Fréttir

Tölublað

Fréttir - 16.05.1918, Blaðsíða 2

Fréttir - 16.05.1918, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR íslenzku símamennirnir. Eftir H. de Vere Stacpoole. (Frh.) »Þú þekkir ekki sjálfa þig, og veizt ekki hvað þú vilt — það er mergurinn málsins. Og nú gengur þú á heit þitt við þennan heiðursmann, og á orð mín líka, því að eg lofaði honum því, að hann skyldi fá þín, og svo hefur þú ekki aðrar ástæðuf en þær fram að færa, að þér falli ekki eitthvað við hann. Þær ástæður geta kvenmenn borið fyrir sig, en eg tek þær ekki gildar. Þú verður að hugsa þig betur um«. »Nei — það get eg ekki og vil ekki!« sagði Svala kafrjóð. »Eg geng aldrei að eiga hann, og skal aldrei minnast á hann framar«. Hún sneri sér frá föður sínum, og hljóp út úr stofunni. Stefán lamdi pípuhausnum í borðið, en gekk svo líka út og settist á bekkinn. Kveikti hann þar í pípunni, og nagaði munnstykkið þangað til að það var nærri komið í sundur. Hann vildi ekki láta standa uppi í hárinu á sér, en gat aldrei litið á neitt mál nema frá einni hlið, og var svo þrár og ósveigjan- legur, að engu tauti varð við hann komið. _ Hann hafði alls ekki breytt þeirri ákvörð- un sinni, að Svala skyldi giftast Ólafi, þó að hún segði honum þetta, en meðan hann sat þarna og reykti og hugsaði málið, þá datt honum eitt í hug. Skyldi Svala vera ástfangin í einhverjum öðrum? Skyldi nokk- ur annar vera að bola Ólafi burt? Hann gat engan slíkan hugsað sér í Skarðs- stöð, en þá datt honum Eiríkur í hug, og að hann hefði farið með henni til þess að skoða hafís-jakann. Og svo mundi hann eft- ir því, að Magnús hafði sagt fyrsta kvöldið að Eiríkur væri kvenhollur í meira lagi. Hann stóð þegar upp, lagði frá sér píp- una og gekk inn; kallaði hann svo til Svölu neðan úr stiganum, og sagði henni að koma ofan í stofuna. Vinnukonan var að leggja á borð, og sendi hann hana burt, þegar Svala kom inn, og læsti hurðinni. »Eg hef verið að hugsa um þetta, og get engan botn fundið í því, nema að svo sé, að þú hafir felt hug til einhvers annars. Er því þannig varið?« Svala svaraði engu. »Eg átti þá kollgátuna. Nú — nú! Þú átt enga móðurina, sem geti talað um þetta við þig, og ráðið þér, svo að þú glæpist ekki á því að kasta ást þinni á þann, sem ekki er hennar verður. En eg er nú faðir þinn, og mér ber að gæta þín fyrir sjálfri þér. Hefur þú fengið ást á þessum nýkomna manni — þessum Eiríki?« Þessi spurning kom eins og reiðarslag á veslings stúlkuna. Hún hafði ekki gert sér þetta ljóst. Eiríkur hafði aldrei gefið henni nokkra átyllu til þess að halda, að hann kærði sig meira um hana en hvern annan góðkunn- ingja, og þess vegna kom þessi spurning yfir hana eins og skúr úr heiðskíru lofti. Hún varð ofsa-reið. Henni fanst eins og einhver ókunnugur hefði komið að sér nak- inni, og starði á sig, í stað þess að draga sig í hlé. Varð hún náföl í framan, en mælti ekki orð frá inunni. Stefán barði saman hnefunum. »Já — svona er það Iagað. — En eg fyrir- býð það — í stuttu máli: Eg fyrirbýð þér að tala við þennan mann, og læt það ekki við- gangast!« — Hann sneri sér við einu sinni enn, þegar hann kom að dyrunum, og tók upp aftur: »Eg fyrirbýð það — og svo er ekki meira um það!« Hann fór. Hann hafði aldrei reiðst henni áður, og ekki hafði henni heldur runnið í skap við hann fyrri, en aldrei hafði hún fundið til slíkrar gremju sem í þetta skifti. Það var eins og tilkoma ástarinnar hefði gjörbreytt henni, og gert hana meðtækilega fyrir ástríður og ofsa-reiði, en þær tilfinning- ar hafði hún aldrei þekt, meðan hún var óþroskaðri. Það var sem sál hennar hefði verið lostin svipuhöggum, þegar hún hætti sér út í ver- öldina til þess að leita ástarinnar. . XV. Svefngras. Hún mætti Eiríki daginn eftir á gangi, en gekk fram hjá honum, án þess að líta við honum. Hann hafði verið í illu skapi frá því daginn áður, að hún heilsaði honum svo fá- lega, og mýkti það ekki skap hans, að hún lézt nú ekki sjá hann. »Ef hún heldur þessu áfram, þá skal eg sýna henni, að eg tek mér það ekki nærri«, sagði hann við sjálfan sig áður en þau mættust. Hún kom, og rann Hlenni með henni. Ei- ríkur horfði beint framan í hana, og einsetti sér að lita ekki undan, en hún gekk fram hjá, án þess að líta á hann. Yrðlingurinn skifti sér heldur ekkert af honum, gaut ekki einu sinni til bans augunum. Hann horfði nokkra stund á eftir þeim, og hélt svo áfram til sjávar. Ólundin var rokin úr honum, en hann fann til hjartsláttar. Hún var reið, og af því stafaði fáleiki hennar daginn áður, en ekki stóð henni á sama um hann. Það vóru sjálfsagt einhverjir smámunir, sem höfðu tendrað reiði hennar, en ekki vissi hann, hvað það kynni að vera. Ef þetta hefði komið fyrir Magnús, þá hefði hann farið að barma sér og helt í sig brenni- víni, en slíkt var Eiríki fjarri skapi. Hann þekti betur kvenfólkið en svo. Roðinn á kinnum hennar, þegar hún gekk fram hjá, hafði boðað honum friðslit og stríð. Nú — jæja! Það var ekkert um það að segja, og ófriðarefnið var lítilvægt. Háar öldur rísa að eins á djúpu vatni, og þegar það ókyrr- ist, án sýnilegra orsaka, þá eru það huldar ástæður, sem því valda. Magnús og Gísli vóru niðri við bryggjuna, og vóru að búa sig út í róðurinn; sonur Gísla var þar líka. »Kemur þú ekki með okkur?« spurði Magnús. »Nei«, svaraði Eiríkur. »Eg ætla að fara í eggjaleit«. Magnús svaraði engu. Þó að Eiríkur tæki þátt í vinnunni og umgengist hina sein jafn- ingja sína að flestu leyti, þá gleymdi hann því þó aldrei, að hann var þeirra auðugast- ur og foringi þeirra. Það var sjálfsagður hlutur, að hann reri með þeim eða sat heima, eftir því sem honum sýndist sjálfum, og aldrei snerti hann hendi sinni á því, að verka fisk- inn eða salta. Það önnuðust þeir feðgar Gísli og sonur hans, og hjálpaði kona Gisla þeim til þess og aðrir krakkar þeirra. Þeir áttu nú fisk á þurkvellinum, sem svaraði Qögur hundruð króna virði, og átti að senda hann til Reykjavíkur innan skamms. Annars gekk þeim útvegurinn vel, og vissi Magnús og þeir félagar sem var, að það var ekki eingöngu peningum Eiríks að þakka, heldur einnig hyggindum hans. Þó að fyrirtæki þeirra félaga væri ekki yfirgripsmikið, þá kendi þar þó staðreyndar þeirrar, sem öllum samvinnufélögum og verkmanna-leiðtogum sézt yfir, og hún er sú, að vöxtur og viðgangur allra fyrirtækja er kominn undir hæfileikum eins manns, en ekki margra, og að samkeppni félaga má líkja við sjóorrustu. Þar ræður herkænska foringj- anna úrslitum. Gísli var vel fær um að halda úti báti, og sama var um Magnús að segja, en þeim var ekki sýnt um að yfirvinna örðugleika, og þeir hefðu aldrei getað risið upp á móti Ólafi. Þá skorti áræði Eiríks, og það könnuðust þeir fúslega við. Eiríkur horfði á eftir þeim, þegar þeir fóru út í vélbátinn, og lögðu af stað. Það var all- snarpur vindur, svo að hnitaði í báru, og vor- blærinn lék um láð og lög. Það var komið langt fram í júnímánuð, en þó var veðráttan lík því sem gerist í aprílmánuði. Er það hvergi nema hér á norðurhjara heims, að vorveðráttan nær langt fram á sumar. Eiríkur hélt nú áleiðis til hafnarinnar. Hann ætlaði að ná sér í svefngras, en ekki að fara í eggjaleit. Fyrir ofan höfnina spruttu islenzk svefn- grös í klettaskoru. Blóm þessi vaxa ekki annarsstaðar á hnettinum. Svala hafði bent honum á þau, daginn sem þau gengu til hafnarinnar. Ekki var auðvelt að komast að þeim, því að til þess varð að klifra upp frá lendingunni og beint upp klett- ana, en síðan skáhalt upp að hillunni, sem þau voru á. Hann komst hvað eftir annað í lífshættu á leiðinni, en komst þó ofan aftur heilu og höldnu, með stóran blómvöndul í vasanum. Hann bar blómin heim til sín, setti þau í krukku með vatni og lét þau standa uppi á hillu. Hann ætlaði svo að leggja þau í gluggann hjá Svölu seinna um kvöldið, eða á glugga- karminn, ef glugginn skyldi verða læstur. Fór hann því næst að eiga við garðinn sinn, en hætti því brátt og stóð með kross- lagðar hendur, eins og hann væri að virða garðinn fyrir sér. Það var þó langt frá þvi, að svo væri. Hugur hans reikaði í þúsund mílna fjarlægð, þar sem sólin brennir sandhóla Japans. Hann mintist þess, er hann tíndi hvítu blómin í japanska þorpinu, og lagði þau inn í hús ungu stúlkunnar, og frá Japan reikaði hugur hans til löngu liðinna ára og mintist stúlkna þeirra, sem hann hafði tælt, og þeirra, sem tælt höfðu hann — heiðvirðra stúlkna og léttúðardrósa. Hann hafði gefið þeim lítilfjörlegar gjafir, eftir því sem efni hans leyfðu, og mörgum þeirra hafði hann gefið blóm. Ætlaði hann sér þá að setja Svölu á bekk með kven- sniftum þessum, og byrja aftur sitt fyrra líferni? Þannig stóð hann nokkra stund í djúpum hugsunum, en gekk því næst inn og tók krukkuna af hillunni. — Hann tók blómin upp úr vatninu og fleygði þeim út á haug. XVI. Ekki má sköpum renna. Ólafur varð svo forviða á framkomu Svölu, að hann stóð agndofa og kom ekki upp neinu orði. Hann sá, að hún hljóp ofan stigann, og þegar hann leit út yfir öldustokkinn, sá hann að hún var komin í bátinn hjá Oddi.

x

Fréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir
https://timarit.is/publication/179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.