Ingólfur

Tölublað

Ingólfur - 18.11.1906, Blaðsíða 1

Ingólfur - 18.11.1906, Blaðsíða 1
IV. ÁR. INGÓLFUR. Reykjavík, suunudaginn 18. nóv. 1906. 49. blað. Ávarp til íslendinga. E G N A þess hvernig stjórnmál Islands horfir nú við, höfum vér undirritaðir stjórnendur islenzkra blaða komið oss saman um að veita íylgi vort og styðja að því, að ákveðin verði staða íslands gagnvart Danmerkurríki svo sem hér segir: ísland skal vera frjálst sambandsland við Danmörk og skal með sambandslögum, er ís- land tekur óháðan þátt í, kveðið á um þaö, hver málefni íslands hljóta eftir ástæðum lands- ins að vera sameiginleg mál þess og ríkisins. í öllum öðrum málum skulu íslendingar vera einráðir með konungi um löggjöf sína og stjórn, og verða þau mál ekki borin upp fyrir kon- ung i ríkisráði Dana. Á þessum grundvelli viljum vér ganga aÖ nýjum lögum um réttarstöðu íslands, væntanlega með ráði fyrirhugaðrar millilandanefndar. En eins og vór álítum brýna nauðsyn þéss, að blöÖ landsins láti nú almenning hór á landi vita það, að vér viljum allir vinna saman að því, að búið verði með lögum um þannig lagaða róttarstöðu ís- lands, eins er það og sannfæring vor, að þeim málstað verði því greiðlegar sigurs auðið, þess eindregnar og almennar sem þjóð vor lætur í Ijós samhuga fylgi sitt við þessa meginstefnu, hvar sem kemur til hennar kasta. Vér erum á þeim tímamótum, að eining vor út á við í þessu máli er skilyrði velferðar vorrar og þjóðarsóma ; og fyrir því viljum vór skora á landsmenn að halda nú fast fram og án ágreinings þessum undirstöðuatriðum hinna væntanlegu nýju sambandslaga. Löggjafarfulltrúar landsins hafa komið fram sem einn maður erlendis í þessu máli. Blöð ís- lands og opinberar raddir almennings þurfa og eiga ab koma fram á sama hátt, og vór treystum því, að þjóðin muni öll láta á sér finna, að hun vilji taka í sama streng með hverjum þeim hætti er henni veitist færi á að lýsa yfir skoðun sinni. Reykjavík, Bessastöðum og Akureyri 12. nóvember 1906. Benedikt Sveinsson Björn Jónsson Einar Hjörleifsson ritstj. Ingólfs, ritstj, ísafoldar. ritstj. Fjallkonunnar. Hannes Þorsteinsson Sigurður Hjörleifsson Skúli Thoroddsen ritstj. Þjóðólfs. ritstj. Norðurlands. ritstj. Þjóðviljans. * * Ritnefnd Lögréttu er saniþykk ofanrituðu ávarpi, með þeirri athugasemd, að henni virðist ekki ástæða til þess, „að gera nú þegar samtök um að halda að þjóðinni einni ákveðinni breytingu á stjórnarskránni, svo sem er afnám ríkisráðsákvæðis- ins,“ en vonar að geta sýnt í verki samvinnufúsleik sinn, einnig þá er kemur til breytinga á stjórnarskránnt" — Þessu samsinn- ir alveg ritnefnd Norðra á Akureyri. Ekki er enn kunnugt um blöð í öðrum fjórðungum, þótt einnig megi vænta fylgis þeirra flestra eða allra.

x

Ingólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ingólfur
https://timarit.is/publication/189

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.