Fréttir

Tölublað

Fréttir - 14.05.1918, Blaðsíða 3

Fréttir - 14.05.1918, Blaðsíða 3
FRÉTTIR .3 „Velferð44 hindsins. í þessu blaði var fyrir nokkru stutt á það, að »ísafold« hafði í vetur brígslað stjórninni um að hafa drýgt svo alvarlegar syndir, að eigi væri vegna velferðar lands- ins fært að gera þær að opinberu umtalsefni, og spurst fyrir um, hví blaðið hefði eigi fært sönnur á mál sitt á »réttum stað« fyrir munn flokksmanna sinna á þingi. Síðan hafa bæði »Frón« og »Tíminn« tekið í sama streng. Samt steinþegir »ísafold« um þetta mál. Þessa þögn verður að skoða sem fult samþykki þess, að blaðið hefur hér farið með staðlaust fleipur, — þetta verið einn þáttur- inn í jólarógnum alræmda, þegar setja átti stjórnina í »Steininn« og koma Mó-jóni í »sætið«, en alt strandaði á því að hjarta »Skugga- sveins« brast duginn til stórræð- anna. Öllu greinilegra fyrirlitningar- vottorð getur blaðið tæplega gefið sjálfu sér. — Hefur margan manninn furðað á þvi, að dómsmálaráðherrann skyldi láta þetta ganga átölulaust, jafn- skýrt hegningarlagabrot og hér er um að ræða. En nú er sú gáta auðráðin: »ísafold« hlýtur í hans augum að vera sorpblað, sem ekki beri né þurfi að taka nokkurl tillit til. Hár. I^ingfréttir. { Ed. skeðu þau tiðindi í gær, að fráfærnafrv. stjórnarinnar var drepið við 2. umr. með 8 atkv. gegn 6, enda hafði landbúnaðar- nefnd lagst allfast á móti fram- gangi þess í ítarlegu nefndaráliti, sem hún lagði fyrir Ed. í byrjun 2. umr. Umræður urðu engar um málið, heldur var það drepið þegj- andi og hljóðalaust. — Hinu mál- inu, af þeim tveimur, er á dag- skrá voru, var vísað til 3. umr. Það var frv. um stækkun verzl- unarlóðarinnar í Ólafsfirði. í Nd. voru 12 mál á dagskrá. Var fyrsta málið, frv. til laga um mjólkursölu á ísafirði, sem var til 3. umr., samþykt umræðu- laust og afgreitt frá þinginu sem lög, — fyrstu lögin, sem þetta þing lætur eftir sig. Annað og áttunda málið, mó- taksfrv. og frv. um breyting á lög- Um um skipun læknishéraða, Voru hæði tekin út af dagskrá, en um þriðja málið, breytingarnar á fraeðslulögunum, urðu langar um- ræður. Eins og kunnugt er, lagði stiórnin fyrir þingið frv. til laga UIn skipun barnakennara og laun þeirra, en mentamálanefnd Nd. hafði ekki séð sér fært að mæla með því frv., en komið fram með nýtt frv., sem að visu gerði ráð Pjóðverjum einn milljarð marka (c. 1,000,000,000 ríkismörk). Búlgarar fá Dobrudscha. Stjórnmálaviðskifti Rússa og Pjóðverja gerast all-erfið. fyrir nokkurri hækkun á launum kennara, en vildi láta þá hækkun að eins gilda fyrst um sinn, eða meðan dýrtíðin stæði yfir; síðar skyldi svo launamál kennara tek- iTlil r'ækilegrar yfirvegunar. Frv. stjórnarinnar hafði farið fram á miklu hærri laun handa kennur- mn, og var þar ætlast til, að þau Iaun yrðu til frambúðar, en menta- málanefnd taldi varhugavert að ákveða nú framtíðarlaun kennara, þar sem verðgildi peninga væri svo mjög á reiki, enda áleit hún sennilegt, að mjög lítið yrði um fræðslu-starfsemi í landinu, unz ófriðinum lyki. Forsætisráðherra mótmælti áliti mentamálanefndar, og þótti launa- hækkun sú, er hún gerði ráð fyrir í frv., óviðunandi, vildi hann láta samþykkja frv. stjórnarinnar óbreytt. Sigurður í Vigur mótmælti launahækkuninni, með því hækk- unin væri kák, og auk þess mundi skólum sennilega verða lokað í vetur. Jörundur Brynjólfs- son, frams.m. mentamálanefndar, vildi láta hækka laun kennara, með því að laun þeirra væru smánarlaun, og kvaðst vita dæmi til þess, að sveitarlimur hefði ver- ið notaður fyrir kennara, til þess að létta á sveitarsjóðnum. Þessu andmæltu þeir harðlega Þórarinn Jónsson og Hákon Kristófersson; var Hákon einn í nefndinni, en hafði skrifað undir nefndarálitið með fyrirvara, og vildi helzt enga hækkun á laununum nú, eins og á stæði. Bjarni frá Vogi vítti álit fræðslu- málastjóra, sem prentað er aftan við frv. stjórnarinnar og áleit, að það fræðslumála-fyrirkomulag, sem nú rikti, miðaði fremur að þvi, að heimska þjóðina en bæta. Hann kvað stórtjón að því fyrir þjóðina, að heimiliskensla hefði lagst niður og skólar komið í staðinn, heim- ilin ættu fyrst og fremst að vera börnunum skólar og heimanámið kvað hann hverju barni happa- drýgst. — í sama strenginn tók Sveinn í Firði, en kvaðst þó ekki vilja' missa skólana. En hann vildi láta kennara taka á sig örðugleika dýrtíðarinnar eins og^aðra og kvað frv. mentamálanefndar til bóta. — Þorsteinn Jónsson fann ýmislegt að athuga við heimiliskenslu, og þótti litlar bætur að frv. nefndar- innar. Loks var þó frv. nefndar- innar samþykt með 16 atkv. gegn 8 og málið afgreitt til efri deildar. 4. málið á dagskrá, frv. til laga um veðurathuganastöð í Reykjavík, var afgreitt umræðulaust til efri deildar og 5. málinu vísað um- ræðulaust til 3. umr. Um 6., 7., 9. og 10. málið urðu litlar eða engar umræður. Þá var frv. um bæjarstjórn á Siglufirði til 3. umr. Breytingartill. höfðu komið frá allsherjarnefnd og áttust þeir við nokkuð út afþeim, Einar Arnórsson flm. þeirra og Stefán Stefánsson flm. frumvarps- ins. Voru þó breytingartillögurnar flestar samþyktar og frumvarpið, þannig endurbætt í annað sinn, afgreitt til efri deildar. Þegar hér var komið hafði fund- ur staðið í 2a/2 tíma og þó eitt mál eftir, sem mátti búast við að rætt yrði, en það var frv. stjórnar- innar um almenna hjálp vegna dýrtíðarinnar. Var því þingfundi frestað til kl. 5. Sá fundur stóð í tvo tíma, og sá þá forseti þann kost vænstan, að láta fresta umr., því ræður framsögumanna urðu svo langar, að auk þeirra komst að eins einn að allan þann tíma, en það var fjármálaráðherra. Frumvarpinu hafði verið vísað í bjargráðanefnd, en hún klofnað í málinu. Vill meiri hlutinn ekki veita neinn fjárhagslegan stuðn- ing almenningi fyr en um verulega neyð er orðið að ræða, og þá ekki sem styrk, heldur sem lán. Pétur Jónsson framsögumaður meiri hlut- ans reifaði tillögur þær, sem meiri hlutinn kom með, og hélt langa ræðu um málið. Kemur stefna meiri hlutans bezt fram í 2. gr., sem hann vill orða þannig: »Landsstjórninni er heimilt að veita bæjarfélögum og sveitarfélögum dýrtíðarlán, þar sem veruleg neyð er fyrir höndum. En það er veru- leg neyð, ef bæjar- eða sveitarfé- lagið getur eigi með eigin fram- lögum, né með lántökum af eigin ramleik, hjá bönkum eða öðrum lánsstofnunum, forðað frá yfirvof- andi hungri og harðrétti«. Jörundur Brynjólfsson, sem var einn í minni hl. í bjargráðanefnd, heldur fast við þá till. stjórnar- frumvarpsins, að dýrtíðarhjálpin sé veitt sem styrkur, en ekki sem lán, en hafði ýmislegt að athuga við frv., svo sem: að stjórnin gengi of skamt í því, að sjá sveitar- og bæjarstjórnum fyrir hagkvæmum lánskjörum o. fl. Hvað er í tréttum? Sorglegt slys. Drengur nokkur 10 ára gamall, Haflidi Björnsson að nafni, drukn- aði í sundlauginni í gær. Var hann að læra sund og var þetta annað skifti sem hann kom í sundið. Datt hann í laugina án þess eftir væri tekið og var örendur er hann fanst. F’réttir. Kosta 5 anra eintakið í lausasölu. yVufí’lýí'iinj.-íiv erí): 50 aura hver centimeter í dálki, miðað við fjórdálka blaðsíður. Algreiðslan í Sölnturnimim fyrst um sinn. Við anglýsing'nm er tekið á af- gTeiðsInnni og í prentsm. (íntenberg. Útgefandi: Félag í Reykjavíb. Ritstjóri til bráðabirgða: Guðm. <inðmundsson. skáld. Sími 448. Pósthólf 286. Viðtalstími venjulega kl. 4—5virka daga á Óðinsg. 8 B uppi á lofti. fastir áskrijenður. Vegna fjölmargra áskörana verður nú þegar tekið á móti föstum áskrifendum að Fréttum. Menn gefi sig fram í Söluturninum. Veðráttan. Norðanátt um alt land í dag, hvast á norður- og vesturlandi. Hálf gráða yfir frostmark í morg- un á norður og austurlandi, 2—3 gráður annarstaðar. í Færeyjum suðaustankaldi 7,5° hiti. Syknrmálið. Fyrirspurn þá flytur Einar Arn- órsson prófessor við níunda mann í neðri deild: Hvers vegna hækkaði landstjórn- inn verð á sykri Iandsverzlunar- innar síðastliðið haust? Og hvers vegna lækkaði stjórnin sykurverðið aftur? Hjúsbapur. Gefin voru saman í K.höfn 11. þ. m. ungfrú Olga Kristinsdóttir og hr. Wilhelm Voss. Kom, sá og sigraði. Jónmundur prestur Halldórsson hefur dvalið hér í bæ um tíma. Hann skrapp vestur að Stað í í Grunnavík um daginn og mess- aði þar einusinni. Var það með þeim árangri, að sóknarmenn skrif- uðu biskupi og báðu um séra Jón- mund til prests hjá sér og skrif- aði hver atkvæðisbær maður undir. Séra Jónmundur flytur vestur þessa dagana með konu og börn og tek- ur við brauðinu. Ættarnöfn. Síðastliðið ár voru tekin upp þessi ættarnöfn hér á landi: Reykdal, Þór, Laxdal, Bjarkan, Vestmann, Raguels, Hlíðar, öll á Akureyri; svo og víðsvegar um landið þessi: Heiðdal, Haukdal, Dalmar, Blöndal, Gröndal, Viðar, Hólm, Snæland, Fossberg, Örvar, Álfstein, Stephensen, Thorarensen, íshólm, Flygenring, Skapta, Blön- dahl, Brunnan, Fossdal og Borg.

x

Fréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir
https://timarit.is/publication/179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.