Lögrétta

Tölublað

Lögrétta - 12.06.1918, Blaðsíða 3

Lögrétta - 12.06.1918, Blaðsíða 3
LÖGRJETTA 99 í þeirri von, að Alþingi veiti styrk þann, sem skólinn hefur nú fariö fram á, til þess aö ekki þurfi aö liækka meögjöf heimavistar og hús- stjórnarstúlkna, þá auglýsist hjer meö, aö Kvennaskólinn ætlar aö starfa næstkomandi vetur meö sama fyrirkonmlagi og næstliöiö skólaár. Meðgjöf með heimavistar og hússtjórnarstúlkum var 65 kr. á mán- uði. Skólagjald 25 kr. fyrir bekkjanemendur, en 15 kr. fyrir hússtjórn- arnemendur. Stúlkur þær, er ætia aö sækja skólann að vetri, geri svo vel aö senda skrifleg,ar umsóknir sínar sem fyrst til undirritaðrar forstöðukonu skól- ans og taka jafnframt fram, hverrar undirbúningskenslu þær hafi notið. Vottorð frá kennara eöa fræðslunefnd er æskilegt að fylgi mnsókn- unum . Inntökuskilyrði sömu og undanfarin ár. Umsóknarfrestur til 15 ágúst n k. Skólinn starfar frá 1. okt. til 14. mai. Reykjavík, 10. júni 1915. Ingibjörg' H. Bjarnason. Vatnsaflið vinamr dag1 og uótt. Eilnm iðnað i laudiim. r Bændur! Látið nú Al&foss vinna fyrir yður. — Hann vinnur fljótt og vel, — Sendið ull til umboðs- manna vorra, sem eru þessir: Árni Böövarsson, Akranesi. Eyjólfur Bjarnason, Isafirði. Guðmundur Hannesson. Keflavík. Hermann S. Jónsson, Flatey. Verslun Pjeturs A. Ólafssonar, Patreksfirði. Jón E. Waage, Seyðisfirði. Halldór Halldórsson, Blönduósi. Jósafat Hjaltalín, Stykkishólmi. Ingimundur Steingrímsson, Djúpavogi. Jón Proppé, Ólafsvík. Jóhannes L. Sandholm.Sandi. Kristín Friðriksdóttir, Vestmannaeyjum. Magnús Ólafsson, Borgarnesi. Mag-nús Friðriksson, Staðafelli. Nathanael Mosesson, Þingeyri. ’ Ólafur Hermannsson, Eskifirði. ‘ . Verslun Pjeturs A. Ólafssonar, Grundarfirði. P. Stangeland, Fáskrúðsfirði. Þorsteinn Þorsteinsson, Vík, Mýrdal. Jóhann Jónsson, Bíldudal. Jón Hallgrímsson, Bakka, Arnarfirði. Firma Kjartan & Jón, Hnífsdal. Kaupfjelagið Ingólfur, Stokkseyri. Pjetur V. Snæland, Hafnarfirði. Carl Bender, Borgarfirði eystra. Kaupfjelagið Hekla, Eyrarbakka. Aðalafgreiðslan: Laugavegi 30, Reykjavík. Kvennaskólinn á Blönduósi. Þeir nemendur, sem ætla að sækja um inngöngu á skólann næsta vet- ur, snúi sjer til formanns skólastjórnarinnar, Árna Þorkelssonar á Geita- skarði, fyrir i. ágúst 1918. Svar til hlutleysingja. Háttvirti herra hlutleysingi! Jeg sje mjer til mikillar ánægju, að þjer hafið lesið vandlega ritgerð mína um „utanríkisverslun Þjóð- verja“ og lagt dóm á hana í Lögr. 29. f. m. Jeg ætla mjei ekki að and- mæla þessum ritdómi yðar, því það mundi færa okkur of langt frá efn- inu og frá því hlutleysismáli,, er við báðir kostum kapps um að mæla. En jeg vil gjarnan kannast við, að mjer veitti erfitt að rökstyðja allar skoð- anir mínar í ekki lengri ritgerö. Skal jeg því nú drepa á örfá atriði: 1) Þjóðernistölur íbúanna í Elsass- 'Lothringen eru teknar eftir opinber- um þýskum manntalslistum frá árinu 1910. Þá var skorað á alla íbúana að segja til um móðurmál sitt. Frakkar gátu þess raunar, að íbúarnir tnundu írekar telja þýsku en frönsku móður- mál sitt vegna hinna þýsku áhrifa. En Þjóðverjar fullyrtu, að allir Frakka- sinnar teldu fram frönsku, þar eð fult væri þar af frönskum blöðutn, flugritum og fjelögum. Ekki er mjer kunnugt um, á hverju hag- skýrslur Frakka um Elsass-Lothrin- gen eftir 1870 eru bygðar. 2) Það er rjett, að þýskar eignir, er gerðar voru upptækar, voru seld- ar á opinberum uppboðutn og er and- virði þeirra geymt handa fyrri eig- endunum. En víst er það, að þýsk blöð hafa þráfaldlega hermt frá því, að söluverð þessara eigna hafi staö- ið langt undir verðmæti þeirra. Enda er þetta eðlilegt, að ekki væri kaup- andi á reiðum höndum fyrir hús- eignir, stórar verksmiðjur eða víð- áttumiklar ekrur í Afríku. 3) Je& þess, að þýskur útflutn- ingur á iðnaðarvörum ætti nokkurn þátt í óvild þeirri til Þjóðverja, er borið hefur á í hlutlausum löndum. Bygði jeg þessa skoðun tnína á ræki- legum lestri amerískra blaða og vís- mdalegra tímarita, aðallega fyrir stríðið og í byrjun þess. Var þess þá getiö, að atnerískur vinnulýður v.æri sviftur vinnu sinni og daglegu brauði vegna ógrynna þeirra af þýskum varningi, er seldur væri Ameriku, en þó var útflutningurinn frá Atne- ríku til Þyskalands tveimur sinmtm og hálfu meiri en innflutningurinn þaðan! — Jeg álít ekki nauðsynlegt, herra hlutleysingi, að ræða við yður um aðrar orsakir óvildarinnar gegn Þjóð- verjum og um upptök ófriðarins, þar eð jeg er þeirrar skoðunar, að þetta komi ekki við athugasemdum yðar við greinarkorn mitt. G. Funk. Sambandsmálið. Um horfur þess í Danmörku hafa þær fregnir komið, að þingnefnd Dana, sem um það fjallar, hafi hald- iö fund síðastl. föstudag og annan í fyrra dag. Nú í dag er sagt, að álits- skjal nefndarinnar muni verða birt og lagt fyrir Ríkisþingið. Má þá bráðlega vænta frégna um innihald þess. Aðalatriðin úr ræðu Jóns Magn- ússonar forsætisráðherra, sem stóð í næstsiðasta tbl. Lögr., hafa þegar veriö birt í „Politiken". Zahle forsætisráðherra er lasinn og dvelur sem stendur á heilsuhæli, en Edw. Brandes fjárm.ráðherra gegn- ír á meðan forsætisráðherrastörfun- lim. Við atkv.geiðslu, sem nýlega fór fram í Fólksþinginu, fjekk Zahle- stjórnin 70 atkv. fylgi en 62 voru á móti. Frjettir. Tíðin hefur veriö köld um tírna a'ð undanförnu hjer sunnanlands, ros- ar á útsunnan og oft regn. Skipaferðir. Af Gullfossi hefur trjetst, að nú væri verið að ferma hann í New York, en útfl.leyfi þó að eins fengið fyrir 500 tonnum í hann, eða hálfum farmi. — Frede- ricia er nýl. komin að vestan með olíufarm. — Lagarfoss fer áleiðis hjeðan vestur um haf á morg- un. — Botnía er sögð eiga að fara frá Khöfn 14. þ. m. — Sterling fór hjeöan suður um land í strandferð í dag. — Kolaskip er nýkomið til iandsstjórnarinnar með um 1500 tonn. — Til „Kol og salt“ er nýkomið segl- skip með saltfarm og annað til Hafn- arfjarðar, til Aug. Flygenring. Thor Jensen framkvæmdarstjóri. 5. þ. m. voru 40 ár liðin frá því, er hann kom hingað fyrst til landsins, þá 14 ára gamall og fjelaus, og varð hann þá búðarpiltur á Borðeyri. Fór svo til Borgarness og varð þar ung- ur verslunarstjóri. Svo kaupmaður á Akranesi, þar næst í Hafnarfirði og loks hjer í Reykjavík, og síðan jafn- framt útgerðarmaður. Nú er hann mestur athafnamaður í fjesýslumál- „ tnálum og framkvæmdttm- hjer á landi, enda án efa orðinn stórauðug- ur maður. En margsýnt hefur hann þáö, aö það er ekki auðsafnið, sem hugur hans hvílir við, heldur fratn- kvæmdirnar og starfið, og er það gott, er afl auðsins lendir í höndum slíkra manna. Jón Jacobson landsbókavörður er á gönguför austur um sveitir, fór hjeðan laugard.-morgun kl. 7, kom að Kolviðarhóli kl. 2. fór jtaðan kl. 4 og kom að Kotströnd kl. 8 utn kvöldiö. Næsta dag fór hann að Laugardælum, en síðan austur í Rangárvallasýslu, og mun hann nú væntanlegur heim aftur einhvern af næstu’ dögum. Guðmundur Friðjónsson skáld kom hingað með „Lagarfossi" um daginn og ætlar að dvelja hjer um tima. Hjónaband. 8. þ. m. giftust hjer í bænum Sveinn Jónsson trjesmiður og frk. Elin Magnúsdóttir snikkara Árnasonar. Jarðarför Bjárna Þórðarsonar frá Reykhólum fór hjer fram í gærdag, frá fríkirkjunni. Álftafellir. Þaö er sagt eftir bónda úr Borgarfirði, að mjög mikið muni hafa fallið af álftum í frostunum síðastl. vetur. Telst honum svo til, að ekki sje nú í suinar á þeim stöðv- um, sem hann Jiekkir til, meir en þriðjungur þess álftafjölda, sem ver- ið hefur þar undanfarin sumur. Túnaskemdir. Víða um land hefur tún kalið í vor til mikilla skemda, og má það undarlegt' heita, þar sem þetta vor hefur þó verið óvenjulega hlýtt yfirleitt. Á Austfjörðum er sagf, að mikið kveði að {tessu, en þó ekki í Fljótsdalshjeraöi, að minsta kosti ekki ofan fil, segja menn, sent þaðan koma. Austanfjalls er sagt, að sum- staðar sje alt að því þriðjungur úr hverju túni grákalinn, og sama er sagt úr Norðurlandi víða. Prestaköll. 5. j). m. var sjera Ólafur Briem skipaður prestur á Stóranúpi frá fardögutn að telja. — í Sauða- nessprestakalli hefur kosning ekki orðiö lögmæt. Atkv. voru talin hjer 6. þ. m. og skiftust milli þriggja um- sækjenda. Fjekk sjera Þórður Odd- geirsson 58, sjera Jósef Jónsson 35 og sjera Hermann Hjartarson 35. En 33 atkv. voru ógild. — Staðarhóls- þing í Dalaprófastsdæmi eru auglýst laus. Heimatekjur eru eftirgjald eftir prestssetrið Litlamúla, kr. 50.00, og prestsmata kr. 366.87, samtals kr. 416.87. Erfiðleikauppbót kr. 150.00. Veitist frá fardögum 1918. Umsókn- arfrestur til 15. júlí. Frá Austfjörðum kom fjöldi fólks með Sterlitig um daginn, Jiar á tneðal frú Jósefína, kona Jóh. Jóhannesson- ar bæjarfógeta, og dætur þeirra. al- kotnnar hingað, St. Th. Jónsson, kon- súll. Tr. Wathne framkv.stj. og Tr. Guðmundsson kaupni. frá Seyðisf., St. Guðmundsson framkv.stj., Guðm. Jónsson kaupm. og Margrjet Jóns- dóttir kaupm. frá Fáskrúðsfirði, Ól. Jónsson læknir frá Presthólum, Ól. Sveinsson prentari, úr ferðalagi um Austurland, o. s. frv. Stórstúkuþing Góðtemplara. Það var nú haldið hjer í bænum og hófst 8. þ. m. með guðsþjónustu í dóm- kirkjunni og prjedikaði Magnús Jóns- son dócent. Birtist ræða hans í næsta tölublaði. Framkv.nefnd stórstúkunnar varöll endurkosin og eru í henni: Pjetur Halldórsson bóksali, stórtemplar, Þorv. Þorvarðsson prentsmiðjustj., Otto N. Þorláksson, Jón Árnason prentari, Sig Eiríksson, Jóh. Ögm. oddsson kaupmaður, Þórður Bjarna- son kaupmaður, Einar H. Kvaran tithöf. og Guðm. Guðmundsson skáld. — Á síðastl. ári höfðu nokkrir fje- lagar Reglunnar gefið stórstúkunni 6000 kr. og meðan á þinginu stóð barst henni 1100 kr. gjöf frá ýmsum stúkum og einstökum mönnum, og munu þessar gjafir aðallega hafa komið til aö sýna alþingi, að stór- stúkunni yrði eigi fjárvantj þótt það neitaði henni í fyrra urn þann litla styrk, sem stjórnin hafði ætlað henni ? fjárlögunum og langar umræður risu út af í þinginu. — í fyrra kvöld hjeít stórstúkan fjölment samsæti í Tetnplarahúsinu. Voru margar ræð- ur haldnar þar, og eitinig skemt með söng. Þar var staddur Niclasen, Lög- þingsmaður frá Færeyjum og einn af helstu forkólfum bindindisstarf- seminnar þar, og skýrði hann frá ástæðum bindindismálsins heima hjá sjer, og kvað sjer lítast vel á árang- urinn af bannlögunum hjer. — Með- al fulltrúa á þinginu utan af landi voru þeir Helgi Sveinsson bankastj. og sjera Guðnt. Guömundsson frá ísafirði og sjera Jes A. Gíslason frá Vestmannaeyjum. — Stórstúkuþing- init var slitið í gærkvökl. Hjónabönd. 18. f. m. giftust i Hafnarfirði Þorgils Ingvarssonbanka- ritari og f*. Ágústína Vedholm frá ísafirði. — Nýlega voru gefin saman hjer í bænum af prófessor Sig. Sí- vertsen stud. theol. Ingimar Jónsson, skjalavörður Alþingis, og frk. Elin- borg Lárusdóttir frá Villingaholti í Skagafirði. — 1. þ. m. giftust hjer í bænum Loftur Guðmundsson verk- smiðjueigandi. og frk. StefaníaGríms- dóttir. - Mannalát. Dáinn er 25. f. m. á Siglufirði frú Ingibjörg Jafetsdóttir kona sjera Tómasar Bjarnarsonar áður prests á Barði í Fljótum. — 20. f. m. andaðist á ísafirði frú Ing- veldur Jónasdóttir Gíslasonar Skóg- strendingaskálds, ekkja Jóns bónda Jóhannssonar í Stóra-Langadal, d. 1897, en systir Chr. Jónassonar áður kaupmanns á Akureyri. — 5. þ. m. andaðist hjer í bænum frú Guðrún ^órðardóttir, kona Lárusar Pálsson- ar læknis, og fer jarðarför hennar fram á morgun. Nýju skáldsögurnar, „Sambýli" og „Bessi gamli“, eru nú komnar i bóka- verslanirnar. „Sambýli“ kostar kr. 5.50, en „Bessi gamli“ kr. 4.00. — Þessar skáldsögur eru si’ðasta ný- ungin í ísl. bókmentaheiminum og mun mikið verða um þær talað. Alþingi. Fyrirspurnum svarað. Atvinnumálaráðherrann svaraði 28. f. m. fyrirspurn Einars Arnórssonar c. fl. um verðhækkunir:a á landssjóðs- sykrinum síðastliðið haust, og for- sætisráðherra svaraði 30. f. m. fyrir- spurn Sigurðar Stefánssonar um þingkvaðningu, og er svar hans prentað í siðasta blaði. Eigi þóttu fyrirspyrjendunum svör ráðherranna fullnægjandi, en engin ályktun var gerð út af hvorugri fyrirspurninni. Lög frá Alþingi. 9. Um viðauka við lög nr. 6, 8. febr. 1917, um heimild handa lands- stjórninni til ráðstafana til trygging- ar aðflutningum til landsins. — 1. gr Við 1. gr. laga nr. 6, 8. febr. 1917, bætist: Enn fremur veitist ráðaneyti íslands heimild til Jiess, að taka eignarnámi til útflutnings is- ltnskar afurðir hjá kaupmönnum, fjelögum, framleröendutn eða öðrum, gegn fullu endurgjaldi, að frádregnu lögboðnu útflutningsgjaldi Endur- gjald skal ákveða eftir mati þriggja óvilhallra manna; skal einn þeirra kvaddur af Landsyfirrjettinum, ann- ar af bæjarfógetanum í Reykjavík og þriðji af stjórnarráðinu. Þeir kjósa sjer oddvita. Matsgerðir þeirra eru fulnaðarmatsgerðir. Eignarnemi þarf ekki að taka hið numda strax í sírí- ar vörslur, að matsgerð lokinni, en greiða skal hann eiganda eða umráða- rnanni hins numda hæfilegan geymslukostnað eftir mati mats- manna. Að öðru leyti fer um fram- kvæmd eignarnámsins eins og greinir 1 lögum nr 61, 14. nóv. 1917, um íramkvæmd eignarnáms. — 2. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. 10. Um bráðabirgðaútfl.gjald. — 1 gr. Meðan norðurálfuófriðurinn stendur og ráðaneyti íslands fer með verslun innlendra vörutegunda, flein eða færri, eða sjer um útflutning þeirra, er því heimilt að leggja með reglugerð eða reglugerðum útflutn- ingsgjald, auk þess útflutningsgjalds, sem nú er lögboðið, á vörutegundir þessar, eftir Jjví sem nauðsynlegt er, til þess að landssjóður bíði ekki skaða af afskiftum sínum af þeim. Gjaldi þessu skal hagað þannig, að ekki komi á neina vörutegund hærra gjald en sem svarar til þeirrar fjár- hæðar, sem landssjóður verður að leggja fram vegna verslunar með eða umsjónar á þeirri tegund. Vörurnar, atidvirði þeirra og vátryggingarupp- hæð, er að veði fyrir gjaldinu. I reglugerð má kveða á um innheimtu gjaldsins, hver skuli greiða þa ekt- ir fyrir brot á henni og meðferð mála út af slíkum brotum. — 2. gr. Lög- þessi öölast Jiegar gildi. Þingsályktunartillögur. 32. Um skipun launamálanefndar. Flm. Pj. J., Þór. J. og Matth. Ól., að skipuð verði 7 manna nefnd til að íhuga erindi þau frá ýmsum embætt- ismönnum og starfsmönnum lands- íns um launabætur, sem komið hafa til alþingis. 33. Um styrkauka til tveggja skálda. Flm. Bjarni frá Vogi, Jör. Brynj. og Þorst. J. — Alþingi álykt- ar að heimila stjórninni að greiða Guðm. skáldi Guðmundssyni og Guð- mundi skáldi Magnússyni 1200 — tólf hundruð — krónur hvorum, til viðbótar við skáldstyrk þann, sem þeim hefur verið veittur þetta ár. 34. Utn landsverslunina. Frá bjarg- ráðanefnd n. d. — Alþingi ályktar að skora á landsstjórnina: 1. Að koma á þeirri meginreglu i land- sversluninni, að kaupmenn og kaup- fjelög hafi á hendi afhending og út- sölu á vörum hennar. 2. Að sjá land- inu fyrir nægilegum lánum til rekstrar landsverslunarinnar og til annara Jiarfa landsins, með sem hag- kvæmustum vaxtakjörum og næg- um greiðslufresti. 35. Um rannsókn símleiða. Flm. Hák. Krist. — Neðri deild Alþingis ályktar að skora á stjórnina að hlut- ast til um, að rannsakað verði á yfir- standandi sumri, hvar heppilegast muni að leggja síma frá Patreksfirði til Saurbæjar í Rauðasandshreppi og Breiðuvikur í sama hreppi. 36. Um uppgjöf á eftirstöðvum af láni úr landsjóði til Fiskifjelags ís- lands til steinolíukaupa. Flm.: Matth. Ól. — Alþingi ályktar að heimila landsstjórninni að veita Fiskifjelagi íslands uppgjöf á kr.2988,60 eftir- stöðvum af lánj, sem landsstjórnin veitti fjelaginu árið 1915 til steinolíu- kaupa. Feld frumvörp. 5. Um skipamiðla. — Neðri deilcl afgr. það frumv. með svohlji. rök- studdri dagskrá : Deildin væntir þess, að stjórnin athugi, hvort eigi sje þörf á lagaákvæðum um verslunar- og siglingamiðla. og ef hún telur slíka þörf fyrir hendi, að> liún leggi þá fyrir næsta reglulegt Alþingi frv, til laga í þá átt. í von uin þetta tekur ceildin fyrir næsta mál á dagskrá.

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.