Alþýðublaðið - 31.08.1963, Blaðsíða 1
44. árg. — Laugardagur 31. ágúst 1963 — 186. tbl.
Karjalainen
segir af sér
HLUTURINN 70 Þ ÚSUND
HUSAVIK, 20. ágúst.
ÁGÆTIS ufsaveiffi hefur
verið hér í sumar. Hafa dekk-
bátar stundað ufsaveiði með
nót héðan frá Húsavík með
mjög góðum árangri. Meðal
þeirra er bátur frá Grímsey
með tvo nótabáta og snurpu-
nót. Á þessum báti er 11
manna áhöfn. Hluturinn á
þessum báti mun vera eitthvað
í kring um 70 þúsund krónur
nú í tvo mánuði.
Atvinna hefur verið hér
miklu meiri en svo, að vinnu-
afl hafi getað mætt atvinnu-
þörfinni. Byggingafram-
kvæmdir eru geysimiklar og
fjöldinn allur af ibúðarhúsum
í smíðum. Auk þess er verið
að byggja ráðhús, féiagsheim-
ili og verið er að stækka
frystihúsið hér mjög verulega.
Sumarið hefur verið heid-
ur kalt, en samt mun heyfeng-
ur vera betri en í fyrra. —
Fyrrisláttur var góður, en há-
arspretta iéieg.
Þeir sem stunda hér korn-
rækt kvarta undan kulda, og
vona þó að kornuppskeran
verði sæmileg, ef ekkl komi
mikil næturfrost á næstunai.
Sláturtíð mun hefjast hér
12. til 14. september. Dilkar
virðast vera rýrir eftir suinar-
ið.
Eitt síldarskip hefur kallað
hingað inn í dag og var með
14 tii 15 hundruð tunnur síld-
ar í salt, en' ekki er enn ráðið
hvort það kemur hingað. E.
Helsingfors, 30. ágúst.
NTB-FNB.
Frosætisráðherra Finna,
Karjalainen, afhenti í dag Urho
Kekkonen, forscta, lausarnar-
beiðni fyrir sig og ráðuneyti sitt.
Forsetinn féllst á beiðnina, en
kvaðst harma hana. Hann hvatti
stjórn Karjalainens að sitja á-
fram, unz stjórn héfur verið
mynduð að nýju.
. Stjórnarkreppan mun líklega
standa lengi. A3 því er góðar
heimildir hermdu í dag, er lausn
ekki sýnileg fyrr en að minnsta
kosti viku liðinni.
Líða mim nokkur tími, unz
hinir ýmsu stjqrnmálaflokkar
hefja viðræður um myndun nýrr
ar ríkisstjórnar. Stjórnmálamenn
úr öllum flokkum verða önnum
kafnir næstu daga.
Það verður því fjármálaráð-
herrann í stjórn Karjalainens
sem mun leggja fram fjárlaga-
frumvarpið fyrir næsta ár, þegar
þingið kemur saman til haust-
funda í byrjun næstu viku. Frá-
farandi stjórn mun einnig sjá
um afgreiðslu annarra mála, sem
í gangi eru.
Þessi síðasta stjórnarkreppa
Framh. á 5. síðu
Aldrei betri
veiöihorfur
MIKIL síld virtist vera á miðun
um sl. sólarhring 60-70 mílur
au;ÍVnGl'Saustur (frá Raufarhöfn.
Síldiu var mjög stygg. Vitað var
um afla 27 skipa með' samtals
25.700 mál og tunnur. Þá höfðu
14 skip tilkynnt afla sinn síldar-
leitinni á Seyðisfirði, samtals
8500 mál og tunnur. Sú síld veidd
ist út af Fæti. Varð síldaraflinn
sl. sólarhring þannig alls 34.200
niiál og tunnur. Veður á miðunum
rar gott.
Eftirtalin skip fengu 500 mál
og tunnur og þar yfir:
Víðir SU 1200, Þorlákur IS 800,
Sunnutindur 1100, Halkion 1000,
Skarðsvík 900, Stígandi 1200,
Stapafell 1000, Akraborg 1600,
Sigurpáll 700, Heiðrún 500, Húni
II. 800, Seley 700, Ljósafell 1000,
Gullver 1200, Mummi Flateyri
1500, Hafrún ÍS 1500, Freyja GK
1600, Björgúlfur 1600, Dofri 700,
Rifsnes 1400, Jón Guðmundsson
650, Snæfell 1800, Hannes Haf-
stein 1600, Einar Hálfdáns 700, j
Gissur hvíti 1200, Framnes 500,
Draupnir 800, Gullfaxi 1200, Rán
Framh. á 5. síðu
ÆTLUÐU FIMM AÐ TAKA
STÚLKUNA MED VALDI
FIMM ungir menn fóru í
fyrrinótt með 15 ára gamla
stúlku inn í Hljómskálagarð,
og reyndi einn þeirra að
nauðga henni meðan binir
héldu fótum hennar og Iiönd-
um. Lækuisrannsókn leiddi í
Ijós, að honum hafði ekki tekizt
að koma vilja sínum fram. —
Fjórir piltanna náðust í gær,
en sá fimmti var farinn út á
land.
Atburður þessi átti sár stað
milli kl. 12-1 í fjrrrinott. Pilt-
arnir höfðu hitt stúlkuna í bæn-
um, en hún var á leið helm til
sín frá vinkonu. Hún þekkti
tvo þeirra og fékk sér göngu-
ferð með hópnum. Lá leiðin
suður í Hljómskálagarð. Þeg-
ar þangað kom, réðust þeir á
stúlkuna, klæddu hana úr pils-
inu og buxunum, og síðan
reyndu fjórir þeirra að halda
henni.
Einn þeirra hélt fyrir munn
hennar til að koma í veg fyrir
að hún hrópaði á hjálp. Stúlk-
an barðist um, og tókst að bíta
í hendi þess er hélt fyrir munn
hennar. Gat hún þá hrópað, og
stukku þá drengimir í burtu.
Nokkrir menn voi-u þarna að
tína ánamaðka skammt frá. —
Heyrðu þeir hrópið og fóru á
staðinn. Fundu þeir stúlkuna,
en piltarnir fimm voru á braut.
Komu þeir henni til lögregl-
urmar.
Eins og fyrr segir, náði lög-
reglan í fjóra þeirra í dag, og
voru þeir yfirheyrðir. Þeir báru
að það hefði verið ákveðið, að
þeir fengju allir vilja sínum
framgengt, og í þeim tilgangi
hefðu þeir farið með stúlkuna
suður í Hljómskálagarð. Þessir
fjórir eru fæddir árið 1940,
1944 og tveir 1948.
í FYRRADAG fór flugvél
frá Landhelsisgæzlxxnni í ís-
könnnnarflug. Kannað var
svæðið norð-vestur af land-
inn allt til Græniands. Nokk
uð sást af ísreki, þó ekki
meira en vænta má ó þess-
nm árstíma.
Washington, 30. ágúst.
NTB-AFP.
Beina fjarritalínan milli
Washington og Moskva er
nú í lagi og taka má hana í
xtotkun. Bandariska land-
varnaráðuneytið tiikynnti
þetta í kvöld.
Klyíjahestwinn
Sigurjón Ólafsson, mynd-
hcggvari hefur nú lokið við
að gcra „Klyfjahestinn,"
sem Reykjavíkurborg hefur
keypt af honum. Aðeins er
eftir að steypa listaverkið í
eir, en það verður gert er-
leudis. „Kiyfjahesturinn” á
að standa á Illemmtorgi, þar
sem vatnsþróin var. Myndin
er tekin í vinnustofu Sigur-
jóns. Vinnustofunai scm er
braggi, verður að rífa, til a8
ná hestinum út. Á myudinni
sést listamaðurinn hjá
„Klyfjahesíinum,” en hann
hefur sett spýtur umhverfis
hvcrfis hann til að verja
hestinn fyrir áfaili, er þakið
verður rofið af bragganum.
SJÁ VlDTAl, Á BAKSÍÐU.
WWWMWMMWWMMMMWtlW