Alþýðublaðið - 18.08.1963, Blaðsíða 1
i. ágúst 1963 — 175. tbl.
ISIFN7K \TIM KA KIORIH
"MISSINTERNATIONAL
HÉR sést GuSrún Bjarnadr‘t-
ir, nýkrýnd Miss Interna ional,
í hópi þeirra, sem næstar hs; ni
komust í keppninni. hæ - eru,
taldar frá vinstri: Xenia loppi-
er, Austurríki nr. 3, Diana V/e ;t-
bury, Bretlandi, nr. 2. Joyse
Bryan, Bandaríkinnnm nr. 4, og
Yoo-Mi Shoi, Kóreu, rr. 5.
(Myndin var símsend ti! J Ibvíu
blaSsins frá United Press lnt-
ernational).
Guðrún Bjarnadóttir frá Ytri-
Njarðvík var í fyrrinóá|t kjörin
Miss International og krýnd sem
slík vi3 hátíölega athöfn í Muni-
cipal Audítoríum á Langasandi’
í Kaliforníu. Gufþún er dóttir
Bjarna Einarssonar skipasmiðs í
Ytri-Njarðvík og konu hans, Sig
ríðar Stefánsdóttur.
Önnur f keppninni varð ungfrú
Bretland, þriðja ungfrú Austur-
ríki, fjórða ungfrú Bandaríkin og
fimmta ungfrú Kórea.
Það kom fram í frétt frá AP
í gaer, að Guðrún hefði í fyrst.u
ekki áttað sig á því, er tilkynnt
var, að hún hefði hlotið titilinn
Miss International og hefur þar
sjálfsagt komið til, að Guðrún
átti alls ekki von á því.
46 stúlkur hófu keppnina, en
í lokakeppninni voru þær orðnar
14 talsins.
Við hringdum til Guðrúnar síð
degis í gær, kl. tuttugu mínútur
fyrir tvö. Þá var Guðrún að vakna
á hóteli sínu vestur á Langasandi
enda klukkan þar aðeins rúmlega
hálf sjö.
Guðrún sagði, að keppnin hefði
farið fram í mjög stórum sam-
komusal, Municipal Auditorium.
Stúlkurn^r í úrslitakeppninni
komu fram í þjóðbúningumr sund-
bolum og síðum kjóluin. Síðast
komu þær fram í kjólunum, og
skömmu seinna voru úrslitin gerð
kunn. Guðrún kvaðst hafa verið
í svo miklu uppnámi, a*> í fyrstu
hefði hún ekki gert sér grein
fyrir, að hún hefði verið kjðrin.
Hún sagði, að allri keppninni
hefði verið sjónvarpað og mikið
hefðí verið um að vera. Hún var
rétt nývöknuð er við hringdum
en í gær áttu stúlkurnar, að aka
um borgina í opnum bifreiðum,
og Guðrún átti að velja sér fatn
að, en það var einn af vinning-
unum.
Hún kvaðst hafa talað við for-
eldra sína í fyrrakvöld nð keppn-
inni lokinni, en í fyrrinótt bjó
hún á hóteli á Langasandi. Hún
flytur síða til frú Swanson, en hjá
henni hafa flestar íslenzku feg-
urðardrottningarnar búici. Guðrún
kvaðst koma heim eftir viku, en
á sunnudaginn verður lialdinn
íslendingafagnaður henni til
heiðurs.
Guðrún sagði að sér l eföi ekki
dottið í hug, að hún yrði þessa
heiðurs aðnjótandi, en hún gæti
ekki annað en verið glöð ýfir úr
slitunurtl. Síðan bað hún að heilsa
öllum vinum og kunningjum hér
heims.
Ffugdagnrinn verður í dag, ef
veður leyfir. Reykjavíkurflugvöll
ur verður opnaður kl. 1 fyrir gesti
en sýningaratriði hefjast kl. 2.
Verður margt til skemmtunar, en
milli 30-40 flugvélar munu taka
þátt í sýningunum.
Nokkrar vélar frá vainailiðinu
koma yfir flugvöllinn, og þ;í m.a.
fjórar þotur, sem muiíu fljúga
lágt yfir á miklum hraðé. Þá kem
ur einnig stór ratsjárflugvéi, som
varnarliðið notar til ískön iunar-
ílugs.
Það atriði, sem ugglausí mun
vekja hvað mesta athygli, er flug
á lítilli Gyro-þyrlu, en henni flýg
ur ungúr flugumferðarsl jófsem
hefur smíðað vélina í fiístundum
sínum. í þyrlunni er eagin vél,
og verður að draga ha ia á loit
ef vindur er ekki nægur.
Þá munu nokkrar eirkaflugvél
ar fljúga í hóp yfir Rej kjrvíkur-
flugvelli, og ein þeirra svni ■ ýms-
ar listir. Fleira verður þarna til
skemmtunar, og er ekki að efa,
að Reykvíkingar munu I jölmenna
út á Reykjavíkurflugvöll í dag.