Alþýðublaðið - 18.08.1963, Blaðsíða 14

Alþýðublaðið - 18.08.1963, Blaðsíða 14
FLUG Loftleiðir h.f. EiríV-ur rauði er væntanlegur frá New York kl. 09.00. Snorri Sturluson er væntanlegur frá New York kl. 11.00 Snorri þor finnsson er væntanlegur frá Luxemborg kl. 12.00 i SK»» I Eiinslcipaféíag íslands b.f. Bakkafoss fer frá Antwerpen 19.8 til Rvíkur. Brúarfoss fór frá Dublin 9.8 til New York. Dcttifoss fór frá Hamborg 14.8, væntanlegur til Rvíkur á ytri höfnina um kl. 17.30 á morgun 18.8. Fjallfoss fór frá Rvík 16.8 til Fáskrúðsfjarðar, Norðfjarðar, Seyðisfjarðar, Siglufjarðar, Ólafsfjarðar og Raufarhafnar og þaðan til Sví þjóðar. Goðafoss fór frá New York 13.8 til Rvíkur. Gullfoss fór frá Khöfn 17.8 til Leith og Rvíkur. Lagarfoss fer frá Rvík kl. 22.00 annað kvöld til Vm- eyja og þaðan austur og norður um land til Rvíkur. Mánafoss fer frá Khöfn 19.8 til Rvíkur. Reykjafoss fer frá Hamborg 19.8 til Hull og Rvíkur. Sel- foss fer frá Hafnarfirði á morg un 18.8 til Patreksfjarðar og Vmeyja og þaðan til Norrköp- ing, Rostock og Hamborgar. Tröllafoss kom til Rvíkur 9.8 frá Leith. Tungufoss fer frá Stettin 20.8 til Rvíkur. Skipaútgerð ríkisins Hekla fór frá Rvík í gær til Norðurlanda. Esja fór frá Rvík í géerkvöldi austur um land í 1 hringferð. Herjólfur er í Rvík. Þyrill lestar á Raufarhöfn og Seyðisfirði til Weaste, Engl- antíi. Skjaldbreið fer frá Rvík á morgun til Breiðafjarðar- og Vestfjarðahafna. Herðubreið fer frá Rvík á morgun vest.ur um land í hringferð. Skipadeild S.Í.S. Hvassafell er í Leningrad. Arnarfell losar á Vestfjörðum. Jökulfell fer væntanlega 21. þ.m. frá Camden til Reyðar- fjgrðar. Dísarfell lestar síld á Raufarhöfn. Litlafell kemur í kvöld til Rvíkur frá Austfjörð- um. Helgafell var út af Lissa- bon 12. þ.m. á leið til Löding- en og Hammerfest. Hamrafell fer 21. þ.m. frá Palermo til Batumi. Stapafell fer væntaan- lega í dag frá Wheast áleiðis til Rvíkur. rT^Wf,i Jöklar h.f. Drangajökull er á leið til Camd en og Gloucester. Langjökull er i Rvík. Vatnajökull lestar á Vestfjörðum, er væntanlegur til Rvíkur á mánudag. Hafskip h.f. Laxá er í Manchester. Rangá er í Lake Venern. Hjúltrunarfélag íslands lieldur fund í Þjóðleikhúskjallaranum m>ðvikuidaginn 21. ágúst kl. 20.30. Fundarefnb húsnæðis- málin og. önnur mál — Stjórnin H.f. Eimskipafélag íslands hef- ur tilkynnt, að hinn 31. þ.m. muni Thule Ship Agency Nnc., í New York, hætta sem aðal- umboðsmenn félagsins í Banda ríkjúnum, og að fyrirtækið A.L. Burbank & Co., Inc., 120 Wall Street, New York 5, taki við umboði félagsins í Banda- ríkjunum sem aðalumboðs- menn. Einnig verður sú breyt- ing gerð, að tveir íslendingar munu framvegis starfa við um- boðið í New York, þeir Har- ald Faaberg fulltrúi sem vrið hefur deildarstjóri í Farþega- deild Eimskipafélagsins í Reykjavík og Magnús Péturs- son sem um alllangt skeið hef- ur verið starfsmaður á skrif- síofum Eimskipafélagsins í Revkiavík. Reykjavík 15. ágúst 1963. l SOFN 1 Borgarbókasafn Reykjavíkur sími 12308. Aðalsafn Þingholts- stræti 29A. Útlánsdeildin er op- in 2-10 alla virka daga nema laugardaga 1-4. Lesstofan er op- in alla virka daga kl. 10-10 nema laugardaga kl. 10-4. Úti- búið Hólmgarði 34 opið 5-7 alla daga nema laugardaga. Útibúið Hofsvallagötu 16 opið 5.30-7.30 alla virka daga nema laugar daga. Útibúið við Sólheima 27 opið 4-7 alla virka daga nema laugardaga. Listasafn Einars Jónssonar er opið daglega frá kl. 1.30-3.30. Landsbókasafnið. Lestrarsalur er opinn alla- virka daga kl. 10-12, 13-19 og 20-22 nema laugardaga kl. 10-12 og 13-19. Útlán alla virka daga kl. 13-15. Bókasafn Dagsbrúnar er opið föstudaga kl. 8-10 e.h., laugar- daga kl. 4-7 e.h. Tæknibókasafn IMSÍ er opið alla virka daga nema laugar- daga kl. 13-19. Þjóðminjasafnið er opið dag- lega frá kl. 1.30-4. Listasafn ríkisins er opið kl. 1.30-4. Ásgrímssafn Bergstaðastræti 74 er opið alla daga í júlí og ágúst nema laugardaga frá kl. 1.30-4. Árbæjarsafnið er opið á hverj- um degi kl. 2-6 nema mánudaga, á sunnudögum frá kl. 2-7. Veit- ingar í Dillonshúsi á sama tíma | LÆKNAR Slysavarðstofan í Heilsuvernd- arstöðinni er opin allan sólar- hrngin. — Næturlæknir kl. 18.00-08.00. Sími 15030. Neyðarvaktin sími 11510 hvern virkan dag nema laugardaga. SYNDID 200 METRANA 14 18. ágúst 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ ÞESSI bókni ók dráttarvel sinni al'Ia leið til Buckingliani- halla og freistaði þar inngöngu því meðferðis hafði hann bréf sem hann vildi afhenda drottn ingunni. Hér sjáum við hvar yfirmaður lögregluþjónanna við hallarhliðið tekur við bréf- inu af bónda og gaf sá honum loforð um aðþ því skyldi af- hent einkarit^ra drottningar- innar. Bóndi er einu sinni bú- inn að snúa sér til Mamil'lans mcð sama málef^i og hann sendi nú drottningunni lín|u um. Hann er reiður vegna þess að hann seldi hluta af la ;'i sínu bæjarfélagi einu, sem síð an seldi landið byggingarfélagi einu með geysilegum hagiuði. 'Ilann á nú í vændum að verða borinn út úr húsi sínu, þar eð íbúarnir í nýbyggðu húsun rn í grennd við hann hafa harð- lega mótmæl't því að hann hefði svín og önnur húsdýr í íbúðahverfinu. SUÐURLANDABUAR TIL GRÆNLANDS FERÐIR Flugfélags íslands til Grænlands liafa verið fullskip- aðar síðan þær hófust og hafa þátttakendur að langmestu leyti verið útlendingar. Til Kulusuk hefur verið farið fjór- um sinnum í sumar og kom fyrir í eitt skiptið, að senda þurfti þrjár flugvélar þangað sama daginn, einn Skymaster og tvær Dakotavélar. Til Nars- arsuak hafa verið farnar tvær ferðir í sumar. Skyldi farið þangað þriðju ferðina í gær- morgun, en þá var vitlaust veð- ur þar, svo að henni var frest- þar til í dag, af þessum sökum seinkar mánudagsferðinni þang að einnig um sólarhring. Það er síðasta ferðin til Narsarsuak í sumar. Grænlandsferöinnar, einkurú Kulusuk-ferðirnar, þykja hafa tekizt sérlega vel og farþegar verið mjög ánægðir. í ferðinni til Narsarsuak í dag eru ein- göngu fólk frá Ítalíu og Þýzka- Iandi. Flugfélag íslands hefur í sumar lagt sérstaka áherzlu á að auglýsa íslandsferðir í suð- urlöndum og má segja, að allt hafi verið yfirfullt af suður- landabúum, mest ítölura, hér að undanförnu. Enn er einu liópur ítala væntanlegur hing- að í byrjun september. Þáttur í þessari kynningu Flugfélagsins í suðurlöndum er boð tveggja blaðamanna frá Seda Publicitá í Milano, sem ferðazt hafa mikið ».m hér undanfarið. Heita blaðamenn- irnir Annetta Mazzolini og A- damo Sebastiani og skrifa þau fyrir velmetin timarit í heima- landi sínu. Öll sæti í vélum Flugfélags- ins á utanlandsleiðum eru upp- pöntuð næstu vikur. i.Ðfyog kísumðsin BRÁÐABIRGÐALÖGIN Framhald af 16. siðu hagsmunum almennings. Beri því brýna nauðsyn til að gera ráð- stafanir til að koma í veg fyrir slíka þróun mála. Fyrir því eru hér mcð sett bráðabirgðalög, samkvæmt 28. gr. stjórnarskrárinnar, á þessa leið: 1. gr. Hæstiréttur tilnefnir þrjá menn í gerðardóm, sem ákveði kjör verk fræðinga, sem starfa hjá öðrum aðilum en ríkinu. Dómurinn skal einnig setja gjaldskrá fyrir verk- fræðistörf, sem unnin eru í á- kvæðisvinnu eða tímavinnu. Hæstiréttur kveður á um, hver hinna þriggja gerðardómsmanna skuli vera formaður dómsins. Gerðardómurinn setur sér starfs reglur. Hann aflar sér af sjálfs- dáðum nauðsynlegra gagna og er rétt að krefjast skýrslna, munn- legra og skriflegra, af einstökum mönnum og embættismönnum. 2. gr. Gerðardómurinn skal við á- kvöx-ðun mánaðarlauna, vinnutíma og launa fyrir yfirvinnu, hafa hli'ð- sjón af því, hver séu kjör verk- fræðinga og annaira sambæri- legra starfsmanna hjá ríkinu, sam- kvæmt launakerfi því, er gildir frá 1. júlí 1963. Við setningu gjaldslcrár fyrir verkl'ræðistörf, unnin í ákvæðis- vinnu og tímavinnu, skal höfð hlið- sjón af gjaldskrá Verkfræðinga- félags íslands, frá 19. apríl 1955 og reglum, er gilt hafa um fram- kvæmd hennar. 3. gr. Verkföll í því skyni að knýja fram skipan kjaramála, sem lög þessi taka til, eru óheimil, þar á meðal framhald verkfalla Stéttar- félags verkfræðinga, sem nú eru háð. 4. gr. Ákvarðanii- gerðardóms sam- kvæmt 1. gr. skulu gilda frá gildis- tökudegi laga þessara. 5. gr. Kostnaður við gerðardóminn, þar á meðal laun gerðardóms- manna eftir ákvörðun í'áðherra, greiðist úr ríkissjóði. 6. gr. Mcð brot gegn lögum þessum skal farið að hætti opinbeiTa mála, og varða brot sektum. 7. gr. Úög þessi öðlast þegar gildi. Jafnframt eru úr gildi felld lög nr. 46, 13. apríl 1963, um hámarks- þóknun fyrir verkfræðistörf. Gjört að Besststöðum, 17. ágúst 1963. Ásgeir Ásgeirsson (sign.) Ingólfur Jónsson (sign.)

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.