Alþýðublaðið - 23.08.1963, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 23.08.1963, Blaðsíða 1
fld ekið á tún Hafnarfirði SVO MIKÍL síld hefur borizt til Hafnarfjarðar síð'ustu dagra, að síldarverksmiðja Lýsis og; Mjöls liefur ckki haft undan. Birgða- geymslur verksmiðjunnar, sem verið er að koma upp á aðalat- hafnasvæði hennar, eru ekki til- búnar, enda hefur aldrei fyrr bor Aldrei eins fámennt ENGINN binna 17 manna, sem voru náðaðir af tilefni Skálholtshátíðarinnar liafa verið' sendir aftur á Litla Hraun. Svo vitað sé, hefur aðeins einn þelrra gert al- varlega brotlegur, en það' var pilturinn, sem ýtti bíln- um og fleygði tækjunum í sjóinn við höfnina á Bolunga \úk. Mennirnir fóru í ýmsar átt ir, og eru margir þeirra komnir í vinnu. Hafa ekki borist neinar alvarlegar kvartanir þeirra vegna, og vona menn að xeir kunni að meta hið nýfengna frelsi. Það hefur aldrei verið eins fámennt á Litla Hrauni og nú. Eru þar aðeins 12 fangar, en klefámir eru fyr- ir 29. Þó búast fangaverðir við einhverri viðbót upp úr næstu mánaðarmótum, en margir eiga óúttekna refsi- dóma. izt srld til Hafnarfjarðar í ágúst, að því er aðalverkstjórinn tjáði blaðinu í gær. Hefur því verið horf ið að því ráði að' aka sfldinni upp á opiö svæði fyrir ofan Jófríðar- staði, þar sem hún verður geymd, þar til hægt verður að vinna hana. Skortur á vinnuafli kemur að verulegu leyti í veg fyrir, að verit> smiðjan, sem afkastar rúmum 4000 málum á sólarhring, þegar bezt gengur, hafa undan nú. Nú standa hins vegar vonir til þess, að fleira fólk fáist og unnt verði að vinna á vöktum. En þá kemur svo hitt til, að hætt er við, að vandkvæði verði á því að geyma mjölið í verk smiðjunni og kann að þurfa að aka því burtu. NOKKUR síldveiði var fyrir austan land í fyrrinótt á svipuöum slóðum og undanfarið. En þcgar leið á daginn í gær dofnaði nokk uð yfir veiðinni, en þó voru menn vongóðir um að hún glæddist með kvöldinu. í fyrradag lóðaði Ægir á nokkrar torfur út af Gletting og fengu 3 bátar þar sæmileg köst. Annars hefur síldin aðallega ver- ið nokkru sunnar. Ægir leitaði í gær fyrir Austur landi og lóðaði á einhverja síld, en ekki var vitað hversu mikið það var, né hvernig ganga myndi að ná henni. Nokkuð hefur fækkað um báta fyrir austan vegna veiðanna fyrir sunnan, og vitað er um nokkra báta, sem snúið hafa austur aftur eftir að hafa verið syðra. Leitar- skipið Pétur Thorsteinsson hefur leitað fyrir Norðurlandi en sú leit hefur ekki borið neinn árangur. jórnarmyn UMRÆÐUM NORSKA SIÓRÞINGSINS ÓLOKIÐ Einar Gerhardsen í ræðustól. OSLO, (NTB). Foringi þingflokks Hægri manna, John Lyng, mun ekki hafa ráðherralista sinn tilbúinn fyrr en að nokkrum tíma liðnum, að því er skýrt var frá í gær. Samtímis umræðunum í Stór- þinginu um Kings Bay-málið í gær, héldu helztu foringjar stjórn- arandstöðuflokkanna fjögurra við- ræðufundi um stjórnarmyndun. Ekki er talið, að umræðum Stór- þingsins ljúki fyrr en einhvern ♦tíma í dag. Blöð í Svíþjóð, sem fjölyrða mjög um hæfni borgaraflokkanna til þess að starfa saman í rikis- stjórn og hugsanleg óhrif stjórnar skiptanna á bæjar- og sveita- stjórnarkosningarnar í haust, telja að borgaraleg stjórn £ Noregi verði ekki langlíf. Þegar kvöldfundur hófst i Stór- þinginu í gær tilkynnti Nils Lang helle þingforseti, að nauðsynlegt reyndist að halda umræðum á- fram í dag. Hann kvaðst ekki geta sagt um, hvenær um daginn væri liægt að ganga til atkvæða um vaníraustið á stjórnina. Hann sagði, að mestallur dag- urinn mundi fara í umræðurnar. Enn voru 30 þingmenn á mælenda skrá, þegar kvöldfundurinn hófst. Verkamannaflokkurinn ræddi á- standið á fundi í þingflokknum um hádegi og ástæða er til að ætla, að fulltrúar stjómarflokksins muni nota allan þann ræðntíma, sem þeir fá til umráða. Mjög er bollalagt um liina nýju stjórn, sem John Lyng reynir-að mynda, og skipun ráðherranna. — Talið er, að hver flokkur fái þrjá ráðherra. Talið er, að Erling Wikborg úr Kristilega flokknum verði utanrík- isráðherra og Peter Koren úr sama flokki dómsmálaráðherra. Af öðrum líklegum ráðherraefn- um eru m. a. nefndir prófessor Ole Myrvoll, Vinstri flokknum (dómsmálaráðherra), Olaf Kortn- er lektor, Vinstri flokknum (kirkju og menntamálaráðherra), Bjarne Lyngstad, V. (sveitastjórnarmála- ráðherra), K. Willoch, Hægri (verzlunarmálaráðherra), Onar Onarheim, Hægri (fiskiinálaráð- Framh. ú 15. síit* SIGURÐUR ENN Á FERÐINN! .• HEFUR í FRAMMI SVIK OG PR Enn hefnr hann verið á ferðinni ®g að venju haft í frammi svik og pretti. Fyrir nokkru var hann á Sauðárkróki og sveik þar út nokkur armbandsúr. Þá mun hann eitthvað hafa verið á ferli hér í Reykjavík, og er ekki laust við að lögregluna langi að liafa tal af honum. Maður þessi heitir Sigurður Arnbjörnsson, og hefur mikið kom ið við sögu lögreglunnar á und- anförnum árum. Fyrir nokkrum mánuðum komst nafn hans í há- mæli, en þá liafði hann gengið í hús hér í Reykjavík, kynnt sig sem sjómann og boðiS ýmsan varning til sölu, en kaupendur urðu auðvitað að greiða fyrir- fram. Nokkrir létu blekkjast, en Sigurður var handtekinn skömmu síðar. Hann mun þá hafa veriö nokk- urn tíma á Litla-Hrauni, en var ekki fyrr kominn út en hann hóf sína fyrri iðju. Fór hann þá m.a. í verzlun, kvaðst vera stýrimaður Framh. á 5. síðu

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.