Höfuðstaðurinn

Tölublað

Höfuðstaðurinn - 17.02.1917, Blaðsíða 4

Höfuðstaðurinn - 17.02.1917, Blaðsíða 4
HðfUÐSTAÐURINN Bæjarfrétiír. Frh. frá l.síðu. PœjarfuUtrúa þarf að kjósa bráðlega hér, einn eða tvo. Jón yfirráðherra hefir fengið lausn frá starfa þessum og iíklega fær sr, Magn ús Helgason einnig lausn, þar sem hann telur sig ekki geta gengt starfinu sökum veikinda. Sturla Jónsson hefir gert bænum tilboð um leigu á Elliðaánum og er það4300 kr. Bærinn hefir ekki enn tekið ákvörðun um hvort gengið væri að því. Samverjadans’eikurinn verður í kveld í Bárubúð. Eimskipaféi. Isiands fær leigða lóð á uppfyllingunm f höfninni til 90 ára. Hafði það farið fram á kaup, en fékk ekki. Oreiddu þeir atkv. gegn kaupun- um: Ágúst, Hannes, Jörundur, Kristján, Þorvarður og borgarstj. en með Benedikt, Ouðrún, Jón og Sigurður. Útsvörin hér í bœ eiga enn að hækka — um kr. 75000,oo. Ástraun. »Qóður, betri, bestur* má segja um sögurnar sem koma hér eftir Charles Oarvice, hver annari betri. Lesendur Höfuðstaðarins munu taka eftir því að hér birtast ætíð nýar skýrsl- ur um erlendu myntina. »B!að nokkurt* sem kepjDjr um þetta flytur gamlar skýrslur. Munið etiir SoBaJosv i dag ki. io ííja HöeDfnerspakkliúsi. Loftvog hertogans. Eins og sést á gangverðsskýrsl- unni hefir markið hœkkað lítils- háttar en sterlingspund og dollar lækkað. Finco. Gaslaust verður í kveld, rétt einu sinni. i Leikhúsið verður lokaf í kveld sökum gasleysis, þótt uppgengnir væru aðgöngumiðarnir. Læknaprófi hafa lokið systkinin Jón Ólafs son og Kristín Ólafsdóttir frá Hjarðarholti. Bæði með annari einkun hinni betri. Leiðrétting. Misprentast hefir því nær annað hvert orð í fyrra erindi undír fyr- irsögninni: »Lausavísur og kveð!ingar«, íb!að- í inu í gær. Átti að vera svona: Vöðiaðu aldrei v'zku þeirri í vísur þínar, að þér, skýru skáldi sjálfu, skiljist þær ei nema að hálfu. t Þá þarf að taka þaö frani um fyrirsögn síðari kveðlingsins, að afturhtuta hennar (lil Mogga?) hafa kvalarar Morgunblaðsins bætt við. Orri. A Yftrlýsing Bróðursonur minn, Samúel Egg- erlsson, hefir af óvitaskap borið á mig óhróður í dagblaðinu Höfuð- staðnum. Eg hygg mig vera bæði hrein- skilnari og sannorðari en þau heiðr- uöu hjón reynast nú. — Samúel fullyröir, að engin veikluð ung stúlka sé á sínu heimiii, sem lækn- ir þurfi að skoða, í yfirlýsing minni hélt eg mig fara með sann- leika, að Margrét dóttir Samúels og Mörtu væri stúlka en ekki piltur eg veit, að ekki þarf lærðan læknir að skera úr því; það vita svo margir. Hitt er full þörf, aö læknir Þórður á Kieppi sé sóttur, þegar blessuð stúlkan Margrét, dóttir þessara góö- kunnu hjóna, fær þessa brjálsemi, er eg og fleiri voru sjónarvottar að. Með vinsemd. Ritað á heimili minu, Laugaveg 36. Einar Jochumsson. Samkvæmt prentfrelsislögunum heimta eg, að þessi grein sé birt í Höfuðsíaðnum, E. J. Odýrar brúkaðar bœkur, innlend- ar og erlendar, af ýnnsu tagi, fást jafnan í Bókabúðinní i Lauga- veg 4. 102 103 1C4 bata þfnum, víl eg gefa þér heilræði. Þú skait snúa þér til líílæknis vors. — Jakob greifi leit spyrjandi á föðurbróð- ur sinn. — Jæja, svo þú veizt ekki hver hann er, sem á þann heiðurstitii ? Jú, það er hún frænka þín. Hún kann ráö við öllum sköpuðum hlutum, bæði á sál og líkama. Hún hefir marg- oft sparað Nilson og hestunum mínum það ómak, að þeytast tii Södetköbing, hún hefir sjálf ver- ið læknirinn og komiö aö góðu liði. — Cóða Georgina mírt, hér hefir þú sjúk- ling, sagði greifinn h'æjandi við konu sína, sem kom inn í sama bili. Mig furðar á þvf, að þú, sem ert svo framsýn, skulir ekki hafa tekið eítir því að hann er læknisþurii, hefir þú ekki tekið eftir þvf, hve fölur og magur hann er orðinn. Taktu hann að þér og þaö fyrsta sem þú þarft að gera, er að fyrirbjóöa hon- um að vera einmani úti í skógi hálfar næf- urnar, eins og Ekström hefir sagt mér aö hann hafi gerf, meöan eg var að heiman. Greifafiúin leit til Jakobs, hálf feimnislega og þegar hún sá roöann, sem alt í einu þaut út um kinnar hans, leitaði blóöið ósjálfrátt fram í andlit hennar. — Eg skal gera þaö sem í mfnu valdi stendur, svaraðí hún og hafði fuil vald yfir málrómi sínum, og fyrsta skilyrðið er að sjúk- lingurinn láti fyrirberast í sæng sinni um næt- ur, en hafist ekki við í skógum úti, bætti hún við og hló. — Eg gefst upp og geng á hönd náðugri frænku minni og iek aöhjúkrun hennar og ráöleggingum með þökkum og lofa að hlýðn- öllum fyrirskipunum hennar, svaraði Jakob greifi og hneigði sig djúpt. — Oóði Jakob greifi, komdu nú og hjálp- aðu mér, kallaði Sigríður litla, sem nú kom hlaupandi til þeirra, og mændi bænaraugum á Jakob greifa. Til bvers á eg aö hjálpa þér, svaraði hann, en skugga brá fyrir í svip greifans, frænda hans. — Já, það er til þess, að ná knettinum hans Axels, eg fleygði honum svo hátt upp í tréð, að eg get órrögulega náð honum aftur, Axel segir að eg geti ekki fleygt neitt langt og eg gat ekki að því gert, og nú vil eg endilega ná honum, svo Axel geti fengið hann. Jakob gteifi fylgdist með henni á brott. — Sigríður, sem er eftirlætisgoð Jakobs, getur ekki einusinni komið honum til aö brosa £r drengurinn veikur, eða er hann ástfang- inn ? Og í hverri þá ? Reyndu að grafast fyrir um það. Þú hefir takmarkalaust vald yfir honum, meira en nokkur maður annar. Eg er viss um að hann mundi gera fyrir þig hvað sem vera skyldi. Þú erl nú líka svo góð og ástrík við hann, miklu ástríkari en hans eigin móöir. * * * Það var nú afráðið, að Jakob greifi skyldi fara af Iandi burt sér til heilsubótar, Ferða- félagi hans skyldi vera K-m meiri háttar mað- ur, af góöum ættum. — Eg er viss um að haun hefir gott af því að ferðast erlendis ura títna, sagði greifinn við konu sína. Maður heyrir og sér margt á slíkum ferðura og lífsþekking manns og reynsla eykst drjúgum. Hann hefir og góðan feröa- félaga sem óhætt er að treysta til þess að fjörga snáða og koma honum í gott skap. Mér hefir fundist að Jakob væri að verða eitthvað svo slappur og sinnulítill, í seinni tíö, en eg vona að ferðalagið hristi þann drunga af honum.

x

Höfuðstaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Höfuðstaðurinn
https://timarit.is/publication/188

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.