Geisli - 27.10.1917, Blaðsíða 1

Geisli - 27.10.1917, Blaðsíða 1
GEISLI 1. tbi. Laugardagion 27. okt. 1917. I. árg. Glaðr ok reifr skildi gumna hver uns sinn bíður bana. Betra er glöðum en glúpnandi at vera. Ti3 lesenda! Sumarið er úti og sælu og gleíistundir þess eru að baki okkur og aðeins eftir af þeim endurminningarnar í fylgsnum hug- ans. Nú er sumarið búið að kveðja okkur og veturinn er að heilsa okkur. Sólskins- blettirnir í náttúrunni fækka og smækka en nóttin nær meiri og meiri yfirráðum í náttúrunni, hitinn minkar en kuldinn vex og alt verður ömurlegra fyrir okkar ytri augum. Útiverustundirnar sem að sumr- inu eru okkur andleg og líkamleg nautn, fækka, og við verðum margan daginn fegnir að hreyfa okkur sem minst úr hús- um okkar. En þó að dimmi og kólni hið ytra í náttúrunni, þá rnegum við þó ekki láta dimma og kólna hið innra hjá oss. I andans fylgsnum þarf ávalt að vera ylur og birta og hugurinn ávalt að vera opinn til að taka á móti allri hollri lífs- >gleði og fjöri utan að, því iífsgleðin lengir líf vort, en angur og ólund gera það gleði- snautt og stytta það. Nú í skammdeginu og vetrarkuldanum vill „Geislinn" veita vermandi ylgeislum inn í hugi manna og híbýli, auka hlátur og gleði í húsum okkar.— „Geislinn" vill eiga erindi inn á hvert einasta heimili í bænum, og helst til hvers einstaklings. — Hann vill vera þannig úr garði gerður, að hann geti orðið sem flestum, bæði ungum <og gömlum til gleði, með öðrum orðum, hann vill verða svo fjölbreyttur, að sem flest- ir geti fundið þar eitthvað, sem þeir geti haft gaman af. Þó að „Geislinn" sé gamanblað, þá mun hann þó Ieitast við að láta sjást hjá sér við og við fróðleiksmola, sem þannig eru, að bæði sé skemtun og fróðleikur að. „Geisl- inn“ ætlar að flytja góða, þýdda skáld- sögu í hverju blaði, og innlendar og út- lendar smákýmnissögur, ennfremur verða í hverju blaði skrítlur eða fyndnissetningar og því um Iíkt, og grín í bundnu máli við og við. „Geislinn“ mun ekki veitast persónulega að nokkrum einstaklingi, en henda mun hann gaman að þvt, sem honum finst hlægi- legt eða heimskulegt i máli og menningu. Þrátt fyrir hið gifurlega háa verð á allri útgáfu blaða, verður verð „Geislans“ að- eins 12 aura blaðið, og er það hið lægsta, sem hugsanlegt er að blaðið beri sig með. Vonast „Geislinn" því eftir því að sér verði svo vel tekið og kaupendur svo margir, að ekki þurfi að hækka verðið eða blaðið að hætta að koma út. — „Geislinn“ vill verða svo vinsæll, að hann geti komið út um hverja helgi í vetur, ef hægt verður að fá pappír. Óskar hann svo að lesendur sínir megi eiga sem flestar gleði- og ánægju- stundir á komandi vetri.

x

Geisli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Geisli
https://timarit.is/publication/183

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.