ráðstöfun. Skal ég nú sanna þetta með töium. Bæjarstjórnin leggur allan kostnað við vörusöluna á vörurn- ar, en þó selja kaupmenn hér t. d. sykur, 20 aurum dýrari hvert kilo en bæjarstjórnin. Hverjum manni er ætlað % kg. sykurs á viku, bæjarbúar eru um 2000, og græða þeir því samtals 200 kr. á einni viku eða 10,400 krónur á einu ári, einungis á einni af þeim vöruteg. sem bærinn verzlar með. Geta má þess að þetta er þó sú vara, sem kaupmenn leggja minst á, þar eð hún ætíð er til sölu með lægra verði hjá landsstjórn- inni. Aðrar vörur svo sem t. d. kaffi selur bærinn einnig miklu lægra verði en kaupmennirnir. Kafflð kostar í útsölu bæjarins 2 kr. 10 au. kg., en hjá kaupmönn- um heflr það farið í 5 kr. kg. þegar litlar birgðir voru í bænum en kostar víðast hvar 3 kr. kg' Alkunn er sú aðferð margra kaupmanna að selja ekki þá vöru, sem lítið er til af, nema keypt sé arnað með, og eru af því margar skoplegar sögur héðan úr bænum, sem jafnframt eru hlutaðeigandi kaupmönnum til vanvirðu. Einn kaupm. er einkum frægur fyrir að kaupa upp vöruslatta, helzt smávegis, og „hafa það til“ þegar aðrir eru uppseldir, og seija siðan með okurverði, nokkur 100 prócent álagningu. Nefni ég ekki nafn hans hér, allir Akureyringar og þó einkum útbæjarmenn kannast við hann. Yfirleitt mun anda fremur kalt til kaupmanna hér og í grend- inni, vegna reynslunnar, sem feng- ist heflr nú á þessum neyðartím- um. Gjalda þeir saklausu þar oft hinna seku, því margir kaupmenn eru of hyggnir viðskiftamenn og of góðir menn, til að nota sér neyð almennings. Þó munu menn alment hugsa til þess með hryll- ingi ef kaupmenn eiga framvegis að sjá um að byrgja landsmenn með nauðsynjavöru, og landsveizl- unin ekki að vera annað en hjálp- arhella þeirra, eins og hinn lýð- holli dýrtiðarmálafræðingur J. Þ. vill í „Lögréttu". Það vill oftast verða annað hljóð í peningabudd- um almennings og peningabudd- unni verkfræðingsins. „Rjóminn er ekki ofgóður handa kattargrey- inu“, sagði kerlingin við karlinn sinn þegar hann var að kvarta um að fá ekki mjólk í kaffið og kisi lapti mjólkina. Eitthvað svip- að heflr vakað fyrir verkfræðingn- um þegar hann vildi láta kaup- menn sitja kyrra við rjómatrog veizlunarágóðans, þó almennitig vantaði peninga. Annars ættu bæja- og sveita- stjórnir að gefa meiri gaum að vörusölu tii almennings með sann- virði en verið hefir. Gæti það orð- ið almenningi drjúg dýrtíðarupp- bót. Má marka það af dæmi því sem ég hefi nefnt hér að framan. Upphæðin sem við Akureyringar 'græðum beinlínis á bæjarsölu þess- arar einu vörutegundar (sykurs) er álíka fídga og öll dýrtíðarlán- in sem veitt hafa verið þar í vet- ur, og nærri helmingur af auka- útsvörum bæjarbúa fyrir árið 1918, eða um 25 kr. á hverja 5 manna fjölskyldu. Sézt bezt af því að kenningin um að kaupmenn séu ómissandi til að borga skatta er engu réttmœtari, en úreltasta mót- báran gegn aðflutningsbanninu, sú að vínið væri ómissandi til að skattarnir gætu fengist í landssjóð- inn. 'Vitar. Alþingi var sett 10. þ. m. eins og boð- að hafði verið, en sökum þess að nokkra þingmenn vantaði var forsetakosningum og öðr- um fyrstu þingverkum frestað. ^Molar um jatnaðarstefnuna (socialismann). * Eftir N. VI. (Frh.) En hvað er þá jafnaðarstefnan (Socialisminn)? Hvað hún er eða hvað hún vill, um það hafa verið skrifaðar margar bækur, svo ekki þarf eftir því að vonast að ég komi þar víða við — en það er líka önnur spurning sem mjög er nátengd, og hún er: Hvernig ætla socialistar að koma hugsjónum sínum í framkvæmd? Höfuðatriðið í stefnu socialista er að koma i veg fyrir að ein- stakir menn eða gróðafélög safni stórum auðæfum sem grundvallast á erfiði annara manna sem ekki hafa af ágóðanum nema það allra minsta til að draga fram lífið á; oft er af svo skornum skamti að verkamennirnir eru ekki vinnufærir og liða ekki sjaldan nauð. En til þess að draga ekki úr framleiðslunni og þeim auð sem hún skapar, þá sé meginhl. frainleiðslufyrirtækja rekinn af því opinbera, af ríkinu eða bæjarfélög- unr eða sveitafélögum, eftir því hvað bezt þykir henta, eða þá af hvorutveggja, ef það á við. Fyrirtækum sé stjórnað undir

x

Dagsbrún

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagsbrún
https://timarit.is/publication/173

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.