Fréttir

Tölublað

Fréttir - 09.10.1918, Blaðsíða 4

Fréttir - 09.10.1918, Blaðsíða 4
4 FRETTIR Politicos-vindla og Embassy-cigarettur ■ 1 Café & Restaurant Það tilkynnist heiðruðum almenningi, að nú, að lokinni viðgerð á veitingasalnum í Hótel ísland, er nú opnuð þar Gafé & 'Restaurarit Jslarid*, og það framvegis rekið af undirrituðum. Verða þar ^Jhafðar á boðstólum allskonar veitingar, matur og drykkur, eftir þvi sem föng eru á. Hlj óðf ærasláttur, fjögra manna sveitar, á hverjum degi, undir stjórn hr. Rsynis Gíslasonar. - Eg mun ieitast við að hafa ávalt hinar beztu vörur að bjóða og í einu og öllu reyna að gera gestum minum til hæfis. Virðingarfylst. Alfred Rosenberg. RITFANGAVERZLUN Theódórs Árnasonar, Sími 231 Sími 231 17 AUSTURSTRÆTI 17 Alls konar pappí r: Póstpappír, Embættisbréfapappír, Perripappír, Teiknipappír, Umbúðapappír, Umslög. Reikningaeyðublöð, Reikningabækur, Vasabækur, Visitkort. Ritblý. Bréfspjalda-albúm, Smámynda-albúm, Myndabækur, Bréfspjöld. Litarkassar. 1 heild'iðlu til kaupmanna og böksala: ----- Vasabækur margar legundir. ----- Mnn lægra verð en hjá heildsölnm hér. Bestu rakhnífaruir fást hjá honum Eyjólfi á rakarastofunni, Pósthússtræti 11. Hvað er í íréttum? Skipablástnr í höfninni. Síðan farþegaskipipin fóru að liggja við hafnarbakkann halda þau gamla siðnum að blása til brottferðar. Er þetta auðvitað gert af hugulssemi til þess að aðvara það fólk sem ætlar að ferðast með þeim. — En þessi siður á ekki við nema þegar skip liggja fjærri landi. í höfnum erlendis. er hringt bjöllu sem brottferðarmerki í stað þess að blása, þegar skipin liggja landföst nærri mannabústöðum. Pann sama sið ætti að taka upp hér. Það á að vera nóg að augJýsa vel brottferð skipanna og láta svo hvern og einn um það að komast með, án þess að kallað sé með eimlúðrinum. Reynzlan sýnir að menn verða strandaglópar hversu skýrt sem blásið er, og má vera að menn vari sig einmitt betur, ef þeir eru ekki að bíða eftir merki og miða aðeins við klukkuna. Af „Borgíf hafa enn ekki borist neinar fregnir. Mundi að sjálfsögðu vera komin til Noregs, ef hún hefði farið frá Leith eins og ætlað var. Leiðinlegt hvað skipin þurfa ein- lægt að tefjast þrátt fyrir loforð um skjóta afgreiðslu. Norðanstan er nú veðuráttin um alt land. Þurviðri var þó i morgun alstaðar nema á Seyðisfirði, þar er sama stanzlausa rigningin. Frost hvergi nema á tsafirði og Grímsstöðum og ekki hvast nema í Vestmannaeyj- um; þar er norðaustan stormur. Tvær sögur eftir Huldu (frú Unni Benedikts- dóttur á Húsavík) eru nýkomnar út á kostnað Arinbj. Sveinbjarnar- sonar og sendar »Fréttum«. Ritstj. hefur enn eigi fengið tóm til þess að lesa þær báðar til hlítar, en hitt þorir hann að fullyrða, að svo vinsæl er Hulda, að fólk verður að flýta sér að ná í bókina, ef hún á ekkí að vera orðin uppseld, þegar það kemur að spyrja að henni í bókaverzlunum bæjarins. Verður þessarar bókar nánar getið einhvern næstu daga. Yillemoes. Skeyti hefur nú borist um að bann sé farinn frá New York all- miklu siðar en ætlað var. Mun skipið ekki væntanlegt fyr en um 18. þ. m. Mótorkútter Harry (Nathan & Olsen) fer til ísafjarðar, Siglufjarðar og fleiri hafna á Vesturlandi, ef nægur flutningur fæst. Skipið byrjar að hlaða i dag 9. þ. m. Menn eru beðnir að tilkynna flutning strax til afgreiðslu skipsins. G. Kr. Guðmundsson & Co. Hafnarstræti 17. Sími 744. 200 smáÍQsiir 'Valin lcol úr Hringversnámu koma til bæjarins innan skamms. Kolin má borga fyrir íram á sRrifsíofu Porshins Jónssonar næstu daga kl. 3—6. Nýjar bæknr: Hulda: Tvær sögur. Wells: Land blindingjauxia og aðrar sögur. Bókaverzlun Arinbj. Sveinbjarnarssonar. Prentsmiðjan Gutenberg.

x

Fréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir
https://timarit.is/publication/179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.