Fréttir

Tölublað

Fréttir - 13.10.1918, Blaðsíða 4

Fréttir - 13.10.1918, Blaðsíða 4
4 FRETTIR RITFANGAV ERZLUN Theódórs Árnasonar, Sími 231 Sími 231 17 AUSTURSTRÆTI. 17 Alls konaa* pappír: Póstpappir, Embættisbréfapappír, Perripappir, Teiknipappír, Umbúðapappir, Umslög. Reikningaeyðublöð, Reikningabækur, Vasabækur, Visitkort. Ritblý. Bréfspjalda-albúm, Smámynda-albúm, Myndabækur, Bréfspjöld. Litarkassar. 1 keildsölu til kaupmanna ogf böksala: ----- Vasabækur margar legundir. --- Mun lægra verð en hjá heildsölnm hér. Roskinn kvenmaður með ungbarn með sér óskar eftir vetrarvist á góðu heimili. Afgr. vísar á. Gærur kaupir Garöar Gíslason. „Hugfró” Laugaveg 34. Sími 739. Selur í Qölbreyttu úrvali: Tóbaksvörur. iælgæt!, Gosdrykki, t Ö!, Reykjarpípur, Tóbakspunga, o. m. fl. Verð hvergi lægra. Vörur sendar heim. Xaila jaris ao gjisa. í gær eftir miðjan daginn kom upp gos, að því er sagt er, í Kötlu- gjá í Mýrdalsjökli. Af því að veð- ur var heiðskýrt sást gosmökkur- inn mjög vel héðan úr bænum. Var hann að sjá sem gufustólpi mikill um sig er bar hátt yfir aust- urfjöllin. Nú mun Katla vera um 160 km. héðan og má af þessari fjarlægð ráða, að mökkurinn hafi á hæðina skift tugum kílómetra. Þegar sólin skein á hann var hann ekki ólíkur skýjabólstri, en við nánari athugun sást, að sterk og stöðug hreyfing var á upp á við, þótt lítið bæri á í svip vegna fjar- lægðarinnar. Pá er tók að skyggja kom í Ijós að allur stólpinn logaði í eldingum svo að segja stanzlaust. Oft voru mörg leiftur í einu og sýndist þeim fiestum slá inn í mökkinn og niður eftir honum ljómaði um alt loflið. Pessar raf- magnsbyltingar i loftinu höfðu mik- il áhrif á símasambandið austur og gerðu það ótrygt. Þó hélst það nokkurn veginn þar til Vík lokaði kl. 7. Fregnir austan frá gosstöðvun- unum eru ógreinilegar enn þá. í Vík og Vestmannaeyjum er sagt að sjógangur hafi orðið mikill og sjór hafi gengið á land. Héldu ýmsir hér að þetta stafaði af jarðskjálft- um á sjávarbotni, en þetta er venju- legt merki um jökulhlaup. Þau eru vön að koma af stað sjógangi sem verður vart við meðfram allri suð- urströnd landsins. Er auðvitað að nú hefur orðið mikið hlaup úr Mýrdalsjökli, sem endranær er Katla hefur gosið. Sú bygð, sem hættast er við skakkaföllum al jökulhlaup- inu, er að sögn kunnugra, Álfta- verið. Líkur eru til að öskufall verði, en hvar það kemur verst niðri er mest komið undir vind- stöðunni. Getur askan borist víða um land, og jafnvel til næstu landa. Árið 1625 barst aska úr Kötlugosi til Noregs. — Katla er eitt hið ó- kyrrasta og illvígasta eldfjall á þessu landi. Menn hafa sagnir af því að hún hafi gosið áður 12 sinnum síðan land bygðist. En líklegt er talið að hún hafi gosið oftar. Síðustu gosin voru árin 1755, 1823 og 1860. Standa gosln oft mánuðum og misserum saman og má því búast við að þetta gos sé ekki búið þótt það sé byrjað. í morgun náðist ekki lengi vel simasamband austur og ekki einu sinni við Vestmannaeyjar, hvort sem seinna kann að rætast úr því í dag. Vindur er austanstæður með allmiklu mistri sem mun stafa frá gosinu. — Öskufalls hefur ekki orðið vart það er fregnir ná til, en búast má við því á hverri stundu, og liklegt að þess verði strax vart hér með þessari vind- stöðu. Þeir sem áttu tal við Vík í Mýr- dal í gær, sögðu að menn væru jafnvel að hugsa um að flýja hús af ótta við ágang sjávar. En ekki hafði orðið af því síðast er fréttist. Hrað er í íréttum? Embættaveitingar. Sýslumannsembættið i Húna- vatnssýslu hefur nú verið veitt Boga Brynjólfssyni cand. jur. Jóni Ófeigssyni cand. mag. hefur verið veitt 5. kennaraembættið við Mentaskólann, er losnaði þegar Böðvar Kristjánsson sagði af sér. Tekjnskattnrinn. Skattanefndin hefur sent út eyðu- biöð handa mönnum að fylla út og gefa upp tekjur sínar fyrir liðið ár. Á þinginu síðastliðið ár var sarninn viðauki við tekjuskatts- Iögin og skattanefndum þá fyrir- skipað að áætla tekjur manna svo freklega er þær sæju sér fært hjá þeim, er ekki gæfu sjálfir upp tekj- ur sínar. Mega menn þá sjalfum sér um sér um kenna er eftir á kann að þykja of mikið á sig lagt. Algengur misskilningur er það að halda að menn megi draga frá tekjum sínum framfærslueyri fjöl- skyldu sinnar og heimilishald. Pað á að gefa upp tekjurnar eins og þær eru . Aðeins beinan árlegan kostnað má draga frá, en beinn kostnaður er sá kallaður sem fer beinlinis til þess að geta rekið at- vinnuna, svo sem mannahald við atvinnuna, húsaleigu fyrir vinnu- stofu eða skrifstofu sem annars væri ekki notað, innkaupsverð a efni til iðnreksturs o. fl. Aftur á móti á ekki að draga frU húsa- leigu fyrir ibúð sína, fólkshald á heimili o. s. frv., því það telst til venjulegs heimilis',a^s- Til þess að meiri líkur séu til að skattanefnd taki skýrsluna góða og gilda mun réttast að tilgreina tekjurnar nákvæmlega og sömu- leiðis fyrir hvað það fé er lagt út, sem menn vilja kalla beinan kostn- að. — Mannalát. 7. þ. m. dó að Hofdölum í Skaga- firði Magnús Vigfússon er lengi bjó í Garðakoti í Hjaltadal, faðir Björns símstjóra á Borðeyri. Merkur mað- ur og vel látinn. Nýdáinn er og merkisöldungur- inn Árni Jónsson fyrv. bóndi á Þverá í Hallárdal, faðir Ólafs heit- ins kaupm. á Stokkseyri, Björns hreppsstjóra á Ytriey og þeirra systkina og móðurbróðir Ólafs Friðrikssonar ritstjóra. Loft8keytin rugluðust all-mjög í gær af raf- magnsöldum frá eldgosinu. Skeytin frá París heyrðust alls ekki nema orð og orð á stangli, en ekkert samhengi. Má búast við að ilt verði að ná skeytum á meðan gosið stendur yfir. Líklegt má telja, að næstu loftskeytastöðvar erlendis bæði á landi og skipum verði varar við áhrif af gosinu og að samband milli herskipa geti orðið óhægra. Ingólfnr. Flóabáturinn Ingólfur hefur lengi legið í lamasessi af ketilbilun. — Nú hefur hann fengið viðgerð og fór hann reynzluferð út á flóa í gær, er sagt er að heppnast hafi vel. H.f. Hamar hafði annast við- gerðina. Kveikingatími á ljóskerum bifreiða og reiðhjóla í Rvík er kl. 7. Sambandsmálið í Dagsbrún. Á fundi félagsins Dagsbrúnar var sambandsmálið til umræðu í gærkvöldi. Að lokum var borin upp svohljóðandi ályktun írá Ágúst Jósefssyni og Ottó N. Þorlákssyni: Fundurinn lýsir því yfir, að hann aðhyllist lög þau um samband ís- lands og Danmerkur, sem síðasta alþingi samþykti, og skorar á reyk- vízka verkamenn að fjölme»na við atkvæðagreiðsluna 19, p. m. og greiða lögunum jákvæö* sitt. Tillagan var samþykt með öllum greiddum atkvæðunr. Öskuf all. Síðustu fregnir um eldgosið. Samband náðist við Vlk fyrir hádegið. Var þá sagt, að þar væri rigning mikil en lítið öskufall. í Rangárvafiasýslu er aftur mikið öskufall eftir síðari frétl, blautt og leðjukent, er svo dimt þar að varla er hægt að lesa á bók og syrtir að óðum. Er lygnt þar. — í gær- kvöldi hafði verið mjög stórteng- legt um að litast. Gosmökkurinn var eins og tré, er teygði greinarn- ar yfir himininn og logaði alt í eldingum. Prentsmiðjan Gutenberg.

x

Fréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir
https://timarit.is/publication/179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.